Morgunblaðið - 20.05.1995, Síða 44

Morgunblaðið - 20.05.1995, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ 44 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 Stóra sviðið: • STAKKASKIPTI eftir Guðmund Steinsson Kl. 20.00: 7. sýn. í kvöld uppselt - 8. sýn. á morgun örfá saeti laus. Ath. ekki verða fleiri sýningar á þessu leikári. íslenski dansflokkurinn: 1 • HEITIR DANSAR 2. sýn. á morgun kl. 14.00 - 3. sýn. fim. 25/5 kl. 20.00 - 4. sýn. sun. 28/5 kl. 20.00. Söngleikurinn • WEST SIDE STORY e. Jerome Robbins og Arthur Laurents við tónlist Leonards Bernsteins Kl. 20.00: Mið. 24/5 uppselt - fös. 26/5 nokkur sæti laus - lau. 27/5 nokkur sæti laus fös. 2/6 - mán. 5/6 - fös. 9/6 - lau. 10/6. Sýningum lýkur f júní. Smíðaverkstæðið: • TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright Kl. 20.00: Fim. 25/5 - fös. 26/5 - lau. 27/5 - mið. 31/5 - fim. 1/6 - fös. 2/6. Listaklúbbur leikhúskjallarans mán. 15/5 ki. 20.30 • „ KENNSL USD TUNDIN" e nþáttungur e. Eugene lonesco Leiklesið af Gísla Rúnari Jónssyni, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur og Guðrúnu Þ. Stephensen undir stjórn Brietar Héðinsdóttur. Örnólfur Árnason, rithöfund- ur, fjallar um ionesco og leikhús fáránleikans. GJAFAKORTíLEIKHÚS - SÍGILD OGSKEMMTILEG GJÖF Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00 til 18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga. Græna linan 99 61 60 - greióslukortaþjónusla. STÓRA SVIÐIÐ KL. 20: • VID BORGUM EKKI - VID BORGUM EKKI eftirDario fo Sýn. í kvöld, fös. 26/5, lau. 27/5. Síðustu sýningar á leikárinu. LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30: Leikhópurinn Erlendur sýnir: • KERTALOG eftir Jökul Jakobsson. Sýn. í kvöld. Allra síðasta sýning. Miðaverð 1.200 kr. Munið gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf! Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Miðapantanir í síma 680680 alla virka daga ki. 10-12. - Greiðslukortaþjónusta. KatflLeiKlmsrö Vesturgötu 3 IHLAÖVARPANUM Sápa tvö; Sex við sama borð í kvöld kl. 22.30 - uppselt fös. 26/5 kl. 22.30 síðusfu sýninqar Miði m/matkr. 1.800 Hlæðu, Maadalena. hlæðu sun. 21/5, mio. 24/5, íau 27/5 síðustu sýningar Mi&im/matkr. 1.600 Herbergi Veroniku eftír Ira Levin Frumsýning 25/5 örfá sæti laus sun 28/5 Tim. 1/6 Miíti m/mat kr. 2000 Eldhúsið og barinn opinn fyrir & eftir sýningu 'Miðasala allan sólarhringinn i sima 581-9055 LEIKFELAG AKUREYRAR • DJÖFLAEYJAN eftir Einar Kára- son og Kjartan Ragnarsson. Sýn. í kvöld kl. 20.30, mið. 24/5 kl. 20.30, fös. 26/5 kl. 20.30, lau. 27/5 kl. 20.30. Sýningum fer að Ijúka. Miðasalan opin virka daga kl. 14-18, nema mánud. Fram að sýningu sýning- ardaga. Sími 24073. F R Ú E M 1 L í A 1 E 1 K H U S 1 Seljavegi 2 - sími 12233. RHODYMENIA PALMATA Ópera í 10 þáttum eftir Hjálmar H. Ragnarsson við kvæða- syrpu eftir Halldór Laxness. 4. sýn. í kvöld kl. 21, uppselt. Aukasýn- ing kl. 23.00 fáein sæti laus. Aukasýn- ing sun. 21/5 kl. 21, síðasta sýning. Miðasalan opnuð kl. 17 sýningardaga. Miðapantanir á öðrum tfmum i sfmsvara, sfmi 551 2233. -kjarnimálsins! - kjarni málsins! FÓLK í FRÉTTUM .. Morgunblaðið/Halldór FEGURÐARDISIR í hlaupatúr í fjörunni undir jökli. Fegurðardísir á Snæfellsnesi ►UNDIRBÚNINGUR fyrir Fegurðarsamkeppni íslands er nú í fullum gangi, en átján stúlkur frá öllum landshornum keppa til úrslita. Um síð- ustu helgi fóru þær í helgarferð á Snæfellsnes. Til að byrja með sigldu þær með Eyjaferðum frá Stykkishólmi um Breiðafjarðareyjar. I túrn- um var settur út skelplógur, afli dreginn um borð og fengu stúlkurnar að gæða sér á ígulkera- hrognum og hörpuskelfisk ferskum úr sjónum. Því næst var haldið út í Bjarnarhöfn til Hildi- brands Bjarnasonar sem bauð upp á hákarl, rúgbrauð og harðfisk. Þá var ekið að Búðum, snæddur kvöldverður og loks gist á Langholti í Görðum. Morguninn eftir tóku stúlkurnar leik- fimiæfingar í fjörunni undir jökli og héldu svo heim á leið. „Ferðin var mjög skemmtileg, hópurinn kynnt- ist vel og vonandi verður svona ferð farin fyrir hverja keppni í framtíðinni," sagði Þórunn Lárusdóttir framkvæmdastjóri keppninnar í samtali við Morgunblaðið. BRYNJA Björk gæðir sér á ígulkeri og Valdís Kvaran og Ingibjörg Kristín fylgjast með. RÓSA Júlía og Valdís Kvaran fylgjast með Páli Fanndal pilla skel. Hvað tekur við hjá Hanks? ►FRÓÐIR menn um kvikmynd- ir eru þegar farnir að velta vöngum yfir hvaða mynd Tom Hanks velur sér eftir að hann lýkur við Apollo 13, en honum standa flestar dyr opnar í þeim efnum. Líklegt þykir að myndin „Lonely Hearts of the Universe“ verði fyrir valinu, en handritið er unnið eftir samnefndri bók Dennis Overbye. Svo virðist sem Hanks hafi sýnt verkinu áhuga og líka Jonathan Demme sem leikstýrði myndinni Fíladelfíu. Hanks fékk einmitt óskarsverð- laun fyrir frammistöðu sína í henni fyrir tveimur árum. Bók- inni er lýst sem leitinni að leynd- ardómum alheimsins. sinn til bana þegar hún var að ur,“ sagði stúlkan við rannsókn- leika atriði úr mynd með Sylvest- arlögreglumenn. „Ég vissi ekki er Stallone, sem hún hafði nýlok- að það væru kúlur í byssunni og ið við að horfa á, að því er rann- skaut.“ sókn í Bretlandi hefur leitt í ijós. Price, sem var sex barna fað- Byssuáhugamaðurinn Bryn ir, lést á spítala. „Þetta var Price, sem er 64 ára, hafði látið hörmulegt slys. Ég get engan barnið fá byssuna án þess að veginn skilið hvernig maður með gera sér grein fyrir að hún væri slíka reynslu og þekkingu af hlaðinn. Það varð til þess að hún skotvopnum lét hlaðna byssu i skaut hann í hálsinn. hendumar á sex ára bami,“ sagði „Ég hafði verið að leika mér Philip Walter, dánardómstjóri, en með byssuna og vildi leika hann úrskurðaði látafslysförum. Skarð Bogarts ófyllt SONUR Humphreys Bogarts, Step- hen, lagði nýlega lokahönd á bókina „Bogart - In Search of My Father“. Stephen var átta ára þegar faðir hans dó 14. janúar 1957, aðeins níu dögum fyrir fimmtugasta og áttunda afmælisdag hans. Bogart hafði þó gaman af að láta alla halda að hann væri fæddur á aðfanga- dag. Hann var keðjureykingamaður og dó úr krabbameini. Leikstjórinn John Huston, sem einnig var keðjureykingamaður, sagði um Bogart í jarðarför hans þremur dögum síðar: „Við höfum enga ástæðu tíl að kenna í brjóst um hann, heldur okkur fyrir að hafa misst hann. Það getur enginn fyllt upp í hans skarð. Aldrei nokk- urn tíma munum við eignast hans líka.“ Stephen er reykingamaður líka, en hefur einsett sér að hætta. „Móð- eina skáldsögu sem nefnist „Play ir mín er alltaf að nauða í mér,“ It Again, Sam,“ og hyggst halda segir hann. Hann hefur áður skrifað til á ritvellinum í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.