Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 24
24 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/ Stjörnubíó hefur tekið til sýninga kvikmyndina Immortal
Beloved með Gary Oldman og Isabellu Rossellini í aðalhlutverkum.
Myndin er byggð á ævi Ludwigs van Beethoven
Leitin
að ástinni
einu
ANNA Maria Erdody (Isabella Rossellini) greifynja var ein
af konunum í lífi Ludwigs van Beethovens (Gary Olman).
AÐ er árið 1827 og Evr-
ópa öli syrgir andlát
Ludwigs van Beethovens
(Gary Oldman). Ætt-
ingjar meistarans vita hins vegar
ekki hvaðan á sig stendur veðrið
því að eftir hann liggur erfðaskrá
þar sem hann ánafnar ástinni sinni
einu öllum eigum sínum og tileink-
ar henni öll tónverk sín. Það fylgir
hins vegar ekki sögunni hver ástin
eina er, hvaða kona það var sem
Beethoven var svona hugfanginn
af án þess að nokkrir hans nákomn-
ustu hefðu um það hugmynd.
Þetta er upphaf myndarinnar
Immortal Beloved, en hún er gerð
eftir frumsömdu handriti leikstjór-
ans Bernard Rose. Hugmyndina
að sögunni fékk leikstjórinn við
lestur eldheits ástarbréfs til
ókunnrar konu, sem fannst meðal
persónulegra muna Beethovens
eftir hans dag og hefur síðan verið
mönnum ráðgáta . Rose, sem hafði
löngum verið áhugasamur um allt
sem viðkom Beethoven og tónlist
hans, kynnti sér allt það sem um
manninn og ástir hans hefur verið
skrifað og sauð saman í handriti
þessu þá kenningu um hver ástin
stóra hefði verið sem sett er fram
í myndinni og verður haldið leyndri
hér til að spilla ekki ánægju vænt-
anlegra áhorfenda.
Framvinda sögunnar er hins
vegar á þá leið að hinn trúi og
tryggi aðstoðarmaður og vinur
Beethovens, Aron Schindler (Jero-
en Krabbe) á svo bágt með að
sætta sig við þá staðreynd að hann
hafi ekki átt trúnað meistarans
allan að hann einsetur sér að kom-
ast að hinu sanna um það hver
ástin hans eina hafi verið.
Bemard Rose setur því á svið
sögu, sem svipar til myndar Orsons
Welles um Citizen Cane að því leyti,
að í leit sinni að sannleikanum ferð-
ast Aron Schindler á milli þeirra
karla en einkum þeirra kvenna sem
auk hans þekktu Beethoven best
og er staðráðinn í að láta ekki deig-
an síga fyrr en hann kemst að hinu
sanna. Saman bregða Schindler og
viðmælendur hans upp svipmynd-
um úr ævi Beethovens í leit sinni
að svarinu við ráðgátunni.
Ástkonur Beethovens virðast
hafa verið allt að því óteljandi, en
í þessari sögu standa þijár konur
upp úr: fyrst verður fyrir Schindler
greifynjan Julia Guicciardi (Valeria
Golino), sem Beethoven var í tygj-
um við á yngri árum og virtist fyrst
og fremst sækjast eftir félagsskap
snillingsins vegna orðspors hans
og þeirrar aðdáunar sem hann
naut.
Þá er staldrað við samband Be-
ethovens við ungversku greifynjuna
Anna Marie Erdody (Isabella Ross-
ellini), sem Beethoven varð háður,
að sagt er. Kynni þeirra tókust þeg-
ar tónskáldið stjórnaði sjálfur frum-
flutningi á 5. píanókonsert sínum.
Fram að því hafði Beethoven tekist
að leyr.a aðra en þá sem honum
voru nánastir því að hann væri bú-
inn að missa heymina. En fmm-
flutningur píanókonsertsins fór svo
úr böndunum að öllum öðmm en
hljómsveitarstjóranum og höfund-
inum varð það ljóst; leyndarmálið
varð opinbert og tónskáldið varð
fyrir aðkasti tónleikagesta þar til
greifynjan fagra skarst i leikinn og
leiddi hann á brott. Greifynjan var
gift en þau Beethoven héldu saman
um skeið og samkvæmt sögu Rose
var það hamingjuskeið í lífí tón-
skáldsins.
Þriðja konan er hins vegar mág-
kona tónskáldsins, Johanna van
Beethoven (Johanna Ter Steege),
sem Beethoven hreifst af ungur
áður en hún sveik hann og hljópst
á brott með bróður hans Casper.
Hrifningin breyttist síðar í hatur
eftir dauða Caspers og þá deildu
þau Johanna hatrammlega um for-
ræði sonar hennar, Karls. Johanna
var snauð og áhrifalaus en stóð
uppi í hárinu á auðugu og áhrifa-
ríku tónskáldinu sem dró hana
fyrir dóm til að fá hana svipta
drengnum sem hann gekk síðan í
föðurstað.
Könnun Schindlers á lífi snill-
ingsins sem hann hélt sig vita allt
um leiðir loks til niðurstöðu um
það hver ástin eina hafi verið. Sú
niðurstaða sem Bernard Rose læt-
ur Schindler komast að ku vera
nýjung og umdeild mjög meðal
þeirra fræðimanna sem lagt hafa
sig mest eftir að fjalla um ævi
Beethovens og hafa spreytt sig á
að leysa ráðgátu ástarbréfsins dul-
arfulla. Rose þykist hins vegar
keikur geta hrakið allar þær kenn-
ingar sem áður hafa verið settar
fram um bréf þetta og kveðst
óhræddur munu vetja eigin kenn-
ingu hvar og hvenær sem er.
Immortal Beloved er fjórða kvik-
myndin sem hinn breski Bernard
Rose leikstýrir. Sú eina hinna fyrri
sem teljaVidi athygli vakti var hroll-
vekjan Candyman. Hann fékk talið
kvikmyndafyrirtæki stórstjörn-
unnar Mels Gibsons, Icon Pictures,
á að fjármagna gerð þessarar
myndar um ástir og ævi Beeth-
ovens og eftir að stórleikarar á
borð við Oldman og Rossellini
höfðu bundist fastmælum um að
leika í myndinni og sir Georg Sloti
féllst á að hafa umsjón með vali
og flutningi tónlistar var hafist
handa við tökur.
Þær fóru að miklu leyti fram í
Tékklandi, en þar ku vera gósen-
land kvikmyndagerðarmanna nú
um stundir, einkum þeirra sem
láta leiki sína gerast í höllum greifa
og konunga. Eftir að flauelsbylt-
ingin hratt kommúnismanum af
stalli þar eystra hafa vestrænum
kvikmyndagerðarmönnum opnast
áður óþekktir möguleikar á að
nýta sér margar glæsilegustu hall-
ir og kastala álfunnar sem sviðs-
myndir og Bernard Rose og sam-
verkamenn hans nýttu sér þá ós-
part þá möguleika við tökur mynd-
arinnar um Beethoven og ástina
hans einu.
Tónlistin
í stóru-
hlutverki
Eins og við er að búast í
mynd sem ætlað er að fjalla
um ævi Ludwigs van Beetho-
vens er tónlist hans snar þátt-
ur I myndinni Immortal
Beloved.
Tónlistarstjóri myndarinn-
ar er ungverski hljómsveitar-
stjórinn heimsfrægi, sir Georg
Solti, sem stjórnar þar flutn-
ingi Sinfóníuhljómsveitar
Lundúna á mörgum þekktustu
verka Beethovens.
Þau verk Beethovens sem
koma við sögu í myndinni í
flutningi Sinfóníuhljómsveitar
Lundúna undir stjórn hins 83
ára gamla Soltis eru 3.,5.,6.,
og 7. sinfónían, svo og Óðurinn
til gleðinnar úr 9. sinfóníunni.
Einnig píanókonsert nr. 5, þar
sem Murray Perahia leikur
einleik, fiðlukonsert í D-dúr
ópus 61, þar sem Gidon Kre-
mer leikur einleik og Missa
Solemnis, þar sem einsöngvar-
ar eru Renée Fleming, sópran,
Ann Murray, alt, Vinson Cole,
tenór og Bryn Terfel, bassi.
Murray Perahia leikur einn-
ig Tunglskinssónötuna, Fiir
Elise og sónötu Pathetique og
Juillard-strengjakvartettinn
leikur Strengjakvartett ópus
130. Þá leika píanóleikararnir
Emanuel Ax og Stephen
Prutsman og Pamela Frank
fiðluleikari fiðlusónötu í A-dúr
ópus 47 og Ax, Frank og selló-
leikarinn Yo-Yo Ma leika tríó
í D-dúr ópus 70 nr. 1.
Eina tónverkið sem heyrist
í myndinni Immortal Beloved
og ekki er eftir Beethoven er
Þjófótti skjórinn eftir Rossini,
í flutningi Sinfóníuhljómsveit-
ar Lundúna undir sljórn sir
Georg Solti.
Loksins edrú og ánægður
GARY Oldman leikur hlutverk tónjöf-
ursins Ludwigs van Beethovens.
GARY Oldman, sem leikur
Ludwig van Beethoven í mynd-
inni Immortal Beloved, hefur á
undanförnum árum skotið upp
á stjörnuhimin kvikmynda-
heimsins. Enn er hægt að sjá
hann í kvikmyndahúsi í Reykja-
vík, í aukahlutverki í mynd Luc
Bessons, Leon. Síðar á árinu
verða frumsýndar tvær nýjustu
myndir hans, Murder in the
First, þar sem hann leikur fang-
elsisstjóra með kvalalosta, sem
pyntar saklausan fanga sem
Kevin Bacon leikur, og sögulega
kvikmyndin The Scarlet Letter
þar sem hann leikur á móti
Demi Moore. Oldman, sem er
37 ára, hefur lifað sukksömu og
stormasömu lífi en vonandi eru
nú betri tímar framundan. Hann
eyddi jólunum og áramótunum
síðustu í áfengis- og vímuefna-
meðferð og hefur síðan hafið
nýtt og betra líf með unnustu
sinni, Isabellu Rossellini, sem
hann kynntist þegar þau léku
saman í Immortal Beloved.
Gary Oldman fæddist í verka-
mannahverfinu New Cross í suð-
urhluta London 21. mars 1958,
yngstur þriggja barna rafsuðu-
manns og heimavinnandi hús-
móður. Hann var 7 ára gamall
þegar drykkfelldur faðir hans
hljópst að heiman og lét móður-
inni eftir að ala önn
fyrir börnunum. Gary
varð fremur ódæll og
uppreisnargjarn ungl-
ingur og hætti í skóla
16 ára gamall til að
fara að vinna í íþrótta-
vöruverslun.
En um leið og hann
var laus undan þeirri
kvöð sem skólinn hafði
verið honum fór Gary
Oldman að sýna því
áhuga að mennta sig,
sökkti sér niður í bók-
menntir og tók upp
þráðinn við píanónám-
ið. Hann gekk til liðs
við leikhóp og fór að
sækja leiklistartíma og
þannig bar saman fund-
um hans og leiklist-
arkennarans Roger
Williams en það var fyr-
ir tilstilli hans að Gary
ákvað að helga sig leik-
listinni, og seljast á ný á skóla-
bekk í Rose Buford Drama Col-
lege. Þaðan lauk hann BA-prófi
í leiklistarfræðum árið 1979.
Að því loknu fór hann að
vinna með leikhópnum Gre-
enwich Young People Theatre
og vakti fljótt á sér athygli. Inn-
an fárra missera var hann far-
inn að fá eftirsóttustu viður-
kenningar sem veittar eru með-
limum fijálsra leikhópa í heims-
borginni, jafnframt því að fá
smáhlutverk í sjónvarpi og fá-
einum kvikmyndum. En þótt
ferillinn væri á uppleið varð hið
sama ekki sagt um einkalífið því
það var löngum æði sukksamt.
Á seinni hluta níunda áratug-
arins kvæntist Gary Oldman
leikkonunni Lesley Manville en
þjónabandið entist stutt og lauk
með skilnaði skömmu eftir fæð-
ingu einkasonar Garys, Alfie,
sem nú er 6 ára.
Þegar þar var komið sögu var
Gary Oldman hins vegar að
nálgast þröskuld heimsfrægðar-
innar og hafði þegar vakið á sér
verulega athygli fyrir leik sinn
(og söng) í hlutverki pönkarans
Sid Vicious í myndinni Sid and
Nancy, sem gerð var árið 1986.
Árið 1990 giftist Gary Old-
man öðru sinni. Sú lukkulega
var engin önnur en Uma Thur-
man, þá tæplega tvítugt smá-
stirni en nú heimsfræg og til-
nefnd til óskarsverðlauna eftir
að hafa slegið svo rækilega í
gegn í Pulp Fiction. Hjónaband-
ið entist aðeins í tæp tvö ár og
skilnaðurinn gekk í gegn um
svipað leyti og heimsfrægð Gary
Oldmans var staðfest með þeim
viðtökum sem frammistaða hans
í titilhlutverki myndar Coppol-
as, Bram Stoker’s Dracula, hlaut
jafnt hjá gagnrýnendum og
áhorfendum.
Velgengnin kom reyndar ekki
á óvart því árið 1991 hafði Old-
man vakið mikla athygli í hlut-
verki Lee Harveys Oswalds í
mynd Olivers Stone, JFK.
Síðan hefur leikferillinn stöð-
ugt legið upp á við og því er
haldið fram að Oldman sé ekki
síst dáður meðal starfssystkina
sinna í Ieikarastétt og þá einkum
fyrir einstæða hæfileika sína til
margbreytilegrar líkamstján-
ingar sem gerir honum kleift
að túlka betur en flestir aðrir
hvort heldur er unglinga eða
gamalmenni, glæsimenni eða
rytjulega titti á borð við Lee
Harvey Oswald.
Þá hefur hann einnig sýnt það
á ferli sínum að hann á auðvelt
með að tileinka sér hvaða til-
brigði og hreim enskrar tungu
sem vera skal og fáir leikarar
eiga jafnauðvelt með að bregða
sér í líki persónu hvaðan sem
vera skal úr hinum enskumæ-
landi heimi, hvort heldur um er
að ræða klíkuforingja í banda-
rískri stórborg, persónu í
Shakespeare-leikriti, eða bresk-
an pönkara eins og Sid Vicious.
Gary Oldman hefur til þessa
dags leikið í 19 kvikmyndum og
auk þeirra sem nefndar hafa
verið að framan er þar um að
ræða: Romeo Is Bleeding (1993),
True Romance (1993, þar er
hann frábær en nánast óþekkj-
anlegur í hlutverki klíkuforingj-
ans sem Christian Slater drepur
snemma í myndinni), Heading
Home (1991), Chattahoochee
(1990), Rosencrantz and Guild-
enstem Are Dead (1990), State
of Grace (1990), Criminal Law
(1989), Track 29 (1988), We
Think the World of You (1988),
Prick Up Your Ears (1987),
Honest, Decent and True (1983)
og Remembrance (1981).