Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Harka færist í deilur Gísla Arnar Lárussonar og Skandia í Svíþjóð
Óskað eftir
opinberri
rannsókn
VWmeð
hagnað á ný
Bonn. Reuter.
VOLKSWAGEN AG skilaði
hagnaði á ný á fyrsta ársfjórð-
ungi 1995, en sterk staða
marksins er fyrirtækinu óhag-
stæð.
Samkvæmt bráðabirgða-
skýrslu skilaði VW nettóhagn-
aði upp á 13 milljóna marka á
ársíjórðungnum miðað við 342
milljóna marka halla á sama
tíma í fyrra.
Sala jókst um 5,7% í 21.2
milljarða marka, heldur meir
en búizt hafði verið við. Fram-
leiðslajókst um 11,4% í 846.298
bíla, en bílum afhentum við-
skiptavinum fækkaði um 1,2%
í 823.661.
Dótturfyrirtækið Audi átti
velgengni að fagna vegna vin-
sælda A4, sem tekur við af
Audi 80. Afgreiddum bílum
Audi fjölgaði um tæplega einn
fímmta í 110.435. Volkswag-
en stendur við fyrri spá um
heldur meiri nettóhagnað 1995
en 1994 þrátt fyrir óróa á gjald-
eyrismörkuðum. Sterk staða
marks gegn líru og pundi kom
sér einkum illa fyrir VW.
Vinsælar gerðir
Volkswagen bindur einkum
vonir við nýju gerðirnar Polo
og Audi A4. Sérfræðingar telja
spár VW of varfæmislegar og
spá stórauknum hagnaði í ár
veg^na iægri kostnaðar og vin-
sælda nýju gerðanna. Þeir spá
að minnsta kosti 700 milljóna
marka hagnaði í ár og rúmlega
tvöfait meiri hagnaði 1996.
GÍSLI Örn Lárusson hefur óskað
eftir opinberri rannsókn ríkissak-
sóknara á meintum refsiverðum
brotum stjórnarmanna óg endur-
skoðenda Vátryggingarfélagsins
Skandia hf. varðandi bókhalds-
færslur og reikningsskil félagsins.
Málið tengist umdeildum viðskipt-
um Gísla Amar og Skandia sam-
steypunnar í Svíþjóð, eiganda Vá-
tryggingarfélagsins Skandia hf.,
sem Iauk með úrskurði gerðardóms
í janúar sl.
í stuttu máli eru málavextir þeir
að 26. júní 1991 eignaðist Skandia
í Svíþjóð 64,3% hlutafjár í Reyk-
vískri tryggingu hf. þar sem Gísli
var forstjóri og eigandi 35,7% hluta-
fjár. Nafni félagsins var breytt í
Vátryggingarfélagið Skandia hf. og
18. desember 1992 keypti Gísli hlut
Skandia í því á eina krónu. Aðdrag-
andinn að þeim kaupum var sá að
í samningnum frá 26. júní 1991 var
kveðið á um að Gísli yrði forstjóri
til ársins 1997, auk þess sem hann
átti að eiga sæti í stjórn félagsins.
Að samningstímanum liðnum var
Skandia skuldbundið til að kaupa
hlutafé Gísla og greiða fyrir ákveð-
ið verð samkvæmt reikniforsendum
sem voru ákveðnar í samningnum.
Afarkostir
Gísli segir í bréfi til saksóknara
að þegar líða tók á árið 1992 hafi
honum skyndilega verið settir afar-
kostir og forsvarsmenn Skandia
hafí viljað setja hann af sem for-
stjóra, losna við hann úr stjóm og
kaupa hlut hans í félaginu. Gísli
Örn vildi ekki selja hlut sinn í Vá-
tryggingarfélaginu Skandia á því
verði sem Skandia í Svíþjóð bauð
og lauk málinu þannig að Gísli Örn
keypti hlut Skandia á eina krónu
eins og fyrr segir. Jafnframt af-
skrifaði sænski aðilinn tvær kröfur
sem hann átti á vátryggingarfélag-
ið, samtals að ijárhæð um 60 millj-
ónir íslenskra króna.
Ofangreindir samningar milli
Gísla Arnar og Skandia í Svíþjóð
voru ógiltir með gerðardómi 20.
janúar sl. eftir að Gísli Örn hafði
farið fram á slíka ógildingu í ljósi
þess að hann hefði verið þvingaður
til að selja hlut sinn í félaginu.
„í ljósi úrskurðar gerðardóms er
eini samningurinn í gildi milli mín
og Skandia í Svíþjóð frá 26. júní
1991 þar sem ég er stór hluthafi í
Vátryggingarfélaginu Skandia,
jafnframt því að vera forstjóri fé-
lagsins. Ástæða þess að ég fer út
í að kæra þessa menn er að ég hef
nú beðið í fjóra mánuði frá því að
gerðardómur felldi úrskurð sin.n
eftir að fá leiðréttingu minna mála.
Fyrirfram samþykktu báðir aðilar
að hlíta úrskurði gerðardóms, en
eftir að hann féll hafa bæði Ragnar
Aðalsteinsson, stjórnarformaður
Vátryggingarfélagsins Skandia, og
sænsku aðilarnir neitað að virða
samninginn frá 26. júní 1991. Nú
er mér nóg boðið og þetta er þrauta-
lendingin. Ég hefði viljað losna við
að koma fram með þessar ákærur,
en ég tel í raun ástæðu þess að
forsvarsmenn Skandia hafa ekki
viljað semja við mig vera þá að
félagið hefur eytt hátt í milljarði í
ijárfestingar hér á landi, sem þeir
eiga erfitt með að réttlæta fyrir
stjórn Skandia," sagði Gísli.
Ásakanir
í bréfi Gísla Arnar til ríkissak-
sóknara segir að rök Skandia fyrir
því að neita að afhenda Gísla 35,7%
hlut sinn í Vátryggingarfélaginu
Skandia séu m.a. þau að hlutafé
félagsins hafi verið aukið 31. des-
ember 1992 úr 12 milljónum í 152
milljónir. Ásakanirnar fela meðal
annars í sér að Ragnar Aðalsteins-
son hafi gefið út rangar yfírlýsing-
ar þegar hann sagði að allt hlutaféð
hefði verið inngreitt 31. desember
1992. Sænsku aðilarnir hafi notað
sem hlutaljáraukningu 60 milljóna
kröfur sem þeir áttu á vátrygging-
arfélagið, en afskrifuðu með samn-
ingi 18. desember. Sá samningur
hafi aldrei verið færður til baka.
Þá segir Gísli Örn að Ragnar
hafi lýst því yfir, síðast til Vátrygg-
ingareftirlitsins 9. apríl sl., að eng-
ar breytingar hafi orðið á hluthöfum
Vátryggingarfélagsins Skandia þar
sem Skandia í Svíþjóð væri eini eig-
andinn. Sænsku aðilarnir haldi því
hins vegar fram að þeir hafi selt
öðrú félagi innan samsteypunnar
öll bréfin og geti því ekki framselt
hluta þeirra til Gísla.
Helstu ásakanir sem snúa að
Ólafi Nilssyni, endurskoðenda Vá-
tryggingarfélagsins Skandia, varða
gögn sem hann hafi sent til Svíþjóð-
ar í nóvember 1992, á bak við stjórn
vátryggingarfélagsins og fram-
kvæmdastjóra sem þá var Gísli Örn
Lárusson. Þau gögn hafi verið mis-
vísandi þar sem hann hafi m.a.
haldið fram að Gísli Örn skuldaði
félaginu ljármuni, þegar í reynd
Gísli hafi átt þar inni 3 milljónir,
eins og Ólafur hafi skrifað upp á í
milliuppgjöri félagsins. Ólafur hafi
hins vegar borið fyrir sig þagnar-
skyldu þegar hann var kallaður sem
vitni í gerðardómi.
Líkt og Ólafur er daglegur endur-
skoðandi Vátryggingarfélagsins
Skandia, Sigurður Jónsson, sakaður
um skjalafals, m.a. vegna þess sem
varðar færslu hlutafjáraukningar-
innar og afskrifuðu krafnanna.
Auk ofangreinds er Leif Victorin
sakaður um að hafa þvingað Gísla
Örn til þess að selja sænsku aðilun-
um Vátryggingarfélagið Skandia
með því að kippa fótunum undan
félaginu þegar hann lýstl því yfir
við Vátryggingareftirlitið að aldrei
hafi verið til endurtryggingarsamn-
ingur á milli félaganna. Þá hafi
Leif Victorin skrifað viðskiptaráð-
herra íslands bréf þar sem hann
ásakaði Gísla fyrir að hafa tekið
heimildalaust lán hjá vátryggingar-
félaginu. Þar hafi Leif Victorin not-
að fyrrgreindar upplýsingar Ólafs
Nilssonar.
Skandia Nord höfðar mál
gegn Gísla Erni Lárussyni
Freistar þess
að hnekkja
gerðardómin um
SKANDIA Nord í Svíþjóð hefur
höfðað mál fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur á hendur Gísla Erni
Lárussyni þar sem farið er fram á
að ógiltur verði gerðardómur frá 20.
janúar sl. í deilu þessara tveggja
aðila. Þá er farið fram á að 'Gísli
Örn verði dæmdur til að greiða
sænsku aðilunum þann kostnað sem
þeir hafa haft vegna þessa máls auk
skaðabóta vegna tjóns sem félagið
hefur mátt þola vegna málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skandia Nord í Svíþjóð hefur félagið
frá því að g;erðardómur var kveðinn
upp, reynt til hins ítrasta að ná sam-
komuiagi við Gísla Örn, en án árang-
urs. Ástæður þess séu fyrst og
fremst algjörlega óraunhæfar kröfur
af hendi Gísla Arnar. Af þeim sökum
hafi Skandia Nord ekki átt annan
kost en að stefna Gísli Erni Lárus-
syni.
I stefnunni krefst Skandia Nord
þess að niðurstaða gerðardómsins
verði ógilt. Ástæðan sé sú að sam-
kvæmt mati Skandia Nord sé aug-
ljóst að dómurinn grundvallist á
rangri beitingu lagareglna. Meðal
annars ógildi gerðardómurinn samn-
ing milli aðilanna þrátt fyrir að hann
hafi komist á fyrir milligöngu þriðja
aðila og að tilstuðlan opinberra aðila
á íslandi."
Forsvarsmenn Skandia Nord
segja ennfremur að stefnan á hend-
ur Gísla Erni hafi á engan hátt áhrif
á rekstur Vátryggingarfélagsins
Skandia hf., enda sé félagið ekki
aðili að því máli.
í stefnu Skandia Nord á hendur
Gísla Arnar eru meðal annars nefnd-
ar ástæður fyrir því að Skandia
Nord hafi neyðst til að slíta sam- <
starfi við Gísla Örn í árslok 1992
eftir að alvarlegir hnökrar hafi kom-
ið í ljós á starfi hans hjá hinu ís-
lenska tryggingarfélagi.
30-50 milljóna
bótakröfur
„Sænska félagið gerir annars veg-
ar kröfu um ógildingu gerðardóms
og er hins vegar með bótakröfu á
hendur Gísla upp á um 30-50 millj-
ónir,“ sagði Ragnar Aðalgteinsson,
stjórnarformaður Vátryggingarfé-
lagsins Skandia hf. í samtali við
Morgunblaðið. „Samningaleiðin hef-
ur verið reynd án árangurs í marga
mánuði. Gísli hefur verið með ýmsar
hótanir, en aldrei komið fram með
neinar endanlegar kröfur. Þess
vegna höfðaði sænska félagið mál
sem á að ná utan um allan hugsan-
legan ágreining til þess að ljúka
þessu máli í eitt skipti fyrir öll.
Ragnar sagðist ennfremur hafa
sent Vátryggingareftirlitinu vottorð
frá löggiltum endurskoðenda félags-
ins um að allt væri í sómanum með
hlutaíjáraukningu Vátryggingarfé-
lagsins Skandia. „Gísli er að reyna
að finna sér einhver formsatriði til
að hanka okkur á, en það er ekkert
athugavert að finna í reikningum
okkar.“
Ólafur Nilsson, vildi ekki láta
hafa neitt eftir sér varðandi málið í
samtali við Morgunblaðið í gær.