Morgunblaðið - 20.05.1995, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atvinnuleysi svipað
o g í apríl í fyrra
ATVINNULEYSI minnkaði í apríl-
mánuði frá því sem það var í mars
og er mjög svipað því sem það var
í aprílmánuði í fyrra, að því er fram
kemur í yfirliti frá vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytisins.
Atvinnuleysisdagar í apríl jafn-
giltu því að 7.120 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá
í mánuðinum, 3.727 karlar og 3.393
konur. Þessar tölur jafngilda því
að 5,5% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði hafi verið atvinnu-
laus í mánuðinum. Atvinnuleysið
er hlutfallslega meira hjá konum
en körlum, 4,9% hjá körlum og 6,3%
hjá konum.
Atvinnuleysið 4,6% síðustu 12
mánuði
Atvinnuleysi síðustu tólf mánuði
hefur að meðaltali verið 4,6% af
áætluðum mannafla á vinnumark-
aði. Mest varð atvinnuleysið í jan-
úar 6,7% en minnst í júlí 3,1%.
Atvinnuleysi milli mars og apríl
minnkar í öllum landshlutum nema
á Suðurnesjum og er það eins og
gerðist milli sömu mánaða í fyrra.
Atvinnuleysi minnkar hlutfallslega
mest á Vestfjörðum og Austur-
landi, en mest fækkun er á höfuð-
borgarsvæðinu. Atvinnuleysi nú í
apríl er minna á Vestfjörðum, Vest-
urlandi, Norðurlandi eystra og
Norðurlandi vestra heldur en í apríl
í fyrra, en í öðrum landshlutum er
atvinnuleysið meira en það var í
fyrra.
Vinnumálaskrifstofan segir að
búast megi við að atvinnuleysi
minnki áfram í maímánuði víðast
hvar á landinu og geti orðið á bilinu
4,6-5% í mánuðinum.
Atvinnuleysi í febrúar, mars og apríl 1995
VEST-
FIRÐIR.i
SVÆÐIÐ
Hlutfall atvinnulausra
af heildarvinnuafli 31%
Á höfuðborgarsvæðinu standa
4.129 atvinnutausir á bak við
töluna 5,4% í april og
fækkaði um 544 frá því
ímars. Atlsvoru
7.129 atvinnufausir á *
tandinu öllu í april 7 %: 56s
og hafði fækkað
um 1.089 frá því
í mars.
LANDS-
BYGGÐIN
NORÐUR
LAND
EYSTRA
NORÐUR
LAND
VESTRA
AUSTUR
VESTURLAND
SUÐURLAND
LANDIÐ
ALLT
SUÐURNES
6,7s
F M A
F M A
Ágreiningi um köllun prests til Hvera-
gerðisprestakalls vísað til ráðherra
Prestur leggur fram
stj órnsýslukæru
Beiðni um
gjaldfrjáls
bílastæði
hafnað
BORGARRÁÐ hefur hafnað er-
indi Þróunarfélags Reykjavíkur
og Kolaportsins um að bflastæð-
in á Bakkastæði, milli Tryggva-
götu og Geirsgötu og á Mið-
bakka, verði gjaldfijáls á laugar-
dögum, með sama hætti og
stæði í bflageymsluhúsum.
í erindi Þróunarfélagsins og
Kolaportsins til borgarráðs er
lýst áhyggjum yfir væntanlegri
gjaldtöku á laugardögum. For-
senda fyrir markaðshúsinu sé
ókeypis bílastæði um helgar og
gjaldtaka við Kolaportið og
Reylq'avíkurhöfn á laugardögum
vinni gegn því að efla mannlíf
í miðborginni um helgar.
Starfsmenn fylla stæðin
í umsögn framkvæmdastjóra
bflastæðasjóðs til borgarráðs er
Iagt til að erindinu verði hafnað.
Rökstuðningur Þróunarfélags-
ins og Kolaportsins byggi á
þeirri skoðun að gjaldskyld bíla-
stæði vinni gegn uppbyggingu
atvinnustarfsemi í miðborginni
en því sé öfugt farið. Við núver-
andi aðstæður fylli starfsmenn
markaðarins bflastæðin næst
húsinu að morgni og viðskipta-
vinir verði að leggja fjær.
Þá er bent á að undanþága
frá gjaldskyldu á laugardögum
gefí slæmt fordæmi og að hætta
sé á misskilningi og ruglingi.
Minnt er á að megintilgangur
með opnun bflastæðahúsa á
laugardögum án gjaldskyldu
fyrst um sinn sé að venja fólk
á notkun þeirra auk þess að liðka
fyrir framgangi gjaldskyldunnar
á laugardögum.
SÉRA Egill Hallgrímsson, prestur
á Skagaströnd, hefur lagt fram
stjómsýslukæru til dóms- og
kirkjumálaráðherra vegna köllunar
prests til Hveragerðisprestakalls.
í kærunni fer séra Egill fram á
að felld verði úr gildi sú ákvörðun
kjörmanna í prestakallinu að kalla
prest án undangenginnar auglýs-
ingar. Sömuleiðis að felld verði úr
gildi ákvörðun biskups að heimila
köllunina og loks að felld verði úr
gildi ákvörðun meirihluta kjör-
manna um að kalla tiltekinn prest
til embættis sóknarprests í Hvera-
gerðisprestakalli.
Ákvörðun kjörmanna í Hvera-
gerðisprestakalli, að kalla prest til
starfa án þess að embætti væri
áður auglýst laust til umsóknar,
hefur verið mjög umdeild og ekki
síður ákvörðun biskups að heimila
köllunina. Stjórn Prestafélags ís-
lands hefur mótmælt þessum fram-
gangi mála. Um þriðjungur
sóknarbama í Hveragerði hefur
einnig mótmælt kölluninni.
Prestar sviptir rétti
„Sóknamefndirnar og biskup
hafa með túlkun sinni á lögum
tekið frá mér þann möguleika að
sækja um þetta embætti og með
því tel ég að brotið hafi verið á
lögvörðum rétti mínum og annarra
presta þjóðkirkjunar," sagði séra
Egill.
„Lög um veitingu prestakalla
gera ráð fyrir þeirri meginreglu
að kjörmenn velji prest í leynilegri
kosningu úr hópi umsækjenda eft-
ir að prestakallið hefur verið aug-
lýst með venjulegum hætti, enda
er það í samræmi við þær megin-
reglur sem gilda almennt um veit-
ingu opinberra embætta, samanber
t.d. 5. gr. laga um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins og
almenn réttlætissjónarmið í samfé-
laginu.
Mér hefur einnig skilist að sam-
kvæmt gildandi rétti verði að telj-
ast réttmætt að rökstuðningur
fylgi þegar ljóst sé að um undan-
tekningu frá meginreglu sé að
ræða. Ég hef engin haldbær rök
heyrt eða séð fyrir því að víkja frá
meginreglu laganna í því tilviki
sem hér um ræðir.
Prestar þjóðkirkjunnar og guð-
fræðikandidatar hafa engin form-
leg tök á að koma sér á framfæri
í prestaköllum þar sem prest vant-
ar umfram það að sækja um emb-
ættin. Lögformlegur réttur minn í
þessu efni er þannig nánast ein-
skorðaður við það að gefa mig
fram þar sem prestakall vantar
þjónustu eftir að biskup hefur aug-
lýst embættið laust til umsóknar.
Eg tel þetta því vera dýrmætan
rétt sem varinn sé með meginregl-
um landslaga og anda íslensks
réttarfars. Eg sætti mig ekki við
að hann sé tekinn frá mér,“ sagði
séra Egill.
Dómsmálaráðherra hefur
ákveðið að leita eftir umsögn bisk-
ups íslands á kærunni. Úrskurðar
er að vænta fljótlega.
Fiski fleygt
100 þúsund
tonn af þorski
aftur í sjóinn
Kristinn Pétursson
KRISTINN Péturs-
son fiskverkandi,
fyrrverandi al-
þingismaður, beitti sér fyrir
umræðu um það að fiski
væri fleygt í sjóinn fyrir
fimm árum þegar hann lét
á eigin vegum gera skoð-
anakönnun meðal sjómanna
um það hversu mikið væri
um þetta. Hann telur að
ástandið hafið stórversnað
síðan og nú sé 100 þúsund
tonnum af þorski, að út-
flutningsverðmæti 10 millj-
arðar kr., hent á hveiju
ári. Hann kennir stjórnkerfi
fiskveiðanna um, það sé
þannig upp byggt að sjó-
menn geti ekki komið með
lélegasta aflann að landi þó
úr honum sé hægt að gera
milljarða verðmæti.
„Samkvæmt samtölum minum
við sjómenn á þessum tíma voru
brögð að því að fiski væri fleygt.
Kvótakerfið er þannig að menn
geta ekki komið með verðminni
fiskinn að landi. í því er sjálfvirk-
ur hvati sem gerir það að verkum
að menn henda ódýrari fiskinum
til að geta hirt dýrari fisk í stað-
inn. Ég reyndi að afla stuðnings
til að gera á þessum könnun með-
al sjómanna en fékk engar undir-
tektir svo ég réðst í að gera þetta
á eigin vegum. Ég fékk Skáís til
að vinna þetta. Haustið 1989 voru
skrifuð bréf til 900 sjómanna, þar
af voru 300 á bátum, 300 á trillum
og 300 á togurum. Þetta var alger-
lega hlutlaus könnun og mjög vel
unnin og svörunin var ótrúlega
góð. Yfir 60% þátttakenda sendu
skrifleg en nafnlaus bréf til baka.
Niðurstaða skoðanakönnunar-
innar varð sú að samtals væri hent
um 53 þúsund tonnum af allskonar
fiski. iúmlega helmingurinn þorsk-
ur. Ég reyndi að koma þessum
upplýsingum á framfæri en enginn
hafði áhuga á að taka málið upp.
Helstu niðurstöður voru síðan birt-
ar í Morgunblaðinu vorið 1990.“
Hver urðu viðbrögðin?
„Þau voru með ólíkindum. Ýms-
ir sem töldu sig vera hagsmunaað-
ila réðust á mig í stað þess að
snúa sér að málinu, sögðu að með
þessu væri ég að ná mér niðri á
kvótakerfinu. Það er auðvitað víðs
fjarri að það hafi vakað fyrir mér,
þó ég hafi haft og hafi enn margt
við kerfið að athuga. Hafrann-
sóknastofnun taldi að þetta væri
fráleit könnun sem hlyti að vera
byggð á röngum for-
sendum. Sagði að sam-
kvæmt eigin athugun
væri aðeins 5.000 tonn-
um hent. Enginn hafði
hins vegar áhuga á að
skoða könnunina sjálfa og hefur
enn ekki gert.“
Hver telur þú að þróunin hafi
verið síðan. Er meiru hent nú?
„Það kom fram í skoðanakönn-
uninni að 63% aðspurðra töldu að
ef haldið yrði áfram að skera niður
kvótann yrði ennþá meira af físki
fleygt. Og aflaheimildimar hafa
dregist stórkostlega saman á þess-
um tíma. Ég tel að menn séu nú
að vakna til meðvitundar um það
að nú er ennþá meiru hent en þó
var fyrir fimm árum. Stærstum
hluta af dauðum netafiski er til
dæmis hent í sjóinn. Ég er sann-
færður um að þar fara verðmæti
upp á 1-2 milljarða kr. því allan
þennan fisk væri hægt að nýta
með því að hengja upp í skreið
►Kristinn Pétursson er fæddur
á Bakkafirði 12. mars 1952.
Hann tók vélstjórapróf frá Vél-
skóla íslands 1975 og hefur
unnið sem sjálfstæður atvinnu-
rekandi við útgerð og fiskverk-
un á Bakkafirði frá árinu 1973,
rekur nú saltfiskverkunina
Gunnólf hf. Hann var alþingis-
maður 1988-91 og var um tíma
framkvæmdastjóri verktaka-
fyrirtækis. Kristinn er kvæntur
Hrefnu S. Högnadóttur og eiga
þau þrjú börn.
fyrir Nígeríumarkað sem skilar að
minnsta kosti 70-80 kr. á hráefnis-
kíló.“
Nýlegir atburðir á Selvogs-
banka virðast benda til þess að
talsvert sé um þetta.
„Já, bæði það og frásögn sem
nýlega birtist í Fiskifréttum af því
þegar rækjutogari var að henda á
annað hundrað tonnum af fiski í
einni veiðiferð. Ég kann hins vegar
ekki við aðferðir veiðieftirlitsins,
það er lágkúrulegt að liggja í leyni
og ljósmynda saklaust fólk. Sjó-
menn eru í mörgum tilvikum
neyddir til þess að fleygja fiski
vegna þess að þeir eiga engan
kvóta og geta ekki keypt hann á
100 kr. kílóið til að landa honum
á minna. Þeir eru ekki sökudólg-
arnir. Það þýðir ekki að setja regl-
ur sem gera menn að glæpamönn-
um vegna aðstæðna sem þeir ráða
ekki við.“
Hvað ætti að gera til að fá
menn til að koma með allan aflann
að landi?
Stjómkerfi fiskveiða
verður að hvetja menn
til að hirða undirmálsfisk
og dauðan netafísk sem
alltaf verður, enginn er
bættari með því að hann fari aftur
fyrir borð. Það verður að bakka
út úr stjómkerfinu að þessu leyti.
Þessu hefur verið hreyft en svörin
eru á þá leið að slíkt myndi. leiða
til þess að menn færu að svindla
góðum fiski í land á þeim forsend-
um að hann væri smár eða dauð-
ur. Þessi sjónarmið eru fráleit og
neikvæð og dæmigerð fyrir það
fólk sem ekki vill hleypa þessari
umræðu að. Umræða um stjóm-
kerfið virðist vera svo viðkvæmt
mál að aldrei má ræða galla þess
né neitt annað sem því viðkemur.
Þessi skoðanakönnun mín er dæmi
um það. Málið hefur ekki fengist
rætt efnislega og á þessum fimm
árum er búið að fleygja físki fyrir
milljarða."
Sjómenn eru
ekki söku-
dólgarnir