Morgunblaðið - 30.05.1995, Qupperneq 27
▼
MORGUNBLAÐIÐ _______________________________ ______________________ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 27
AÐSENDAR GREINAR
Þurfa lista-
menn að svelta?
EIN frægasta deila
um lista- og menning-
armál átti sér stað
árið 1942 þegar Jónas
Jónsson frá Hriflu var
formaður lista- og
menningarráðs Al-
þingis. Jónas, sem þá
var einnig formaður
Framsóknarflokksins,
útdeildi styrkjum rík-
isins til listamanna og
þótti mörgum hann
hygla vinum sínum og
þeim listgreinum sem
hann hafði velþóknun
á en hundsa listamenn
sem iðkuðu listir er
voru honum ekki að
skapi. Sérstaklega var Jónasi frá
Hriflu uppsigað við abstrakt mál-
ara og kallaði þá „klessumálara"
og sýndi verk þeirra í glugga
gamla Gefjunarhússins þeim til
háðungar. Deilurnar spunnust út
af bréfi til Alþingis sem sextíu
þekktir listamenn skrifuðu til að
mótmæla vinnubrögðum Jónasar
og meintu einræði hans í veitingu
listamannalauna og kaupum ríkis-
Með styrkjum, segir Jón
Kristinn Snæhólm,
skapar ríkið ákveðnum
listamönnum betri
starfsskilyrði en öðrum.
ins á list. Engin niðurstaða varð í
þessum miklu deilum og hélt Jónas
uppteknum hætti til ársins 1944
en fram á þennan dag hefur ríkið
haft veruleg áhrif á störf og kjör
listamanna í landinu með útdeil-
ingu listamannalauna og styrkja
til hinna margvíslegu listagreina.
Eru ríkisreknar listir til?
Það má með sanni segja að list-
ir séu nauðsynlegar í öllum samfé-
lögum. Þær auðga mannlífið,
styrkja menningareinkenni þjóða
og auka fjölbreytileika samfélags-
ins. Vegna þessa hljóta allir að
vera sammála um að hvers konar
list sé af hinu góða en þó eru ekki
allir sammála um hver eigi að
greiða fyrir þær, það er listina
sjálfa og laun listamanna.
Fjölbreytileiki listarinnar er
mikill og alls ekki hægt að segja,
að til sé list æðri annarri list.
Smekkur fólks er misjafn sem og
þörf listamanna til að skapa.
í dag styrkir ríkið listir og með
því skapar það ákveðnum lista-
mönnum betri starfsskilyrði en
öðrum. Sumir Iistamenn hafa hlot-
ið náð fyrir augum stjórnmála-
manna én aðrir ekki. Þó að ofstopi
starfsaðferða Jónasar séu ekki iðk-
aðir er deginum ljósara að list og
menning er að stórum hluta ríkis-
rekin og nægir að nefna Þjóðleik-
húsið, RÚV og Sinfó-
níuhljómsveit íslands
því til sönnunar en
einnig eru fjölmargir
einstaklingar á laun-
um hjá ríkinu.
Hvað er rétt?
Þegar ríkið hefur
ákveðið að styrkja
ákveðnar listgreinar
en aðrar ekki hefur
skapas’t ójafnvægi.
Ríkisstyrkt Þjóðleik-
hús hefur valdið því
að eftirspurn fólks eft-
ir leiklist er að stórum
hluta til fullnægt með
niðurgreiðslum á
miðaverði og launagreiðslum til
ákveðins lítils hóps leikara við
Þjóðleikhúsið. Þetta þýðir að íjöldi
leikara gengur atvinnulaus og
áhugamannaleikhús eiga . erfitt
uppdráttar. Einkaframtak á sér
ekki viðreisnar von í samkeppni
við ríkið sem niðurgreiðir áhuga-
mál tiltölulega fárra íslendinga
með fé skattgreiðenda. Það sama
má segja um Sinfóníuhljómsveit
íslands.
Ríkið hefur ákveðið að sú list
sem Sinfóníuhljómsveitin og Þjóð-
leikhúsið bjóði uppá sé æðri ann-
arri sambærilegri list og því er
ekki til hljómsveit eða leikhús á
íslandi með svipaðan styrkleika.
Svo dettur náttúrulega stjórn-
málamönnum ekki í hug að ríkis-
styrkja rokktónlist eða ýmsa
ftjálsa leikhópa sem þó njóta meiri
lýðhylli en áðurnefndar menn-
ingarstofnanir.
Ég tel að ríkisvaldið eigi að
skapa íslenskum listgreinum jöfn
skilyrði til að vaxa. Það á að vera
akkur fólks og fyrirtækja að styðja
vi.ð bakið á listum og metnaðarmál
samfélagsins að hafa sem grósku-
mest lista- og menningarlíf í land-
inu. Þessu verður hins vegar ekki
náð með því að binda listir á klafa
ríkisins og undir náð stjórnmála-
manna.
Hlutverk stjórnmálamanna á því
að vera það, að skapa listvænt
umhverfi á Islandi þannig að sem
flestir listamenn nái að njóta sín.
Hér má helst nefna minnkaðar
opinberar álögur á hverskonar
listastarfsemi, það sama gildi um
kaup á listaverkum og hlutabréf-
um, skattur á bókum verði aflagð-
ur og niðurgreiðslum á inngangs-
eyri til starfsemi stofnana líkt, og
Þjóðleikhússins og Sinfóníu íslands
verði hætt þannig að list sú sem
þarna yrði iðkuð sé eðlilega verð-
lögð og aðrir leikarar og tónlistar-
menn nái eyrum fólks.
Eina leiðin til að skapa hér eðli-
legt lista-umhverfi er að losa
stjórnmálamenn undan því að
skapa hér innlenda listamanna-
„elítu“ og láta almenning gera það
sjálfan.
Höfundur er sagnfræðingur.
Jón Kristinn
Snæhólm
14 k gull Verðkr. 3.400
Stúdentastjarnan
hálsmen eða prjónn
3ön SlpmunbsGon
Skortyripaverzlun
Laugavegi 5 - sími 551 3383
- kjarni málsins!
Réttlátar skaðabætur til
bæði Dana o g Islendinga
í MORGUNBLAÐ-
INU sl. miðvikudag
birtist meðal erlendra
frétta blaðsins ágæt
fregn frá fréttaritara
blaðsins í Kaupmanna-
höfn. Var yfirskrift
hennar „Dönsk lög um
skaðabótaskyldu vegna
líkamstjóns: Fjár-
hagsskaði tjónþola
bættur að fullu“. Vegna
þessa ber að árétta, að
mæli dönsk skaðabóta-
lög fyrir um fullar bæt-
ur, gera íslensk skaða-
bótalög það ekki síður.
Norrænn
skaðabótaréttur -
Séríslenskar reglur
í þágu hverr
Sigmar
Armannsson
sett skaðabótalög fyrr
en á miðju ári 1993.
Er verðugt viðfangsefni
að kanna hveijir það
voru, sem í raun högn-
uðust á óvissum og úr-
eltum skaðabótarétti,
sem var við lýði hér á
landi fram til þess tíma,
og neytendum var gert
að standa undir með
iðgjöldum sínum. Leik-
ur enginn vafi á því, að
það ástand var ekki
raunverulegum tjónþol-
um, almenningi eða at-
vinnurekstri í hag, Aldr-
ei heyrðist þó eitt ein-
asta orð frá „virtum
lögmönnum" um að úr-
í frétt Morgunblaðsins var ijallað
um skaðabótareglur í Danmörku, og
lög sem þar gilda í þeim efnum, en
þau eru frá árinu 1984. Sjálfsagt er
tilefni þessarar fréttar Morgunblaðs-
ins gagnrýni sem að undanförnu
hefur komið fram á íslensk skaða-
bótalög. Hefur sú gagnrýni lýst sér
í yfirlýsingum tiltekinna lögmanna
um að íslensku lögin væru þannig
úr garði gerð, að tjónþolar fengju
ekki réttmætar skaðabætur. Almenn
skaðabótalög voru ekki sett hér á
landi fyrr en árið 1993, áratugum
síðar en á hinum.Norðurlöndunum.
Þessi skaðabótalög, þ.e. lög nr.
50/1993, öru í öllum höfuðatriðum
sniðin eftir dönsku skaðabótalögun-
um frá árinu 1984, sem íjallað var
um í frétt Morgunblaðsins. Að því
leyti, sem um frávik er að ræða,
hafa íslensk lög þó gert stöðu tjónþol-
anna betri en dönsku lögin. Þannig
er í dönsku lögunum ákvæði þess
efnis, að sé varanleg örorka metin
undir 15%, greiðist bætur ekki.
Ástæðan fyrir þessu ákvæði er sú,
að þannig er litið á, að hafi slys
valdið örorku undir þessu marki, sé
vinnugetuskerðingin engin og tekj-
utapið því ekkert. Takmörkun af
þessu tagi er á hinn bóginn ekki í
íslensku skaðabótajögunum. Furðu
sætir hvers vegna íslendingar, einir
Norðurlandaþjóða, bjuggu ekki við
bóta væn þörf á sviði íslensks skaða-
bótaréttar.
Friður í Danmörku -
Upphlaup á Islandi
í Danmörku líta þarlendir lögfræð-
ingar almennt á skaðabótalögin sem
vandaða og réttláta löggjöf. Afstaða
margra íslenskra lögfræðinga, sem
kynnt hafa sér íslensku skaðabóta-
lögin, er sjálfsagt svipuð og hjá
dönskum starfsbræðrum. Þannig
mun Dómarafélag íslands hafa lýst
fullum stuðningi við frumvarpið til
skaðabótalaganna á sínum tíma. Með
íslensku lögunum er reynt að búa
svo um hnúta, að þeir fái bætur sem
hafi orðið fyrir raunverulegu íjár-
tjóni. Jafnframt er bótaréttur þeirra
sem lent hafa í alvarlegri slysum
stóraukinn frá því sem eldri skaða-
bótareglur gerðu ráð fyrir. Nokkrir
fyrirferðamiklir lögmenn hér á landi
finna þó skaðabótalögunum ýmislegt
til foráttu. Virðast þeir líta svo á að
hinn eini og sanni mælikvarði um
fullar bætur séu eldri skaðabótaregl-
ur. Hætt er við að gætu danskir
starfsbræður skilið skrif og ummæli
þessara lögmanna yrðu þeir meira
en lítið undrandi. í besta falli bygg-
ist þessi umfjöllun á íhaldssemi.
Annað gæti þó komið til. íslenskir
lögmenn sem gert hafa upp tjón sam-
kvæmt eldri rétti hafa í áranna i'ás
fengið ríflega þóknun fyrir tiltölulega
litla vinnu og margfalt hærri en
Danskir lögfræðingar
líta almennt á skaða-
bótalögin, segir
—
Sigmar Armannsson,
sem vandaða og
réttláta löggjöf.
danskir starfsbræður þeirra sem
annast slysauppgjör samkvæmt sett-
um skaðabótalögum. íslenskir sér-
fræðingar hafa haft góða afkomu
af hinum slösuðu. Eigi upphlaup
þessara aðila og gífuryrði í garð
m.a. vátryggingarfélaga rætur að
rekja til umhyggju fyrir almenningi,
þá ber eitthvað nýrra við.
Höfundur er lögfræðingur og
framkvænidastjóri Sambands
íslenskra tryggingafélaga.
Handsmíðaðir
íslenskir skartgripir
ÍSLENSKI HLUTABRÉFASJÓÐURINN H F
AÐALFUNDUR
Aðalfundur íslenska hlutabréfasjóðsins hf. verður haldinn
15. júní nk., kl. 16.30,
að Suðurlandsbraut 24, 5. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar - Björn Líndal, formaöur
2. Staöfesting ársreiknings fyrir næstliðið reikningsár
B. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðenda
4. Ákvörbun um hvernig farið skuli með hagnað eða tap félagsins
á liðnu reikningsári
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins:
- tillögur um breytingar í samræmi við ný hlutafélagalög
- aörar tillögur ef borist hafa
6. Kosning stjórnar félagsins samkvæmt 19. gr. samþykkta
7. Kosning endurskoðenda félagsins samkvæmt 26. gr. samþykkta
8. Sjávarútvegsfyrirtæki á hlutabréfamarkaði,
Albert jónsson, viðskiptafræðingur hjá Landsbréfum
9. Önnur mál
Reykjavík, 23. maí 1995,
Stjórn íslenska hlutabréfasjóðsins hf.
§
I.ANDSBREF HF.
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 588 9200, bréfasími 588 8598.
LÖ6GILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.