Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 31

Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 31 SIGURJÓNA GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR + Sigurjóna Guð- rún Jóhanns- dóttir fæddist í Rcykjavík 4. maí 1910. Hún lést á Landspítalanum 11. apríl sl. For- eldrar hennar voru Ingiríður Benjam- ínsdóttir og Jóhann Þ. Pétursson. Systkini Sigurjónu eru: Margrét, f. 1907, látin, Jó- hanna, f. 1908, Hulda, f. 1914, Jón, f. 1915, Ólafía, f. 1926, látin, og Sigrún, f. 1928, látin. Sigurjóna giftist 5. októ- ber 1929 eftirlifandi eigin- manni sínum Hannesi L. Guð- jónssyni, f. 6. ágúst 1905 í Bol- ungarvík. Foreldrar hans voru Mikkalína Jensdóttir og Guð- jón Gíslason. Börn þeirra eru: Inga Hafdís, f. 9. febrúar 1930, gift Helga Davíðssyni og eiga þau 5 börn; Jóhann Ingimar, f. 17. apríl 1933, kvæntur Elsu Kveðja til móður, tengdamóður og ömmu Elskulega mamma mín, má ég örstutt ljóð þér færa lítt þótt mýki meinin þín mæðraprýðin góða, kæra. Meiri sól og sældarkjör sjálf þú öðrum léttir valin heldur en þinni fylgdu för fram í gegnum kaldan dalinn. Veiti Drottinn nokkrum náð, náð og sæld þú átt þér vísa, öll þín hyggja, allt þitt ráð æðri kraftar leiðsöp prísa. Elsku mamma, mild og góð mildur Guð þig ennþá styrki. Fyrirgef þú lítið ljóð. Lífsins faðir mátt þinn yrki. (Hannes Hafstein) Blessuð sé minning þín. Inga og fjölskylda. Á morgun kveðjum við hana ömmu okkar, Sigurjónu G. Jó- hannsdóttur, eða Sillu eins og hún var ávallt kölluð. Þótt ævi hennar hafi verið löng og góð virðist kallið alltaf koma of fljótt. En eitt eigum við sem enginn getur tekið frá okkur, fallegar og góðar minningar. Amma var kvenskörungur og gustaði af henni hvar sem hún var og hvert sem hún fór. Allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún vel og af heilum hug og má þar nefna starf hennar hjá Góðtemplurum og í þágu kirkjunnar. Stór þáttur hjá ömmu var að halda fjölskyldunni saman, má þar nefna jólaboðin sem hún og afí héldu alltaf á annan í jólum. Sást þá best hvað hún var ánægð með sinn stóra hóp. Einnig má nefna að á meðan þau höfðu bíl voru þau mjög dugleg að fara á milli staða og heimsækja fólkið sitt og lýsti það best kraftinum og atorkunni í ömmu að ánægðust var hún ef hún náði að fara á sem flesta staði í einni og sömu ferðinni. Oft lögðum við leið okkar, annað hvort ein systkinin eða með fjöl- skyldum okkar, til ömmu og afa í litla herbergið á Hrafnistu. Alltaf voru þau jafn glöð og ánægð í hvert sinn sem einhver birt- ist í herbergisgættinni, þó gladdi það þau mest þegar litlu börnin komu með og ekki voru þau fyrr komin en amma dró upp litlu kisuna með sælgætismolunum í og gaf þeim. Ekki voru þau ófá skiptin heldur þegar við kvöddum hana að hún leysti litlu börnin út með hand- pijónuðum sokkum og vettlingum. Björnsdóttur og eiga þau 2 börn; Guðjón Gísli, f. 12. febrúar 1935, ókvæntur; Sigurð- ur Engilbert, f. 4. júlí 1936, kvæntur Guðrúnu Böðvars- dóttur og eiga þau þijú börn; Sævar, f. 21. september 1937, kvæntur Magneu Vattnes og eiga þau 3 börn; Rúnar, f. 9. desem- ber 1940, kvæntur Ólöfu Pálsdóttur og eiga þau 7 börn á lífi. Langömmubörnin eru 39 og langalangömmubörnin 7. Sig- urjóna starfaði í Kvenfélaginu Fjólu, Kvenfélagi Bústaðasókn- ar og Góðtemplarareglunni og var hún heiðursfélagi í þeim. Kveðjuathöfn Sigurjónu verður frá Bústaðakirkju á morgun, 24. apríl, og hefst at- höfnin kl. 13.30. Jarðsett verð- ur frá Kálfaljörn sama dag. Elsku amma okkar, hafðu þakk- ir fyrir allt. Þú varst yndisleg kona sem mikill söknuður er að, en mest- ur er þó missirinn hjá afa okkar sem misst hefur sína sterkustu stoð. Elsku afi, guð veri með þér i þinni miklu sorg og gefi þér styrk. Guð blessi minningu ömmu. Böðvar, Lára Jóna og fjölskyldur. Ég vil kveðja ömmu mína, Sigur- jónu Guðrúnu, sem ég hef þekkt í 35 ár. Hún var mér svo góð og þótti mér ákaflega vænt um hana og hvað hún tók mér alltaf með mikilli hlýju þegar ég kom til henn- ar. Ég sendi afa, pabba og systkin- um hans mínar dýpstu samúðar- kveðjur og megi góður guð styrkja þau á erfiðri stundu. Hin langa þraut er liðin nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin. Á bak við dimman dauðans nótt. Fýrst sigur sá er fenginn fyrst sorgarþraut er gengin. Hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er guðs að vilja, og gott er allt, sem guði er frá. (Valdimar Briem) Guð geymi þig elsku amma mín. Kveðja. Fjóla Björk Sigurðardóttir. Það er margs að minnast og margt sem ég vil þakka þegar ég kveð ömmu mina í hinsta sinn. Amma átti yndislegan mann, hann afa Hannes. Þau voru gift í 65 ár, eignuðust sex börn og eru afkom- endur þeirra orðnir hátt í 80. Amma var mikil handavinnukona sípijón- andi eða saumandi út púða og myndir, afi málari og rammaði inn fyrir hana. Svona voru þau alltaf samtaka í öllu sem gert var. Þau áttu lítið sætt sumarhús í Vogunum á Vatnsleysuströnd og þar voru þau oft á meðan heilsan leyfði. Þar ræktuðu þau rabarbara, kartöflur og blóm og þar nutu þau sín vel. Ég og fjölskylda mín fluttumst til Vestmannaeyja fyrir um fimm 11-8 Krossar áleiði I vióariit og mála&ir. Mismunandi mynsiur, vönduo vinna. Slmi 91-35929 oq 35735 árum og hittum afa og ömmu þar af leiðandi ekki eins oft en komum þó alltaf við hjá þeim þegar við komum til Reykjavíkur. Nú þegar við minnumst hennar og finnum hve mikið við höfum misst, er notalegt að finna að þrátt fyrir allt eigum við svo mikið, sem eru ljúfar og góðar minningar um hana. Nú síðustu árin bjó amma á Hrafnistu, þar var vel hugsað um hana og afa og hún var ávallt þakk- lát fyrir þjónustuna þar. Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi. Hin ljúfu og hljóðu kynni af alhug þökkum vér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum sem fengu að kynnast þér. (Davíð Stefánsson) Elsku amma Silla, hafðu þökk fyrir allt og allt. Við vottum afa Hannesi, bömum þeirra, tengda- börnum og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíl þú í friði. Þín, Helga Vattnes Sævarsdóttir og fjölskylda. Okkur langar til að minnast ömmu okkar Siguijónu, eða Sillu eins og hún var kölluð. Efst í hug- um okkar og hjörtum er þakklæti fyrir að hafa verið svo heppnar að hafa átt hana sem ömmu. Eitt af því besta sem maður gerði var að kíkja í heimsókn til afa og ömmu og spjalla um daginn og veginn. Alltaf var efstur í huga hennar stóri afkomendahópurinn en þeir eru orðnir 77. Fram til síðustu stundu var hún að pijóna sokka og vettlinga til að gleðja litlu bama- börnin sín. Nú þegar við kveðjum hana ömmu okkar viljum við votta þér, elsku afí, okkar dýpstu samúð því missirinn er mikill, Guð styrki þig. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Vertu sæl, elsku amma okkar. Margrét, Hanna og Vilborg. Á morgun kveð ég elskulega ömmu mína. Ótal minningar renna í gegnum hugann á þessari stundu. Það er erfitt að trúa að hún komi ekki aftur. Öll eigum við margar góðar minningar um hana. Alltaf var til kaffí á könnunni sem hitað var handa öllum sem þar komu og þar var ekki gerður munur á hvort það voru hennar bamabörn eða önnur börn. Börn voru hennar líf og yndi, enda hændust þau mjög að henni. Vildi hún fylgjast með þeim, ekki bara sem börnum heldur einnig sem fullorðnum, hvernig þeim vegnaði í lífinu. Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 tll kl. 22,- einnig um heigar. Skreytingar við öiitilefni. Gjafavörur. Amma helgaði sig húsmóður- störfum allt sitt líf og var heimili hennar ávallt til fyrirmyndar. Hannyrðir og útsaumur voru henn- ar yndi og gaf hún ömmubörnunum ávallt sokka og vettlinga í jólagjaf- ir. Aldrei féll henni ömmu verk úr hendi. Amma hafði gaman af því að segja frá, og var gaman að spjalla við hana um uppvaxtarár hennar. Hún var af þeirri kynslóð sem muna má tímana tvenna, svo mikl- ar breytingar hafa orðið. Sex ára gömul var hún send í sveit. Henni var ekkert hlíft, var látin tína gijót, mjólka kýrnar og gera öll almenn útiverk. Þetta var erfitt fyrir hana, en ekki kvartaði hún eða barmaði sér þó hún hafí örugglega oft haft ástæðu til. Omissandi þáttur í lífí okkar var jólaboðið þar sem öll fjölskyldan kom saman. Amma lagaði stóran pott af sínu rómaða súkkulaði, og bar síðan fram kleinur, pönnukökur og allar jólasortirnar. Þar var alltaf líf og fjör og gott að vera. Þær stundir sem ég átti með ömmu og afa hafa verið og verða áfram ómetanlegt veganesti í lífí mínu. Samheldni ömmu og afa var mikil og var tekið eftir væntum- þykjunni og virðingunni þeirra á milli. Elsku afí, ég vona að Guð gefi þér styrk til að takast á við þennan mikla missi og mundu að'þú átt okkur alltaf að. Hafðu þökk fyrir allt, elsku amma. Sigrún. Elsku langamma okkar er dáin og það eru margir sem minnast hennar. Ekki síst við langömmu- börnin. Hún umvafði okkur hlýju og kærleik, alltaf var hún kát og glöð hvenær sem við hittum hana. Amma var mjög vel gerð kona, hneykslaðist aldrei og tók öllum hlutum mjög vel. Hún hafði góða frásagnargáfu og kunni frá mörgu skemmtilegu að segja. Það voru ófáar stundimar sem við sátum og hlustuðum á sögur frá liðinni tíð því hún var mjög minnug og glögg á það sem í frásögur var færandi. Við biðjum góðan Guð að styrkja langafa í sorg hans. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning hennar. Magnea Vattnes og Sævar Þór. Elsku langamma okkar er dáin. Það er tómlegt að hugsa til þess að eiga ekki von á því að sjá þig oftar, elsku amma. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. Elísabet, Guðjón, Inga Sigrún, Helgi og Linda. Elsku langamma mín, mig lang- ar að minnast þín í fáum orðum. Margar góðar minningar á ég um þig sem ég geymi í hjarta mínu og ég mun aldrei gleyma. Það var alltaf tilhlökkun að koma til ykkar afa á Hrafnistu, hlýi mjúki faðmurinn þinn og kossamir, þetta mun ylja mér um ókomin ár. Elsku langamma, þakka þér fyr- ir alla vettlingana og sokkana í gegnum árin. Elsku langafi Hannes, missir þinn er mikill og okkar allra. Guð blessi þig í sorg þinni. Ó, Jesús bróðir besti, þú bamavinur mesti, æ breið þú blessun þína yfír bamæskuna mína. Elsku langamma, minningin um þig verður mitt ljós og það ljós mun aldrei slokkna. Sædís Bára. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns og afa, STEFÁNS HERMANNSSONAR. Katrín Jóhannesdóttir, Stefán Jóhannesson. t Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu vináttu sína og hlýhug við andlát og útför móður minnar og tengdamóður okkar, GUÐRÚNAR E. JÓNSDÓTTUR frá Reykjahlíð, Meðalholti 17. Egill Jónsson, Regfna Ingólfsdóttir, Þórunn A. Kjerúlf og fjölskyldur. Jötni. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegs sonar míns, bróð- ur okkar og mágs, HALLDÓRSPÁLS STEFÁNSSONAR, Mörk, Hásteinsvegi 13, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir sendum við útgerð og áhöfn á Hugin VE-55 og Sjómannafélaginu Ása Guðrún Jónsdóttir, Margrét Steinunn Jónsdóttir, Arnar Ingólfsson, Tómas Stefánsson, Gyða Stefánsdóttir, Halldóra Stefánsdóttir, Jón Stefánsson, Sveinn Stefánsson, .........3---- ■» Steinunn Kristensen, Haukur Gunnarsson, Ásta Gylfadóttir, Hulda Kristínsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.