Morgunblaðið - 15.03.1995, Page 26

Morgunblaðið - 15.03.1995, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÓLGA í RÍKJUM MÚSLIMA ARÁS HEITTRÚAÐRA múslima í Tyrklandi á hófsama alawita, sem þykja hliðhollir Vesturlöndum, minnir okkur Vesturlandabúa enn á þær hættur, sem þjóðfélags- ólga og uppgangur ofsatrúarmanna í ríkjum múslima getur haft í för með sér. Morðunum hafa fylgt mannskæðar götu- óeirðir í stórborgum Tyrklands, Istanbúl og Ankara, og ekki sér fyrir endann á átökunum. Trúarofstækismenn hafa á undanförnum misserum seilzt til aukinna áhrifa í mörgum löndum íslam, jafnvel í þeim ríkjum, sem á dögum kalda stríðsins þóttu hliðholl Vestur- löndum. í þeim flokki eru til að mynda Tyrkland og Pakist- an, en um þróunina þar var fjallað í fréttaskýringu í Morgun- blaðinu síðastliðinn sunnudag. Þar kemur fram að andúð á vestrænum áhrifum og gildis- mati hefur farið vaxandi í þessum ríkjum og eftir lok kalda stríðsins þykir mörgum sem Vesturlönd hafi reynzt svikulir bandamenn. Efnahagsástand er slæmt og stjórnvöldum, sem hafa verið höll undir Vesturlönd, er kennt um. Trúarofstækið á greiða leið að þeim fjölda fólks, sem býr við sárafátækt. Takmörkuð nútímavæðing í efnahagslífi ríkja múslima hefur slitið marga upp úr hefðbundnu um- hverfi og fólk hefur flykkzt til borganna. Þrátt fyrir lýðræði í orði hefur almenningur lítil áhrif á stjórnmál og mannrétt- indabrot eru tíð. Raunar hefur lýðræðisþróun í sumum múslimaríkjum, til dæmis í Alsír, leitt til uppgangs öfga- flokka ofsatrúarmanna, ek-ki sízt vegna þess að efnahags- og lýðræðisþróun hafa ekki haldizt í hendur. Það er gömul saga og ný að þeir, sem geta lítils vænzt í þessu jarðlífi, eru ginnkeyptir fyrir fyrirheitum um sæluna á næsta tilverustigi. Örbirgðin annars vegar og hins vegar hernaðarhyggja íslam og kennisetningar um heilagt stríð eru sprengifim blanda. Vesturlönd verða að bregðast við vandanum með einhverj- um hætti og átta sig á nýjum kringumstæðum. Leiðin til að vingast við hófsamari ríki múslima er ekki lengur að leggja þeim til vopn, heldur að ýta undir lýðræðis- og efna- hagsumbætur. Áhrifaríkasta leiðin er sennilega að stuðla að myndun öflugrar millistéttar, sem hefur hag af friðsam- legum tengslum við Vesturlönd og aðhyllist gildi lýðræðis og markaðshagkerfis. Þetta hefur hins vegar í för með sér ákveðinn fórnarkostn- að fyrir Vesturlönd. Annars vegar kostar bein efnahagsað- stoð sitt. Hins vegar kann það að hafa neikvæð áhrif fyrir verndaða atvinnuvegi Vesturlanda til skemmri tíma litið að ýta undir fríverzlun við ríki utan hins vestræna heims, en verzlunarfrelsi er þó forsenda þess að efnahagslíf þeirra geti náð sér á strik. Skilningur á nauðsyn þessa hefur sem betur fer aukizt á Vesturlöndum, eins og til dæmis samningur Evrópusam- bandsins um tollabandalag við Tyrki sýnir fram á. Áherzla ESB á þróunaraðstoð við ríki múslima í Norður-Afríku'.er af sama toga. Vonandi skilar þessi stefna árangri. Vestur- landabúar mega þó ekki gleyma að vera viðbúnir hinu versta og haga vörnum sínum eftir því. SÓMISUÐURNESJA- MANNA FORRÁÐAMENN hins nýja sameinaða sveitarfélags á Suðurnesjum eiga að sjá sóma sinn í því, að hafna málleysunni Suðurnesbær. Þessi hugmynd að nafngift hins nýja sveitarfélags, ber höfundum ekki fagurt vitni um mál- vitund og ræktarsemi við íslenska tungu. Vilji Suðurnesjamenn á annað borð kenna sig við Suður- nesin, þá verða þeir að minnsta kosti að sætta sig eignar- fall fleirtölu, á nafni sveitarfélagsins, þannig að það falli að beygingarreglum íslenskrar tungu. Þannig héti hið sam- einaða sveitarfélag Suðurnesjabær. Það er síst ofmælt hjá Þórhalli Vilmundarsyni, formanni örnefnanefndar, hér í Morgunblaðinu í gær, þegar hann segir að nafnið Suðurnesbær sé ótækt með öllu og ófært að kjósa um það. Þau þrjú sveitarfélög sem nú leita sameiginlegs nafns, Keflavík, Njarðvík og Hafnir, hafa mun einfaldari valkost og nærtækari, en að láta kjósa á milli þeirra tveggja orð- skrípa sem í boði eru, Suðurnesbær og Reykjanesbær, en hann er sá að velja sér í sameiningu það nafn, sem hefur tekið sér bólfestu á heimslandakortinu og er hvarvetna þekkt, en það er auðvitað Keflavík. FORSÆTISRÁÐHERRA NÝFUNDNALAIMDS UIV HEGÐUN EVR ERFYRIRL Taka spænska togarans Estai á Miklabanka nýtur mikils stuðnings íbúa Nýfundnalands. Guðmundur Sv. Hermannsson er í St. John’s og fylgist með málinu þar. ÞAÐ ER kalt á Nýfundna- landi þessa dagana en íbú- unum þar er heitt í hamsi og þeir fagna heilshugar aðgerðum Kanadastjórnar gegn spænska frystitogaranum Estai. Og forsætisráðherra Nýfundnalands og Labradorfylkis, Clyde Wells, er ekki í vafa um að aðgerðirnar standist alþjóðalög og reglur. „Eg held að allur heimurinn muni snúast gegn Evrópusambandinu þegar það kemur í ljós hvað Evr- ópubúar hafa hagað sér fyrirlitlega með því að leyfa, og raunar hvetja Spánveija og Portúgali til að þurrka upp fiskistofnana við Nýfundnaland. Heimsbyggðin hefur áður viður- kennt aðgerðir af þeim toga sem Kanadamenn hafa nú gripið til, þeg- ar fólk hefur framið ofbeldisverk gegn mannkyninu eða náttúruauð- lind sem mannkynið er háð. Bretar gáfu fordæmi fyrir 200 árum þegar þeir sendu herskip til Afríku til að stöðva þrælaviðskipti. Aðrar þjóðir sögðu þá að Bretar hefðu farið út fyrir alþjóðalög en getur nokkur deilt nú um réttmæti þessara að- gerða? Ég veit að það er munur á fólki og fiski en grundvallaratriðin eru þau sömu: Hegðun Evrópumanna gagn- vart fiskimiðunum við Nýfundnaland er fyrirlitleg og þjóðir verða að taka af skarið gagnvart henni. Fiskveiðistjórnun okkar Kanada- manna hefur ekki alltaf verið upp á það besta en á síðustu árum höfum við reynt að taka á því vandamáli og takmarkað veiðar. Evrópusam- bandið hefur hins vegar gersamlega horft fram hjá þessu og Kanada hefur ekki tekið mið af aðferðum Evrópumanna sem hafa reynt að veiða hvern fisk sem finnst í sjónum og falið sig á bak við falsanir og lygar,“ sagði Wells. Hann sagðist vona að aðgerðir KanadaStjórnar flýti þeim degi þegar þjóðir heimsins, vonandi undir merki Sameinuðu þjóðanna, geri samning um stjómun á veiðum úr flökkustofn- um. „Það eru vísbendingar um að þetta geti náðst fram en við getum ekki beðið eftir því hér því grálúðu- stofninn gæti þurrkast út á meðan,“ sagði Wells. Veiðar á ný Kanada og Evrópusambandið deila hart eftir að kanadísk varðskip tóku spænska togarann Estai á Miklabanka fyrir utan 200 mílna fískveiðilögsögu Kanada. Mikli banki var öldum saman talinn til gjöfulustu fiskimiða í heimi en nú eru flestir fiskistofnar nánast horfnir vegna ofveiði, og það er ekki síst rakið til veiða Spánveija og Portúgala utan landhelgi Kanada. Mikli banki nær á tveimur stöðum út fyrir 200 mílna lögsögu Kanada, á svokölluðu 1 Nefi og Hala. Á ákveðnum tíma ársins leitar fiskurinn út fyrir landhelgina að mörkum landgrunnsins og þar hefur rányrkjan átt sér stað. Grálúðan er nánast eina botnfisk- tegundin sem nú er veiðanleg í Mikla SKIPVERJAR spænska togarans Estai, sem kana bíða í forsal lúxushótels í St. John’s. Búist er EMMA Bonino, sem fer með fiskveiðimál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði í gær ESB reiðubúið til samningavið- ræðna við kanadisk sljórnvöld, létu þau spænska togarann lausan. banka og hófu spænskir og portúg- alskir togarar að veiða hana fyrir 5 árum á svæðinu eftir að þorskstofn- inn á svæðinu hrundi. Á síðasta ári veiddu skip Evrópusambandsins um 40 þúsund tonn af grálúðu, sem var um 20 þúsund tonnum minna en árið 1993 þrátt fyrir óbreytta sókn. Því var talin hætta á ofveiði og fyr- ir viku ákvað Kanadastjórn að banna grálúðuveiðar utan kanadísku lög- sögunnar í tvo mánuði á grundvelli laga um vemdun og viðhald fiski- stofna sem sett vora í Kanada í fyrra. Norðvestur-Atlantshafsfiskveiði- nefndin, NAFO, hafði áður ákveðið að grálúðukvóti Evrópusambandsins á þessu ári yrði 3.400 tonn af 27 þúsund tonna heildarkvóta á svæð- inu. Evrópusambandið mótmælti og gerði kröfu um 18.600 tonna kvóta og þá lýstu Kanadamenn yfir veiði- banni. Eftir töku Estai fóru aðrir spænskir togarar af svæðinu og hættu veiðum en síðdegis í gær bár- ust fréttir af því að 17 togarar hefðu hafið veiðar á ný, samkvæmt skipun útgerðanna á Spáni, þrátt fyrir hót- anir Kanadastjórnar að taka fleiri togara. Engin niðurstaða í dómsmáli Ekki fékkst niðurstaða í gær í máli Estai og skipstjóra hans, Enrique Davila Gonsalez. Stutt rétt- arhald var í málinu í gær í héraðs- dómi St. John’s en þar var málinu frestað til 20. apríl. Gonsalez og Estai hafa verið ákærð fyrir veiðar sem bijóti í bága við lög um friðun og stjómun fiski- stofna. Hámarksrefsing samkvæmt lögunum er upptaka skipsins og sekt sem jafngildir nærri 3,5 milljónum króna. Skipstjórinn er fijáls ferða sinna þangað til gegn tryggingu en veij-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.