Morgunblaðið - 30.05.1995, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Loftárásir NATO-flugvéla á Bosníu-Serba misheppnuð aðgerð
Juppé gagnrýnir yfir-
stj órn friðargæsluliðs SÞ
Sanijevo, London, París. The Daily Telegraph, Reuter.
LJOST þótti í gær að hvorki Evrópuríkin né Bandaríkin vilja að aftur
verði gerðar loftárásir á stöðvar Bosníu-Serba af ótta við að
friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna, sem Serbar halda föngnum,
myndu verða fórnarlömb slíkra aðgerða. Bosníu-Serbar héldu í gær á
fjórða hundrað gæsluliða á sínu valdi og vou sumir bundnir við staura
í grennd við líkleg skotmörk herflugvéla Atlantshafsbandalagsins,
NATO. Svo virðist sem algert ráðleysi ríki nú meðal stórveldanna og
ráðamanna SÞ vegna þess kverkataks sem Serbar hafa.
Gæsluliðarnir eru ekki búnir
nægilega öflugum vopnum til að
veija sig. Auk þess eru þeir
dreifðir um mestalla Bosníu og
yfirleitt fáir menn í hveijum hóp.
Stöðug fundahöld voru um Bos-
níumálið um helgina hjá fulltrúum
fimmveldanna, þ.e. Bandaríkj-
anna, Bretlands, Frakklands,
Þýskalands og Rússlands. Jacques
Chirac Frakklandsforseti gaf í
skyn að Frakkar myndu kalla
gæsluliða sína heim og Alain
Juppé forsætisráðherra gagnrýndi
harðlega loftárásir NATO fyrir
helgi, sagði að huga þyrfti að af-
leiðingunum áður en gripið væri
til slíkra ráða.
„Mikilvægast af öllu er að koma
í veg fyrir að hermennirnir séu svo
berskjaldaðir. Sé það ekki hægt
eigum við að draga liðið á brott,“
sagði Juppé.
Furðu gegnir að gíslatakan
skyldi kom á óvart
Yfirmaður gæsluliðsins í Bosn-
íu er breskur hershöfðingi, Rup-
ert Smith. Það var hann sem bað
um loftárásir NATO er Serbar
höfðu brotið gegn vopnahlésskil-
málum og tekið á ný þungavopn
sín sem verið höfðu í vörslu
gæsluliða SÞ. Mörgum þykir
furðu gegna að viðbrögð Bosníu-
Serba, gíslatakan, skyldu koma á
óvart þar sem þeir höfðu margoft
hótað slíkum aðgerðum ef ráðist
yrði á þá.
Frakkar og Bretar hafa lagt
fram flesta hermenn til
friðargæsluliðs SÞ. John Major,
forsætisráðherra Breta, ráðgaðist
við æðstu yfirmenn hermála á
sunnudag og var ákveðið að senda
um 6.000 manna, sérþjálfað lið á
vettvang til styrktar liðinu í Bos-
níu. Major sagði fyrr um daginn
að hann væri andvígur því að
gæsluliðið yrði kallað burt, það
hefði enn hlutverki að gegna.
Utanríkisráðherra týndi lífi
Á sunnudagsmorgun skutu
Bosníu-Serbar niður þyrlu sem var
á Ieið með utanríkisráðherra Bos-
níu, múslimann Irfan Ljubijankic,
frá múslimahéraðinu Bihac til
Sarajevo og fórust allir um borð.
Ljubijankic var 43 ára gamall.
Fjórir fórust í Tuzla
Fjórir óbreyttir borgarar féllu í
árásum Serba á múslimaborgina
Tuzla á sunnudag en þar týndu
68 lífi' á fimmtudag er Serbar
gerðu skyndilega sprengjuárás á
göngugötu. Nokkru færri fórust
er sprengju var varpað á markaðs-
torg í Sarajevo í fyrra. Múslimar
sögðu þá að Serbar hefðu verið
að verki en rannsókn SÞ sýndi að
líklega hefðu múslimahermenn
verið sökudólgarnir.
Reuter
BRESKI hermaðurinn Adam Hildred gætir radar- og eftirlits-
stöðvar í hæðunum fyrir ofan Sarajevo.
Thatcher vill hamra á deilum
í Verkamannaflokknum
Segir Blair ekki
vera sósíalista
London. The Daily Telegraph.
TONY Blair er að líkindum „öflug-
asti leiðtogi“ Verkamannaflokks-
ins breska í þijá áratugi og ætli
íhaldsflokkurinn að koma á hann
höggi verður að beina athygli al-
mennings að róttækum
vinstrisinnum í forystuliði
Blairs. , fyrrverandi leið-
togi íhaldsmanna, lét
þessar skoðanir í Ijós í
viðtali við Sunday Times
um helgina.
„Eg hefði hamrað af
öllum kröftum á þessum
mótsögnum,“ sagði Thatc-
her og virtist með þessum
orðum gagnrýna þær að-
ferðir sem núverandi for-
ysta íhaldsflokksins hefur
notað gegn aðalandstæð-
ingum sínum. I síðara
bindi æviminninga sinna
gagnrýnir Thatcher mjög
arftaka sinn, John Major
og telur hann vera.reikul-
an og skorta framtíðarsýn.
Blair hefur sveigt
stefnu flokksins mjög inn á miðju
eftir að hann var kjörinn flokks-
leiðtogi í fyrra. „Hann segist trúa
á það sem hann boðar og ég held
að hann geri það,“ sagði Thatcher.
Hún taldi að ekki væri hægt
að kalla Blair sósíalista en það
væri á hinn bóginn fullt af sósíal-
istum í bakvarðasveit Verka-
mannaflokksins á þingi.
íhaldsflokkurinn ætti að
nýta sér ágreining Blairs
við vinstrisinnana sem
„halda að opinberar fjár-
veitingar leysi allan vanda
- þetta er runnið þeim í
merg og bein“.
Blair hefur átt í útistöð-
um við vinstrisinna í
flokki sínum um margvís-
leg mál. Þeir voru margir
andvígir því að fella á
brott úr stefnusskránni
ákvæði um þjóðnýtingu
.atvinnufyrirtækja, Blair
sendi son sinn, Euan, í
einkaskóla þótt flokk-
urinn sé .andvígur einka-
skólum og flokksleiðtog-
inn hefur neitað að verða
við kröfum um að Verka-
mannaflokkurinn lofi því að lág-
markslaun verði lögbundin og
nefnd ákveðin tala í því sambandi
fyrir næstu þingkosningar.
Margaret
Thatcher
Reuter
Hafna mati Norð-
manna á hrefnu
Dyflinni. Reuter.
VÍSINDANEFND Alþjóðahval-
veiðiráðsins tilkynnti í gær, að
ekki væri hægt að treysta mati
Norðmanna á stærð hrefnu-
stofnsins við Noreg. Væri ástæð-
an sú, að það hefði byggst á
tölvulíkani, sem síðan hefði
reynst rangt.
Norðmenn ákváðu kvóta með
tilliti til stofnstærðaráætlana en
fyrir skömmu urðu þeir að viður-
kenna, að skekkja væri í tölvulík-
aninu og stofninn samkvæmt því
ekki alveg jafn stór og þeir hefðu
talið. Var kvótinn skorinn niður
í samræmi við það.
Þrátt fyrir þessa leiðréttingu
lýsti vísindanefndin því yfir, að
ekkert væri að byggja á norskú
útreikningunum en gat þó ekki
lagt fram neitt mat sjálf á stofn-
stærð hrefnunnar í Norðaustur-
Atlantshafi. Er stefnt að því að
það liggi fyrir að ári.
Á myndinni sjást liðsmenn
Greenpeace-samtakanna sem
efndu til mótmæla við Dyflinn-
arkastala í gær er þar hófst 47.
ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins. Beindu þeir spjótum sínum
m.a. að Norðmönnum. Fulltrúar
32 ríkja sitja fundinn.
Átta
drukkn-
uðu í Rane
SÆNSKIR björgunarmenn
hættu í gær leit að áttunda
fórnarlambi slyss er varð í ánni
Rane í Norður-Svíþjóð á sunnu-
dag. Fjórtán manna hópur hafði
farið á gúmbát niður ána sem
var óvenju vatnsmikil og köld.
Bátnum hvolfdi og hafa lík
fimm karla og tveggja kvenna
fundist en talið er að kuldinn
hafi orðið fólkinu að aldurtila.
Óstarfhæft
þing
NÝKJÖRIÐ þing Hvíta-Rúss-
lands er óstai-fhæft í kjölfar
þingkosninga, sökum dræmrar
kosningaþáttöku á sunnudag
að sögn yfirkjörstjórnar. Kosn-
ingarnar voru hinar fyrstu frá
því að landið hlaut sjálfstæði. I
fyrstu umferð kosninganna
hlutu 18 þingmenn bindandi
kosningu en 102 í annarri um-
ferð. Það er tæpur helmingur
fulltrúa á þingi Hvíta-Rúss-
lands. Þessi úrslit færa forseta
landsins, Alexander Lúkas-
hjenkó, nær alger völd en hann
gerði allt til þess að koma í veg
fyrir kosningarnar.
Deng sagður
við góða
heilsu
DENG Xiaoping leiðtogi Kína
er við ágæta heilsu að sögn
sonar hans, Deng Pufang. Það
stangast á við upplýsingar dótt-
ur Dengs, sem sagði í janúar
að héilsu hans hrakaði stöðug.
Deng Pufeng er í fyrirlestraferð
í Ástralíu þar sem hann hyggst
vekja athygli á málefnum fatl-
aðra en hann er bundinn við
hjólastól.
Deilt um
árangur við-
ræðna
KÍNVERSK og tævönsk yfir-
völd voru í gær ekki á einu
máli um hvort einhver árangur
hefði náðst á fundi þeirra í
Tævan. Kínverskir embættis-
menn sögu hann árangursríkan
og að samkomulag hefði náðst
um áframhald viðræðna en
Tævanir voru ekki á sama máli
og kváðust efins um að viðræð-
urnar myndu leysa nokkurn
vanda. Meðal þess er rætt hefur
verið eru viðskiptahagsmunir
Tævana í Kína og tengsl þeirra
við yfirvöld í Hong Kong.
Jarðskjálfti á
Kýpur
JARÐSKJÁLFTI sem mældist
að minnsta kosti 5 stig á Ric-
hter-kvarða skók bæinn Paphos
á Kýpur í gærmorgun. Litlar
skemmdir urðu og nær engin
slys á fólki en mikil skelfing
greip um sig í bænum.
Slösuðust í
nauðlendingu
TUTTUGU og einn hlaut minni
háttar meiðsli í gær er eldur
kviknaði í hreyfli risaþotu Cat-
hay Pacifíc flugfélagsins og hún
nauðlenti í Hong Kong skömmu
eftir flugtak.