Morgunblaðið - 20.05.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 23
-
m ps r#\:
í
fellihýsi
Frá verklagi til
skaðabótalaga
HINN 31. október 1991 gaf Sam-
band íslenskra Tryggingafélaga,
S.Í.T., út verklagsreglur „við mat
á fjártjóni vegna líkamstjóna".
Tóku þær gildi daginn eftir, en
voru þó hvergi birtar opinberlega
eða kynntar.
Undirritaður lögmaður fjallaði
ítarlega um þessar reglur og gagn-
rýndi þær í grein sem birtist í Morg-
unblaðinu laugardaginn 4. janúar
1992 undir fyrirsögninni „Bylting
í bótarétti".
í greininni var bent á, að þessi
tilskipun S.Í.T. væri í andstöðu við
þágildandi réttarreglur um greiðslu
skaðabóta fyrir líkamstjón.
Þær réttarreglur voru byggðar á
örorkumati læknis og höfðu mynd-
ast á nokkrum áratugum fyrir dóm-
venju. Um þær hafði orðið slík ein-
ing, að dómsmál voru nær óþekkt,
nema deilt væri um bótaskyldu.
Forsvarsmenn vátryggingafé-
laganna og S.Í.T. svöruðu þessari
gagnrýni ekki efnislega og heldur
ekki athugasemdum annarra lög-
manna, sem fram komu opinber-
lega. Hafa þeir raunar aldrei reynt
að halda fram lögmæti reglnanna.
í blaðaviðtölum var málefninu
drepið á dreif með því að fjalla um
eitthvað annað en það sem gagn-
rýnt var, T.d. var gripið til þess
gamalkunna ráðs að gera lítið úr
þekkingu þess sem gagnrýndi.
Dæmi úr viðtali í Mbl. „I greininni
gætti mikils misskilnings og van-
þekkingar á þróun skaðabótaréttar
á síðustu árum“.
Ein afleiðing verklagsreglnanna
hefur orðið sú, að vátryggingarfé-
lögum tókst að gera upp fjölda
mála á grundvelli þessara ólög-
mætu verklagsreglna sinna. Laus-
lega áætlað hafa þau þannig sparað
sér eina milljón króna í hveiju þess-
ara mála á kostnað hins slasaða.
Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir, nú
síðast frá Jóni Steinari Gunnlaugs-
Þótt foreldrar Leifs hafí gefíð hon-
um nafnið Leif, notaði hann það ekki,
heldur íslenska nafnið Leifur, eins
og skýrt kemur fram í bók okkar.
Af einhveijum ástæðum virðir Þor-
leifur þetta ekki og notar eingöngu
hans norska skírnamafn frá upphafí
til enda greinar sinnar. Á hinn bóginn
heldur hann því fram að föðurætt
Leifs hafi verið þýsk og þaðan séu
komnir punktamir tveir yfír u-inu í
ættamafninu Miiller. Hann segir:
„Ailt sem minnti á Þýskaland olli
honum óþægindum, jafnvel punkt-
arnir yfír u-inu í ættamafni hans.
Þá rakti hann til þýsks uppmna föð-
urættar sinnar - það olli honum kvöl
og um hann fór hrollur ef hann var
inntur eftir því.“ Það er alls ekki
rétt að Leifur hafi rakið ættamafn
sitt til þýsks uppruna, hvað þá að
uppmni þess hafí kallað fram þær
sterku tilfinningar sem greinarhöf-
undur nefnir. Hið rétta er, eins og
fram kemur á blaðsíðu 212 í bók
okkar, að Leifur felldi punktana nið-
ur til að fyrirbyggja þann misskilning
að hann væri þýskur að uppruna.
í lok greinar sinnar segir höfund-
ur: „Saga Leifs Muller er ákall til
afkomenda hans sem bera Mullers-
nafnið að gleyma aldrei harmleikn-
um sem lá að baki hljóðbreytingunni
þegar Miiller breyttist í Muller.“ Ég
hefði nú talið að afkomendur Leifs
væru þeir síðustu sem þyrftu á þess-
ari áminningu að halda.
Það er mér óljúft að þurfa að gera
þessa athugasemd. En á sínum tíma
treysti Leifur mér fyrir minningum
sínum, sem vom um margt vand-
meðfarnar, og ég á erfitt með að
horfa upp á gáleysislega meðferð á
þeim.
syni hrl., hafa þau
reynst ófáanleg til að
upplýsa hversu mörg
þessi mál em.
Önnur afleiðing
verklagsreglnanna
varð auðvitað gífurleg
fjölgun dómsmála þar
sem krafist var upp-
gjörs á grundvelli þá-
gildandi réttarreglna.
Hefur mikill fjöldi
slíkra mála verið
dæmdur í héraði og
verklagsreglunum
hafnað, en málin
dæmd með hliðsjón af
örorkumati læknis og
öðrum þeim reglum
sem dómstólar hafa mótað um fjár-
hæð skaðabóta fyrir líkamstjón.
Sama er uppi á teningnum í
tveimur dómum Hæstaréttar, frá
12. janúar og 30. mars sl., málin
nr. 5 og 429/1993. Þar byggir dóm-
urinn á örorkumati læknis og tekur
fram að því hafi ekki
verið hnekkt með
„læknisfræðilegum“
rökum, eins og segir í
fyrra málinu.
Ólögmæti verklags-
reglnanna er nú endan-
lega staðfest, en eftir
stendur spurningin um
það hvað verður um
þann fjölda slasaðs
fólks, sem gert var upp
við á grundvelli þeirra,
og var meinað að taka
við greiðslu með fyrir-
vara.
Þriðja afleiðing
margnefndra verklags-
reglna, eða jafnvel al-
veg eins orsök þeirra, var setning
skaðabótalaga nr. 50/1993.
Undirritaður er einn þeirra fimm
lögmanna sem gagnrýnt hafa nokk-
ur ákvæði laganna. Sérstaklega
hefur gagnrýni okkar beinst að
margföldunarstuðli 6. greinar lag-
Af hverju óskaði alls-
herjarnefnd eftir þessari
nefndarskipan, spyr
Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, og hvers
vegna varð dómsmála-
ráðherra við beiðni alls-
herjarnefndar ef ekki
átti að fara eftir niður-
stöðu nefndarinnar?
anna . í bréfum til dómsmálaráð-
herra dags. 5. og 30. ágúst 1993
gerðum við rökstuddar athuga-
semdir við þessa reiknireglu og
sýndum fram á með dæmum, að
margföldunarstuðullinn þyrfti að
vera 11-12 í stað 7,5 eins og lögin
kveða á um.
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
hefur nýlega opinberlega gert ræki-
lega grein fyrir eftirleik þessara
bréfa og endurtek ég það ekki, en
tek upp þráðinn hinn 23. júní 1994.
Þann dag kom fram nefndarálit
þriggja manna nefndar, sem dóms-
málaráðherra skipaði að tillögu alls-
herjarnefndar Alþingis.
Var hlutverk nefndarinnar að
meta hvort ástæða væri til að
hækka nefndan margföldunarstuð-
ul til að ná yfirlýstu markmiði lag-
ana um fullar bætur fyrir fjártjón
hins slasaða.
Meirihluti nefndarinnar taldi
nefndan margföldunarstuðul þurfa
að vera 10 til þess að þessu mark-
miði væri náð. Er sú niðurstaða
mjög vel rökstudd og leidd af ítar-
legum rannsóknum, m.a. á dómum
Hæstaréttar. Með þessu héldu flest-
ir, þ.á.m. undirritaður, að stríðinu
væri lokið. Nú léti dómsmálaráð-
herra semja stjórnarfrumvarp til
breytingar á skaðabótalögum og
leggja fyrir haustþing.
Allsheijarnefnd myndi svo af-
greiða þessa réttarbót á mettíma,
þannig að frá og með hausti 1994
fengi slasað fólk allt fjártjón sitt
bætt, en ekki bara hluta þess. En
því miður, málið var enn þæft og
dagaði svo uppi á Alþingi sl. vor.
Er þá komið að kjarna málsins.
Af hveiju óskaði allsheijarnefnd
eftir þessari nefndarskipan og
hvers vegna varð dómsmálaráð-
herra við beiðni allsheijarnefndar
ef ekki átti að fara eftir niðurstöðu
nefndarinnar
Undirritaður kann engin svör við
þessum spurningum, en hvetur al-
þingismenn til að taka málið í sín-
ar hendur og hækka margföldunar-
stuðul 6. gr. skaðabótalaga úr 7,5
í 10 nú þegar á nýbyijuðu vorþingi.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
"■ ... . v'V
-
tjaldvagnar
Ferðafétaginn sem
bregst þér ekki!
Um helgina sýnum viö allt úr-
valiö af vögnum og ferðavöru
sem við höfum á boðstólum í
ár. Við kynnum nú Starcraft
fellihýsi og pallhús á íslandi en Starcraft er
þekkt í Bandaríkjunum fyrir framúrskarandi
gæði. Camp-let tjaldvagnar eru þrautreyndir
við íslenskar aðstæður og hafa verið traustir
ferðafélagar margra um áraraðir. Við bjóðum
bæði upp á Hobby og Knaus lúxushjólhýsi
frá Þýskalandi og frá Trio koma fortjöldin á
bíla eða hjólhýsi. Þá er ótalin allur viðlegu-
búnaðurinn og gas- og ferðavörurnar! Sjón
er sögu ríkari,- líttu við og sjáðu allt úrvalið.
Opiö um helgar í sumar.
QÍSU JÓNSSON HF
B/ldshöföa 14, 112 Reykjavík, Sími 587 6644
\utotelte til rS",
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Höfundur cr rithöfundur.