Morgunblaðið - 20.05.1995, Page 19

Morgunblaðið - 20.05.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 19 Boston. Morgunblaðið. LATÍNA er á uppleið í bandarískum grunn- og menntaskólum og fylgir nú fast á hæla spænsku á listanum yfir þau tungumál, sem eru í ör- ustum vexti á skólabekkjum vestan hafs um þessar mundir. Þessar auknu vinsældir eru m.a. raktar til nýrra aðferða í kennslu: Gallastríð- inu Júlíusar Sesars hefur t.d. verið skipt út fyrir texta eftir höfunda, sem nú eru uppi. Þótt áhugi á tungu Rómveija til foma hafi aukist er ekki þar með sagt að um sig hafi gripið latínuæði í Bandaríkjunum. Fyrir fimm árum voru til dæmis aðeins 1,5 af hund- raði nemenda í ríkisskólum á aldrin- um 15 til 18 ára að læra latínu. Hins vegar skráðu sig tæplega 90 þúsund manns í samræmt latínu- próf, sem tekið er í öllum Bandaríkj- unum, á þessu ári, en aðeins sex FRÁ baráttufundi gegn al- næmi. Bandaríkjastjórn hefur verið gagnrýnd fyrir að láta njósna um hommahreyfingar og baráttuhópa gegn alnæmi. Njósnað um homma- hreyfingar Boston. Morgunblaðið. BANDARIKJASTJÓRN liggur nú undir ámæli fyrir að hafa undan- farin ár látið mæla hvort nýfædd börn eru haldin alnæmi að for- eldrum þeirra forspurðum og leyft bandarísku alríkislögregl- unni, FBI, að njósna um homma- hreyfingar og baráttuhópa gegn alnæmi. Bandaríkjastjórn hefur á laun gert alnæmispróf á nýfæddum börnum til að mæla útbreiðslu sjúkdómsins meðal ungra kvenna. Foreldrum hefur hins vegar ekki verið greint frá niðurstöðunum og í einu tilfelli komst móðir ekki að því fyrr en sonur hennar varð fársjúkur tveggja mánaða gamall að læknar hefðu vitað að hann væri haldinn alnæmi frá deginum, sem hann fæddist. Þessi próf hafa verið gerð á öllum börnum, sem fæðst hafa i 45 ríkjum í Bandaríkjunum frá árinu 1988. Að meðaltali fæðast tvö þusund börn með alnæmi á ári. Ákveðið var að hætta prófun- um i síðustu viku, en fyrir þingi liggur frumvarp um að hefja þau að nýju og þá með vitund mæðra. Hommar undir smásjá FBI FBI hefur samkvæmt skjölum, sem mannréttindastofnun í New Ýork lét gera opinber, njósnað um hreyfingar, sem berjast gegn alnæmi og fyrir réttindum homma, af ótta við að þær gripu til ofbeldis og skvettu sýktu blóði á mótmælafundum. Alríkislögreglan hefur bæði notað uppljóstrara og menn úr eigpn röðum til njósnanna. ACT UP er meðal þeirra samtaka, sem njósnað hefur verið um. ACT UP eru þekkt fyrir hávær mótmæli, en hafa aldrei gripið til ofbeldis eða skemmdarverka. ERLENT Vegur latínu eykst í bandarískum skólum þúsund þegar það var fyrst haldið árið 1978. Fullsaddir af rétthugsun Margir nemendur segjast fara í latínu vegna þess að gaman sé að læra hana og kennslan sé lífleg. Nemendur á hægri vængnum segj- ast vera að leita griðastaðar undan skylduboði hinnar svokölluðu „póli- tísku rétthugsunar" (political correctness: sérbandarískt fyrir- brigði, sem kveður á um að í marg- brotnu þjóðfélagi verði að taka tillit til allra og gagnrýnendur segja að kæfi hugsun og standi skoðanaskipt- um fyrir þrifum). Góður grunnur Kennarar eru þeirrar hyggju að sókn hafi aukist í latínu vegna þess að hún veiti góðan grunn til að læra rómönsk mál (frönsku, ítölsku og spænsku) og komi ekki að sök í ensku. 60 af hundraði orða í ensku eiga rætur að rekja til latínu og þeir, sem læri latínu, standi sig bet- ur í enskuhluta samræms inntöku- prófs háskólanna (SAT). Latína var skylda í flestum banda- rískum ríkisskólum á síðustu öld. Á árunum 1905 til 1976 fækkaði lat- ínunemendum hins vegar úr 56 af hundraði. Skuldinni hefur verið skellt á ákvörðun Páfagarðs um að leggja af messur á latínu og kalda stríðið. Stúdentahreyfingin á sjö- unda áratugnum boðaði ást í stað stríðs og hinir iatnesku textar þóttu full herskáir þegar mótmælin gegn Víetnam-stríðinu stóðu hvað hæst. Latínugránar vilja ekki fyllast óhóflegri bjartsýni vegna hins aukna áhuga, en segja þó að hér sé um jafna og þétta aukningu að ræða. Veiðimaður á latínu „0 tempora! O mores!“ sagði Sís- eró, lítt hrifinn af hnignun og sið- leysi sinna tíma. Það kynni að hýrna á honum bráin kæmi hann inn í skólastofu nú og heyrði nemendur mæla á latínu, þótt ekki myndi hann alls kostar átta sig á því hvað hann ætti að gera við skipunina: „Pisc- are.“ Þegar verið er að spila veiði- mann á latínu þýðir nefnilega lítið að segja: „Veiddu.“ Fossháls I 110 Reykjavík Sími 634000 Astra Sedan frá kr: 1.169.000,- ■ ■ Sparnaðarstilling Spyrnustilling Spólvörn Verð frá kr. 1.048.000- Verð frá kr. 1.651.000- Öruggasti bíllinn í Framúrskarandi rúmgóbur og öruggur sínum stærbarflokki Opel Corsa Opel Vectra Opel Joy pakkinn: Fjarstýring á samlæsingum Opel álfelgur Opel, mótaðar aurhlífar Aðeins kr. 42.DD0.- Bílasýning: Fosshálsi 1 Reykjavík um helgina. Höfn - Bílverk laugardag 12-16. Selfossi, Betri bílasalan sunnudag 12-16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.