Morgunblaðið - 30.05.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐJÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 45
FRETTIR
10 km HLAUP
Skógarhlið - Flugvallarvegur -
Hlíðarfótur í Nauthólsvík -
fyrir flugbraut og gangstigur
um Skerjafjörð ogÆgisiðu -
Kaplaskjólsvegur - Hringbraut
að Njarðargötu - Vatnsmýrar-
vegur - Flugvallarbraut -
Flugvallarvegur - Skógarhlið
^kogTrhíiib^kjgvallarvegur -
í/syik FOSSVOCUR
Hliðarfótur - Nauthólsvegur -
Nj0s ypp öskjuhlið - Vesturhlið -
Suðurhlið að Perlunni -
göngustígur niður Öskjuhlíð -
Flugvallarvegur - Skógarhlíð
Heilsu-
hlaupið
í áttunda
sinn
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ efnir
nú í áttunda sinn til Heilsuhlaups.
Hlaupið er víðar en áður, eða á
tíu stöðum. Um síðustu helgi var
Heilsuhlaup á Ólafsfirði, Dalvík,
Akureyri og Grenivík. Laugardag-
inn 3. júní verður hlaupið í Reykja-
vík, I Borgarnesi, á Hvamms-
tanga, í Grímsey, á Húsavík og á
Egilsstöðum. Á hvetjum stað er
auglýst hvenær á að hlaupa og
hvaðan.
í Reykjavík hefst hlaupið kl. 12
við hús Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8. Velja má um 2 km
skokk eða göngu, 5 km hlaup eða
10 km hlaup.
Ekki er skráð í 2 km og þátt-
taka er ókeypis. Skráning í 5 km
og 10 km hlaupið verður hjá
Krabbameinsfélaginu fimmtudag-
inn 1. júní kl. 8.30-19, föstudag
kl. 8.30-19 og laugardag kl.
8.30-11.30. Þátttökugjald er 500
kr. og taupoki er innifalinn.
Tími verður mældur hjá þeim
sem hlaupa 5 og 10 km og þrír
fyrstu í hverjum aldursflokki, bæði
hjá konum og körlum, fá verð-
launapeninga. Aldursflokkarnir
eru sex: 14 ára og yngri, 15-18
ára, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59
ára, 60 ára og eldri.
Magnús Scheving stjórnar upp-
hitun kl. 11.40. Að loknu hlaupi
verða gefnir ávaxtadrykkir frá
Mjólkursamsölunni.
Kynning á
ferðum
Ferðafé-
lagsins
KYNNING í máli og myndum á
ferðum sumarsins hjá Ferðafélag-
inu verður þriðjudaginn 30. maí
kl. 20.30.
M.a. verður kynnt gönguferð:
Snæfjallaströnd-Furufjörður-
Hornvík, ferð um eyðibyggðir á
skaganum milli Eyjafjarðar og
Skjálfanda, gönguferðir um Kjöl
og fleiri ferðir verða kynntar. Eft-
ir hlé verður sagt frá fyrri ferðum
FÍ til Grænlands.
■ ÚTILÍFSSKÓLI skáta mun
nú í sumar starfa sem undanfarin
ár. Skólinn er rekinn af Skátafé-
laginu Skjöldungum í Reykjavík í
samvinnu við Bandalag íslenskra
skáta, Skátasamband Reykjavík-
ur, Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands. Á nám-
skeiðum skólans starfa fatlaðir við
hlið annarra þátttakenda. Tvenns-
konar námskeið verða í boði nú í
sumar. Annars vegar eru það viku
útilífsnámskeið sem enda á útilegu
í skátaskála og tjaldi. Á nám-
skeiðunum er krökkunum skipt
upp í flokka sem starfa saman að
hinum ýmsu verkefnum og þraut-
um. Þrautabraut, útieldun og
varðeldur auk fjölda annarra
skátaleikja. Hins vegar eru helgar-
ferðir sem nefnast: Á vit ævintýr-
anna þar sem farið er í helgarferð-
ir í Raufarhólshelli, Botnsdal og
Hellisheiði. Aðaláherslan er lögð á
útivist, náttúruskoðun og almenna
ferðamennsku. Stjórnendur skól-
ans eru reyndir skátaforingjar sem
hafa m.a. starfað í skólabúðunum
á Úlfljótsvatni.
■ SKÓLAGARÐAR Reykjavík-
uvborgar starfa á sjö stöðum í
borginni. Við Holtaveg í Laugar-
dal, í Árbæ vestan Árbæjar-
safns, við Ásenda sunnan Miklu-
brautar, við Jaðarsel og
Stekkjabakka í Breiðholti, í
Skildinganesi við Skeijafjörð og
í Foldahverfi (Kotmýri) fyrir
austan Logafold. Skólagarðarnir
eru ætlaðir börnum 8 til 12 ára
fædd árin 1983-1987. Innritun
verður dagana 1. og 2. júní og
hefst kl. 8 í hveijum garði fyrir
sig. Eldri borgarar geta innritað
sig 8. júní í þeim görðum sem
rými leyfir. Innritunargjald er 600
kr.
■ ARNBJÖRG Linda Jóhanns-
dóttir, höfundur bókarinnar ís-
lenskar lækningajurtir, hefur
opnað stofu á Túngötu 51 í
Reykjavík. Arnbjörg Linda nam
grasalækningar við „The School
of Herbal Medicine" í Kent, Eng-
landi, á árunum 1985-88 og síðar
kínverska sjúkdómsgreiningu og
nálastungur (acupuncture) við The
International College of Oriental
Medicine í West Sussex, Eng-
landi, á árunum 1991-94. Stofan
á Túngötu er opin alla daga eftir
tímapöntun.
■ UNGLINGADEILD Útivistar
heldur stofnfund þriðjudaginn 30.
maí kl. 20 að Hailveigarstíg 1,
Reykjavík. Þar verður unglinga-
deildin endurvakin og er auglýst
eftir þátttakendum á aldrinum
13-17 ára sem hafa áhuga á úti-
veru. Þeir sem gerast félagar fá
afslátt í ferðir Ötivistar og taka
þátt í starfi félagsins. Hægt er að
skrá félaga á skrifstofu Útivistar.
Ur dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Enginn í fangageymslum
aðfaranótt mánudags
í DAGBÓK helgarinnar voru
færð 430 tilvik. Það telst helst
til tíðinda að engan þurfti að
vista í fangageymslunum að-
faranótt mánudags, en hins veg-
ar gistu þar 14 aðfaranótt laug-
ardags og 13 aðfaranótt sunnu-
dags. Ellefu ókumenn eru grun-
aðir um ölvunarakstur. Tveir af
þeim höfðu lent í umferðar-
óhöppum áður en til þeirra náð-
ist, í 24 umferðaróhöppum urðu
slys á fólki í tveimur tilvikum.
Talsvert var kvartað yfir hávaða
og ónæði, utari dyra og innan,
eða 33 sinnum. Tilkynnt innbrot
voru 8 og þjófnaðir 5 talsins.
Tuttugu ökumenn voru kærðir
fyrir að aka of hratt og um 50
öðrum var veitt áminning sem
skráð er á ökuferil þeirra.
Skemmdarverkin voru 10, rúðu-
brotin 12 og líkamsmeiðingarnar
voru 9 talsins.
Um miðjan dag á föstudag
hjólaði níu ára gamall drengur á
grindverk á göngustíg er liggur
á milli Arnarbakka og Stekkjar-
bakka. Drengurinn skarst mjög
illa á hægri fæti. Hann var flutt-
ur á slysdeild með sjúkrabifreið
þar sem gert var að sárum hans.
Drengir réðust á
8 ára stúlku
Skömmu síðar varð átta ára
gömul stúlka fyrir barðinu á
nokkrum drengjum í Fellahverfi.
Eftir að stúlkan féll í götuna
héldu drengirnir áfram að sparka
26. til 29. maí
í hana. Flytja varð stúlkuna á
slysadeild með sjúkrabifreið. Hún
mun hafa fengið minniháttar
áverka, en varð mjög miður sín
eftir atlöguna. Að- sögn höfðu
tveir tíu ára drengir komið hjó-
landi að stúlkunni og veist að
henni að því er virtist að ástæðu-
lausu með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Á sunnudagsmorgun þurftu
lögreglumenn að handtaka ölvað-
an ungan mann við sundlaugina
í Árbæ, en hann hafði haft þar
í hótunum við starfsfólk, auk
þess sem hann hafði sýnt fyrir-
litningu sína í verki með því að
hrækja á það. Maðurinn hefur
margsinnis komið við sögu
ýmissa mála hjá lögreglu.
Á föstudagskvöld handtóku
lögreglumenn þrjá unga menn í
Breiðholti þar sem þeir höfðu
verið að gera sig líklega til að
fara inn í mannlausar bifreiðir.
Höfðu þeir gert tilraunir til að
opna fjórar bifreiðir við Vestur-
berg áður en afskipti voru höfð
af þeim.
Stal úr lögreglubifreið
Snemma á sunnudagsmorgun
handtóku lögreglumenn ungan
mann eftir að sá hafði brotið
rúðu í lögreglubifreið í Breiðholti
og tekið ýmislegt úr henni. Pilt-
urinn var áberandi ölvaður og
neitaði með öllu aðild að innbrot-
inu.
Talsverð ölvun var á meðal
fólks í miðborginni aðfaranótt
laugardags. Um 4.000 manns
voru þar þegar mest var eftir
lokun veitingastaðanna. Flytja
þurfti 4 unglinga undir 16 ára
aldri í athvarfið og einn þeirra
að færa í fangageymslu eftir að
sá hafði sparkað í lögreglubifreið.
Á föstudagskvöld voru lög-
reglumenn beðnir um aðstoð í
húsi í Árbæ. Þar hafði barn lokað
sig inni á baðherbergi og kunni
engin ráð til að komast út. Eftir
smátilfæringar tókst að losa
barnið úr prísundinni. Atburðir
sem þessi koma fyrir af og til.
Enn er kveikt í sinu
Um miðjan dag á laugardag
var tilkynnt um eld í sinu í Elliða-
árdal. Eftir mikla fyrirhöfn tókst
slökkviliðs- og borgarstarfs-
mönnum að slökkva eldinn, en
þá höfðu orðið skemmdir á alln-
okkrum trjáplöntum á svæðinu.
Um mánáðamótin hefst hin
árlega reiðhjólaskoðun lögregl-
unnar við grunnskóla borgarinn-
ar. Tímasetning hefur verið aug-
lýst við alla skólana og ætlast
lögreglan til þess að öll börn
mæti með hjól sín til skoðunar á
tilsettum tíma. Nú fer sá tími í
hönd þegar flestir taka út reið-
hjólin sín. Á þeim tíma verða og
flest reiðhjólaslysin. Það er því
mjög mikilvægt að foreldrar hafi
^ftirlit með yngstu börnunum
þegar þau bytja að hjóla og veiti
þeim nauðsynlega tilsögn.
AUSTURLENSK TEPPI
OG SKRAUTMUNIR
EMÍRf.,
i —ii 1 I .i
Hringbraut 121, sími 552 3690
Raðgreiðslur til 36 mán.
VINNINGSTOLUR 27 05 1995
LAUGARDAGINN
VW
32)(34
fjöldi
VINNINGAR VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
1.5
2.274.520
88.550
3. 4a(5
308
2.470
3.540
500
Heildarvinnlngsupphæð:
7.522.550
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
21. Icikvika, 27.-28.mai 1995
Nr. Leikur: Röóin:
1. Dcgerfors - Norrköping - - 2
2. Djurgárden - Örebro 1 - -
3. Göteborg - Helsingborg - X -
4. Halmstad - Hammarby 1 - -
5. MalmöFF-AIK - X -
6. Frölunda - Örgryte - - 2
7. Öster - Trclleborg 1 - -
8. Brage - Brommapoj. 1 - -
9. Luleá - GIF Sundsvall 1 - -
10. Visby-Gcfle 1 - -
11. Vásby - Assyriska 1 - -
12. Glfsborg - Landskrona 1 - -
13. Myresjö - Skövde 1 - -
Heiidarvinningsupphæðin:
70 milljón krónur
13 réttir: 390.820 kr.
12 réttir: 9.630 kr.
11 réttir: 840 kr.
10 réttir: 270 kr.
ÍTALSKI BOLTINN
21. leikvika , 27.-28.mai 1995
Nr. Leikur: Röóin:
1. Roma - Juventus i - -
2. Parma - Fiorcntina i - -
3. Sampdoria - Inter - X -
4. Cagliari - Napoli - - 2
5. Foggia - I.a/.io * - - 2
6. Padova - Gcnoa - X -
7. Milan - Bari - - 2
8. Brescia - Cremoncse - - 2
9. Torino - Rcggiana 1 - -
10. Vicenza - Perugia 1 - -
1 i. Como - Cesena 1 - -
12. Udinese - Salernitana - X -
13. Ancona - Chievo - - 2
Heildarvinningsupphæöin:
7,5 milljón krónur
13 réttir: Tvöfaldur næst 1 kr.
12 réttir: 106.160 1 kr.
11 réttir: 6.510 1 kr.
10 réttir: 1.130 J kr.