Morgunblaðið - 30.05.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 19
Flokkur Aznars sigraði í sveitar-
stj órnakosningum á Spáni
Tap sósíalista
minna en
spáð hafði verið
Madrid. Reuter.
ALÞÝÐUFYLKINGIN (PP), flokk-
ur mið- og hægrimanna á Spáni,
vann mikinn sigur í sveitarstjórna-
kosningum á sunnudag og hlaut
um 35% atkvæða. Stjórnarflokkur
sósíalista fékk um 30% sem er
nokkru meira en skoðanakannanir
höfðu spáð. Þingkosningar eiga að
fara fram 1997. Flokkur katalón-
skra þjóðernissinna, sem ver sósíal-
istastjórn Felipe Gonzalez forsætis-
ráðherra falli á þingi, hét því í gær
að styðja hann a.m.k. til ársloka.
Vinstrabandalagið, þar sem
kommúnistar eru öflugastir, var
með um 11%, aðrir flokkar minna.
„Við höfum tekið næst-síðasta
skrefið - næst er það stjórnarfor-
ystan á Spáni,“ sagði Jose Maria
Aznar, leiðtogi PP á fundi með
þúsundum liðsmanna sinna sem
fögnuðu ákaft.
Gonzales ber sig vel
PP var sigurvegari í 10 af 13
sjálfstjórnarhéruðum landsins og
hefur hreinan meirihluta í fimm,
flokkurinn er með meirihluta í 32
af 52 héraðshöfuðborgum og hélt
auðveldlega meirihluta í Madrid.
Flokkurinn náði einnig meirihluta í
stjórn Madrid-héraðs þar sem sós-
íalistar hafa verið öflugastir. Fram-
bjóðandi PP velti bórgarstjóra sós-
íalista úr sessi í Zaragoza. Borgar^
stjórinn í Barcelona, sem er sósíal-
istinn Paquai Maragall, hélt á hinn
bóginn velli í slag gegn frambjóð-
anda katalónskra þjóðernissinna.
Sósíalistar hafa verið við völd
óslitið frá 1982 og hafa kannanir
verið þeim mjög mótdrægar undan-
farin ár en nokkrir af forystumönn-
um flokksins hafa orðið uppvísir
að fjármálaspillingu. Einnig hafa
æðstu ráðamenn verið bendlaðir við
vafasamar aðferðir sem lögreglan
hefur beitt í baráttunni við hermd-
arverkamenn ETA, basknesku að-
skilnaðarsinnanna. Atvinnuleysi á
Spáni er meira en í flestum ríkjum
álfunnar.
Gonzales bar sig vei í gær og
benti á að flokkurinn hefði endur-
heimt helminginn af fylginu sem
tapaðist til PP í kosningum til Evr-
ópuþingsins í fyrra. Flokkurinn
ætti stuðning „frábærs kjósenda-
hóps“ og myndi geta unnið kosning-
arnar 1997 með glæsibrag.
Jordi Pujol, leiðtogi þjóðernis-
sinna í Katalóníu, sagði úrslitin
sýna að kjósendur væru áhyggju-
fullir og hvatti sósíalista til að draga
lærdóma af niðurstöðunum.
Viðbrögð á fjármálamörkuðum
voru afar lítil, gengi pesetans var
óbreytt í gær. Sumir heimildarmenn
töldu þó að sósíalistar hefðu unnið
nokkurn varnarsigur og væru nú
líklegri til að taka efnahagsmálin
fastari tökum en ella.
Reuter
STUÐNINGSMENN Alþýðufylkingarinnar hylla leiðtoga sinn,
Jose Maria Aznar, á sunnudagskvöld eftir að ljóst varð að flokk-
urinn hafði unnið mikinn sigur í sveitarsljórnakosningum á Spáni.
Reuter
Eftirlit í Tsjetsjníju
RÚSSNESKUR hermaður kann-
ar skilríki tsjetjenskrar konu í
bænum Asínskaja. Snáðinn í
kerrunni kærir sig kollóttan.
Hart er barist í Tsjetsjníju og
hefur rússneski herinn náð hæð-
um fyrir ofan þorpið Serzhen-
Turt eftir margra daga bardaga.
Kosið í Mexíkó
Afhroð
stjórnar-
flokksins
Guanajuato í Mexíkó. Reuter.
BYLTINGARFLOKKURINN í Mex-
íkó, PRI, beið mesta ósigur í 66 ára
valdatíð sinni í kosningum á sunnu-
dag er stjórnarandstæðingur hlaut
meirihluta atkvæða í ríkisstjórakjöri
í sambandsríkinu Guanajuato.
Stjórnmálaskýrendur telja að kjós-
endur séu að refsa PRI vegna efna-
hagskreppunnar og víðtækrar spill-
ingar meðal ráðamanna.
Guanajuato er í miðhluta lands-
ins. Er búið var að telja um helming
atkvæða hafði Vicente Fox, fram-
bjóðandi Þjóðarátaksflokksins, PAN,
fengið tæp 60% en frambjóðandi
PRI, Ignacio Vazquez Torres, 30,7%.
Fox er bóndi en hlaut menntun
sína við Harvard-háskóla í Banda-
ríkjunum. Hann segir það mikilvæg-
asta markmið sitt að PRI-maðurinn
Ernesto Zedillo verði síðasti maður-
inn ^úr stjórnarflokknum er gegni
embætti forseta Mexíkó.
í Sfimbandsríkinu Yucatan sagði
landskjörstjórn að frambjóðandi PRI
væri með meirihluta er 83% atkvæða
höfðu verið talin. Talsmenn PAN
vefengdu þær tölur, sögðu sinn
mann vera með nauman meirihluta.
Heimildarmenn fullyrða að PRI
hafi á valdaferlinum óspart beitt
kosningasvikum til að tryggja sér
sigur; flokkurinn hefur oft misnotað
aðstöðu sína í ríkisfjölmiðlum. Sam-
bandsríkin eru 31 og hafa stjórnar-
andstæðingar aðeins náð að vinna
ríkisstjóraembætti í fjórum þeirra
frá 1929 er PRI náði'völdum.
GINGKO BILOBA* eykur súrefnisflæði til heilans
Musteristré var eina jurtin sem liföi af eldstorminn í
Híroshima. Þetta austurlenska tré er hið eina sinnar
ættar sem enn fyrirfinnst á jörðinni. Vísindamenn hafa
fundið efni í laufum trésins sem örva blóðstreymið til
allra finustu æðanna, meðal annars æðanna á heilasvæðinu og auka þar með
súrefnisflæði til heilans. Því er musteristré notað í kínverskum náttúru-
lækningavísindum til að koma í veg fyrir að starfsemi heilans hraki fyrir
aldur fram og til að efla minnið.
Vinsældir þessarar jurtar einskorðast ekki við sérfræðinga í krossgátum
og gestaþrautum. Þeir sem þurfa að hafa sellurnar í lagi hvort heldur
í leik eða starfi, byggja sig upp með GINGKO BILOBA. jjggj |__^^_j
*fsl.:Musteristré. Skólavörðustíg &Kringlunni
Guli miðinn tryggir að þú fáir töflur sem innihalda a.m.k. 24% Heterósíða (virku efnin í jurtinni)