Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C 91.TBL. 83.ÁRG. SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 87 lík fundin í rústum stjórnsýsluhúss en 150 er enn saknað Akærður fyrir sprengjutilræði Reuter LÖGGÆSLUMENN flytja Timothy McVeigh til yfirheyrslu. Hann var handtekinn á miðvikudag skammt frá Oklahoma- borg, fyrir að vera á númerslausum bíl og fannst þá hlaðin byssa í fórum hans. Aðeins klukkustund áður en láta átti McVeigh lausan á föstudag, uppgötvaði alríkislögreglan hver var í haldi lögreglu en víðtæk leit stóð þá yfir að honum. Ibúar Oklahoma gera hróp að hinum ákærða Oklahomaborg, Decker í Michigan. Reuter. Giftingar á kostaboði KLERKUR í ensku miðlöndunum hefur sett upp einkastofu þar sem hann fram- kvæmir kirkjulegar athafnir á mun lægra verði en enska biskupakirkjan. Presturinn, Joseph Sturge Artiss, býð- ur giftingu á 7.600 kr. og jarðarfarir á 4.800 kr. Ekki fylgir sögunni hvað athafnirnar kosta hjá kiijunni. Artiss innheimtir hins vegar 2.200 kr. fyrir skírnir en kirkjan tekur ekkert fyrir þær athafnir. Peningana sem honum áskotnast fyrir skírnarathafnirnar, leggur hann í sjóð til kaupa á ferða- skírnarfonti. Artiss sagði preststarfi sínu lausu fyrir rúmu ári en hann komst upp á kant við biskupsdæmið eftir að hann skildi við eiginkonu sína. Prestur- inn hefur nú þegar gert sjö útfarir og skírt eitt barn og leggur áherslu á „há- gæða-athafnir“. Frost til bjargar skakka turninum ÍTALIR hafa á undanförnum árum gripið til ýmissa ráða til að koma í veg fyrir að skakki turninn í Pisa falli um koll. Nýjasta tilraunin felst í því að frysta jarðveginn umhverfis turninn. Búist er við að verkinu ljúki snemma á næsta ári og þá verði hægt að leyfa ferðamönnum að fara að nýju upp í turninn en honum var lokað árið 1990. Frystingin felst í því að bora 178 holur í jörðu umhverfis tuminn og hella fljót- andi köfnunarefni ofan í þær. Með þessu móti er komið í veg fyrir að tum- inn hreyfist þegar hróflað verður við undirstöðum hans. Byijað verður á því að fjarlægja steinsteypu og gijót frá 1870 og 1935 sem sett var til að reyna að tryggja stöðugleika turnsins. Þá verður steinsteyptum hring komið fyrir undir turainum og tíu stálkaplar tengd- ir í hringinn og festir 50 metram neð- ar. Hver kaplanna þolir 100 tonna átak. Með þessu móti verður turninn réttur um 2 cm. Er vonast til þess að þessi lausn dugi í um fimmtíu ár. Ráðherra kynnist tölvum TIM Eggar, iðnaðar- og orkumálaráð- herra Bretlands, sem fer með æðstu stjórn raftækni- og verkfræðimála, við- urkenndi í vikunni að hann hefði aldrei snert tölvu. Þetta kom í ljós er Eggar, 43 ára, kynnti sér tölvunámskeið A Brentford. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég sest niður við tölvu. Þið veittuð mér hugrekki til að bregða á leik á lykla- borðinu," sagði Eggar og bætti því við að tölvunám væri æ nauðsynlegra en að hann hefði gengið í skóla áður en boðið hefði verið upp á slíkt. HAVAÐAROK, haglél og síðar úrhelli töfðu í gær leit að fórnarlömbum sprengjutilræðisins í Oklahomaborg en vegna veðursins jókst hætta mjög á því að byggingin myndi hrynja. 87 lík hafa fundist í rústunum en um 150 manns er enn saknað. Hundruð íbúa í Oklahoma söfnuðust saman á föstudagskvöld til að beija Timothy McVeigh augum en hann hefur verið formlega ákærður fyrir að standa að sprengjutilræðinu í borg- inni á miðvikudag. Gerði fólkið hróp að McVeigh er hann var fluttur á milli húsa. „Ég vildi óska að þeir hengdu hann svo að við gætum fylgst með,“ sagði 28 ára kona í hópn- um. Von leitarmanna um að finna fleiri á lífi í rústunum fer þverrandi. Aðkoman er skelfileg og útilokað að bera kennsl á mörg líkanna, en fjölmargir krömdust til bana er nokkrar hæðir í húsinu féllu saman. Á einni þeirra var dagheimili fyrir börn starfsfólks en talið er að 24 börn hafi verið þar er slysið varð. Nú er talið að sprengjan hafi verið allt að tvö tonn að þyngd, gerð úr blöndu af áburði og brennsluolíu. Aðstandendur hinna látnu halda til í kirkju nærri stjórnsýsluhúsinu og er fjöimiðlafólki meinaður aðgangur að henni. „Bijálaður sprengjumaður" McVeigh, sem ákærður hefur verið fyrir sprengjutilræðið, er 27 ára gamall, fyrrum hermaður. Hann var í haldi lögreglu fyrir ólög- legan vopnaburð er lýst var eftir honum. Einn- ig var lýst eftir félaga hans, Terry Nichols, sem gaf sig fram við lögreglu. Talið var að bróðir Nichols, James, tengdist málinu, og var hann færður til yfirheyrslu. Lögregla segir Nichols-bræðurna hafa verið samvinnuþýða og að þeir hafi ekki verið handteknir. Þremenningarnir gegndu herþjónustu sam- an og eru taldir tengjast samtökum er nefn- ast Michigan Militia, en talsmenn þeirra hafa neitað því að mennirnir séu félagar í þeim. Þeir eru sagðir fullir haturs á stjórnvöldum. Að sögn NBC-sjónvarpsstöðvarinnar skráði McVeigh sig í tölvuþjónustu sem „bijálaðan sprengjumann... með félögum mínum í Michig- an Militia.“ Ennfremur sagði: „Náum stjórnar- valdinu í okkar hendur... eða deyjum ella. Búmm.“ Þremenningarnir hafa verið bendlaðir við neðanjarðarsamtök er nefnast Patriots (Föður- landsvinirnir). Sagði nágranni Nichols-bræðr- anna að samtökin væru á landsvísu og að markmið þeirra væri að útrýma stjórnvöldum. Mun þremenningunum sérstaklega hafa verið í nöp við lögmenn og dómara, svo og skatt- heimtu. Bill Clinton Bandaríkjaforseti heldur til Oklahoma í dag til að vera viðstaddur minning- arathöfn um þá sem fórust í sprengingunni og hefur verið lýst yfir þjóðarsorg í dag. STYRKIR STÖÐU ÍSLENDINGA 20 VDDSMPn AIVINNULÍF mmm Á SUNNUDEGI ÞUMALPUTTA- AÐFERÐIN VETUR B KVADDUR ■181 FJÁRSJÓÐUR Á FJÖLLUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.