Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 57

Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 57
rjppr IAM 08 HUOAQTJLQIM OC* MORGUNBLAÐIÐ____________________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 5 7 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA “ I i I ! I 1 i S I i I 4 4 4 ! 4 4 4 4 4 1 4 4 4 Morgunblaðið/Frosti BARÁTTAN var oft hörð um boltann á Viðeyjarmóti 7. flokks í knattspyrnu. Á stærri myndlnni eigast Fram og ÍR vlð en á þeirri mlnnl má sjá Valsmenn gæða sér á veitingum að keppnl loklnnl. Vornnót Viðeyjar í 7. flokki Tvöfaldur sigur hjá Framstrákum ÞAÐ er ávallt glatt á hjalla þeg- ar Kiwanisfélagið Viðey stend- ur fyrir hinu árlega knatt- spyrnumóti fyrir sjöunda flokk í knattspyrnu og enginn breyt- ing varð á þvi' á sunnudaginn. Þá héldu Viðeyjarmenn Vormót sitt ífimmta skipti í samvinnu við Knattspyrnudeild Fram og fóru ieikirfram á malarvelli félagsins í Safamýri. Ekkert kostar fyrir lið að taka þátt í mótinu og Kiwanisfélag- ið sér um að gefa verðlaun. Að þessu sinni gáfu þeir hinum ungu knattspyrnumönnum einnig boli auk þess sem þeir buðu drengjunum upp á hressingu að afloknum leikj- unum. Framarar voru sigursælir eins og svo oft áður á þessu móti. Fram- strákarnir sigruðu bæði í A- og B-liðakeppninni. Fram sigraði Fylki 2:1 í úrslitaleik A-liðanna og ÍR 1:0 í úrslitaleik B-liðanna. Sex félög sendu lið á mótið sem er nokkuð færra en undanfarin ár. Ekki var hægt að sjá annað en að knattspyrnukappamir kynnu vel við sig. I þessum aldursflokki eru drengir sem fæddir eru 1987 og síðar og því eru þeir elstu aðeins átta ára gamlir. Leikskilningurinn er enn sem komið er ekki mikið en áhuginn er þess meiri og það er gaman að fylgjast með íþrótta- mönnum sem gefa allt sitt í leikina. Þeir felldu stundum tár eftir að hafa hrasað á vellinum en risu allt- af á fætur aftur, jafnákveðnir sem fyrr, tilbúnir til að gera sitt besta og víst er að þó þessir ungu kappar eigi margt ólært er einnig ýmislegt sem hinir eldri geta lært af strákun- um i sjöunda flokki. Fram vann Fjölní Keppni í mörgum flokkum á Reykjavíkurmótinu er að ljúka þessa dagana. Fram og Fjölnir kepptu til úrslita í fimmta aldurs- flokki drengja og höfðu Framarar betur. Leikið er hjá A- og B-liðum og gefur sigur hjá A-liðum þijú stig en aðeins tvö stig hjá B-liðum. Fjölnir sigraði í viðureign B-liðanna 3:0 en Fram hjá A-liðunum með sömu markatölu og er Fram því meistari í þessum flokki. ÚRSLIT Úrslit leikja á Vormóti Viðeyjar og Fram sem haldið var á sunnudag. Riðill A: Fram, UMFA og Víkingur FramA- UMFAa......................1:1 FramB-UMFAB.......................2:0 Víkingur A - UMFA A...............2:3 Víkingur B - UMFA B...............0:3 Fram A - Vikingur A...............3:0 Fram B - Víkingur B............. 3:0 Riðill B: ÍR, Valur og Fylkir. ÍRA-ValurA........................0:3 ÍRB - Valur B.....................4:0 ValurA-FylkirA....................1:2 ValurB-FylkirB.................. 2:2 ÍR A - Fylkir A................. 0:1 ÍR B - Fylkir B...................1:1 Leikir um sæti iijá A-liðum: 1-2. Fram - Fylkir................2:1 3-4. Valur - UMFA................3:;1 5-6. ÍR - Víkingur................6:0 Leikir um sæti hjá B-liðum: 1-2. Fram-ÍR......................1:0 3-4. Fylkir - UMFA................3:1 5-6. Víkingur-Valur...............1:0 Unglingalandsmótið verður haldið að Húnaþingi í júlí Búist við að tvö þúsund unglingar taki þátt í mótsgreinunum átta Búist er við því að keppendur á Unglingalandsmótinu að Húnaþingi verði rúmlega tvö þúsund talsins sem fram fer í Húnaþingi dagana 14. -16. júlí í sumar. Keppt verður í átta íþróttagreinum á mótinu sem er í umsjá Ungmennasam- bands Austur-Húnvetninga. Að sögn Sigurlaugar Ragnars- dóttur, varaformanns móts- nefndar voru skráningar um miðja síðustu viku komnar upp i ellefu hundruð og mörg félög eiga enn eftir að skila inn listum um kepp- endur. Frestur til að skila þeim inn rennur út um mánaðarmótin júní - júlí. Unglingalandsmót hefur aðeins einu sinni verið haldið áður en það var í Dalvík fyrir þremur árum og þá voru keppendur um ellefu hundr- uð. Mótshaldarar segjast eiga von á því að sú tala geti orðið helmingi hærri. Áhugi virðist vera mikill hjá þeim félögum sem skilað hafa inn þáttökuseðlum og auk þess er boðið upp á körfuknattleik á Iþróttahús- inu á Blönduósi en ekki var keppt í þeirri grein á Dalvík. Aðrar grein- ar eru fijálsíþróttir sem fram fara á Vorboðavelli, Golf sem leikið verð- ur á Blönduósi og Skagaströnd, hestaíþróttir verða í Húnaveri, skák er tefld á Blönduósi og sund fer fram á Hvammstanga. Þá verður keppt í glímu á Skagaströnd. Að sögn Sigurlínar má búast við því að vinsælustu greinarnar verði knattspyrna og körfuknattleikur. Auk keppnisgreina verður ýmis- legt annað í boði fyrir keppendur og aðra þá sem fýlgjast með mót- inu. Tjaldbúðir verða skammt frá fijálsíþróttavelli Umf. Vorboðans og fríar rútuferðir fyrir keppendur á mótsstaði. Til að mynda verður útiskemmtun með varðeldi, grillað og dansað á laugardagskvöldið. Á landsmótinu verður keppt í þremur aldursflokkum, 11-12 ára, 13 - 14 ára og 15 - 16 ára. Rétt til þáttöku eiga allir ungmennafé- lagar á þessum aldri. Keppnisgjald er fjögur þúsund krónur á hvern keppanda. Frá setningu fyrsta Unglingalandsmótsins en það var haldlð á Dalvík 1992. Þá mættu um ellefu hundruð keppednur tll leiks en hugsanlegt er að keppendur verði helmlngi fleiri í ár. Morgunblaðið/Rúnar Þór ÍSLANDSMEISTARI 4. flokks í handknattleik varð KA. Liðið var skipað eftirtöldum leikmönn- um, talið frá vinstri í fremri röð: Jónatan Þ. Magnússon, Hans Hreinsson, Hafþór Einarsson, Heimir Ö. Árnason, Þórir Svavar Sigmundsson fyrirliði, Hlynir M. Erlingsson, Benedikt Bryn- leifsson og Atli Þórarinsson. Aftari röð frá vinstri: Jóhann Hermannsson, Birkir Birgisson, Davíð Helgason, Jóhannes Jónsson, Kári Jónsson, Anton Þórarinsson, Hilmar Stefánsson og Jóhannes Bjarnason þjálfari. Bæjarbót/Björn Birgisson UMFG eignaðist Islandsmeistarara í 8. flokki stúlkna og stóðu stúlkurnar sig mjög vel því þær hafa unnið alla leiki sína í vetur. Aftari röð talið frá vinstri: Sigríður Anna Ólafsdótt- ir, Sólveig H. Gunniaugsdóttir, Anna Karen Siguijónsdóttir, Þuríður Gísladóttir, Rakel Ó. Sigurðardóttir og Bryndís Gunnlaugsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Rósa Kristín Bjarnadótt- ir, Hekla Maídís Sigurðardóttir, Hrefna B. Sigurðardóttir, Rakel L. Hrafnsdóttir, Rósa D. Þorsteinsdóttir, Rósa Ragnarsdóttir og Stefanía Jónsdóttir þjálfari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.