Morgunblaðið - 15.03.1995, Síða 27
h
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 27
I GRÁLÚÐUDEILUNA
:ópubúa
ITLEG
Reuter
tdískt varðskip færði til hafnar á Nýfundnalandi,
við að áhöfnin fari til Spánar síðar í vikunni.
andi Spánverjanna gerði ekki kröfu
um að skipið yrði leyst úr haldi á
þeirri forsendu að rétturinn hafi ekki
lögsögu yfir skipinu. Málið yrði að
leysast gegnum diplómatískar við-
ræður.
Sendiherra Spánar í Kanada, Jose
Louis Pardos, sagði á fréttamanna-
fundi í St. John’s í gær að Evrópu-
sambandið myndi ekki verða til við-
ræðu um samninga við Kanada um
málið fyrr en skipið yrði leyst úr
haldi án skilyrða.
Smáfiskadráp og falsanir
Estai liggur í gömlu höfninni í St.
John’s og vekur eðlilega talsverða
forvitni vegfarenda. Þetta er nokkuð
stór og snyrtilegur frystitogari en
aflinn er unninn og frystur um borð
og pakkað í litla kassa.
Byijað var að afferma skipið á
mánudagskvöld undir opinberu eft-
irliti, en talið er að um borð hafi
verið um 360 tonn af fiski. Brian
Tobin sjávarútvegsráðherra Kanada
sagði á mánudagskvöld að Estai
hefði tilkynnt til NAFO að innan við
helmingur aflans væri grálúða, en
við rannsókn hefði komið í ljós að
hlutfallið væri í raun 83%. Tobin
sagði við fréttamenn í Ottawa í gær
að skipstjóri Estai hefði haldið tvö-
falt bókhald, annað fyrir NAFO og
hitt fyrir sig og útgerðina.
Kössunurn var skipað upp á brett-
um og ekið inn í stóra frystigáma á
hafnarbakkanum. Það var frekar létt
yfir þeim sem unnu að uppskipun-
inni og einn hafnarverkamaðurinn
sagði að það hefði verið kominn tími
til að stöðva þessa ofveiði; Spánver-
jarnir hefðu verið að drepa smáfisk,
ekki stærri en þetta, sagði hann og
glennti út lófann.
Fiskeftirlitsmaður opnaði kassa
og sýndi fréttamönnum innihaldið,
frosna flakaða grálúðu pakkaða í
T
plast. Flökin voru ekki stærri en af
frekar lítilli rauðsprettu en fullvaxin
grálúða er um 60-70 sentimetra
löng.
Kanadísk stjórnvöld fullyrtu í
gær, að 79% af afla Estai hefði ver-
ið innan við 38 sentimetra langur
fískur og 6% aflans hefði verið innan
við 17 sentimetra langur.
„Þeir nota þéttriðin net og veiða
allt sem hreyfist, jafnvel seiðin. Brian
Tobin sagði mér að aðeins smáfiskur
hefði verið í afla Estai, og á mánu-
dagskvöld höfðu þeir ekki fundið
einn einasta kynþroska fisk í aflan-
um,“ sagði Clyde Wells.
Ahöfn Estai skar nótina aftur úr
togaranum áður en hann var tekinn
en Kanadastjórn hefur leitað hennar
á hafsbotni i von um að fá sannanir
fyrir því að Spánverjarnir hafi notað
ólögleg veiðarfæri.
ísland sem fyrirmynd
En aðgerðir Kanadastjórnar gegn
Spánverjum nú koma of seint fyrir
marga fiskimenn á Nýfundnalandi.
„Við hefðum átt að gera eins og þið
Islendingar fyrir 20 árum og færa
landhelgina út í 200 mílur,“ sagði
Alan Hancock, 45 ára gamall fyrr-
verandi sjómaður sem vann í gær
við uppskipun úr Estai. Hancock
sagðist hafa fylgst daglega með
þorskastríðum Islendinga á sínum
tíma og mundi enn nöfnin á varðskip-
unum Óðni og Tý.
„Á þessum tlma stunduðum við
þorskveiðar í gildrur. Og St. John’s
var einn besti staðurinn á Nýfundna-
landi fyrir slíkar veiðar. Á góðu
sumri gat einn maður með bát og
þijár gildrur veitt um milljón pund
af fiski. Nú er allt horfið. Ég býst
ekki við að þessi fiskgengd eigi eftir
að koma aftur meðan ég lifi. Það
er ekki hægt að bæta það á nokkrum
árum sem hefur tekið 500 ár að
bijóta niður.“
Reuter
EMBÆTTISMAÐUR sjávarútvegsráðuneytís Kanada kannar frystan fisk úr spænska togaranum
Estai, sem var tekinn fyrir utan landhelgi Kanada á fimmtudag.
Spánveijar sakaðir um svívirðilega rányrkju
Fiskurinn ókynþroska
Ottawa. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Kanada réðust
hart á Spánveija í gær og sökuðu
þá um svívirðilega rányrkju og
smáfiskadráp. Brian Tobin sjávar-
útvegsráðherra sagði á þingi, að
aflinn um borð í spænska togaran-
um Estai, sem Kanadamenn tóku,
hefði varla verið lófastór, ókyn-
þroska fiskur. Spánveijar vísa
þessum ásökunum á bug með þeim
rökum, að engar stærðarreglur
hafi verið ákveðnar fyrir grálúðu-
veiðina.
Tobin sagði, að um 80% af afla
Estai hefði verið ókynþroska fisk-
ur enda hefði möskvastærð í troll-
inu verið miklu minni en reglur
Fiskveiðideila Spánveija og Kanadamanna
Skipverjamir nánast
orðnir að þjóðhetjum
Madrid. Morgunblaðið.
GRÁLÚÐUSTRÍÐIÐ fyrir utan
landhelgi Kanada hefur skapað
samstöðu meðal Spánveija, sem
mega jafnvel ekki vera að því leng-
ur að hugsa um öll spillingarmálin
sem hafa sett mark sitt á þjóð-
málaumræðuna á Spáni að undan-
förnu.
Á Spáni hefur ekki skort
hneykslismál síðustu mánuði, allt
frá fyrrverandi lögreglustjóra
landsins, sem stakk af með jafn-
virði 2,5 milljarða króna, til banka-
sljóra Spánarbanka, sem hafði
staðið í allskyns fjármálabraski -
svo ekki sé minnst á stærsta mál-
ið, sem snýst um það hvort ríkis-
stjórnin hafi barist gegn hryðju-
verkasamtökum Baska’ með öðr-
um, ríkisstyrktum hryðjuverka-
samtökum, sem hafi myrt saklaust
fólk í sprengjutilræðum.
Dagblöð og fréttamenn sjón-
varps hafa haft lítinn áhuga á
öðrum málum. En skjótt skipast
veður í lofti. Eftir að Kanadamenn
tóku spænska fiskveiðiskipið virð-
ast spænskir fréttamenn varla
hafa tíma til að sinna innanlands-
málunum.
Nú standa Spánveijar saman
og ríkisstjórnin er helst gagnrýnd
fyrir að sýna ekki nógu mikla
hörku. Henni hefur þó
tekist vel að notfæra
sér þetta mál, enda
augljóst að um leið og
fiskveiðideilan leysist
beinist athyglin aftur
að hneykslismálunum.
Viðskiptabanni hótað
Javier Solana utan-
ríkisráðherra gerir sitt
besta til að bregðast
elcki landsmönnum.
Hann kemur ekki fram
í sjónvarpi án þess að
vera harður í horn að
taka og líkir Kanada-
mönnum' við sjóræn-
ingja.
Almenningur virðist
taka undir þennan mál-
flutning og skilur ekki hvernig
þjóð, sem Spánveijar hafa alltaf
litið upp til, hegði sér á þennan
hátt.
Solana hefur hótað viðskipta-
banni, en dagblaðið E1 Mundo
bendir á að slíkt sé lýsandi dæmi
um hvernig ríkisstjórnin noti málið
til að draga athyglina frá alvar-
legri efnum, því viðskiptin við
Kanada séu sáralítil.
„Sú staðreynd,” segir E1 Mundo,
„og svo auðvitað
ástandið í innanrík-
ismálum, útskýrir
líklega hvers vegna
ríkisstjórnin hefur
brugðist við af slíkri
hörku, þegar hún
hefur verið öllu við-
mótsþýðari í svip-
uðum málum, eins
og t.d. eijunum á
Kantabríuhafi, þeg-
ar spænski flotinn
átti í vandræðum."
„Nautabanar“
Spánveijar fylgj-
ast vel með sínum
mönnum á Ný-
fundnalandi og
þekkja orðið alla
helstu skipveija Estai, sem eru að
verða að þjóðhetjum, sérstaklega
Dávila skipstjóri. Engum vafa er
undirorpið að þegar þeir félagar
fá Ioks að fara heim verður þeim
fagnað á hafnarbakkanum í Vigo,
heimahöfn Estai, með upphrópun-
inni: „Torero, torero!“ eða „nauta-
bani, nautabani!“. Þann titil gefa
Spánveijar iðulega hetjum sínum,
jafnvel þótt þær hafi aldrei stigið
í nautahring.
JAVIER Solana,
utanríkisráðherra
Spánar.
segðu fyrir um. Aflinn hefði því
verið tíu sinnum meiri á togtíma
en hjá kanadískum skipum. Sagði
hann, að veiðar af þessu tagi væru
vísasti vegurinn til að eyðileggja
grálúðustofninn. Evrópusamband-
ið hefði þó aldrei aðhafst neitt
þegar Kanadamenn hefðu kvartað
yfir brotum á fiskveiðilöggjöfínni
og ekki lagt að aðildarríkjunum
að taka tillit til fiskverndar.
Samstaða á þingi
Mikil samstaða er á Kanada-
þingi í þessu máli og styður stjórn-
arandstaðan ríkisstjórnina heils-
hugar í grálúðustríðinu. Eftir að
þorskurinn við Nýfundnaland
hrundi misstu 30.000 manns at-
vinnuna og búist er við miklum
fólksflótta þaðan til annarra lands-
hluta í Kanada.
Talsmaður spænska sjávarút-
vegsráðuneytisins sagði í gær, að
ásakanir Kanadamanna um smá
fiskadráp væru út í hött vegna
þess, að NAFO, Norðvestur-Atl-
antshafsfiskveiðinefndin, hefði
ekki sett neinar reglur um lág-
marksstærð þeirrar grálúðu, sem
veiða mætti. Þá hélt hann því einn-
ig fram, að ekkert væri vitað hve-
nær hún yrði kynþroska vegna
ónógra rannsókna.
j
»
»
f
\
. i