Morgunblaðið - 27.06.1995, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Njarðvíkingar prúðir
ÞAÐ er mjög eftirsóknarvert að komast
á pollamótið í Eyjum, en þar komast að-
eins 24 lið að hverju sinni. Flest félög ríg-
halda í sæti sín og koma ár eftir ár og
svo eru önnur félög á biðlista og bíða jafn-
vel árum saman eftir að koma liðum að.
I ár féll Grótta úr leik og það voru Njarð-
víkingar sem voru svo heppnir að komast
inn. Þeir stóðu sig vel og C-lið þeirra fékk
sérstök háttvísis verðlaun enda prúðir og
stilltir strákar.
Vildu ólmirtaka
hornspyrnuna
ÞEGAR gestgjafarnir í Tý mættu f A í
flokki B-liða, en Skagastrákar unnu 2:0,
flautaði dómarinn til leiksloka þegar gest-
irnir voru að fara að taka hornspyrnu.
Strákunum fannst þetta ekki viðhæfi og
vildu endilega fá að taka hornið, en dómar-
inn neitaði því þó svo strákarnir færu fram
á að fá bara að taka hornspyrnuna, ekkert
annað.
Stundum
sárt að tapa
Þ AÐ getur stundum verið sárt að tapa en
þó líklega aldrei sárara en í vítakeppni,
en það kemur fyrir að grípa þurfi til henn-
ar þegar leikið er um sæti. Ekki hefur enn
tekist að finna aðra aðferð til að ná fram
úrslitum, en ein tillagan hljóðar uppá að
það lið sem fyrst skorar í viðkomanadi
leik fari með sigur endi leikurinn með
jafntelfi, en tillagan er til athugunar.
ÍR-ingur
aftur bestur
EYJÓLFUR Héðinsson úr ÍR var valinn
besti leikmaður mótsins að þessu sinn og
fetaði hann í fótspor félaga síns, Gunnars
H. Kristinssonar úr ÍR sem hlaut þettan
titil í fyrra. Félagar Eyjólfs fögnuðu hon-
um vel þegar þeir heyrðu tilnefninguna
og hreinlega kaffærðu hann í gleðinni, en
Eyjólfur stóð þó hress upp.
Mikiðpoxað
ALLIR þátttakendur á pollamótinu fá
ýmislegt fyrir þátttökugjaldið. Auk þess
að fara í rútuferð um Heimaey og fá báts-
ferð þar sem fuglalífið er skoðað, farið
er inn í helli og leikið á hljóðfæri og sung-
ið fyrir pollana, þá fá liðin íþróttatösku,
derhúfu, bol og að ógleymdum pox-mynd-
um. Það var því mikið poxað í Eyjum um
helgina og meira að segja keppt I því. Þar
sigraði Magnús Haukur Harðarson úr
Fjölni og fékk að launum veglega pox-
sleggju.
Sérstakt lag
var samið
RÉTT eins og alltaf eru samin þjóðhátíðar-
lög í Eyjum er búið að semja sérstakt
pollamótslag sem heitir „Sá sigrar sem
tekur þátt“. Nafnið á vel við og kemur
þeim anda sem ríkir á mótinu vel til skila.
Innanhúss-
mótinu flýtt
VENJULEGA er sérstakt innanhússmót á
föstudeginum en því var flýtt fram á
fimmtudag að þessu sinni vegna þess að
veðurspáin var ekki góð. Urslitaleikirnir
fóru þó fram á kvöldvökunni á föstudegin-
um. Þar sigraði HK í flokki A-liða, vann
Breiðablik 3:2 í framlengdum leik og í
keppni B-liða vann Fylkir lið Hauka 3:2,
einnig eftir framlengingu.
I. 100 trjám plantað
SHELL, sem er aðalstyrktaraðili polla-
mótsins, gaf 1.100 plöntur sem keppendur
plöntuðu í Löngulág. Nú er bara að sjá
hvorttrén eiga eftir að dafnajafn vel og
strákarnir.
Guðni afhenti
verðlaunin
GUÐNI Bergsson, fyrirliði íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu, var heiðursgestur á
pollamótinu og heilsaði hann uppá leik-
menn liðanna sem léku til úrslita og af-
henti verðlanuin í mótslok ásamt fleirum.
POLLAMÓT í EYJUM
Bestu leik-
mennirnirá
pollamótinu
í Eyjum
GUÐNI Bergsson
landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu afhenti
verðlaun á pollamót-
inu í Vestmannaeyj-
um, en því lauk á
sunnudaginn. Hér
sést Guðni ásamt
Halldóri Sævari
Grímssyni besta
varnarmanni móts-
ins, en hann er
lengst til vinstri á
myndinni og kemur
úr Tý í Eyjum. í miðj-
unni er Eyjólfur Héð-
insson úr IR, sem út-
nefndur var besti
leikmaður mótsins,
og Vigfús Adolfsson
úr FH var útnefndur
besti markmaðurinn,
hann er lengst til
hægri.
Vigfús Adolfsson var útnefndur besti markvörður pollamótsins
Maður tekur alttaf lýsi
til að verða sterkari
Vigfús Adolfsson úr FH var valinn besti
markvörður pollamótsms enda eins og
köttur á milli stanganna. „Ég stefni alltaf að
því að vera bestur og það var vikilega gaman
að verða fyrir valinu. Eg var valinn í Iandslið
mótsins svo mig dreymdi um að eiga möguleika
í titilinn besti markvörðurinn," sagði markmað-
ur mótsins.
„Ef maður ætlar að standa sig vel og verða
meðal bestu þá þarf maður að æfa sem mest
og hlýða þjálfaranum og vera nógu ákveðinn.
Þetta er síðasta pollamótið mitt svo það var
toppurinn að enda þetta svona. Ég á tvo uppá-
halds markmenn, þá Pagliuca og Stefán Arnar-
son hjá FH. Ég ætla alltaf að spila með FH,
nema ef ég verð einhvern tíma atvinnumaður.
Mig langar að reyna að komast í atvinnu-
mennskuna, svo tekur maður alltaf lýsi á
morgnana til að verða sterkari.“
Kom mér rosalega á óvarl
Eyjólfur Héðinsson úr ÍR var valinn besti
leikmaður mótsins, en hann sýndi ótrúlega leikni
og hafði góða yfirsýn yfir leikinn. „Þetta kom
mér alveg rosalega á óvart. Ég vissi af Gauta
í Fjölni og Halldóri í Fram og bjóst við að annar-
hvor þeirra yrði valinn, en það er mjög gaman
að sigra þá því þeir eru mjög góðir. Það er þó
ekki aðalatriðið að sigra, heldur að vera með
því þetta er mjög skemmtilegt og þetta mót
er búið að vera frábært. Við urðum í ellefta
sæti og gekk ágætlega og við erum alveg sátt-
ir við árangurinn. Mér finnst Georgi Hagi frá-
bær fótboltamaður og vonandi verð ég einhvern
tíma jafn góður og hann, en þá þarf maður líka
að æfa vel og hafa góðan þjálfara eins og hann
Sigurð þjálfarann okkar,“ sagði besti leikmaður
pollamótsins.
Eins og Heimaklettur í vöminni
Heimamaðurinn Halldór Sævar Grímsson úr
Tý var valinn besti varnarmaður pollamótsins
enda þótti hann jafnt traustur og Heimaklettur
í vörninni. „Maður vonaðist eftir þessu. Ég er
búinn að æfa fótbolta á fullu í fimm ár og
þetta er sko toppurinn. Þetta er búið að vera
öfga fjör,“ sagði varnarjaxlinn.
„Uppáhalds leikmaður minn er Guðni Bergs-
son þannig að það var mjög gaman að taka
við verðlaununum frá honum. Kannski næ ég
einhvern tíma að verða jafn góður og hann —
maður reynir alla vega. Þetta er síðasta polla-
Fylkismenn sigruðu í keppni B—liða annað árið í röð, efri röð f.v.: Samúei Kristjáns-
son, Stefán Kári Sveinbjörnsson, Halldóra S. Ólafsdóttir, Bjarnl Helgason, fyrirliði,
Ragnar Sigurðsson. Neðri röð f.v.: Ólafur Kr. Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Eggert
Ellertsson, Kjartan Ágúst Jóhannsson, Einar Pétursson, Kristinn Guðjónsson, Albert
Byrnjar Ingason, Halldór Örn Þorsteinsson.
mótið mitt þar sem ég fer upp í
fimmta flokk næst, en ég hefði
alveg viljað vera með næst líka,“
sagði Halldór Sævar brosandi út
að eyrum og mjög kátur með út-
nefninguna.
KRISTJÁN Magnússon
tryggði liði sínu 5. sæti,
varði tvær vítaspyrnur.
Tvö víti varin
Kristján Magnússon, sem leikur
með A-liði Aftureldingar úr
Mosfellsbæ, gerði sér lítið fyrir og
varði tvær vítaspyrnur í vítaspyrnu-
keppni sem liðið lenti í í leik um
5. sætið gegn Val. „Ég náði að
veija tvö víti í vítakeppninni og það
var alveg einstök tilfinning og dugði
okkur til að vinna þannig að við
urðum í fimmta sæti, en það er
besti árangur sem við höfum náð,“
sagði Kristján markvörður en hann
var á sínu þriðja pollamóti og sagði
þetta það besta.
Kristján sagðist ekki eiga sér
uppáhalds markvörð. „Ég á eigin-
lega engan uppáhalds markmann —
ætli það sé ekki bara ég! Ég ætla
að halda áfram að æfa og vonandi
spila ég einhvern tíma með Manc-
héster United í atvinnumennskunni
þegar ég verð eldri.“