Morgunblaðið - 19.03.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. MARZ 1995 B 11
Ýmisleg tónlist
TONLIST
Illjómsvcitakcppni
Tónabæjar
MÚSÍKTILRAUNIR
Músíktilraunir, hljómsveitakeppni félagsmið-
stöðvarinnar Tónabæjar, haldnar í Tónabæ
fimmtudaginn 16. mars. Þátt tóku hljómsveit-
imar Gort, Botnleðja, Krá-Khan, Splurge,
Gormar og geimfluga, Bee Spiders og
Læðumar. Gestahljómsveit var Kolrassa
krókríðandi.
MÚSÍKTILRAUNIR, hljómsveitakeppni
Tónabæjar hófust með tilheyrandi brambolti
í Tónabæ á fimmtudagskvöld. Þá kepptu sjö
hljómsveitir um þátttökurétt í úrslitum, sem
fram fara föstudaginn 31. mars nk., og færi
á að keppa um ýmisleg verðlaun, þá helst
hljóðverstíma. Ymisleg tónlist var viðruð
þetta kvöld, allt frá sígildu þungarokki í súr-
realískt skátapopp, og heyra mátti í svo ólík-
um hljóðfærum sem túbu, óbói og fiðlu, auk
hefðbundinna hávaðatóla, rafgítara, rafbassa
og ásláttartækja.
Fyrsta hljómsveit á svið var Gort, sem lék
framsækið rokk að hætti erlendra sveita bre-
skra og bandarískra. Sveitin státaði af söng-
konu sem lék einnig á óbó, en hún hefði eins
getað skilið það eftir heima. Næsta sveit,
Botnleðja, var sígilt rokktríó, sem lék Nir-
vanaskotið pönk. Besta lag þeirrar sveitar
var upphafslagið, einfaldur og kraftmikill
rokkari, en stemmningin datt niður í þunnu
og langdregnu seinna lagi. Sveitin komst þó
á sporið aftur í síðasta laginu. Þriðja hljóm-
sveitin, Krá-Khan, var aftur á móti klassísk
þungarokksveit með tvo gítarleikara og
raddmikinn söngvara. Það dugði þó tæpast
til að halda henni saman; lögin voru of sund-
urlaus og ekki spennandi, og bassaleikarinn
var iðulega úti í mýri þegar aðrir sveitar-
menn ruddu frá sér rokkfrösum. Söngvarinn
stóð sig einna best og lék hvína hressilega
í sér, en Krá-khu-menn þurfa að leggja meira
á sig til að berja sveitina saman. Eftir stutt
hlé byijaði Splurge leik sinn með látum, en
nú var það söngvarinn sem var ekki með á
nótunum, þrátt fyrir eftirminnilegan texta.
Fyrsta lagið var þó skást, í öðru laginu var
engin dýnamík og þriðja lagið var ekki gott.
Gormar og geimfluga sanna þá tilgátu að
rokkstefnur halda lengur velli úti á landi en
í margmenninu syðra, því sveitin, sem kemur
frá Selfossi, lék gamaldags þungarokk með
heldur hallærislegum enskum textum. Upp-
hafslagið var ekki gott, en meira stuð var í
lagi númer tvö og þá kom til skjalanna söng-
kona, með prýðilega en óþjálfaða rödd, en
virtist ekki ýkja áhugasöm um það sem fram
fór. Lokalag sveitarinnar var svo greinilega
tromplagið, einskonar þungapopp, en það
náði ekki að lifna í þunglamalegum meðför-
um.
Næst síðast tilraunasveitin þetta kvöld,
og síðasta rokksveitin, var Bee Spiders úr
Mosfellsbæ. Þar fór hljómsveit með húmor í
lagi og fullt af hugmyndum í farteskinu, því
þó margir hafi haldið sveitina grínsveit til
að byija með, mátti víða heyra snjalla frasa
í lögum og skemmtilegar hugmyndir. Bak-
raddasöng„konur“ sveitarinnar lyftu öðru
lagi hennar á æðri stig, en besta lagið var
lokalagið; langt og fjölskrúðugt. Þar fór efni-
legasta hljómsveit kvöldsins, sérstaklega ef
sveitarmenn læra íslensku. Lokasveitin, Læð-
urnar, var með þá sérkennilegu hljóðfæra-
skipan tveir kassagítarar og túba, sem gekk
vel upp í skátapoppi með húmorískum text-
um. Þeir náðu og góðum tökum á áheyrend-
um og sigruðu þetta kvöld, en í öðru sæti
varð hljómsveitin Gort. Dómnefnd ákvað svo
að Botnleðja fengi að spreyta sig í úrslitun-
um. Ástæða er að geta þess að ekki sungu
nema tvær hljómsveitir á ensku, hinar allar
á íslensku, utan þýskir frasar heyrðust hjá
Splurge og Læðurnar sungu eitt lag á eins-
konar sænsku.
Árni Matthíasson
Gormar
og geim-
fluga,
gamal-
dags
þunga-
rokk.
Bee
Spiders,
efnileg-
asta
rokk-
sveit
kvöld-
sins.
Krá-
Khan,
epískt
ballöðu-
rokk.
LJósmynd/Björg Sveinsdóttir
Splurge,
þunga-
popp
með sér-
kenni-
legum
textum.
NAMSKEIÐ
-VOR 1995-
Námskeið um
notkun plastefna í iðnaði
Markmið námskeiðsins er að gera málmiðnaðar-
menn hæfari að velja, greina og vinna úr plastefnum
sem notuð eru í vélbúnaði og vinnslulínur.
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um:
Eiginleika, styrk, hita- og slitþol plastefna.
Notkunarsvið og notkunarmöguleika mis-
munandi plastefna.
Vinnslu og formun plastefna t.d. spóntöku,
steypuaðferðir, límingu og suðu.
Einnig verða verklegar æfpigar, sem innhalda m.a.
greiningu og val plastefna til notkunar í mismunandi
vélbúnað og vinnslulínur.
Hér er á ferðinni nýtt athyglisvert námskeið, sem
málmiðnaðarmenn og tæknimenn í málmiðnaði ættu
ekki að láta fram hjá sér fara.
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík 28., 29. og
30. mars, 4., 5. og 6. apríl nk. kl. 13.00-18.00 alla
dagana.
Verð kr. 10.000,- fyrir aðila að
endurmenntunarsjóðum málmiðnaðarins.
FRÆÐSLURÁÐ MÁLMIÐNÐARINS
HALLVEIGASTÍG 1 - SÍMI 562-4716 - FAX 562-1774
Austurstræti 17*101 Reykjavík • Sími 562 4600 • Fax 562 4601
Nýtt og stórglæsilegt íbúdarhótel
með öllum þægindum.
Fyrstu brottfarimar
að seljast upp
Beint flug Heimsferða til Cancun í
Mexíkó hefur sannarlega slegið i gegn
og eru fyrstu brottfarimar að seljast upp.
Þúsundir islendinga hafa nú kannað
þessar heillandi slóðir, enda sameinar
Cancun bestu strendur Karibahafsins
og fegurstu staði í Mexikó.
Gististaðir Heimsferða
eru glæsilegir og
aldrei hefur verið
ódýrara að lifa í
Mexikó en
einmitt
núna.
Verð kr. 65.330.-
M.v.hjónmeðeittbam, 17.júlí2, vikur.
Verð kr. 72.450.-
M.v. 2 íhetbergi, Posada Laguna, 17, júlí, 2 vikur.
Innifalið í verði: Flug, gisting, ferðir til og frá
flugv. erlendis, fararstjórn og skattar.
Costa Real