Morgunblaðið - 20.05.1995, Page 6
“6. LAU.GARDAGUR 20. MAÍ 1995
Aðaltrúnaðarmaður í álverinu
FULLTRÚAR ÍSAL og launþega ræddu málin á fundi hjá Þóri
Einarssyni sáttasemjara í gær.
Yfir 170 verktakar
hjá ÍSAL á ári
GYLFI Ingvarsson, aðaltrúnaðar-
maður hjá ISAL, er ósammála um-
mælum Hannesar G. Sigurðssonar,
formanns samninganefndar ÍSAL, í
Morgunblaðinu í gær, og segir þau
villandi, m.a. þegar Hannes tali um
að ÍSAL vilji fá í endurskoðaðan
samning hliðstæð ákvæði og sett
voru fram í tengslum við viðræður
um byggingu álvers í Keilisnesi.
Gylfi segir að fulltrúar starfs-
manna hafi öll gögn um þær viðræð-
ur undir höndum og hafi tekið þessi
mál upp í viðræðunum við ÍSAL en
viðsemjendurnir hafi hafnað einstök-
um atriðum sem þar sé að finna.
„Atlantal fyrirtækin ætluðu til dæm-
is ekki að vera í VSÍ,“ segir hann.
„í öðru lagi segja þeir að ÍSAL
fari fram á frelsi til að nota verk-
taka. Staðreyndin er sú, að fyrir utan
verktaka sem eru hér að staðaldri
hafa verið yfír 170 verktakar hjá
ÍSAL á hveiju ári undanfarin ár,“
segir Gylfí ennfremur.
Hann bendir auk þess á að í sein-
asta kjarasamningi sem gerður var
hafi fulltrúar frá hvorum samnings-
aðila verið settir í það verk að yfír-
fara samninginn til að leiðrétta, ein-
faida og skýra samningstextann og
hafí þeir lokið því verki á seinasta
ári. Gylfí sagði einnig að frá upp-
hafí hefðu verið gerðir heildarkjara-
samningar í álverinu fyrir öll viðkom-
andi verkalýðsfélög og því væru
ummæli Hannesar um þetta villandi.
Hafa heimild til að boða til
róttækra aðgerða
Fulltrúar starfsmanna álversins
hafa vísað kjaradeilu þeirra við ÍSAL
til ríkissáttasemjara og gengu þeir á
fund Þóris Einarssonar ríkissátta-
semjara í gær til að kynna honum
sjónarmið sín. „Það liggja fyrir sam-
þykktir í félögunum um náist ekki
samningar verði boðað til róttækra
aðgerða en það eru engar tímasetn-
ingar á því. Menn hafa gælt við það
að hægt verði semja á rólegu nótun-
um,“ segir Gylfí.
Minja-
gripir fyrir
milljónir
MINJAGRIPASALA vegna HM í
kandknattleik hefur velt um 6
miiyónum króna og er svipuð og
áætlanir gerðu ráð fyrir, að sögn
Arndísar Kristjánsdóttir, mark-
aðsfulltrúa hjá framkvæmda-
nefnd HM.
Hún segir að salan hafi farið
mun betur af stað en búist var við
en dregið hafi úr henni eftir að
ljóst var að íslenska liðið næði
ekki sama árangri og vonast hafði
venð til.
Áætlanir hefðualltaf miðað við
að mest seldist til íslendinga og
ekki hefði í þessu sambandi verið
búist við fjölda erlendra ferða-
manna.
Hún sagði að íslendingar jafnt
sem útlendingar keyptu mest af
bolum og húfum.
Öll minjagripasala vegna HM
Morgunblaðið/
ARNDÍS Kristjánsdóttir inn-
an um minjagripi í versluninni
i Laugardalshöll.
fer fram á vegum framkvæmda-
nefndar mótsins og sagði Arndís
að mestmegnis væri um innlenda
framleiðslu að ræða.
Sumir framleiðendur hefðu selt
meira en áætiað hefði verið en
aðrir minna. T.d. væri ljóst að
framleiðendur bolanna hefðu ekki
undan neinu að kvarta en óneitan-
lega væri minni eftirspurn eftir
dýrustu vörunum, svo sem ullar-
vöru, og kynni það að spila inn í
að erlendir gestir væru ekki ýkja
margir.
Utanríkismálanefnd
+ ----------------
Olafur Ragnar vænt-
anlega varaformaður
ÓLAFUR Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalags verður að
öllum líkindum kjörinn varaformað-
ur utanríkismálanefndar Alþingis á
fyrsta fundi nefndarinnar á mánu-
dag.
Gert er ráð fyrir að stjórnarand-
staðan á Alþingi fái varafor-
mennsku í fjórum þingnefndum.
Utanríkismálanefnd, efnahags- og
viðskiptanefnd, iðnaðarnefnd og
umhverfísnefnd. Fyrir liggur að
stjómarandstaðan fær formennsku
í sjávarútvegsnefnd, heilbrigðis- og
trygginganefnd og félagsmála-
nefnd.
Ekki er enn að fullu frágengið
hvernig varaformennska í nefndun-
um fjórum skiptist milli stjórnar-
andstöðuflokkanna en gengið verð-
ur endanlega frá því á mánudags-
morgun.
_______________—-MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ragnar Stefánsson vill rannsóknir á Bláfjallasvæðinu
Hugsanlega öflugur
jarðskjálfti á svæðinu
RAGNAR Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðingur á Veðurstofu Islands, hef-
ur ritað borgarstjóranum í Reykjavík
bréf þar sem hann leggur til að gerð-
ar verði mælingar og rannsóknir á
jarðskjálftum og misgengishreyfíng-
um á svæðinu frá Hellisheiði og vest-
ur að Brennisteinsfjöllum, eða á því
svæði sem hann kallar Bláfjalla-
svæði.
Bendir hann á að jarðskjálftar og
eldgos á þessu svæði geti haft mikil
áhrif á Stór-Reykjavíkursvæðið og
varði mjög þróun byggðar til framtíð-
ar. Stofnkostnaður við að koma upp
3 jarðskjálftamælistöðvum eins og
eru á Suðurlandsundirlendi er talinn
5 milljónir króna, en rekstur þeirra
kostar 1,2 milljónir á ári. Þá leggur
Ragnar til að veitt verði 2 milljónum
króna til rannsókna á nýjum og
gömlum mæligögnum frá svæðinu.
Spenna gæti verið að myndast
Ragnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að dæmi um mjög stóra
jarðskjálfta á þessu svæði væru
óþekkt, en stærsti þekkti skjálftinn
varð árið 1929 og mældist hann 6,3.
Miklar hreyfíngar á jarðskorpunni í
nágrenni við svæðið gætu hins vegar
bent til þess að spenna væri að mynd-
ast á svæðinu, og þar væri hörð fyrir-
staða sem ekki hefði náð að brotna.
„Ef þetta er þannig þá gæti það
ýtt undir líkur á því að þama yrði
stór skjálfti, eða sem nálgaðist
stærðina 7. Það myndi ekki leiða til
mikilla skemmda í Reykjavík, en
auðvitað auka álagið og þá sérstak-
lega á mannvirki sem væru í áttina
til þessa svæðis. Þannig gæti þetta
haft áhrif á það hvernig menn skipu-
legðu byggðina. Það má svo ekki
gleyma því að niðurstaða rannsókn-
arinnar gæti orðið þveröfug og leitt
í ljós að þrátt fyrir allt væri engin
ástæða til þess að búast við mjög
stórum jarðskjálfta þarna. En vegna
skipulagningar byggðar hér á landi
er alveg nauðsynlegt að kanna svona
hluti,“ sagði Ragnar.
Hann sagði að núna hefðu vísinda-
menn yfír að ráða aðferðum til að
skoða Bláfjallasvæðið betur en
nokkru sinni hefði verið möguleiki á
áður. Þar væri fyrst og fremst um
að ræða mjög öflugt jarðskjálftamæl-
inga- og úrvinnslukerfí sem verið
hefði byggt upp hér.á landi á undan-
fömum árum, en einnig möguleika
á að skoða af nákvæmni landbreyt-
ingar með aðstoð gervitunglamynda
og nákvæmum staðsetningartækj-
um.
„Við höfum þróað upp aðferðir
sem gera okkur kleift að skoða
sprungur og sprunguhreyfíngar niðri
í jarðskorpunni og finna þannig virk-
ar sprungur. Með því að beita þann-
ig þeim aðferðum, sem verið er að
þróa eða búið er að þróa, getum við
þegar fengið mikla vitneskju með því
að setja þarna upp nokkrar jarð-
skjálftastöðvar í kringum höfuðborg-
arsvæðið, og tengja þær við það net
sem þegar er fyrir hendi,“ sagði
Ragnar.
I bréfinu til borgarstjóra leggur
hann til að auk þess að komið verði
upp ofangreindum mælingabúnaði
komi sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu sér upp vinnuhópi jarð-
skjálfta- og jarðfræðinga til að leggja
á ráðin um frekari aðgerðir og rann-
sóknir sem varði eðli jarðskorpu-
hreyfinga á Bláfjallasvæðinu.
Bréfið var tekið fyrir á síðasta fundi
borgarráðs og var því vísað til um-
sagnar hjá embætti borgarverkfræð-
ings, en einnig var afrit þess sent
almannavamanefnd Reykjavíkur.
Stjórnarandstæðingar um afnám einkaréttar ÁTVR
Breytt áfengis- og
heilbrigðisstefna
Heilbrigðisráðherra vili tryggja eftirlitsþáttínn betur
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR
fullyrtu á Ajþingi í gær að afnám
einkaréttar ÁTVR á innflutningi og
heildsölu á áfengi þýddi í raun ger-
breytta áfengis- og heilbrigðis-
stefnu.
Ögmundur Jónasson, Alþýðu-
bandalagi, sagði að til þessa hefði
það verið markmið ÁTVR að selja
sem minnst áfengi með sem mest-
um hagnaði. Því mætti spyrja hvað
gerist þegar innflutningur og sala
á áfengi yrðu komin til einkaaðila
og samkeppnin færi að segja til sín.
Fjallað var um málið á Alþingi í
gær en fjármálaráðherra og dóms-
málaráðherra hafa lagt fram laga-
frumvörp sem miða að þessu. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, Alþýðubanda-
lagi, sagði að í þeim fælist að allir
gætu flutt beint inn áfengi og keppt
um sölu þess til veitingahúsa eftir-
litslaust.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði það misskilning að ver-
ið bæri að breyta áfengis- og heil-
brigðisstefnu með frumvörpunum.
Nú þegar væri öllum fijálst að flytja
inn áfengi og innflytjendur yrðu
samkvæmt frumvarpinu að greiða
áfengisgjald strax í tolli. Og verð-
pólitíkin væri aðalatriðið í íslenskri
áfengislöggjöf og það myndi ekki
breytast.
Varnarveggur
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði mjög áríðandi að
tryggja að aðgengi bama og ungl-
inga að áfengi aukist ekki með
löggjöfinni og því teldi hún eðlilegt
að heilbrigðis- og trygginganefnd
Alþingis fjallaði einnig um frum-
vörpin, í ljósi þess að áfengisvarnir
heyrðu undir heilbrigðisráðuneytið.
Umrædd frumvörp voru einnig
lögð fram á síðasta þingi en ekki
afgreidd þá vegna andstöðu stjóm-
arandstöðunnar, þar á meðal Fram-
sóknarflokksins sem nú er í ríkis-
stjórn.
Um þetta sagði Ingibjörg við
Morgunblaðið, að ýmsu í frumvörp-
unum væri ekki auðvelt að kyngja.
„En þetta er spuming um hvemig
við getum komið með varnarvegg
gagnvart þeim áhættuþáttum sem
fólk hefur bent á. Það er ýmislegt
í þessu frumvarpi sem á eftir að
taka breytingum í þingnefndum.
Og ég mun, sem heilbrigðisráð-
herra, reyna að hafa áhrif á það,“
sagði Ingibjörg.
Mikilvægt að afgreiða nú
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði mikilvægt að afgreiða
frumvörpin nú á sumarþinginu, þar
sem Eftirlitsstofnun EFTA, (ESA)
áformi að stefna íslenskum stjórn-
völdum fyrir EFTA-dómstólnum.
Stofnunin telur að núverandi skipan
áfengisinnflutnings bijóti í bága við
EES-samninginn og EFTA-dóm-
stóllin hefur gefið út samhljóða álit.
Friðrik sagði að þótt lögin væru
samþykkt mætti fresta gildistíman-
um um nokkra mánuði, en sam-
kvæmt frumvörpunum eiga lögin
að taka gildi í júlí og ágúst.
Ögmundur Jónasson, Alþýðu-
bandalagi, fullyrti að aðeins þyrfti
að gera smávægilegar lagabreyt-
ingar til að uppfylla skilyrði ESA.
Hins vegar væri ljóst að á ferðinni
væri stórpólitískt mál, þar sem fjall-
að væri um sölu á ríkisfyrirtækjum,
um áfengisstefnu, heilbrigðisstefnu
og fjármál ríkisins.
Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóð-
vaka, óskaði eftir úrskurði forseta
Alþingis um það hvort Vilhjálmur
Egilsson væri hæfur, sem væntan-
legur formaður efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis, að fjalla um
frumvörpin í ljósi þess að Verslun-
arráð, þar sem Vilhjálmur er fram-
kvæmdastjóri, hefði sent kærur
vegna málsins til ESA.
Ekki tokst að ljúka fyrstu um-
ræðu um málið í gær.
J
1
\
\
>
I
\
I
\
\
\