Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
,Besti breski tryllirinn í mörg ár...fyrsta ómissandi mynd ársins!
Caroline Westbrook.ÆMPIRE .
★★★ g.b. dv
SHALLOW
GRAVE
„Pulp Fiction-
áhugamenn,
takið
MÉk eftir! Hér
N’-'Éf er mynd
fyrir ykkur.
W Fyndnir
f skúrkar, of-
beldi, Ijótt
orðbragð, kynlíf
og kolsvartur
húmor".
Jack Mathews,
NEWSDAY
„lllkvittin tryllir frá Bretlandi med|
hrollvekjandi áhrif.Draugalegt
sambland samansafnaðs hryliings
og illgjarnrar kímnigáfu."
Jeff Craíg,
SIXTY SECOND í /- r» I I » | » I n |
PREVIEW I GRUNNRI
Hvað ecsmá morð á milli vina?
Sýnd kl. 6.55. í A sal.
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!!
Sýnd kl. 4.45 og 11.15. B.
Sýnd í HÁSKÓLABÍÓI
LITLAR KONUR
★★★ H.X. DV.
★ ★★'AS. v! Mbl.
★ ★★★ Har. J. Alþbl.
*.★★★ Ó.H.T. Rás2.
VINDAR
FORTÍÐAR
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
Kvikmyndagetraun. Verðlaun: Bíómiðar.Verð 39.90 mínútan. Sími 904 1065.
Er mjolkin a
tannanna
áfólki?
Mjólk er mikilvæg
til að byggja upp
heilbrigðar tennur
því í henni er fjöldi
bætiefna auk
kalksins.
Þátttökublað á
næsta sölustað
mjólkurinnar.
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR
Björk
blómstrar
í útlandinu
►BJÖRK Guðmundsdóttir er á
forsíðum nýjustu tölublaða
þriggja stórra tímarita í Evr-
ópu. Fyrst skal telja norska
tímaritið „Beat“, þar sem tekið
er langt viðtal við íslensku stór-
sljömuna. Einnig er plata henn-
ar, „Post“ gagnrýnd og fær
hæstu mögulegu einkunn, fimm
„bé“ af fimm mögulegum.
Þá er Björk einnig á forsíðu
franska tímaritsins Les Inroc-
kuptibles, viðtal tekið við hana
og platan dæmd. Síðast en ekki
síst skal nefna tímaritið „Rock
& Folk“ frá Hollandi. Auk við-
tals við Björk fær „Post“ frá-
bæra dóma í blaðinu.
„Brýrnar“
höfða til
miðaldra
kvenna
►KVIKMYNDIN Casablanca,
með þeim Humphrey Bogart og
Ingrid Bergman í aðalhlutverk-
um, þykir vera einstök í kvik-
myndasögunni. Engu að síður er
komin fram í dagsljósið mynd sem
þykir minna um margt á hana.
Hún heitir Brýr Madisonsýslu,
eða „The Bridges of Madison
County“ og aðalhlutverk leika
þau Clint Eastwood og Meryl
Streep. Líkt og Casablanca fjalla
„Brýmar“ um ástir miðaldra
fólks og flæða tárin duglega niður
kinnar aðalpersónanna.
Myndin er byggð á samnefndri
metsölubók eftir Robert James
Waller frá 1992. Velgengni henn-
ar hefur verið mikil og státar
bókin af 149 vikum á lista The
New York Times yfir mest seldu
bækur Bandaríkjanna. Eins og
áður segir fjallar hún um ástar-
ævintýri fólks á miðjum aldri,
Francescu Johnson bóndakonu í
Iowa og ljósmyndarans Robert
Kincaid.
Gail Sheehy, sem kannað hefur
ástar- og tilfinningalíf 8.000
manna og kvenna yfir fimmtugu,
segir að ástæður vinsælda bókar-
innar og myndarinnar séu aug-
Ijósar. „Það kom berlega í Ijós í
rannsóknum mínum að fæst kven-
fólk yfir fimmtugu hefur misst
kynhvötina og það kvenfólk sem
hefur misst hana saknar hennar,“
segir hún.
Meryl Streep þykir standa sig
mjög vel í hlutverkinu og talið
er að hún eigi töluverða mögu-
leika á að krækja sér í óskar.
En það munaði minnstu að hún
fengi ekki hlutverkið. Clint East-
wood vildi að vísu frá byijun að
hún yrði valin, en kvikmyndafyr-
irtækið prófaði margar yngri
leikkonur í hlutverkið. „Þeir próf-
uðu margar leikkonur um þrítugt
og mér fannst það slæmt. Gáfaðar
konur hafa aðdráttarafl sem hin-
ar hafa ekki,“ segir leikarinn, sem
hefur lýst Streep sem bestu leik-
konu allra tíma.
Jónsmessu-
næturdraumar
AÐFARANÓTT síðastliðins
laugardags var haldin Jóns-
messuhátíð í Húsdýragarðin-
um.
Á Jónsmessunótt skipta
selir um ham og húsdýr tala.
Engum sögum fer af einræð-
um búljár eða hamskiptum
sela, en engu að síður skemmti
mannfólkið sér vel. Varðeldur
var kveiktur og eldgleypir
mætti á staðinn.
SIGRÚN Thorlacius fræðir
Helgu Arnalds og Vilhelmínu
Magnúsdóttur um gömul hús-
ráð á Jónsmessunótt.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ALDÍS Sveinsdóttir, Sveinn Karlsson, Bryndís Sveinsdóttir, Sara
Kristjánsdóttir, Gústaf Gústafsson, Hlín Kristinsdóttir og Guðrún
Ómarsdóttir bíða eftir að Hyrna taki til máls á Jónsmessunótt.
FJÖLNIR Bryiyarsson, HHf
Kvaran Brynjarsdóttir og
Ingibjörg Fjölnisdóttir halda
vöku fyrir einum kiðlingnum.