Morgunblaðið - 19.03.1995, Page 26

Morgunblaðið - 19.03.1995, Page 26
26 B SUNNUDAGUR 19. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN N UA UGL YSINGAR Matvælafræðingur Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða sem fyrst matvælafræðing til starfa á rann- sóknarstofu félagsins á Hvolsvelli. Nánari upplýsingar veita starfsmannastjóri í síma 91-677800 og framleiðslustjóri í síma 98-78392. LANDSPÍTALINN .../' þágu mannúðar og vísinda... TAUGALÆKNINGADEILD Hjúkrunardeildarstjóri Hjúkrunardeildarstjóri óskast til afleysinga á taugalækningadeild Landspítalans frá 1. júní nk. Deildin er með 22 sjúkrarúm í nýlegu hús- næði. Á deildinni er einstaklingshæfð hjúkr- un. Þar starfar samstilltur og áhugasamur hópur hjúkrunarfólks með það að markmiði að veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra bestu þjónustu sem völ er á. Æskilegt er að umsækjandi hafi a.m.k. 5 ára starfs- reynslu við hjúkrun. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1995. Á deildina óskast einnig hjúkrunarfræðingur á næturvaktir. Nánari upplýsingar veitir Bergdís Kristjáns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 601303. KVENNADEILD Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast í 50% starf á kvenna- deild Landspítalans frá og með 1. júní nk. Vinnutími er fyrir hádegi. Svava Stefánsdóttir yfirfélagsráðgjafi mun veita nánari upplýsingar um starfið í síma 601166. Umsóknir, þar sem tilgreind er menntun og fyrri störf, berist til yfirfélagsráðgjafa fyrir 1. apríl 1995. Framleiðslustjóri Þekkt matvælafyrirtæki á Stór-Reykjavíkur- svæðinu óskar að ráða framleiðslustjóra. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru innlendir og erlendir. Hjá fyrirtækinu starfa um 25 manns. Starfssvið framleiðslustjóra er m.a.: - Gerð framleiðsluáætlana. - Framleiðsluskipulagning og stjórnun. - Vöruþróun og gæðastjórnun. - Tæknimál. Þróun í framleiðslutækni, hagræðing, skipulagning o.fl. - Starfsmannahald. Við leitum að manni með þekkingu og reynslu í matvælaframleiðslu. Verk- fræði/tæknimenntun er nauðsynleg. Einnig er reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi mikilvæg. Frumkvæði og leiðtogahæfileikar eru nauðsynlegir kostir. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., Skeif- unni 19, fyrir 28. mars nk. merktar: „Framleiðslustjóri - 87". Hagvangurhf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir - Leikskólar Reykjavíkurborgar Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldismenntað starfsfólk í 50% starf e.h. í leikskólann Lækjarborg v/Leirulæk. Nánari upplýsingar gefur viðkomandi leik- skólastjóri í síma 568-6351. Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnustaðir. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277. Mosfellsbær auglýsir til umsóknar eftirfar- andi sumarstörf árið 1995 Vinnuskóli og skólagarðar Yfirflokksstjórar, flokksstjórar og leiðbein- endur við skólagarða. Æskilegt er að um- sækjendur hafi reynslu í stjórnun og hafi unnið við almenn ræktunarstörf. Verkamenn Til umsóknar eru störf verkamanna við garð- yrkju, gangstéttargerð og önnur tilfallandi verkefni. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofu. Umsóknarfrestur er til 31. mars nk. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 666218 daglega milli kl. 11.00 og 12.00. Garðyrkjustjóri. Penninn sf. er 62 ára gcanalt verslunarfyrirtœki. Fyrirtækið er eitt af rótgrónari verslunarfyrirtœkjum landsins. Stórf eru álíka mörg og árin eða um 60 talsins. Verslanir Pennans sf. eru l Kringlunni, Hallarmúla og Austurstrœti. TÆKNIDEILD-AFGREIÐSLA. Penninn sf. óskar eftir aö ráða starfs- mann í tœknideild fyrirfœkisins. Starfið felst í móttöku viðskiptavina, ráðgjöf við vöruval, afgreiðslu, móttöku pantana auk annars tilfallandi. Vinnutími er frá kl.9-18 alla virka daga. Hœfniskröfur eru að umsœkjendur hafi haldbœra þekkingu á tœknivöru s.s. tölvuprenturum, rit- og reiknivélum ásamt fylgihlutum. Áhersla er lögð á þœgilega framkomu, snyrfimennsku og reglusemi. Umsóknarfrestur er til og með 24. mars. n.k. Ráöning verður sem fyrst. Vinsamlega athugið að fyrirspumum varðandi ofangreint starf verður eingðngu svarað hjá STRÁ Starfsráðningum hf. (Jmsóknareyðublðð cru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem opin er frá kL 10-16, en viðtalstímar eru frá kL10-14. ST Starfsrá&ningar hf Suíurlandsbrout 30 ■ 5. hæS ■ 108 Reykjavik Simi: 588 3031 ■ Fax: 588 3010 mm ■ii: 1 RA Cnbný Harbardóttír Framkvæmdastjóri Nýstofnuð ferðaskrifstofa auglýsir starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar. Leitað er að kraftmiklum og hugmyndaríkum einstaklingi, sem er viðbúinn mikilli vinnu, er skipulagður og á auðvelt með mannleg samskipti. Viðkomandi þarf að hafa: ★ Áhuga á ferðamálum. ★ Menntun og/eða reynslu á sviði ferða- og markaðsmála. ★ Gott vald á íslensku og erlendum málum í ræðu og riti. Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, ber að skila fyrir 31. mars nk. Ferðaskrifstofa Borgarfjarðar hf., Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi. Frá Háskóla íslands Laus er til umsóknar staða lektors í spænsku við heimspekideild Háskóla íslands. Um er að ræða sérstaka tímabundna stöðu. Um- sækjendur skulu hafa sannað hæfni sína til kennslu í spænsku máli og/eða bókmenntum eða menningu spænskumælandi þjóða auk hæfni sinnartil rannsóknará einhverju þess- ara sviða. Áætlað er að ráða í stöðuna til þriggja ára frá 1. ágúst 1995. Umsækjendur um stöðuna skulu láta fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu um vís- indastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Með umsóknunum skulu send eintök af vís- indalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Laun skv. kjara- samningi félags háskólakennara og fjármála- ráðherra. Umsóknarfrestur er til 19. apríl 1995 og skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Há- skóla íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Alþingi íslendinga Skrifstofa Alþingis auglýsir lausar tvær stöður: Deildarstjóri Staða deildarstjóra útgáfudeildar er laus frá 1. maí næstkomandi. Deildin annast útgáfu þingskjala, Alþingistíð- inda og annars prentefnis á vegum skrifstof- unnar. Um 15 manns starfa við deildina. Gerð er krafa um reynslu af stjórnun. Æski- legt er að umsækjandi hafi háskólapróf í ís- lensku og reynslu af ritvinnslu í tölvum. Upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 630525. Umsóknir, er tilgreini menntun, fyrri störf og meðmælendur, berist rekstrarskrifstofu Al- þingis, Austurstræti 14, Rvíkfyrir kl. 17 mánu- daginn 3. apríl nk. merkt: „Deildarstjóri". Lögfræðingur Staða lögfræðings fyrir fastanefndir Alþingis er laus til umsóknar. Æskilegt er að starfs- maðurinn geti hafið störf fyrri hluta maímán- aðar nk. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 630605 milli kl. 10 og 12 fyrir hádegi. Umsóknir, er tilgreini menntun, fyrri störf og meðmælendur, berist rekstrarskrifstofu Al- þingis, Austurstræti 14, Rvík fyrir kl. 17 mánu- daginn 3. apríl nk. merkt: „Lögfræðingur".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.