Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995 11
FRÉTTIR
Tillögur nefndar um útboð og inn-
kaup á vegum Reykjavíkurborgar
lnnkaupastomun
hafi heildarsýn
BORGARRAÐ hefur samþykkt til-
lögur nefndar um útboðs- og inn-
kaupamál Reykjavíkurborgar.
Jafnframt var samþykkt að vísa
samþykkt fyrir Innkaupastofnun
til stjórnkerfisnefndar.
I erindi nefndarinnar til borgar-
ráðs kemur fram að athugasemdir
hafi borist frá borgarverkfræð-
ingi, Húsnæðisnefnd Reykjavíkur,
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
Borgarspítalanum og borgarlög-
manni.
Þar segir ennfremur að nefndin
vilji sérstaklega árétta að meg-
intilgangur með breytingunum
hafi verið að hnykkja vel á því,
að öll kaup og þjónusta og allir
verksamningar eigi að fara í gegn-
um Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar. Stjórn Innkaupastofnunar
mun taka til umfjöllunar allar
ábendingar og tillögur sem fram
hafa komið og mun í samráði við
einstaka stofnanir eða fyrirtæki
borgarinnar ganga frá nánari
verklagsreglum innan þess ramma
sem samþykkt fyrir Innkaupa-
stofnun gerir ráð fyrir.
Heimild fyrir undanþágum
Fram kemur að þótt meginregl-
an sé sú að Innkaupastofnun ann-
ist útboð á allri þjónustu og öllum
verklegum framkvæmdum er
stjórninni heimilt að veita undan-
þágu. Þá telur nefndin mikilvægt
og nauðsynlegt að Innkaupastofn-
un hafi heildarsýn yfir öll útboðs-
og innkaupamál borgarinnar og
að verksvið stofnunarinnnar sé
hafið yfir allan vafa.
Ríkisútvarpið
áfrýjar niðurstöðu
samkeppnisráðs
STJÓRNENDUR Ríkisútvarpsins
hafa ákveðið að skjóta niðurstöðu
samkeppnisráðs um fjárhagslegan
aðskilnað dagskrárgerðar frá öðr-
um rekstri til áfrýj-
unarnefndar sam-
keppnismála.
Samkeppnisráð
mælti svo fyrir 30.
maí síðastliðinn að
RÚV bæri að skilja
að fjárhagslega
þajm hluta rekstrar
RÚV sem lýtur að
öflun efnis og út-
sendingu og þann
sem snýr að fram-
leiðslu dagskrárefnis Sjónvarps-
ins.
í frétt frá Ríkisútvarpinu segir
hins vegar að ekki sé talin þörf á
því að ganga svo langt sem sam-
keppnisráð mæli fyrir um. Auk
þess að stofnunin vefengi lagaleg-
ar forsendur ákvörðunar þess.
„Telur Ríkisútvarpið að frá því
að afnuminn var einkaréttur þess
til útvarps- og sjónvarpsrekstrar
hafi það hvorki notið einkaleyfis
né verndar í skilningi samkeppnis-
laga. Samkvæmt þeim lögum sem
samkeppnisráð
byggir ákvörðun
sína á, eru slík sér-
réttindi hins vegar
skilyrði þess að
mælt sé fyrir um
íjárhagslegan að-
skilnað milli þess
hluta starfsemi
sem nýtur einka-
leyfis eða vemdar
og þess hluta sem
á í frjálsri sam-
keppni. Ríkisútvarpið hafnar því
að framleiðslustarfsemi þess sé í
frjálsri samkeppni við kvikmynda-
framleiðendur. Telur Ríkisútvarp-
ið þá starfsemi vera í þess eigin
þágu og því hluta af innri þjón-
ustustarfsemi stofnunarinnar við
sjálfa sig. Þetta er áskilið í lögum
til að stofnunin geti rækt lögbund-
ið hlutverk sitt.“
Þjóðverjar felld-
ir á eigin bragði
BRIPS
Kvrópumótiö í
svcitakcppni
VILAMOURA, PORTUGAL
Evrópumótið í opnum flokki og
kvennaflokki, 17. júní til l.júlí
Nú eru aðeins þrír dagar eftir af
Evrópumótinu í Vilamoura og þá
mun reyna á taugar og úthald
spilaranna. Staðan í opna
flokknum er óvenjulega jöfn og
enn eiga margar þjóðir möguleika
á sigri með góðum endaspretti.
Vilamoura. Morgunblaðið.
íslenska liðið á eftir að spila
við Spánveija, Tékka, Líbanonbúa
og Svisslendinga sem allir eru
fyrir neðan miðju, en einnig við
Austurríkismenn, sem eru í bar-
áttunni um verðlaunasæti, og
Tyrki sem alltaf eru erfiðir viður-
eignar. Aðrar toppþjóðir eiga eftir
álika viðureignir svo lítið má ráða
af því.
Islenska liðið vann á mánudag
þokkalegan sigur á Þjóðveijum
sem hafa ungu og efnilegu liði á
að skipa. Tveir Þjóðveijanna,
Klaus Reps og Roland Rohowsky,
eru fyrrverandi heimsmeistarar
yngri spilara í sveitakeppni og
Rohowsky varð einnig heims-
meistari í opnum flokki fyrir
nokkrum árum.
í upphafi leiksins tóku Jón
Baldursson og Sævar Þorbjörns-
son þá Reps og Rohowsky í smá
kennslustund þegar Reps ætlaði
að ná hælkrók á íslendingana.
Austur gefur, NS á hættu.
Norður
♦ G983
V--
♦ ÁD8
♦ G109862
Vestur Austur
♦ Á10 4 7642
V 754 V G9863
♦ K10643 ♦ G5
♦ D53 4 Á7
Suður
♦KD5
♦ ÁKD102
♦ 972
+ K4
Norður og suður eiga saman
styrk í geim og það má þræða
Morgunblaðið/GSH
ÉG ætlaði að reyna að rugla íslendinga aðeins, makker, gæti
Þjóðverjinn Klaus Reps verið að segja þar sem hann stingur
höfðinu undir skerminn. Myndin var að vísu tekin meðan á
viðureign Þjóðverja og íra stóð, og til vinstri er írinn Joe
McHale, elsti keppandinn í Vilamoura, 73 ára að aldri.
heim 3 grönd eftir tígul út frá
vestri en flestum reyndist það
ofviða. Þjóðverjarnir Gromöller og
Hopfenheit spiluðu 5 lauf og fóru
tvo niður við annað borðið en við
hitt voru sagnir frekar stuttar:
Vestur Norður Austur Suður
Rohows. Sævar Reps Jón
2 tíglar dobl
pass pass 2 hjörtu dobl//
Reps ætlaði að nýta sér hætt-
urnar og opnaði á multi, sem sýndi
langan hálit og veik spil. Dobl
Jóns sýndi góð spil og jafna skipt-
ingu og síðara doblið var sekt.
Reps fór síðan 4 niður og Jón og
Sævar skrifuðu 800 í sinn dálk
og 14 impa. Leikurinn vannst síð-
an 17-13.
Náð fram hefndum
Síðari leikur mánudagsins var
við íra. írarnir voru frekar heppn-
ir í fyrri hálfleik. Þeim tókst með-
al annars að rugla Jón og Sævar
í ríminu í einu spili eftir að^Sævar
opnaði á sterku laufi. Þá stökk
annar írinn í 2 tígla sem gat sýnt
allt milli himins og jarðar, spilaði
þá á 4-2 samlegu og fór 4 niður
en við hitt borðið sögðu og unnu
Irarnir 4 spaða á spil Jóns og
Sævars.
En í síðari hálfleik náði Guð-
mundur Páll Arnarson fram
hefndum:
Austur gefur, AV á hættu.
Norður
♦ 542
*D5
♦ D109853
♦ K8
Vestur Austur
♦ 9863 ♦ ÁKD7
¥93 ¥ ÁG74
♦ G76 ♦ Á4
♦ ÁDG10 ♦ 643
Suður
♦ GIO
¥ K10862
♦ K2
♦ 8752
Við annað borðið sögðu og
unnu Jón og Sævar 4 spaða í AV
en við hitt borðið opnaði írinn í
austur á 1 laufi sem gat bæði
sýnt 12-14 punkta og jafna skipt-
ingu eða 17 eða fleiri hápunkta.
Guðmundur nýtti sér þennan veik-
leika opnunarnnar með því að
stökkva í 2 hjörtu á suðurspilin.
Vestur taldi sig ekki eiga fyrir
úttektardobli ef austur ætti veika
opnun og austur taldi að vestur
ætti mjög lítil spil fyrst hann lét
ekki í sér heyra. Hann ákvað því
að passa spilið niður, ánægður
með að fá töluna. Guðmundur fór
síðan tvo niður en ísland græddi
11 stig og vann leikinn 17-13.
Guðm. Sv. Hermannsson
Tekjuauki
lífeyrisþega
EINUNGIS þeir lífeyrisþegar sem
fá óskerta tekjutryggingu, heim-
ilisuppbót og sérstaka heimilisupp-
bót fá greiddan fullan 26% tekju-
tryggingarauka í júlí, en hann er
9.727 krónur fyrir ellilífeyrisþega
og 9.901 króna fyrir örorkulífeyris-
þega.
Tekjuaukinn er greiddur í sam-
ræmi við kjarasamninga á alnjenn-
um vinnumarkaði. Hann skerðist í
sama hlutfalli og tekjutryggingin,
heimilisuppbótin og sérstaka heim-
ilisuppbótin ef lífeyrisþeginn fær
■ aðrar tekjur en bætur almanna-
trygginga. Tekjuaukinn mun ekki
koma fram sérstaklega á greiðslu-
seðlum heldur verður hann lagður
við upphæðir bótaflokkanna
þriggja.
Lífeyrisþegar sem ekki njóta
tekjutryggingar, heimilisuppbótar
og sérstakrar heimilisuppbótar fá
engan tekjutryggingarauka.
ÞÚ GETUR TREYST FAGOR
FAGOR ^
ÞVOTTAVÉLAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
OG ELDUNARTÆKI
Á EINSTÖKU VERÐI
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 568 5868
FAGOR S-23N
Kælir: 212 I - Frystir: 16 I
HxBxD: 122x55x57 cm
Innbyggt frystihólf
38.800
FAGOR D-32R
Kælir: 282 I - Frystir: 78 I
HxBxD: 171x60x57 cm
Stgr.kr. 800
FAGOR C31R - 2 pressur
Kælir: 270 I - Frystir: 110 I
HxBxD: 170x60x57 cm
Tvöfalt kælikerfi
s** 67.800
ÁBT•K107