Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FÉLAGSSTARF Morgunblaðið/Sverrir FÉLAGSHEIMILI IR-inga við Skógarsel í Mjódd, sem skóflustunga var tekin að 14. júlí 1992. Með tilkomu þess skapast alveg nýir möguleikar fyrir félagsstarfið. CLAUSEN-bræður voru meðal af- reksmanna ÍR sem viðstaddir voru vígslu ÍR-heimilisins. Þorbergur Halldórsson formaður félagsins tek- ur hér á móti Hauki. GESTIR skoðuðu sögusýningu í íþróttasalnum. Meðal þeirra var for- maður KR, Kristinn Jónsson (t.h.). Bylting fyrir félagsstarf IR * IR-ingar vígðu nýtt félagsheimili á afmælisdegi félagsins, 11. mars. Við sárna tækifæri kusu þeir þijá fyrrverandi afreks- og forystumenn sem heiðursfélaga * œ-ingar vlgðu nýtt félagsheimili við Skógarsel í Mjódd á laugar- dag, en þann dag var félagið stofnað fyrir 88 árum. Þorbergur Halldórs- son formaður ÍR sagði, að með tilkomu hússins ætti sér stað bylting í allri félagsað- stöðu. Margt eldri og yngri afreksmanna félagsins var viðstatt athöfnina ásamt fjölda velunnara ÍR. ÍR-heimilið er 1.271 fermetri að stærð á þremur hæðum. í kjallara er íþróttasalur, sem að sögn Þorsteins Þorsteinssonar ritara bygginganefndar var ekki ráðgerður í upp- hafi en varð til vegna dýptar niður á klöpp. Á fyrstu hæð eru búningsklefar og böð sem nýtast vegna íþróttastarfsemi á félags- svæðinu. Á efstu hæð eru samkomu- og fundarsalir svo og vinnuherbergi fyrir íþróttadeildir ÍR sem eru átta. Irma Sjöfn Óskarsdóttir aðstoðarprestur í Seljasókn blessaði ÍR-heimilið og þá starf- semi sem þar mun fram fara. Sagði hún að þar ræktuðu menn sálina og andann og vitnaði I því sambandi í heilaga ritningu þar sem segir: Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfíða smiðlmir til ónýtis. Ef Drottinn vemdar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis. Reynir Sigurðsson fulltrúi formannafé- lags IR greip niður í frásögn Haraldar Jo- hannessen formanns ÍR í aldarfjórðungs minningarriti félagsins frá 1932. Sagði Reynir, að nú væri draumsýn Haraldar um að félagið ætti stórt og vandað íþróttahús á sjöunda áratugnum, með öllum þeim þægindum sem slíku húsi þyrftu að fylgja, að hluta til orðin að veruleika. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri var viðstödd vígsluathöfn ÍR-hússins og flutti kveðjur frá borgarstjórn Reykjavík- ur. Við athöfnina var lýst kjöri þriggja heið- ursfélaga ÍR en þann sóma hlutu Þorsteinn Bernharðsson fyrrverandi formaður IR, Finnbjörn Þorvaldsson afreksmaður í frjáls- íþróttum og Einar Ólafsson leikmaður og þjálfari í körfuknattleik í áratugi. í tilefni húsvígslunnar var efnt til mynda- sýningar í íþróttasal IR-heimilisins. Þar hafði verið komið upp um tvöþúsund ljós- myndum sem vörpuðu ljósi á ýmsa atburði í íþrótta-, félags- og framkvæmdastarfi félagsins. KJÖRI þriggja heiðursfélaga ÍR var lýst á afmælisdegi félagsins (f.v.): Þorsteinn Bernharðsson fyrrverandi formaður, Einar Ólafsson og Finn- björn Þorvaldsson. vlöSLUHÁTIÐ j| HEIMIUÐ við skogarsel 11. MARS 1995 ÞORBERGUR Halldórsson formaður ÍR setur vígsluhátíðina í nýja félags- heimilinu við Skógarsel í Mjódd. RÚNAR Steindórsson skíðamaður (t.v.), fimleikakonurnar Laufey Einarsdótt- ir og Halidóra Guðmundsdóttir og Guðmundur Þórarinsson voru við vígsluna. FJÖLMENNI var við vígslu ÍR-heimilisins í Mjódd laugardaginn 11. mars en þann dag fyrir 88 árum var ÍR stofnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.