Morgunblaðið - 30.05.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 17
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
KONUR hafa orðið tíðari gestir á ráðherraráðsfundum ESB með
inngöngu Finnlands og Svíþjóðar. Hér brosa utanríkisráðherrar
landanna, Lena Hjelm-Wallén (t.v.) og Taija Halonen, sínu breið-
asta á fundi utanríkisráðherra sambandsins í Brussel í gær.
Samningurínn við
Rússland frystur
’ussel. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópu-
sambandsins samþykktu á fundi sín-
um í Brussel í gær að fresta gildis-
töku viðskiptasamnings við Rússland
í að minnsta kosti tvær vikur, til að
þrýsta á um vopnahlé í Tsjetsjníu.
Samningurinn verður tekinn aftur á
dagskrá ráðherraráðsins 12. júní.
Frestun samningsins hefur meiri
táknræna þýðingu en ella vegna þess
að samningur við Úkraínu var stað-
festur á fundinum.
Tillögur um opnari fundi
Fjölmörg önnur mál voru á dag-
skrá fundarins. Ráðherrarnir ræddu
meðal annars tillögur Dana og Svía
um að opna ráðherraráðsfundi sam-
bandsins í auknum mæli, þannig að
fjölmiðlar og almenningur geti fylgzt
með umræðum.
Mikið af umræðum ráðherranna
snerist um ytri málefni sambandsins,
til dæmis tengslin við Austur-Evr-
ópu, undirbúning ráðstefnu með Mið-
jarðarhafsríkjum í Barcelona í nóv-
ember, gerð viðskiptasamninga við
ísrael, Marokkó og Egyptaland og
fjármögnun þróunaraðstoðar ESB.
Ekki samkomulag við Kanada
Sir Leon Brittan, sem fer með
utanríkisviðskiptamál í fram-
kvæmdastjóm ESB, útskýrði fyrir
ráðherrunum hugsanleg áhrif bíla-
viðskiptastríðs Japans og Bandaríkj-
anna. Þá ræddu ráðherrarnir kröfur
Kanadamanna um tímabundið sam-
komulag tollfrjálsan kvóta fyrir
prentað mál. Kanadamenn krefjast
slíks samnings til að bæta upp missi
viðskiptakjara vegna inngöngu
þriggja EFTA-ríkja í ESB. Ráðherr-
arnir tóku ekki ákvörðun í málinu,
einkum vegna andstöðu Ítalíu, sem
á í deilu við Kanada vegna pastainn-
flutnings.
Ráðherraráðið
fær húsaskjól
NÝ BYGGING ráðherraráðs Evr-
ópusambandsins var formlega
tekin í notkun í Brussel í gær.
Er þetta í fyrsta skipti sem ráð-
herraráðið hefur yfir eigin bygg-
ingu að ráða. Byggingin verður
i notkun átta mánuði á ári og
þar verða allir fundir ESB-ráð-
herra haldnir auk nær daglegra
funda embættismanna. Þá verð-
ur 2.500 manna skrifstofulið ráð-
herraráðsins hýst í byggingunni
og rými er fyrir allt að þúsund
blaðamenn. Byggingin, sem er
grábleik að lit og klædd graníti,
er tíu hæðir óg var sex ár í bygg-
ingu. Hún kostaði 13,5 milljarða
franka og afhenti belgíska
stjórnin ESB lyklana að henni í
gær gegn táknrænni greiðslu,
einni ECU-mynt. Á myndinni má
sjá Herve de Charette, utanríkis-
ráðherra Frakka, sem vígði
bygginguna.
Væntanlegum aðildar-
ríkjum boðið til Cannes
• JACQUES Chirac, forseti
Frakklands og forseti leiðtoga-
ráðs ESB, hefur ákveðið að bjóða
ellefu ríkjuin, sem sýnt hafa áhuga
á aðild að Evrópusambandinu, til
leiðtogafundar sambandsins í
Cannes í næsta mánuði. Ríkin eru
Kýpur, Malta, Pólland, Ungverja-
land, Búlgaria, Tékkland, Slóvak-
ía, Rúmenía, Litháen, Eistland og
Lettland. Þetta er í fyrsta sinn sem
Miðjarðarhafs- og Eystrasaltsrík-
in eru boðin á leiðtogafund ESB.
• UTANRÍKISRÁÐHERRAR
ESB samþykktu í gær gerð bráða-
birgðasamkomulags um efnahags-
samstarf og -aðstoð við Ukraínu.
Sljórnvöld í Úkraínu fá um sjö
mil(jarða króna lán gegn því að
loka Tsjernóbýl-kjarnorkuverinu
fyrir aldamót,
SUZIJKIBALINO
Nýr hágœða japanskur fjölskyldubíll
Verðfrá
kr. 1.089.000
3jadyraGL 1.3
BALENO - Afl og öryggi
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF.
SKEIFAN 17 - SlMI: 568 5100
Skattframtal lögaðila:
SkilajGrestur rennur út
þann 31. maí
Síðasti skiladagur skattframtals lögaðila er 31. maí.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra
í viðkomandi umdæmi.
RÍKISSKATTSTJÓRI
ákomið á gólf fyrir kr. 21.488,
- stgr. pr. hverja íbúð
Það er ódýrara en margir halda að teppaleggja stigahúsið.
Verðið að ofan er dæmi um kostnað á hverja ibúð i 8-íbúða
stigahúsi fyrir 71 fm af Quattro-stigateppi ákomið á gólfið.
Nýtt og slitsterkt
u W _ ■ ■ W m Vk
teppi a stigahusið
QLJ/VTTRO-stigahúsateppin hafa
svo sannarlega slegið í gegn hérlendis og
sannað gildi sitt. Teppabúðin hefur lagt um
15.000 fermetra af þessum sígildu og fallegu
álagsteppum hérlendis á stigahús, verslanir
og skrifstofur.
QLI/VTTRO-teppin eru einstök að
því leyti að þau má þrífa með klór til að ná úr
þeim blettum. Þau eru mjög slitsterk, með
þéttri lykkjuáferð og fást í 15 hentugum og
fallegum litum.
Við bjóðum Leitið tilboða yður að kostnaðariausu.
góð greiðslukjör, og mánaðar-
Við mastum,
sníðum og leggjum — fljótt og vel. Önnumst afrif og
afborganir fyrir hverja íbúð fara TEPPABIJÐTN
alit niður i förgun gamaita
1600 kr. , SUÐURLANDSBRAUT 26 - Símar: 568-1950 og 581-4850 teppa ef óskað er.