Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Heildverslun
Til sölu er frábær heildverslun í örum vexti sem
selur vinsælar söluvörur með góðri álagningu.
Falleg skrifstofa og söluverslun. Frábært tæki-
færi fyrir líflega, snjalla sölumenn. Aðeins fyrir
fjársterka kaupendur. Ársvelta um 40,0 millj.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
i
SUÐURVERI
SÍMAR 81 2040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
11ÍII 1970 LÁRUS Þ VALDIMARSSON, framkvamdastjori
UUL lluUUUL lu/U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, ioggiuur fasieignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Skammt frá Landakoti - sérhæð
Sólrík 5 herb. íb. um 150 fm í þríbýlishúsi árgerð 1967. Allt sér. Innb.
bílskúr með geymslu um 40 fm. Eignaskiþti mögul. Laus strax.
Lítið einbýlishús - nýstandsett
Timburhús á vinsælum stað í Vesturborginni með 3ja herb. íb. Gamla
góða húsnæðisl. um kr. 2 millj. fylgir. Tilboð óskast.
Hagkvæm skipti í vesturborginni
Skammt frá KR-heimilinu 4ra herb. sólrík íb. tæpir 100 fm. Vel með
farin. Sólsvalir. Góð lán fylgja. Skipti mögul. á lítilli íb. helst í nágrenninu.
Við Hjailabraut í Hf. - skipti
Stór og glæsileg 5 herb. íb. á 1. hæð rúmir 130 fm. Nýtt eldhús. Sér
þvottahús. Rúmg. skáli. Sólsvalir. Geymsla r kj. Skipti æskileg á góðri
3ja herb. íb. í Hafnarfirði.
Hlunnindi - laxveiði - skotveiði
Fjársterkir kaupendur (gamlir og góðir viðskiptamenn) óska eftir hlunn-
inda jörð. Margt kemur til greina. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
í norðurbænum íHafnarfirði
óskast gott raðhús.
Ennfremur góð 3ja______________________________________
herb. íb. með bflskur. LAUfiAVEG118 S. 552 115D-5S2 1370
ALMENIMA
FASTEIGNASALAN
Fasteignasala,
||1 Suðurlandsbraut 10
cEj Ábyrgð - Reynsla - öryggl
I'J Hllmar Valdimarsson.
SÍMAR 687828 og 687808
2ja herb.
JÖRFABAKKI
Vorum að fá í sölu glæsil. 2ja herb. 65
fm íb. á 2. hæð. Parket. Nýtt eldh.
Suðursvalir. Einstaklega falleg eign.
V. 5 m.
HRAUNBÆR
Góö 2ja herb. 56 fm íb. á 1. hæð. Stór-
ar svalir. Laus. V. 4,6 m.
SNORRABRAUT
Glæsil. 2ja herb. 64 fm íb. á 7. hæð.
Fráb. útsýni. íb. fyrir 55 ára og eldri.
3ja herb.
UÓSHEIMAR
3ja herb. 85 fm íb. á jarðhæð. Góð
suðurverönd.
ASPARFELL
Til sölu $ért. fallega 90 fm (b. á
7. hæð í lyftuh. auk bflsk. Suður-
svalir. Laus.
AUSTURSTRÖIMD
Falleg rúmg. 3ja herb. íb. á 4. hæð í
lyftuh. Stofa, hol, 2 svefnherb. o.fl. Stór-
ar suðursv. Bílskýli.
4ra—6 herb.
RAUÐARÁRSTÍGUR
Nný glæsil. 4ra herb. 102 fm íb. á 4.
hæð í lyftuh. Bflskýli.
TRÖNUHJALLI
Glæisl. 4ra herb. 105 fm íb. á 2. hæö
auk bílsk. Áhv. 5 millj. frá húsnæöisstj.
rík. til 40 ára. Laus.
FLÚÐASEL
Mjög falleg 4ra herb. 102 fm íb. á 1.
hæð ásamt aukaherb. í kj. Sórþvottah.
og búr innaf eldh. Suðursvalir.
V. 6.950 þús.
HRAUNBÆR
Faileg 5 herb. 103 fm endaíb. á
3. hæö. Þvottah. og búr Innaf
eldh. Tvennar svalir.
ÁLFASKEIÐ
Mjög góð 4ra-5 herb. 115 fm endaíb.
á 2. hæð. Tvennar svalir. Bílskúr. Hagst.
verð. Skipti á minni eign mögul.
ENGIHJALLI
Glæsil. 4ra herb. 100 fm íb. á 5. hæð.
Parket. Tvennar svalir. Verð aðeins 7 m.
HÁALEI+ISBRAUT
Glæsil. 4ra-5 herb. 122 fm íb. á 1. hæð
auk bílskúrs.
GRUNDARSTÍGUR
Til sölu nýl. 112 fm mjög sérstök
íb. ásamt bllskúr og bískýli.
Tvsnnar svalir.
SEUABRAUT
Mjög góð 170 fm íb. á tveimur hæöum.
5 svefnherb., 2 baöherb. Bílskýli. Skipti
á minni eign mögul. Hagstætt verö.
Sérhæðir
SAFAMYRI
Vorum að fá I sölu efri hæö í tvíbýlish.
ásamt innb. bílsk. Á hæðinni eru stof*
ur, 4 svefnherb., eldh. og baöherb. (
kj. eru 2 herb. ásamt snyrtingu. Tvenn-
ar svalir. Laus nú þegar.
HOLTAGERÐI
Vorum að fá i sölu góöa 114 fm efri
sérhæð í tvlbhúsi. 34 fm bllsk.
LAUGARNESVEGUR
Vorum aö fá I sölu neöri sérh. ésamt
kj. samt. 125 fm. 3-4 svefnherb. Mikið
endurn. eign. Bllskúr.
Einbýli — raðhús
MOSFELLSBÆR
Glæsil. einbhús hæö og ris samt. 280
fm. Húsið stendur á fráb. útsýnisstaö.
2500 fm lóð.
BÚLAND
Vorum að fá í sölu fallegt 200 fm enda-
raðhús ásamt 25 fm sérbyggöum bíl-
skúr.
HULDUBRAUT
Til sölu nýtt parh. með innb. bílsk. samt.
216 fm. Hús sem býður upp á mikla
möguleika.
GRAFARVOGUR
Glæsil. 197 fm endaraðh. með innb.
bílskúr.
SKÓLAGERÐI
Glæsil. parhús á tveimur hæöum um
160 fm auk bílskúrs. 4 svefnherb. Sól-
stofa. Verð 13,5 m.
Æ* Hilmar Valdimarsson,
Brynjar Fransson lögg.
*■ fasteigna- og skipasali.
FRÉTTIR
Forysta Alþýðubandalagsins á miðstjórnarfundi
Framsókn segir sig
frá vinstri samfylgd
Morgunblaðið/Sverrir
MIÐSTJORN Alþýðubandalagsins á fundi um helgina.
FORYSTA Alþýðubandalagsins tel-
ur að í aðdraganda og kjölfar síð-
ustu alþingiskosninga hafi Fram-
sóknarflokkurinn sagt sig frá sam-
fylgd við þá flokka sem vilji kenna
sig við félagshyggju og vinstri sinn-
uð sjónarmið.
Þessi skoðun kom fram á mið-
stjórnarfundi Alþýðubandalagsins,
sem haldinn var um helgina, þar
sem farið var yfír nýafstaðnar kosn-
ingar. Bent var á að forystusveit
Framsóknarflokksins hafi ítrekað
skilgreint flokkinn sem miðflokk en
ekki vinstriflokk og ríkisstjórnar-
samstarf með Sjálfstæðisflokknum
hafi undirstrikað það.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kom það sjónarmið fram
á fundinum að eina raunhæfa leiðin
til að mynda mótvægi við hægri
öflin, þar á meðal nýmyndaða ríkis-
stjórn, væri að þau öfl, sem tengj-
ast núverandi stjórnarandstöðu nái
betur saman og geti boðið upp á
valkost á eigin forsendum. Því var
lögð áhersla á að Alþýðubandalag-
ið, sem stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn, kappkostaði að tryggja
góða samvinnu með flokkunum í
stjórnarandstöðunni og reynt yrði
að þróa nánari samvinnu félags-
hyggjufólks og vinstri manna en
verið hefði.
Formannskjör undirbúið
Ákveðið var að halda landsfund
Alþýðubandalagsins 12.-15. októ-
ber í haust en tvær fyrstu vikurnar
í október fer fram bréfleg kosning
flokksmanna um nýjan formann og
varaformann flokksins og verða
atkvæði talin á landsfundinum.
Kjörskrá verður lokað mánuði fyrir
landsfund en hægt verður að kæra
sig inn á kjörskrá þar til kosningin
hefst. Þetta þýðir í raun að þeir sem
gerast félagar í Alþýðubandalaginu
fyrir 1. október geta greitt atkvæði.
Á miðstjórnarfundinum var kosin
yfirkjörstjórn en hana skipa Elsa
Þorkelsdóttir, Ástráður Haraldsson,
Sigríður Jóhannesdóttir, Kristján
Valdimarsson og Sigurjón Péturs-
son.
Yfirkjörstjórn mun koma saman
á næstunni og kalla eftir framboð-
um í formanns- og varaformanns-
embætti flokksins. Alþingismenn-
irnir Margrét Frímannsdóttir og
Steingrímur J. Sigfússon hafa bæði
boðað að þau verði í framboði til
formanns en enginn hefur enn lýst
yfir framboði til varaformanns.
Samkvæmt reglum flokksins get-
ur sami maður ekki gegnt for-
mannsembætti lengur en 8 ár í
senn. Því er Ólafur Ragnar Gríms-
son ekki kjörgengur í væntanlegum
kosningum. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins var þessi út-
skiptaregla nokkuð rædd á mið-
stjórnarfundinum og kom fram
gagnrýni á hana, m.a. á þeim for-
sendum að miðað við að Alþingis-
kosningar fari fram á 4 ára fresti
sé formaður flokksins í raun aðeins
fullgildur í einum kosningum þótt
hann sitji í 8 ár sem formaður.
Ályktun landsfundar Samstöðu um óháð ísland
Vera þarf á verði
gagnvart villandi áróðri
LANDSFUNDUR samtakanna
Samstaða um óháð ísland var hald-
inn síðastliðinn laugardag. í álykt-
un fundarins er m.a. vísað til þess
að samningurinn um Evrópskt efna-
hagssvæði hafí nú verið í gildi í
eitt og hálft ár, og enn hafí ekki
bólað á þeim mikla ávinningi sem
talsmenn hans hafi fullyrt að fylgja
mundi í kjölfar hans.
Mikilvægt að þjóðin sé upplýst
Þá segir að breytingar á ís-
lenskri löggjöf eftir beinni forskrift
Evrópusambandsins séu á fullri ferð
og ekki hægt að komast hjá neinu
sem þar er ákveðið án hótana um
gagnaðgerðir. Nú síðast sé um að
ræða breytingar á áfengislöggjöf-
inni, sem kollvarpi þeirri stefnu sem
íslendingar hafi fylgt í þeim málum
og þeim heilbrigðismarkmiðum sem
íslendingar hafi sett sér. Þetta ger-
ist þrátt fyrir yfírlýsingar um hið
gagnstæða og bókanir með
EES-samningnum.
í ályktun landsfundar Samstöðu
segir orðrétt:
„Hér á landi hefur einn stjómmála-
flokkur tekið aðild að Evrópusam-
bandinu á stefnuskrá sína og stuðn-
ingsmenn aðildar hafa nýverið
myndað með sér samtök. Þótt aðild
sé ekki á stefnuskrá núverandi rfk-
isstjórnar þurfa landsmenn að vera
vel á verði gagnvart röngum og
villandi áróðri um Evrópusamband-
ið og þær afdrifaríku afleiðingar
sem aðild að því hefði í för með
sér. Svo langt er gengið að Evrópa
og Evrópusambandið eru lögð að
jöfnu. Mikilvægt er að þjóðin sé
upplýst um Evrópusambandið og
þróun þess og hvað aðild að því
hefði í för með sér.“
Loks segir í ályktuninni að Sam-
staða um óháð Island leggi nú sem
fyrr áherslu á að rækta góð sam-
bönd við aðrar þjóðir og bandalög.
Samstaða hafi áfram mikilvægu
hlutverki að gegna, m.a. við að
meta reynsluna af EES-samningn-
um og upplýsa um inntak Evrópu-
sambandsins þannig að þjóðin átti
sig á kostum þess að halda óháðri
stöðu utan slíkra bandalaga.
Fimmtán manna stjórn
Þeir sem gefið hafa kost á sér
til setu í stjórn Samstöðu um óháð
ísland næsta starfsár eru Arnþór
Helgason, formaður, og Anna ÓI-
afsdóttir Björnsson, varaformaður,
en aðrir í stjórn eru: Birna Þórðar-
dóttir, Bjarni Einarsson, Bjarney
Gísladóttir, Drífa Kristjánsdóttir,
Gunnlaugur Júlíusson, Helga Garð-
arsdóttir, Heigi Seljan, Hörðurlngi-
marsson, Jóhannes S. Snorrason,
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
Sigríður Kristinsdóttir, Þóranna
Pálsdóttir og Þórir Karl Jónasson.
Einnig eiga formenn landshlutafé-
laga Samstöðu rétt til setu á stjórn-
arfundum.
Barnakerra
tekin
BARNAKERRU var stolið frá
horni Stekkjarbakka og Græna-
stekks í hádeginu þriðjudaginn 23.
maí síðastliðinn.
Kerran, sem er blá að lit, var
skilin eftir á horninu í nokkrar
mínútur.
Kona á bláum bíl af Hyundai-
gerð sást taka kerruna.
Konan er vinsamlegast beðin
að skila henni til lögreglu.
Barnafataverslun
Stór barnafataverslun á besta stað í höfuðborg-
inni til sölu. Mikið af góðum umboðum geta fylgt
með. Sérstakt tækifæri að eignast skemmtileg-
an sjálfstæðan rekstur. Laus strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
lá^iiiiimTTmrvnTi
SUÐURVERI
SlMAR 81 2040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.