Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
▼
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
NÝJAR hugmyndir
um fiskveiðistjómun
voru viðraðar fyrir nýaf-
staðnar kosningar og
vöktu talsverða athygli.
Hvað lengst gengu
frambjóðendur Fram-
sóknar á Reykjanesi,
sem vildu ýta togurunum
utar í landhelginni og
eftirláta þeim aðeins
15% af þorskinum. Þing-
menn Sjálfstæðisflokks-
ins á Vestíjörðum vilja
hins vegar halda þorsk-
inum fyrir dagróðrarbát-
ana.
Hvort tveggja eru
þetta róttækar breytingartillögur
við það kerfi sem ríkt hefur og þá
þróun sem orðin er í sjávarútvegs-
ráðherratíð Þorsteins Pálssonar. Á
liðnum 4 árum hefur frysting úti á
sjó nánast tvöfaldast. Þetta gerist
á sama tíma og erfíðlega hefur
gengið að framfylgja lögum og
reglugerðum um að frystiskip skuli
nýta allan afla um borð, m.a. með
fískimjölsvinnslu og koma með all-
an afla að landi. Dagróðrarbátar
skila öllum fískinum til vinnslu í
landi og skapa þannig bæði atvinnu
og verðmæti, á meðan slíkum afurð-
um er nær alfarið hent í sjóinn á
frystitogurum. Skerðing krókaleyf-
isins hefur hins vegar sett físk-
vinnsluna í margfalt meiri vanda
en áður og eyðilagt rekstrargrund-
völl krókabátanna.
Fáránleiki kvótakerfisins
Kvótaumhverfínu má í raun lýsa
með eftirfarandi hætti:
Fiski kastað Skip og bátar geta
veitt eins mikið og þeim sýnist og
nánast hvar sem er, en þeir mega
ekki koma með að landi nema
ákveðinn kílóafjölda af hverri teg-
und. Þess vegna henda menn
smáum, gömlum og verðminni físki,
en koma með þann nýrri, stærri og
verðmeiri að landi.
Hvatning til óheiðarleika Kvóta-
kerfið hefur valdið því að heiðarleg-
asta stétt landsins, hinn náttúrulegi
veiðimaður, hefur misst trúna á
réttlætið og neyðin kennir honum
að spila eftir leikreglum rangláts
kerfís; hann hendir verðlitlum físki
en er á sama tíma með allar klær
úti til að komast með fískinn að
landi, án þess að hann reiknist til
kvóta.
Kvótaeignin Auðugar stórút-
gerðir hafa fjárfest í kvótanum og
á sama tíma byggt ný og afkasta-
meiri skip. Þannig
hafa hinir ríku sölsað
undir sig kvótann en
hinn almenni útgerð-
armaður gefíst upp
og farið á atvinnu-
leysisbætur.
Stóraukið atvinnu-
leysi Atvinnuleysi
hefur stóraukist hjá
fískvinnslufólki í
landi en vinnan færst
til útvalinna sjó-
manna um borð í
frystiskipunum. Þótt
tilkoma íslensku físk-
markaðanna hafí
stöðvað að mestu út-
flutning á ísuðum, óunnum físki,
hefur fískvinnslufólki í landi samt
sem áður fækkað úr 8.000 í 6.500.
Kvótabraskararnir Þeir fá kvót-
ann endumýjaðan frá ríkinu árlega,
endurgjaldslaust, og leigja hann
Fullnýting sjávarafla
getur aðeins orðið
að veruleika, segir
Jón Asbjörnsson,
sé komið með allan
fískinn að landi.
kvótalausum útgerðarmönnum á
uppsprengdu verði. Þeir síðar-
nefndu eiga engra kosta völ því sé
þorskinum landað án kvóta, missa
þeir veiðileyfíð, þótt þeir eigi nægan
kvóta í öðrum tegundum.
Lénsherrarnir Fiskverkendur
sem eiga kvóta, bjóða sjómönnum
og útgerðarmönnum smánarverð
fyrir aflann gegn kvóta og draga
þannig fiskinn tii sín frá fiskmörk-
uðunum. Fyrir vikið greiða þeir mun
minna fyrir hráefnið en aðrir og í
krafti þessa geta þeir undirboðið
framleiðslu sína á erlendum mörk-
uðum. Þetta heitir víst hagræðing
á máli LÍÚ. Sjómenn mótmæla nú
þessu lénsskipulagi með verkfalls-
aðgerðum.
Friðun í stað kvóta
Fiskveiðistjómun framtíðar
mætti hugsa sér á þeim nótum að
friðun kæmi í stað kvóta og stýring
yrði miðuð við stærð skipa og veið-
arfæri.
Krókaleyfi Veiðileyfi minnstu
bátanna, innan við 10 tonn, á að
takmarka við króka og veiði á grá-
sleppu. Hins vegar ber að loka veiði-
svæðum þegar þörf krefur til vemd-
unar smáfiski.
Sérveiðileyfí Bátum af stærðinni
10-150 tonn á að veita sérveiðileyfi
á hinar ýmsu tegundir. Einnig má
heimila þeim togveiðar og netaveið-
ar þar sem sókn er takmörkuð.
Þessir bátar gætu einnig valið
krókaleyfín, sem þá útilokaði þátt-
töku þeirra í öðmm veiðiskap.
Línuveiðar Hinum hefðbundnu
ísfísktogumm þarf enn að fækka.
í staðinn eiga að koma stór línu-
skip með sjálfvirkar beitningarvél-
ar, sem geta stundað veiðar í öllum
veðmm . í dag beita um 10 stór
skip þessari aðferð og fá jafnan
hæsta verð á fiskmörkuðum. Fiskur
sem þannig er verkaður heldur uppi
gæðum íslenska saltfisksins.
Frystitogarar Þeir em komnir til
að vera og eiga að nýta þær tegund-
ir sem halda sig á djúpslóð og þá
einkum karfa. Þessi skip em, ásamt
ísfísktogurunum, hættulegust hvað
varðar ofveiði og smáfiskadráp.
Frystitogarar og nótaskip geta lifað
við kvótakerfi vegna stærðar og
hreyfanleika.
Krafan um fullnýtingn
Fullnýting sjávarafla getur að-
eins orðið að vemleika sé komið
með allan fískinn að landi. í landi
er fjárfesting í húsnæði og tækjum
í kringum hvem fiskvinnslumann
1,5-2,5 milljónir króna en á frysti-
togumm 50-80 milljónir. Laun físk-
vinnslumannsins í landi, með yfir-
borgun og bónus, em um 80 þús-
und krónur á mánuði en um borð
í frystitogara 300-500 þúsund krón-
ur. Það sem er óhagkvæmt að vinna
um borð í frystitogaranum er hag-
kvæmt að vinna í landi.
Það vita allir sem nálægt físk-
vinnslu koma að 80-90% þess verð-
mætis sem fískurinn skilar fæst
fyrir flakið, - þann hluta sem frysti-
togaramir vinna. Flakið vegur hins
vegar aðeins um 40% af þyngd
þorsksins. Með öðmm orðum, á
frystitogara er 60% af fískinum
hent aftur í sjóinn vegna þess að
úrvinnsla þess telst ekki hagkvæm.
í landi má hins vegar nýta þessi
60% til margvíslegrar vinnslu og
auka heildarverðmæti þorsksins um
allt að 20%. Má þar nefna vinnslu
á lifur, maming, fés, kinnfisk, kinn-
ar, gellur, lundir, klumbru og
hnakka. Og að endingu fer úrgang-
urinn í bræðslu.
í hlutarins eðli liggur að slík
vinnsla skapar mörg störf; hráefnið
er tiltölulega ódýrt og því fer verð-
mætasköpunin að mestu í vinnu-
laun. Kjörorð verkalýðsins ætti því
að vera: „Fæmm fískinn ferskan
og heilan í land.“
Höfundur rekur eigin
heildverslun ogfiskverkun oger
formaður Félags íslenskra
stórkaupmanna.
ÞANN 17. maí sl.
birtist í Morgunblað-
inu grein eftir Guð-
mund J. Guðmunds-
son, formann Dags-
brúnar, þar sem hann
hvetur til raunhæfra
aðgerða til að draga
úr fyrirsjáanlegu stór-
tjóni vegna steypu-
skemmda í húsum sem
byggð vom hér í borg
á tilteknu árabili.
í grein Guðmundar
kemur fram tímabær
ábending þar sem
hann hvetur til að-
gerða og bendir á að
skapa megi 200-400 störf ef rétt
er á haldið, og bjarga miklum fjár-
munum. Guðmundur kemur víða
við og er hægt að taka undir margt
af því sem hann er að segja. Guð-
mundur segir hús víða illa farin í
borginni vegna steypuskemmda og
bendir m.a. á að verði ekkert að
gert þá verði illa búandi í mörgum
þessara húsa strax um aldamót og
þau verði fyrir varanlegum og
óbætanlegum skemmdum. At-
vinnuástand í byggingariðnaði er
nú og hefur verið undanfarin þrjú
ár með því versta sem við höfum
upplifað og í nýbyggingum eru
ekki verkefni af því tagi sem skap-
að gætu mörg hundruð manns at-
vinnu.
Á undanförnum mánuðum hefur
ítrekað verið bent á að ástæða
væri til að hvetja til stóraukins og
bætts viðhalds húsa með lagabreyt-
ingum og stjórnvaldsaðgerðum.
Bent hefur verið á að reynsla í
nágrannalöndum okkar sýnir að
viðhald og endurbygging mann-
virkja skapar þar fleiri störf en
nýbyggingar. Með því móti fara
einnig minni verðmæti forgörðum
auk þess sem menningarverðmæti
endast og geymast og hefð skapast
fyrir viðgerðum. Þetta mætti t.d.
gera með því að gera viðhald íbúð-
arhúsnæðis frádráttarbært frá
skatti eins og áður var, sem myndi
svo skila sér í því að svokölluð svört
vinna hyrfí, þar sem það yrði þá
hagur verkkaupa að telja hana
fram. Til eigendanna mundi þetta
svo skila sér í hærra endursölu-
verði og betra umhverfi. Með þessu
móti væri hægt að skapa fleirum
atvinnutækifæri yfir hásumarið en
viðhald íbúðarhúsnæðis utanhúss
er árstíðabundin vinna og verður
ekki unnin að neinu marki yfir
veturinn.
Til að draga úr árs-
tíðarsveiflum þurfa
sveitarstjómir og aðrir
opinberir aðilar sem sjá
um byggingarfram-
kvæmdir, að haga
verkum þannig, að
innivinnan sé í hámarki
yfir vetrarmánuðina
þegar að jafnaði er
minnst að gera í bygg-
ingariðnaði.
Rétt er að benda á
að nú eru samdráttar-
tímar í þjóðfélaginu og
innflutningur eykur
erlenda skuldabyrði,
sem er ærin fyrir, á
meðan notkun inniendra efna eykur
atvinnu og sparar gjaldeyri. í um-
Breyttar áherzlur í lána-
og skattamálum vegna
viðhalds, segir Helgi
Steinar Karlsson,
myndi auka vinnu
iðnaðarmanna og
verkamanna.
ræðum að undanfömu hefur verka-
lýðshreyfíngin og aðrir, hvatt til
þess að íslendingar kaupi fremur
innlenda vöra en erlenda hvenær
sem því verður við komið, slíkt
myndi auka atvinnu í landinu og
styrkja rekstrargrundvöll fyrir-
tækjanna.
Erfítt er að horfa uppá þúsundir
manna ganga um atvinnulausa,
milljónum króna varið til greiðslu
atvinnuleysisbóta á hverri viku, en
á sama tíma bíða óunnin viðhalds-
verkefni sem hafa setið á hakanum,
eftir að þeim sé sinnt.
Breyttar áherslur í lánamálum
vegna viðhaldsverkefna, frádráttur
frá skatti gegn framvísun reikn-
inga fyrir viðhaldsverkefni myndu
auka vinnu iðnaðarmanna og
verkamanna í byggingariðnaði,
ekki bara hér á höfuðborgarsvæð-
inu_ heldur jafnframt um allt land.
Ég vil að lokum hvetja til sam-
stöðu allra, sem þarna hafa hags-
muna að gæta, til að þrýsta á
stjórnvöld um að tekið verði á þess-
um málum með skjótum og raun-
hæfum hætti.
Höfundur er formaður
Múrarafélags Reykjavikur.
Færum allan
fiskinn á land
Jón Ásbjörnsson.
Stóraukum við-
hald mannvirkja
Helgi Steinar Karlsson
Er öryggi sjúklinga og starfs-
fólks spítalanna stefnt í hættu?
FYRIRHUGAÐAR
sumarlokanir á deild-
um sjúkrahúsanna
komu til umræðu á
Alþingi í sl. viku að
framkvæði Ástu R.
Jóhannesdóttur, þing-
manns Þjóðvaka, sem
vakti athygli á því að
ekki yrði gengið
lengra í niðurskurði á
sjúkrahúsunum, en
margir hafí af því
áhyggjur hvort þjón-
ustu og öryggi sjúkl-
inga væri stefnt í
hættu vegna langvar-
megin við öryggis-
mörk. Ræddi Asta
sérstaklega um það
ófremdarástand sem
læknar segja að stefni
í vegna fyrirhugaðrar
lokunar á almennum
geðdeildum Landssp-
ítalans, en yfirlæknar
geðdeildarinnar telja
lokunina gjörsamlega
óábyrga, en aldrei
áður hafí þurft að
skerða starfsemi geð-
deildar spítalans neitt
í líkingu við það sem
verður í sumar. Einnig
andi niðurskurðar á Jóhanna Sigurðardóttir er ræ^ um i0kun eft
fjármagni til sjúkrahúsanna. irmeðferðardeilda, barnageðdeild
Ófremdarástand og báðar deildir fyrir áfengissJúk|-
Benti þingmaðurinn einnig á að
langvarandi álag á starfsfólk væri
mjög miklið og álitamál væri hvort
þjónusta við sjúklinga væri réttu
mga.
Forvarnir — Raunsparnaður
Af þessu tilefni telja þingmenn
Þjóðvaka nauðsynlegt að fram fari
Draga verður í efa að
um sé að ræða raun-
spamað, segir Jóhanna
Sigurðardóttir, því
niðurskurðurinn leiðir
oft til að taka verður inn
veikara fólk, sem þýðir
lengri sjúkrahúsdvöl.
fagleg úttekt og mat á því hvaða
áhrif gífurlegur niðurskurður hefur
haft og mun hafa á öryggi sjúkl-
inga og hagi og starfsöryggi starfs-
fólks spítalanna. Draga verður í efa
að um sé að ræða raunsparnað, því
niðurskurðurinn leiðir oft til að taka
verður inn veikara fólk, sem þýðir
lengri sjúkrahúsdvöl, þegar að
henni kemur. Auk þess sem for-
vamir allar era látnar lönd og leið
og lokað er einnig eftirmeðferðar
og endurhæfingardeildum. Þegar
upp er staðið bitnar slíkt ekki bara
á sjúklingunum og velferð þeirra,
heldur verður það dýrara fyrir þjóð-
félagið þegar til lengri tíma er litið.
Fagleg úttekt
Þingflokkur Þjóðvaka telur að úr
því verði að fást skorið áður en
þing fer heim, hvaða afleiðingar
fyrirhugaðar sumárlokanir munu
hafa og hvemig stjómvöld ætli við
þeim að bregðast. Þingflokkur
Þjóðvaka hefur því óskað eftir að
fá fram faglegt mat stjórnarnefnda
ríkisspítala og Borgarspítala á því
hvaða áhrif sumarlokanir og annar
spamaður síðast liðin tvö ár á
einstökum deildum spítalanna hefur
haft. í fyrsta lagi er spurt hvaða
áhrif þetta hefur haft á
heilsufarslegt öryggi sjúklinga. í
öðra lagi hvort samdrátturinn hafí
leitt til raunspamaðar þegar litið er
til allra þátta þ.m.t. heilsufarslegra
og félagslegra afleiðinga. í þriðja
lagi hvaða áhrif niðurskurður og
samdráttur í rekstri spítalans hefur
haft á umhverfi, hagi og
starfsöryggi starfsfólks spítalans.
Öryggismörk
Með sama hætti er óskað eftir
mati stjóma spítalanna á því hvaða
áhrif væntanlegar lokanir í sumar
muni Hafa á ofangreinda þætti svo
og á biðlista. Jafnfram hefur verið
óskað eftir mati stjórnarinnar á því
hvort rekstur spítalans sé á ein-
hveijum sviðum og þá hveijum að
nálgast lágmarkskröfur sem gera
verður til slíkra stofnana.
Niðurstaða fyrir lok þings
Þingflokkur Þjóðvaka hefur ósk-
að eftir því niðurstöður liggi fyrir
a.m.k. hvað áhrærir mati á áform-
um um sumarlokanir á næstu mán-
uðum áður en sumarþingi lýkur, en
fulltrúi Þjóðvaka í heilbrigðis— og
trygginganefnd þingsins, Ásta R.
Jóhannesdóttir, mun þá taka málið
að nýju upp á Alþingi ef þörf krefur.
Höfundur er alþingismaður.