Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Júlíus
Rýnt í tölurnar
BIRGIR Björgvinsson, Jónas Garðarsson og Kristinn Skúlason
frá Sjómannafélagi Reykjavíkur rýna í niðurstöður atkvæða-
greiðslu um miðlunartillögu rikissáttasemjara í gær.
Atkvæði talin um miðlunartillögu
81% farmanna
Verslanakeðjan Red Apple í New York
íslenskt lambakjöt
kynnt í 15 verslunum
EIN umfangsmesta kynning á ís-
lenskum matvælum á erlendri
grundu sem hefur farið fram stendur
yfir í New York þessa dagana á veg-
um Bændasamtakanna og Cooking
Excellence Ltd.
íslenskt lambakjöt var kynnt í 15
verslunum Gristede’s og Sloan’s sl.
fimmtudag og öðrum 15 versiunum
sl. föstudag en þær eru allar í eigu
Red Apple-keðjunnar sem á síðasta
ári velti 1,9 milljörðum bandaríkja-
dala. Kjötið seldist upp í fimm versl-
unum og seldist alls staðar mikið.
Reynslusending, sem var 4 ‘/2 tonn,
er uppseld.
Að sögn Sigurðar Baldvins Sig-
urðssonar, sem rekur fyrirtækið Co-
oking Excellence í New York ásamt
systur sinni Karítas, en þau systkini
stýra söluátakinu, hafa höfuðstöðvar
Red Apple ákveðið að allar verslanir
keðjunnar í New York skuli hafa
kjötið til sölu og þar með bætast við
27 verslanir, og verða því alls 57.
18 veitingastaðir hafa einnig pantað
íslenskt lambakjöt. Kynningunni lýk-
ur helgina 16. og 17. júní.
Keppa við niðurgreitt
lambakjöt
350 starfsmenn í verslunum,
klæddir sérstökum svuntum og húf-
um merktum All Natural Icelandic
Lamb, voru við kynningarnar. Karít-
as stjómaði eldamennsku á öllu
kynningarkjötinu og 35 matreiðslu-
menn á vegum Cooking Excellence
sáu um að bera kjötið fram og bjóða
upp á smakk. Jafnframt var upp-
skriftum, bæklingum og spurninga-
getraun um ísland dreift til búðar-
gesta.
Baldvin Jónsson, markaðsfulltrúi
hjá Bændasamtökunum, segir að vel
hafi tekist til en kynningin heldur
áfram um næstu helgi. „Menn eru
bjartsýnir. Þetta fer reyndar hægt
af stað og menn verða að sýna þessu
mikla þolinmæði. En það er ekkert
neikvætt sem hefur komið upp,“
sagði Baldvin.
I reynslusendingu voru 4 '/2 tonn
og 8 tonn fóru utan í síðustu viku.
Kjötið er kallað All Natural Icelandic
Lamb og lögð er áhersla á að kjötið
sé náttúruleg framleiðsla.
Lambakjötið er selt á 561-1.412
kr. eftir tegundum hvert kg út úr
verslunum Red Apple en Baldvin
segir að þetta sé tilraunaverð. Hann
bendir á að íslenska lambakjötið
þurfi að keppa á sama markaði og
niðurgreitt lambakjöt frá Nýja-Sjá-
landi og Ástralíu. „Við erum að
keppa á heildsölumarkaði á verði sem
þarf að vera hærra því við erum að
keppa við lönd sem niðurgreiða sitt
kjöt.“
sagði nei
YFIRGNÆFANDI meirihluti far-
manna á kaupskipum hefur fellt’
miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Af
115 á kjörskrá greiddu 95 atkvæði
og sögðu 77 eða 81% nei en 18 já.
Vinnuveitendur samþykktu hins veg-
ar samninginn.
Þórarinn V. Þórarinssspn, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði áð talningu
lokinni að niðurstöður atkvæða-
greiðslunnar kæmu ekki á óvart mið-
að við að atkvæðagreiðslan hefði
farið fram á borðshominu hjá for-
ystu Sjómannafélagsins. „Forystan
sett sig mjög ákveðið gegn miðlun-
artillögunni og staðreyndin er auðvit-
að sú að þegar svo er, og atkvæða-
greiðslan fer fram með þessum hætti,
mætti undrum sæta ef að forystan
réði ekki niðurstöðunni."
„Samtvinnaður óróleiki”
„í mínum huga er niðurstaðan
núna, niðurstaðan í atkvæðagreiðslu
yfirmanna, þar sem samningur af
hliðstæðu tagi var felldur með eins
atkvæðis mun, verkfall Sleipnis og
verkfall fiskimanna samtvinnaður
óróleiki og miðar að því að hverfa á
vit gömlu aðferðanna, prósentanna,
og er raunar mesta ógnin við það
að hér takist að fjölga störfum og
. auka kaupmátt eins og að vár
stefnt," sagði Þórarinn. Hann sagðist
líta svo á að deilan snerist um af-
markaðar og skýrar kaupkröfur.
Farmenn og fleiri hópar sættu sig
éinfaldlega ekki við núverandi stöð-
ugleikapólitíkl
Hann sagði að innan VSÍ hefði
staðan verið metin á þann veg að
þó langt væri gengið í miðlunartillög-
unni væri mikilvægara að koma í veg
fyrir truflanir á samgöngum við út-
lönd. Verkfall hefði gríðarlega miklar
afleiðingar í för með sér fyrir at-
vinnulífið í landinu. „Hættan sem
stafar af margendurteknum og sí-
endurteknum verkföllum Sjómanna-
félags Reykjavíkur snýr fyrst og
fremst að aimennum atvinnurekstri
í landinu þar sem það hefur sýnt
sig, trekk í trekk, að hægt er að
lama samgöngur við eyland, eins og
ísland, á afskaplega einfaldan máta,
af afskaplega fáum mönnum og
klippa þannig á að hægt sé að standa
við gerða samnir.ga," sagði Þórarinn.
Sjálfstæðiskonur krefjast
jafnræðis milli kynja
Hveragerði. Morgunblaðið.
í STJÓRNMÁLAÁLYKTUN sem
samþykkt var einróma á þingi
Landssambands sjálfstæðiskvenna í
Hveragerði um sl. helgi er þess kraf-
ist að jafnræðis' milli kynja verði
gætt í hvívetna í öllu starfi Sjálf-
stæðisflokksins, jafnt í forystusveit,
þingflokki sem sveitarstjórnum.
Greinilegt var að mikillar óánægju
gætti meðal Sjálfstæðiskvenna með
rýran hlut kvenna í Sjálfstæðis-
flokknum í kjölfar síðustu alþingis-
kosninga og mikill hiti var í fundar-
mönnum vegna þessa.
Aukin áhrif kvenna til heilla
Nýr formaður Landssambands
Sjálfstæðiskvenna var kjörin Birna
Friðriksdóttir, Kópavogi. Nýkjörinni
stjórn landssambandsins var falið
að fylgja eftir kröfu þingsins um
jafnræðisreglu og vinna að því í allra
nánustu framtíð að hlutur kvenna
verði aukinn innan
flokksins með öllum til-
tækum ráðum.
í stjórnmálaályktun
sambandsins segir með-
al annars: „Brýnt er að
framfylgt sé lögum um
sömu laun fyrir sömu
vinnu og að störf
kvenna séu metin til
jafns við störf karla.
Persónuafsláttur verði
að fullu millifæranlegur
milli þjóna og sambýlis-
fólks og að ónýttur per-
sónuafsláttur unglinga
á skólaaldri nýtist for-
eldrum eða forráða-
mönnum. [... ] Sjálf-
stæðiskonur eru sannfærðar um að
aukin áhrif kvenna séu til heilla fyrir
þjóðfélagið í heild. Bestur árangur
næst með samstarfi karla og kvenna
enda, hefur ekkert þjóð-
félag efni á að vannýta
menntun og reynslu
kvenna. Sjálfstæðis-
flokkurinn á að beita sér
fyrir því að fleiri konur
séu kallaðar til ábyrgð-
arstarfa á öllum sviðum
þjóðlífsins. Löngu er
orðið tímabært að konur
séu þar í framvarðasveit
til jafns við karla, eigi
flokkurinn að höfða til
kjósenda á komándi
áium.“
Nokkrar umræður
urðu um tillögu um að
stjórn sambandsins
skipaði nefnd er undir-
búi kjör konu í embætti í forystu-
sveit Sjálfstæðisflokksins á komandi
Landsþingi. Samþykkt var að stjórn-
in skipaði nefnd í þessum tilgangi.
Birna
Friðriksdóttir
Formaður Alþýðuflokksins ræddi afstöðu félagsmálaráðherra til EES á Alþingi
Ætti að berjast fyrir því að
samningnum yrði
JÓN Baldvin Hannibalsson fonnaður Alþýðuflokks-
ins gerði afstöðu Páls Péturssonar félagsmálaráð-
herra til Evrópska efnahagssvæðisins að umtals-
efni á Alþingi í gær. Var það við umræðu um
stjómarfrumvarp um fijálsan atvinnu- og búsetu-
rétt launafólks á Evrópska efnahagssvæðinu, sem
flutt er í þriðja sinn á þinginu og félagsmálaráð-
herra mælti fyrir.
Sagði Jón Baldvin að ef félagsmálaráðherra
væri samkvæmur sjálfum sér og yfirlýsingum sín-
um í tengslum við samþykkt samningsins um EES
ætti hann að berjast fyrir því að samningnum yrði
sagt upp. Félagsmálaráðherra sagði að það væri
óbreytt, að hann væri á móti samningnum, en of
seint væri að segja honum upp.
Aðeins einn kostur
Jón Baldvin rakti í ræðu sinni nokkur dæmi um
málflutning félagsmálaráðherra úr umræðunni um
samninginn um EES, þar sem fram kom hörð and-
staða við samþykkt samningsins. Sagði hann að
þetta snerist um trúnað við kjósendur og hvort
hægt væri að skipta um skoðun allt eftir því hvort
menn væru í stjórn eða stjómarandstöðu. Þetta
snerist um vinnubrögð, trúnað og traust stjórnmála-
manna.
Félagsmálaráðherra
segir enga greiða leið
út úr EES úr því sem
komið sé
Tók hann dæmi af baráttumanni gegn dvöl
bandaríska hersins sem settist í ríkisstjóm sem
vamannálaráðherra og færi að flytja tillögur um
að festa varnarliðið í sessi. Gæti slíkur maður síð-
an komið í ræðustól í þinginu og sagst vera enn
á móti hemum. Gætu menn sagt við kjósendur að
þeir væru algerlega á móti tilteknu máli og varað
þá við með hinum stærstu orðum.
„Floti Efnahagsbandalagsins upp í fjörur, brot
á stjómarskránni, framsal á löggjafarvaldi, framsal
á framkvæmdavaldi, atvinnuleysi, ég veit ekki hvað
og hvað, sest síðan í þennan stól sem einn af for-
ystumönnum síns flokks og flutt þessi mál og sagt:
„Ég ætla nú að flytja þessi mál engu að síður, ég
hef sagt þetta og ég dreg það ekki til baka.“
Jón Baldvin benti á að uppsagnarákvæði væri í
EES-samníngnum og maður sem hefði barist jafn-
hatrammlega gegn samningnum og félagsmálaráð-
sagt upp
herra hefði gert ætti aðeins einn kost ef hann vildi
láta taka mark á orðum sínum og það væri að
beita sér fyrir að uppsagnarákvæðinu í samningn-
um yrði beitt.
Ekki skipt um skoðun
Félagsmálaráðherra sagðist ekki hafa skipt um
skoðun hvað varðaði afstöðu til EES-samningsins.
Hann væri nákvæmlega sömu skoðunar á samn-
ingnum og verið hefði og sæi ekki eftir neinu sem
hann hefði sagt og drægi ekkert af því til baka.
Hins vegar bæri hann virðingu fyrir staðreyndum
og beygði sig fyrir þeim. Hann hefði ekki hugsað
sér að snúa klukkunni við, það væri engin greið
leið út úr EES úr því sem komið væri. Hann legði
ekki til að samningnum yrði sagt upp. Það væri
óskynsamlegt úr því sem komið væri, þar sem efna-
hagslífið hefði lagað sig að þessum breytingum.
Páll sagðist ekki eiga von á því að formaður
Alþýðuflokksins kæmi fram með þingsályktunartil-
Iögu um úrsögn úr EES í vetur, þó liann vissi til
að hann væri dálítill hentistefnumaður í pólitík ein-
stöku sinnum. „Ef hann kæmi með hana myndi ég
ekki styðja hana. Ekki vegna þess að ég sé sérstak-
ur stuðningsmaður Evrópsks efnahagssvæðis, en við
erum komnir þangað og þar verðum við að dúsa.“
Starrafló
stingiir
sér niður
STARRAFLÓ er víða vanda-
mál um þessar mundir, að
sögn Guðmundar Björnsson-
ar, verkstjóra hjá Meindýra-
vörnum Reykjavíkurborgar.
Hann segir eina ráðið gegn
flónni vera að fjarlægja hreið-
ur starrans og eitra.
Flóin gerir helst vart við
sig þegar hlýnar á vorin og
fram eftir sumri. Eins getur
hennar orðið vart ef skyndi-
lega hlýnar að vetri. Flóin
heldur sig við hreiðrið en
getur stokkið þaðan og lagst
á íbúa hússins.
„Nú er fuglinn kominn með
unga og margir bíða með
aðgerðir þangað til unginn
er floginn,“ sagði Guðmund-
ur. „Það er best að hreinsa
út hreiðrið og eitra í haust,
þegar allt er búið.“
Guðmundur sagði að eitur
gegn flónni mætti til dæmis
fá í mörgum verslunum sem
selja garðyrkjuvörur.