Morgunblaðið - 23.04.1995, Síða 18

Morgunblaðið - 23.04.1995, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FJÁRSJÓÐUR Á FJÖLLUM Fjallggrösin ís- lensku hafa vakið athygli erlendis vegna þeirrar verkunar sem efni Deirra hafa á HIV- veiruna og berkla. Hér heima er ver- ió aó rannsaka verkun beirra á magasár og asma og kanna ónæmisörvandi áhrif beirra. Dr. Kristín Ingólfsdóttir lyfjafræóingur, sem hefur stjórnaó rannsóknunum á „ Morgunblaðið/Ámi Sæberg KRISTIN INGOLFSDOTTIR: Ekki leikur vafi á aó í íslenskri náttúru leynast áhugaverð nytjaefni og þessar niðurstöður gefa tilefni til að fleiri íslenskar plöntur verði rannsakaðar markvisst. fjallagrösunum, skýrir Kristim Marju Baldurs- dottur frá áhrifa- mætti þessarar ís- lensku nytjaplöntu og nióurstöóum rannsókna sinna. FYRIR flórum árum hóf dr. Kristín Ingólfsdóttir, dósent í lyfjafræði við Háskóla ís- lands, að rannsaka efni í fjallagrös- um með það fyrir augum að kanna hvort hægt væri að fá vísindalega staðfestingu á þeim jákvæðu verk- unum sem álitið hefur verið að fjalla- grös hafi. Rannsóknin hefur einkum beinst að því að kanna verkun efn- anna við magasári, asma, berklum, og að kanna ónæmisörvandi áhrif þeirra. Fyrir tilviljun kom í ljós að ákveðin efni í grösunum hafa einnig áhrif á HlV-veiruna. Kristín vill þó ekki staðhæfa lækningamátt fjalla- grasa fyrr en hún veit hvaða áhrif efnin hafa á mannslíkamann. Rannsóknir Kristínar á fjallagrös- um eru hluti af stærra verkefni sem eru rannsóknir á íslenskum fléttum. Hún hefur átt samvinnu við lyfja- fræðideild Háskólans í Munchen í Þýskalandi og fleiri aðila erlendis, og hér heima hafa lyfjafræðingarnir Guðborg A. Guðjónsdóttir og Stefán R. Gissurarson unnið að rannsókn- unum með henni ásamt mörgum öðrum. „Við gerðum fyrst grunnpróf í tilraunaglösum og síðan prófanir á tilraunadýrum. Niðurstöður gefa mjög jákvæðar vísbendingar," segir Kristín. Hún fór með fjailagrösin og aðrar plöntur til Þýskalands til að gera frumathuganir og segir að jákvæðustu niðurstöðurnar, eða þær sem þeim hafi fundist forvitnilegast- ar úr þessum frumprófum sem hún gerði, hafi einmitt verið verkun efna í fléttum, þar á meðal í fjallagrösum. „Það er hins vegar of snemmt fyrir okkur að staðhæfa lækninga- mátt fjallagrasa þar eð við vitum ekki enn hvaða áhrif efnin hafa á mannslíkamann. Þegar við höfum fullvissað okkur um að efnin hafí ekki óæskilegar aukaverkanir er markmið okkar í framtíðinni að gera prófanir á fólki." Nytjaplanta í aldaraðir Kristín tók lyfjafræðipróf frá Há- skóla íslands og síðan doktorspróf frá Lundúnaháskóla. Hún tók dokt- orsgráðu í þeirri sérgrein lyfjafræð- innar sem fjallar um náttúruefni. „Það kemur ef til vill mörgum á óvart að lyf skuli vera búin til úr náttúruefnum en ekki eingöngu á efnafræðilegan hátt, en talsverðan hluta lyfja sem læknar vísa á má rekja til náttúrunnar, eða milli 30-40%,“ segir hún. „Eg get nefnt sem dæmi kódein, sem er verkja- stillandi lyf, hjartalyf sem heita dígoxín, og eitt nýjasta krabba- meinslyfið sem ber heitið taxol, en það er unnið úr berki trjáa sem vaxa í Norður-Ameríku. Það er því hvar- vetna mikill áhugi á rannsóknum á náttúruefnum." Þegar Kristín kom heim frá námi hóf hún að skoða íslenskar plöntur. Hún segir að það sé í rauninni mjög lítið vitað um efnafræði íslenskra plantna. „Fjallagrösin eru mjög merkileg nytjaplanta vegna þess að þau hafa verið notuð í aldaraðir bæði til mann- eldis og í lækningaskyni. Kunnust er notkun þeirra í fjallagrasaseyði og fjallagrasamjólk, og þau voru notuð þegar skortur var á mjöli. Fjallagrös vaxa víða um heim og því er það dálítið merkilegt að latneska heitið á þeim skuli vera Cetraria is- landica." Til skýringar má nefna að víðara heiti þessara plantna er fléttur, en þær myndast við sambýli svepps og þörungs, og eru fjallagrösin ein teg- und þeirra. Fjallagrösin hafa verið notuð við ýmsum kvillum bæði hér á landi og annars staðar. „Áður fyrr voru þau notuð við berklum," segir Kristín. „Þau hafa og verið notuð við særindum í hálsi og hósta, við magaóþægindum eins og magabólgum og magasári, og við asma. Það eru til sagnir um að þau hafi verið notuð við æxlum, en það er erfitt að átta sig á við hvers kon- ar æxli er átt. Hin hefðbundna notkun fjalla- grasa var að sjóða grösin, annað hvort í vatni eða í mjólk, og drekka síðan seyðið. Grösin eru enn notuð. Söngvurum fínnst til dæmis gott að fá sér fjallagrasaseyði áður en þeir koma fram og mörgum magasjúkl- ingum og asmasjúklingum fínnst seyðið gera sér gott. Grösin eru talsvert notuð í Finn- landi við asma. í Þýskalandi hafa þau verið notuð bæði í dýralyf, með- al annars við asma í hestum, og í hálstöflur fyrir fólk. Við vitum að í fjallagrösum er mikið af fjölsykrum sem gera það að verkum að fjalla- grasaseyðið er slímkennt og mjúkt og hefur því mýkjandi verkun á háls. Fjallagrösin eru því víða til en í Evrópu hefur það verið vandamál hversu geislamenguð þau eru eftir Tsjernobyl-slysið. Hér heima vaxa fjallgrösin á hálendinu.“ - Hvernig nálgist þið lyfjafræð- ingar plöntuna? „Undanfarið höfum við verið svo heppin að fá plöntuna keypta, en hér áður var ég með alla fjölskyld- una úti í móa í sumarfríunum að tína. Svo það var mikill léttir fyrir fjölskylduna þegar því lauk!“ Lyf gegn berklum Kristín er ein fárra vísindamanna sem hafa rannsakað fjallagrös markvisst með tiíliti til lyfjaverkun- ar og hafa greinar um rannsóknir hennar birst í virtum vísindaritum erlendis. Erlend lyfjafyrirtæki hafa og sýnt rannsóknum hennar mikinn áhuga. „Lyfjafyrirtækið Glaxo hefur fengið efni hjá mér bæði úr fjalla- grösum og öðrum fléttum til prófun- ar gegn berklabakteríu," segir Krist- ín. „Á síðustu árum hafa komið upp vandamál vegna þess að sumir stofn- ar berklabakteríunnar virðast ónæmir fyrir þeim lyfjum sem er verið að nota. Því er mikill áhugi á því að finna ný efni sem hemja þessa stofna sem eru ónæmir. Glaxo hefur sýnt fléttuefnum okkar mikinn áhuga og er um þessar mundir að prófa fléttuefni frá okkur á ónæma bakteríustofna. Fléttuefni hafa verið mjög lítið rannsökuð með tilliti til lyfjaverkunar og því hefur þetta lyfjafyrirtæki óskað eftir að fá fleiri efni.“ - Hvaða þýðingu hefur þetta fyr- ir okkur íslendinga. Förum við ef til vill að geta framleitt lyf fyrir erlendan markað? „Um það get ég ekki fullyrt. Út um allan heim er verið að gera rann- sóknir á náttúruefnum. Hins vegar er það aðeins örlítið brot þeirra efna sem sýna virkni í frumprófum sem verða á endanum lyf. Þau verða að uppfýlla ströng skilyrði, bæði um verkun og aukaverkanir. Þróunar- kostnaður er auk þess óhemju mik- ill þannig að það eru aðeins fá efni sem komast alla leið. Vitaskuld vona allir sem stunda rannsóknir af þessu tagi að þær leiði í ljós ný efni sem unnt verði að nota í lyfjaframleiðslu. En rannsóknimar hafa einnig annan tilgang og mark- mið. Þær veita upplýsingar um efna- fræði náttúmefna og samband sem ríkir milli sameindabyggingar og líf- fræðilegrar verkunar. Þær em þátt- ur í uppbyggingu vísindaþekkingar og sérhæfðra vinnubragða hér á landi. Síðast en ekki síst veita þær vísbendingar um hvort hefðbundin notkun plantna hefur stuðst við raunverulega verkun.“ Verkun gegn HlV-veiru Mesta athygli vekur þó verkun efna í fjallagrösum á HlV-veiruna. „Háskólinn í Chicago, í samvinnu við bandarísku krabbameinsstofn- unina, hefur þróað próf til þess að finna náttúrefni sem eru virk gegn HIV-veirunni,“ segir Kristín. „Þeir fengu efni frá okkur sem sýndi í frumprófí mjög öfluga verkun gegn I [ t I ! í Í í l i \ i i l i i I i I i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.