Morgunblaðið - 21.05.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1995 17
Bandarísk könnun
Herkon-
ur sæta
ofbeldi
Chicago. Reuter.
NÆR allar konur undir fimmtugu
í bandaríska hemum segjast hafa
orðið að þola kynferðislega áreitni,
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar.
Aukinheldur segir tæplega þriðj-
ungur fyrrverandi kvenhermanna
að sér hafí verið nauðgað í hernum.
í báðum tilvikum er hlutfallið mun
hærra en á við um óbreytta borgara.
Könnunin var gerð nýlega á veg-
um læknastöðvar uppgjafaher-
manna í Minneapolis. Konurnar sem
svöruðu vom á fjórða hundrað og
þurftu þær ekki að gefa upp nafn
sitt. Talið er að kynferðisleg áreitni
og misnotkun geti skýrt að ein-
hveiju leyti hækkandi tíðni þung-
lyndis og annarra andlegra kvilla
hjá konum sem gegnt hafa herþjón-
ustu.
Talsmaður varnarmálaráðuneyt-
isins í Washington sagði ráðuneytið
taka allar upplýsingar um kynferð-
islega áreitni alvarlega. Á hinn bóg-
inn stönguðust niðurstöðurnar ger-
samlega á við niðurstöður könnunar
sem ráðuneytið hefði látið gera
1988.
------» '+~+---
Kwasniewski
í forseta-
framboð
Varsjá. Reuter.
FLOKKUR fyrrverandi kommúnista
í Póllandi hefur kosið flokksleiðtog-
ann Aleksander Kwasniewski fram-
bjóðanda sinn við forsetakosning-
arnar sem verða að líkindum í lok
október.
Að sögn pólsku fréttastofunnar
PAP greiddu 296 af 300 fulltrúum
á flokksþingi Kwasniewski atkvæði
sitt en hann hefur haft örugga for-
ystu í flestum skoðanakönnunum.
Flestir búast við að öflugasti and-
stæðingur hans verði Lech Walesa
forseti sem hefur ekki enn skýrt frá
því hvort hann fari fram. I nýrri
könnun hlaut Walesa þó aðeins 10%
stuðning. Kwasniewski var með
25%, umbótasinninn og stjórnarand-
stæðingurinn Jacek Kuron 23% og
hægrisinninn Adam Strzembosz,
sem er forseti hæstaréttar landsins,
hlaut 11%.
------» » -»■----
Fyrirlestur
um atferlis-
meðferð ein-
hverfra barna
DR. OLE Ivar Lovaas, prófessor við
University of California (UCLA)
heldur opinberan fyrirlestur í boði
félagsvísindadeildar H.I. þann 2. maí
nk. Fyrirlesturinn hefst kl. 16 í stofu
101 í Odda og er öllum opinn. Hann
verður fluttur á ensku og nefnist:
„Early behavioral intervention in
autism". Þá mun dr. Lovaas svara
fyrirspurnum frá áheyrendum í lokin.
Fyrirlestur dr. Lovaas er um at-
ferlismeðferð ungra barna með ein-
hverfu, en þessi meðferð hentar
reyndar börnum með aðrar þroska-
truflanir en einhverfu. Dr. Lovaas
hefur náð mjög góðum árangri við
að beita umræddri meðferð, árangri
sem enginn annar fræðimaður getur
státað af, segir í frétt frá HÍ.
Dr. Lovaas er þekktur fræðimaður
á sviði einhverfu, en eftir hann hafa
m.a. birst vel á annað hundrað fræði-
greinar í virtum tímaritum. Þá hefur
dr. Lovaas haldið fyrirlestra um
rannsóknir sínar í fjölmörguin lönd-
um heims.
VOLVO 850 ÁRGERÐ 1995
-YFIRBURÐA AREKSTRAVÖRN!
Samkvœmt hlutlausum könnunum!
SIPS- loftpúðar
- fyrst og aðeins hjá Votvo!
SlPS-pÚðÍnn frá Volvo er nú staðalbúnaður í Volvo 850 og er staðsettur í
sætisbaki framsætanna (12 litrar hvor púði), en ekki í hurðum, þannig er tryggt að
hann kemur að fullum notum hvort sem sætisbakinu hefur verið hallað eða ekki.
SlPS-púðinn er viðbót við SlPS-hliðar-
árekstrakerfið sem Volvo kynnti fyrstur
bílframleiðenda. SlPS-kerfið með nýju SIPS-
hliðarloftpúðunum er staðalbúnaður í öllum
Volvo 850 en það er talið draga úr líkum á
alvarlegum meiðslum í hliðarárekstri um rúm
35%.
Kannanir erlendra bílablaða og
bíleigendasamtaka eru
sammála um yfirburði SIPS
DV 18. apríl 1995 segir frá 3 mismunandi
prófunum á hliðarárekstrarvörn og þar segir
meðal annars:
„Það voru þýsku bíleigendasamtökin ADAC
sem gerðu þetta próf. Niðurstaðan var einföld:
SIPS hliðarárekstrarvörnin frá Volvo kom
ótrúlega vel út. Hins vegar er lítið gagn að
styrktarbitum í hurðum ef annað er ekki lagi, svo
sem miðstólpinn.
í árekstrarprófum, hvort heldur er á hlið eða
annars staðar, er ekki síst litið til höfuðáverka,
HIC (Head Injury Criteria), þar sem HIC 1000
þýðir banvænt högg. Volvo 850 kom út með HIC
41. Mercedes Benz C kom með 113 HIC,
Volkswagen Polo með 134 HIC en Toyota Carina
með 441. Það kom á óvart hve Carinan kom illa
út.“
BIFREIÐ SEM ÞU GETUR TREYST
VOLVO 850 4 DYRA KOSTAR FRÁ 2.298.000 OG STATION FRÁ 2.448.000 KR.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SlMI 91- 685870