Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 1
72 SÍÐUR B
120. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Harðir bardagar geisa í Mið- og Norður-Bosníu
Gæsluliðum skipað að
svara ögrun af hörku
París, Sarajevo, Haag. Reuter. Daily Telegraph.
Reuter
FANGAR í Bosníu. Serbneska sjónvarpið sýndi í gær mynd af
83 manna breskri friðargæslusveit sem Bosniu-Serbar tóku til
fanga í búðum hennar við Gorazde í Bosníu á sunnudag.
Neanderthals-
maðurinn
Ættingi
fremur en
forfaðir
NE ANDERTH AI .S-maðurinn
var ekki forfaðir mannkyns,
heldur ættingi sem dó út
vegna þess að honum mistókst
að tengjast forfeðrum manna
og geta með þeim börn. Þetta
er niðurstaða rannsókna við
Mannfræðistofnunina í
Ziirich í Sviss á hauskúpu
Neanderthals-barns.
Vísindamennirnir segja að
hauskúpa barnsins sé svo ólík
beinabyggingu forfeðra
mannsins að hér hljóti að telj-
ast um tvær tegundir að ræða.
Vísindamennirnir notuðu
skanna til að gera þrívíða
mynd af hauskúpu Neander-
thals-barns sem fannst á Gí-
braltar á þriðja áratugnum.
Er þeir báru hana saman við
hauskúpur manna, kom í ljós
svo mikill munur á byggingu
þeirra að afar ólíklegt mátti
telja að Neanderthals-menn
hefðu blandast forfeðrum
mannkyns. Meðal annars kom
í ljós að hauskúpan er um
helmingi þykkari en í mönn-
um. Þá tóku Neanderthals-
börn tennur mun fyrr en
menn.
BOSNIU-Serbar háðu í gær harða
bardaga við bosníska stjórnarherinn
í Mið-Bosníu og hersveitir Króatíu
nyrst í landinu. Jafnframt tóku þeir
þungavopn og brynvagna herskildi
við Sarajevo og héldu uppi skothríð
á borgina. Fulltrúar Rússlands og
Sameinuðu þjóðanna freistuðu þess
að fá Bosníu-Serba til að láta lausa
tæplega 400 gæsluliða SÞ sem þeir
hafa tekið til fanga og jafnvel
hlekkjað við hugsanleg skotmörk.
Frönskum gæsluliðum hefur verið
skipað að svara sérhverri ögrun af
fullri hörku.
Stjórnarherinn í Bosníu var sagð-
ur hafa hafið stórtæka sókn sem
miði að því að ná fjallatotu í ná-
grenni Ozren-fjallsins í miðhluta
Bosníu úr kióm Serba. Hafði herinn
endurheimt Greda og Pocilovo. Þá
var tangarsókn tveggja stórdeilda
að ná saman við Ozren og framund-
an úrslitaorrusta við Serba við hina
hernaðarlega mikilvægu Vozuca-
hásléttu, sem óvinaherirnir hafa
tekist á um af mikilli hörku allt frá
því Bosníustríðið braust út fyrir
rúmum þremur árum.
Jacques Laxanda aðmíráll, yfir-
maður franska heraflans, hefur
gefið frönskum gæsluliðum í Bosníu
fyrirmæli um að veijast með vopn-
um verði þeim ógnað af Bosníu-
Serbum. Þeir eigi ekki að láta kúga
sig eða eyða tíma í samninga, held-
ur svara um hæl minnstu ógnun
af hálfu Serba.
Von var á franskri flotadeild,
flugmóðurskipinu Foch, freigátu og
tveimur landgönguskipum, til Mið-
jarðarhafs í dag. Leynd hvílir að
hluta yfir leiðangrinum en talið er
að um borð séu hersveitir sem ann-
aðhvort séu á leið til Bosníu sem
liðsauki eða til þess að flytja brott
þá gæsluliða sem fyrir eru. Heimild-
ir herma, að 10.000 manna bar-
dagasveitir séu á leið til Bosníu frá
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Frakklandi.
Utanríkisráðherrar fimmveld-
anna, sem reynt hafa að finna frið-
samlega lausn á Bosníudeilunni,
komu saman til fundar í Haag í
Hollandi í gærkvöldi. Búist var við
að þeir lýstu stuðningi við að gæslu-
sveitirnar yrðu efldar og þeim feng-
ið nýtt hlutverk, en legðu áherslu
á að fundin yrði pólitísk lausn á
Bosníu-deilunni með sarrtningum í
stað vopna.
Vladislav Jovanovic utanríkisráð-
herra Serbíu gaf til kynna í gær,
að stjórnin í Belgrad myndi senn
viðurkenna Bosníu. Talið er að það
myndi einangra Bosníu-Serba enn
frekar og neyða þá beinlínis að
samningaborði.
■ Juppe gagnrýnir/18
Ibúar sofandi
er húsin hrundu
í Neftegorsk
Moskvu. Daily Telegraph.
VONIR dvínuðu í gærkvöldi um
að rúmlega 2.000 manns, sem
saknað er í olíubænum Neftegorsk
á Sakhalín-eyju, fyndust á lífi.
Búist var við að björgunarmönnum
fjölgaði í dag en bærinn er af-
skekktur og í 7.000 kílómetra fjar-
lægð frá Moskvu. Jarðskjálfti að
styrkleika 7,5 stig á Richter-
kvarða lagði bæinn í rúst á sunnu-
dag.
Erfiðlega hefur gengið að koma
björgunarmönnum og hjálpar-
gögnum til Neftegorsk. Metra-
þykkur hafís tefur siglingar spít-
alaskips, vegir eru fáir og járn-
brautin til borgarinnar löskuð.
Rússneska stjórnin hefur samt
afþakkað öll erlend boð um hjálp,
sem borist hafa. Er hún áfram um
að vinna sjálf bug á erfiðleikunum
því ef hún virtist hjálparvana er
óttast að Kínverjar myndu hafa
það til marks um að Rússar gætu
ekki haldið hinu stóra ríki sínu
saman.
Risastórir jarðskjálftai hafa
verið tíðir í Austurlöndum fjær á
undanförnum árum. Fjórir skjálft-
ar, sem verið hafa meira en sjö
stig, hafa skekið svæði í norðvest-
urhorni Kyrrahafsins frá 1993.
Japanskir vísindamenn sögðust
álíta, að jarðskorpuflekar við
Kyrrahaf væru að hreyfast með
þeim hætti að hugsanlega ættu
fleiri stórskjálftar eftir að ríða á
svæðum við Japanshaf fyrr en
verði.
Bærinn ekki endurbyggður
Byggingar í Neftegorsk hrundu
eins og spilaborg. Flestir ibúanna
voru í svefni er húsin hrundu yfir
þá. Nítján fimm hæða íbúðablokk-
ir jöfnuðust t.d. við jörðu. Þegar
síðast fréttist var vitað um 398
íbúa sem sloppið höfðu án skrámu
úr skjálftanum og 200 sem særð-
ust. Lík 218 höfðu fundist í rústum
fyrir myrkur í gær. Um 300 björg-
unarmenn börðust við illar aðstæð-
ur á sunnudag og í gær en búist
var við að þeim fjölgaði í 700 í
dag. Talið var að rúmiega 2.000
íbúar væru undir rústum. Líkur á
því að þeir væru á lífi fóru dvín-
andi þar sem enn frýs á nóttunni
í Neftegorsk. Jefím Basín, sem fer
með mannvirkjamál í rússnesku
stjórninni, sagði að borgin yrði
ekki endurbyggð.
■ Á þriðja þúsund/31
Reuter
Dali í París
SAUTJÁN höggmyndum súr-
realistans Salvadors Dali var
koinið fyrir á Vendom-torginu í
París í gær. Gestir og gangandi
geta virt furðnverkin fyrir sér
til 20. ágúst. Þau eru ýmist í
einkaeigu eða eigu listasafna
víðs vegar um heim.
Hyggjast
yfirtaka
stjórn
Gíbraltar
London. The Daily Telegraph.
BRESKA ríkisstjórnin íhugar nú að
taka yfir stjórn Gíbraltar til að koma
banka- og dómsmálum í viðunanai
horf og losa nýlenduna undan því
óorði sem á henni er vegna ásakana
um smygl og peningaþvætti. íbúar
Gíbraltar óttast að þetta kunni að
leiða að lokum til þess að Spánveij-
ar fái yfirráð á Gíbraltar.
Ákveði Bretar að svipta nýlend-
una sjálfsstjórn mun hún heyra
beint undir bresku krúnuna.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, hefur varað forsætisráð-
herra Gíbraltar við því að grípi
stjórn nýlendunnar ekki til hertra
aðgerða í bankamálum „innan fá-
einna vikna“ muni Bretar taka yfir
stjórn hennar.
Vilja ekki deila við Spánverja
Ástæða þess að Bretar setja Gibr-
altarbúum þessi skilyrði er, að þeir
vilja vera vissir um að lög á Gíbralt-
ar standist reglur Evrópusambands-
ins (ESB) áður en Spánveijar taka
við forystu ESB í júlí. Vilja Bretar
komast hjá deilum við Spánveija
um málefni nýíendunnar.
Spánveijar hafa nú þegar hótað
því að grípa til aðgerða gegn Gíbr-
altar ef ekki verður komið í veg
fyrir eiturlyfja- og vindlingasmygl
frá Gíbraltar og yfir til Spánar.