Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 11
*
FRÉTTIR
Þrýstingur eykst á samningamenn í sjómannadeilunni um að ná saman
Flest fiskvinnslu-
hús loka í vikulok
Hráefni til vinnslu í fisk-
vinnsluhúsum klárast
víða í lok vikunnar og í
kjölfarið fer verkafólk á
atvinnuleysisskrá. For-
maður LÍÚ segir að ef
ekki fínnist lausn á sjó-
mannadeilunni í dag eða
á morgun muni verkfall
líklega standa fram yfir
sjómannadag, 11. júní.
FISKVINNSLUFYRIRTÆKI víð-
ast hvar á landinu verða hráefnis-
laus í lok þessarar viku ef verkfall
sjómanna leysist ekki næstu daga.
Við það fer fjöldi fískverkafólks á
atvinnuleysisbætur. Samninga-
fundur sjómanna og útgerðar-
manna hófst í gær, en áður áttu
forystumenn deiluaðila fund með
sjávarútvegsráðherra. Sjómenn og
útgerðarmenn um allt land þrýsta
fast á samningsaðila að semja.
. Samningafundurinn í Karphús-
inu hófst klukkan 14. Hvorugur
samningsaðili kom með nýjar tillög-
ur til fundar. Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambandsins,
og Kristján Ragnarsson, formaður
LIÚ, sögðust mæta með jákvæðum
hugá til fundar með þann ásetning
að reyna að ná samningum.
„Ef þetta leysist ekki í dag eða
á morgun þá minnkar. tilefnið til
að leysa þetta fyrir sjómannadag,
sem er um aðra helgi. Þá á allur
flotinn að vera aftur i landi og það
tekur því ekki fyrir skipin að fara
út ef þetta leysist ekki núna,“ sagði
Kristján fyrir fundinn í gær.
Áður en samningafundurinn
hófst gengu forystumenn sjó-
mannasamtakanna á fund Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra.
Sævar sagði að fundurinn
hefði verið haldinn að
fmmkvæði sjávarútvegs-
ráðherra og tilgangur
hans hefði fyrst og fremst
verið að upplýsa ráðherr-
ann um stöðuna og viðhorf sjómanna
til þeirra mála sem deilt væri um.
Hann sagði að Þorsteinn hefði ekk-
ert lagt fram til lausnar deilunni
enda hefði fundurinn ekki verið
hugsaður til þess.
„Það voru ekki settar fram neinar
hugmyndir um lausn og við erum
ekki að biðja um neina íhlutun af
Morgunblaðið/Sverrir
FULLTRÚAR útvegsmanna, Kristján Ragnarsson og Þórarinn V. Þórarinsson gengu síðdegis í gær
á fund Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra og Árna Kolbeinssonar ráðuneytissijóra. Fulltrú-
ar sjómanna komu á fund ráðherra snemma í gærmorgun.
Ráðherra upp-
lýstur um
stöðu mála
hálfu hins opinbera í þessa deilu.
Við teljum að hún eigi að leysast
við samningaborðið," sagði Kristján.
Fiskvinnslan stöðvast
í vikulok
Enn er fiskvinnsla víðast hvar í
fullum gangi i fiskvinnslufyrirtækj-
um þrátt fyrir verkfal! sjómanna.
Flest sjá þau hins vegar fram á
hráefnisskort næstu daga ef verk-
fallið leysist ekki. Hráefnisstaðan
er mismunandi milli fyrirtækja, en
almennt virðast þau hafa hráefni
til vinnslu í u.þ.b. eina viku frá
verkfalli.
Friðrik Karlsson, verkstjóri hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa, sagði
að hráefni hjá ÚA myndi klárast
nk. föstudag. Því mætti
búast við að starfsfólk,
alls um 300 manns, færi
á atvinnuleysisskrá fljót-
lega eftir helgina. Friðrik
sagði að ef verkfallið
leystist í dag yrði líklega
hægt að halda fiskvinnslunni gang-
andi án þess að nokkurt stopp yrði.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvars-
sonar hf., sagði að þegar væri ljóst
að frystihús fyrirtækisins yrði hrá-
efnislaust í einhveija daga jafnvel
þó að verkfallið léysist í dag. Til
væri afli tii vinnslu fram á fimmtu-
Morgunblaðið/J6n Stefánsson
Ökumaður í vímu?
ÖKUMAÐUR, sem grunaður er
um akstur undir áhrifum vímu-
efna, missti stjórn á bíl sínum á
mótum Súðavogar og Sæbrautar
kl. rúmlega 2 aðfaranótt sunnu-
dags. Bíllinn valt og slasaðist
farþegi í honum, en ekki alvar-
lega. Okumaðurinn slapp
ómeiddur, en billinn er talinn
ónýtur.
dag eða föstudag og einhveija daga
tæki fyrir skipin að koma inn með
afia þó að þau kæmust út í dag.
Haraldur sagði hugsanlegt að
HB fengi karfa til vinnslu frá fær-
eyskum skipum sem veiða úthafs-
karfa á Reykjaneshrygg. Krossvík
hf. á Akranesi hefur gert samning
við færeyskt útgerðarfyrirtæki um
landanir í sumar og hafa þrír togar-
ar landað í vor. Fleiri eru á leiðinni
og sagðist Haraldur reikna með að
afli frá færeysku skipunum yrði
keyptur til vinnslu í HB til að halda
fiskvinnslunni gangandi. Færeying-
arnir hefðu verið að bjóða karfa til
kaups hér á landi, enda væri fram-
boðið á honum að aukast.
Starfsfólki HB var ekki sagt upp
líkt og flest sjávarútvegs-
fyrirtæki gerðu. Það fær
launagreiðslur í verkfall-
inu en missir bónus. Þetta
er gert í samræmi við
reglur Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs.
Haraldur sagði að undir eðlilegum
kringumstæðum ætti skólafólk að
vera að koma til starfa í fiskvinnslu-
fyrirtækjunum þessa dagana. Hann
sagði að skólafólk á Akranesi fengi
engin svör um vinnu hjá HB fyrr
en verkfallið hefði verið leyst. Hann
sagðist gera ráð fyrir að önnur sjáv-
arútvegsfyrirtæki færu eins að varð-
andi vinnu skólafólks.
Þrýstingur á lausn
Mikill þrýstingur er á báða samn-
ingsaðila frá sjómönnum og útgerð-
armönnum um að semja. Víða um
land hafa útgerðarmenn og sjó-
menn rætt óformlega saman um
gerð sérsamninga. Þrýstingur á
samninga kemur ekki síst frá sjó-
mönnum og útgerðarmönnum á
skipum sem selja allan afla á mörk-
uðum, en deilan um breytingar á
fiskverði varðar þá nánast ekkert.
Ávinningur sjómanna á þessum
skipum af verkfailinu kemur til með
að verða lítill þar sem þeir fá hvoit
eð er hæsta fiskverð. Viðmælendur
Morgunblaðsins sögðu að verði ekki
samið í þessari samningalotu aukist
líkur á því að einstakir útgerðar-
menn og félög geri sérsamninga.
„Við höfum orðið varir við að
Ekki beðið um
íhlutun hins
opinbera
útgerðarmenn, nánast í öllum
landshlutum, hafa lýst áhuga á að
ræða við sjómenn og félög þeirra
og reyna að komast að samkomu-
lagi á þeim vettvangi," sagði Sævar
Gunnarsson.
Á Sævari var að skilja að hann
væri ekki hlynntur því að sjómenn
færu slíka leið. Samningar á ein-
stökum stöðum tækju fyrst og
fremst á afmörkuðum málum en
önnur erfiðari yrðu skilin eftir.
„Sjómannasambandið er með
samningsumboð frá allflestum fé-
lögum innan sinna vébanda. Ein-
stök félög geta auðvitað tekið
samningsumboðið af okkur ef við-
ræður um sérsamninga komast á
það stig. Það hefur hvergi komið
til þess. Ég fullyrði það.“
Sævar sagðist fagna
því að sjómenn og út-
gerðarmenn ræddust við
með óformlegum hætti
um lausn því að aðeins
með viðræðum yrði deil-
an leyst. „Skilaboð til minna um-
bjóðenda og útgerðarmanna eru,
komið með ykkar lausnir í Karphús-
ið og við skulum ræða þær þar. Það
er rétti vettvangurinn."
Kristján sagði alveg ijóst að út-
gerðarmenn innan LÍÚ hefðu ekki
umboð til að semja við einstök félög
sjómanna eða einstakar áhafnir.
Ef útgerðarmenn vildu fara þessa
leið yrðu þeir að segja sig úr LÍÚ.
Hann sagðist telja að sérsamningar
við einstaka hópa sjómanna væri
leið sem ekki væri fallin til að leysa
deiluna.
Kristján sagðist hins vegar skilja
óánægju útgerðarmanna og sjó-
manna með verkfallið. „Það er fjöldi
skipa sem þessi deila varðar ekki
neitt. Það er þess vegna óánægja
hjá útgerðarmönnum og sjómönn-
um, sem eru i þeirri stöðu, yfir að
þurfa sitja í verkfalli.“
Sævar sagði að stóra ágreinings-
málið væri um breytingar á verð-
myndun afla. Nokkur smærri
ágreiningsatrið væru þó einnig
óleyst t.d. um hafnarfrí og útivist
á skipum. Hann sagðist telja að
þessi mál myndu leysast ef lausn
yrði fundin á ágreiningi um verð-
myndun afla.
Wilhelm Wessman
um gagnrýni HSI
Hæsta
hótelverð
fæst í maí
DÆMI er um að hótel á Suð-
vesturlandi hafi hækkað verð á
hótelgistingu um allt að 168%
í maímánuði miðað við verð sem
gilti í desember 1994. Ólafur
B. Schram, formaður HSÍ,
sagði í grein í Morgunblaðinu
sl. laugardag, að hækkun á
verðskrá maí 1995 væri að
meðaltali 67% miðað við desem-
ber 1994.
Wilhelm Wessman, fyrrver-
andi formaður Sambands veit-
inga- og gistihúsa, segir að
kjarni málsins sé sá að maímán-
uður sé að verða besti ráð-
stefnumánuðurinn og þá fáist
hæsta hótelverð.
Wilhelm fagnar boði Ólafs
um gagngera skoðun á fram-
vindu málsins og segir að for-
svarsmenn HSÍ hafi ekki sýnt
samstarfsvilja.
„Þeir vildu ekki vinna með
ferðaþjónustunni heldur gera
þetta allt sjálfir. Það urðu eng-
ar gríðarlegar verðhækkanir.
Þetta er bara það verð sem
okkar ráðstefnugestir almennt
greiða á þessum tíma. Að það
hafi verið samráð um verð hjá
hótelunum er eins og hvert
annað bull því hvert hótel sendi
inn verðlista fyrir sig og svo
var veittur ákveðinn afsláttur
frá verðlistanum," segir Wil-
helm.
Félagsmála-
stjóri ráðinn
á Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
NÝLEGA tók Soffía Gísladóttir
til starfa sem félagsmálastjóri
á Húsavík er þar um nýtt emb-
ætti að ræða.
Soffía fluttist til Húsavíkur
á fyrsta aldursári ásamt for-
eldrum sínum Katrínu Eymuns-
dóttur og Gísla G. Auðunssyni
lækni og ólst þar upp.
Soffía Iauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla íslands 1986
og BA prófi í uppeldisfræði frá
Háskóla íslands 1994. Hluta
af náminu í uppeldisfræði
stundaði hún við háskólann í
Flórens á Ítalíu sem styrkþegi
„Erasmus".
Soffía er gjft Aðalgeiri Sig-
urðssyni, stjórnmálafræði'ngi,
sem starfar hjá Skipaafgreiðslu
Húsavíkur og eiga þau eina
dóttur. En Soffía á janframt tvö
börn frá fyrra hjónabandi.
Brotist inn
í bíla í
Hafnarfirði
BROTIST var inn í fimm bíla
í Hafnarfirði aðfaranótt laugar-
dagsins og útvarps- og segul-
bandstækjum stolið úr nokkr-
um þeirra. Þá var einum bíl
stolið frá Kirkjuvegi.
Að sögn lögreglu í Hafnar-
firði brutu þjófarnir hliðarrúður
í bílunum og voru greinilega í
leit að verðmætum tækjum.
Litlar skemmdir voru unnar á
bílunum að öðru leyti.
Árgerð 1983 af Mazda 626,
R-23462, var stolið frá Kirkju-
vegi eftir kl. 5 aðfaranótt laug-
ardagsins.