Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30.MAÍ 1995 47
„Fjárhags-
skaði tjón-
þola bættur
aðfullu“
Frá Jóni Erlingi Þorlákssyni:
FYRIRSÖGN þessarar greinar er
yfirskrift fréttar frá Kaupmanna-
höfn um bætur fyrir líkamstjón
þar í landi, sjá Morgunblaðið 24.
maí.
í ljósi harðrar gagnrýni á ís-
lensk skaðabótalög á síðum blað-
anna þessa dagana gæti lesandi
fréttarinnar freistast til að álykta
að þessu sé öðruvísi farið í Dan-
mörku: Þar sé það ótvírætt að
slysatjón bætist að fullu.
Þegar betur er að gætt kemur
í ljós að átt er við að það sé „hug-
myndin með lögunum að sá sem
fyrir tjóni verði, þar sem annar
aðili ber fulla skaðabótaábyrgð,
fái bætt fjártjón að fullu“. Þetta
er einmitt ætlunin með íslensku
skaðabótalögunum einnig, enda
eru þau sniðin eftir þeim dönsku.
Um það markmið er ekki deilt,
heldur um hitt hvernig skuli ná
markinu. Hugmyndin í eldri rétt-
arreglum hér á landi var hin sama,
að tjón skyldi bæta að fullu. Að
því leyti hefur ekkert breyst hér.
Munurinn er sá að áður fóru bó-
taupphæðir eftir óskráðum*réttar-
reglum, sem mótast höfðu í tímans
rás, einkum af dómvenjum, en nú
eru bætur skilgreindar í lögum.
í dönskum skaðabótalögum er
það tilgreint hvernig finna skuli
bótaupphæðir. Það eru bætur sam-
kvæmt þeirri skilgreiningu sem í
fréttinni eru kallaðar fullar bætur.
Eftir sem áður greinir menn á um,
þar eins og hér, hvort bætur sam-
kvæmt lögunum séu raunverulega
fullar bætur, hvorki of né van.
Tjón sem bæta á er oftast illa
skilgreínt og því er eðlilegt að
ágreiningur komi upp. Hvert er
til dæmis tap bónda sem missir
vísifingur? Er það kannski
400.000 kr. eða er það 1.600.000
kr.? Hvorug talan mun vera sú
eina rétta og hvorug alröng. Tap
af hálsmeiðsli er enn óvissara.
Það eru ekki rnikil tíðindi að
dönsk lög stefni að því að slasaðir
fái fullar bætur. En annað í frétt-
inni þarfnast skýringar. „Bætur
(fyrir minnkaða vinnugetu) eru
aðeiiis greiddar ef vinnugeta
minnkar um meira en fimmtán
prósent," segir þar. Eru það fullar
bætur ef engar bætur fást þegar
tekjur lækka um 15% eða minna?
Eða með öðrum orðum: Eru engar
bætur fullar bætur fyrir tap sem
er 15% tekna eða minna? Á þessu
hlýtur að vera skýring. Ég mæli
með því að blaðið inni fréttaritar-
ann nánar eftir því.
JÓN ERLINGUR ÞORLÁKSSON,
Skólagerði 22, Kópavogi.
Kostuleg sumarútsala
fram ab hvítasunnuhelgi
(2^)Fjarstýring á samlæsingum
Sumardekk
og prins
Greiðslukjör til 48 mánaða
Visa Euro raðgreiðslur
Jafnvel engin útborgun
og fyrsta greiðsla eftir
allt að 6 mánuði
\<
O
Alveg Einstök Gædi
Lavamat 9200 Þvottavél
• VinduhraSi 700/1000 + áfangavinding, tekur 5 kg.
• Sér hitavalrofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar forskrift.
• UKS kerfi -jafnar tau í tromlu fyrir vindingu.
• Sér hnappur fyrir viöbótarskolun.
• Orkunotkun 2,0 kwst á lengsta kerfi.
Afborgunar verb kr. 85.914,-
Þríggja dra
óbyrgð á öllum
AEG
ÞVOTTAVÉLUM
c Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgliröinga,
c Borgarnesi. Vestfiröir: Rafbúð Jónasar Þór.Patreksfiröi.
Rafverk Bolungarvik.Straumurjsafiröi.
E Norðurland: Kf. Húnvetnigga, Blönduósi. Skagfiröingabúð,
tn Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík.l
o Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Sveinn Guömundsson,
0 Egilsstöðum. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vik, Neskaupsstaö.
^ KASK, Höfn Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavik.
Rafborg, Grindavík.
=>• -...-......................-I
BRÆÐ U R N I R
' Meðaltal safborg u n
á mánuði: 4.158,-
‘Me&altalsafborgun
á mánuði: 4.155,-
ASG .é
DJORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
' Miðað við afborgun í 24 mánuði.
Gunnar SfélftþéHMon/fft