Morgunblaðið - 29.06.1995, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
V
ERLEIMT
]í
stutt
Styðja
nýja
emírinn
LEIÐTOGAR aðildarríkja Sam-
starfsráðs Flóaríkja hafa viður-
kennt hinn nýja emír af Katar,
sem réttmætan valdhafa. Á
meðal aðildarríkja eru Saudi-
Arabía. Er þetta mikili sigur
fyrir emírinn, sem velti föður
sínum úr sessi í fyrradag, en
nú eru taldar litlar líkur á and-
stöðu við valdatökuna í Katar.
Hóta hernað-
aríhlutun í
Búrúndí
LEIÐTOGAR Afrísku eining-
arsamtakanna vöruðu yfirvöld
í Búrúndí í gær við því að sam-
tökin kunni að fyrirskipa hern-
aðaríhlutun til að stöðva blóð-
ugar ættflokkaeijur tútsa og
hútúmanna. Óttast samtökin
að verði ekki gripið í taumana,
muni fjöldamorðin í Rúanda
endurtaka sig í Búrúndi.
Shell biður
Norðmenn
um aðstoð
OLÍUFYRIRTÆKIÐ Shell hef-
ur formlega farið þess á leit við
norsk stjórnvöld að þau gefi
leyfi til þess að borpallurinn
Brent Spar verði geymdur um
tíma í Erfjord á vesturströnd-
inni. Sagði Jens Stoltenberg,
orku- og iðnaðarmálaráðherra,
að norsk stjómvöld vildu veita
Shell aðstoð. Pallurinn yrði hins
vegar að standast norskar
reglugerðir um umhverfísvernd
og öryggi áður en leyfið yrði
veitt.
Of öflugur
safi
EPLASAFI í umbúðum sem
minna á dínamít, mun ekki
verða seldur í hinum sænsku
ríkisreknu áfengisverslunum.
Óttast var að umbúðimar
myndu hvetja til óhóflegrar
drykkju á safanum, sem inni-
heldur svipað áfengismagn og
bjór. Svíar munu því ekki njóta
þess að dreypa á „TNT Liquid
Dynamite" á næstunni.
Ráðherrar
víkja
FELIPE Gonzalez, forsætisráð-
herra Spánar, tók í gær við
lausnarbeiðnum tveggja ráð-
herra sem báðir hafa tengst
hneyksli í
sambandi við
símahleranir.
Mennirnir eru
Narcis Serra
varaforsætis-
ráðherra og
Julian Garcia
Vargas
vamarmála-
ráðherra og
hafa báðir setið lengi í ríkis-
Gonzalez
stjórn.
Skógareld-
ar á Kýpur
MIKLIR skógareidar geisa
nú í fjalllendi á norðurhluta
Kýpur. Hafa allnokkrir slas-
ast og fjöldi fólks neyðst til
að yfirgefa heimili sín vegna
eldanna. Þá er talin hætta
á að fom kastali og klaustur
frá 12. öld kunni að verða
eldinum aö bráð.
Stjórnarflokkurinn beið ósigur í sveitarstjórnarkosningum í S-Kóreu ^
Mikið áfall fyrir
forsetann og
stefnu hans
Seoul. Reuter.
KIM Young-sam, forseti Suður-
Kóreu, og flokkur hans, Fijáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn, biðu
mikinn ósigur í sveitarstjórnar-
kosningum í fyrradag. Missti
flokkurinn meirihluta í mörgum
stórborgum og héruðum, þar á
meðal í höfuðborginni, Seoul.
„Úrslitin eru mótmæli gegn
stefnu og starfsháttum ríkisstjórn-
arinnar,“ sagði Kim Ho-jin, stjórn-
málafræðaprófessor við Kóreska
háskólann, „og hún verður að beita
sér fyrir pólitískum umbótum á
seinni hluta kjörtímabilsins ætli
hún sér að sitja meira en að nafn-
inu til.“
Með þessum kosningum voru
sveitarfélögunum í S-Kóreu að
fullu færð þau völd, sem þau höfðu
fyrir valdarán hersins 1961, og
litið er á þær sem mat kjósenda
á Kim forseta og ríkisstjóm hans.
Úrslitin urðu annars þau, að
Cho Soon, frambjóðandi Lýðræðis-
flokksins, helsta stjórnarandstöðu-
flokksins, fékk tæplega 41% at-
kvæða í borgarstjórakosningunum
í Seoul en þar býr fjórðungur
landsmanna, sem eru alls 44 millj-
omr.
Cho, sem hefur áður gegnt
embætti forsætisráðherra og
seðlabankastjóra, hyggst beita sér
fyrir umbótum og sjálfstæðri
stefnu í höfuðborginni.
í kosningabaráttunni deildi Cho
hart á getuleysi ríkisstjórnarinnar
í umferðar-, mengunar- og öðrum
málum og gagnrýnendur forsetans
segja, að svo virðist sem áhugi
hans á lýðræðislegum umbótum
hafi minnkað. Nefna þeir til dæm-
is um það margar skattarannsókn-
ir á andstæðingum stjómarflokks-
ms.
TENGING ATLANTIS OG MIR-GEIMSTÖÐVARINNAR
Bandarísku geimferjunni Atlantis
var skotið á loft á þriðjudag
og á að tengjast rússnesku
MIR-geimstöðinni
MIR-stööin hefur verið á
braut um jörðu í níu ár
og er samsett úr
nokkrum geimförum
Geimterjan Atlantis
Mun flytja ytir í MÍR tvo rússneska
geimfara og snúa aftur með
NASA-geimfarann Norman Thagard
og tvo rússneska geimíara
sem hafa lokið þriggja mánaða
dvöt um borð í MÍR.
Stýrihringur
Orbiter-tengibúnaöur
Tengdur með stuttum göngum
við ioftþrýstiklefa inni /
þrýstijöfnuðum stjórnktefanum
Rússneskur tengibúnaöur
Tengir saman Orbiter-búnaöinn og MÍR
Höggdeylar sem koma í veg fyrir
að ferjan og MÍR skelli saman
REUTER
Heimild: NASA
Sögulegir samfundir
Reuter
LEE Ki-taek (t.h.), leiðtogi Lýðræðisflokksins, helsta stjórnar-
andstöðuflokksins í Suður-Kóreu, fagnar kosningasigrinum
ásamt Cho Soon, sem sigraði í borgarstjórakosningunum í Seoul.
Landiæknir um barnaveiki
í Rússlandi
Rangt að hætta
sé á faraldri
FRÉTTIR um að yfirvöld í
Stokkhólmi hafi gripið til sér-
stakra ráðstafana vegna hættu
á að bamaveiki, sem upp hefur
komið í Rússlandi, verði að far-
aldri era ekki á rökum reistar,
að sögn Ólafs Ólafssonar land-
læknis.
Fullyrt hefur verið að borgar-
yfírvöld í Stokkhólmi hyggist
láta bólusetja alla borgarbúa af
ótta við að veikin berist frá
Rússlandi og öðrum fyrrverandi
Sovétríkjum.
Ólafur sagði í samtali við
Morgunblaðið að Svíar hefðu
gripið til sömu ráðstafana og
gert var hér fyrir nokkru, þ. e.
að ferðamönnum sem ætla til
Rússlands er ráðlagt að láta
bólusetja sig fyrir ferðina austur
á bóginn.
„Þeir [Rússar] eiga við alls
konar óáran að stríða m.a.
vegna þess að þeir eiga ekki nóg
bóluefni,“ sagði landlæknir.
Hvíta-Rússland
600 fyrirtæki einka-
vædd fyrir áramót
Minsk. Reuter.
FORSETI Hvíta-Rússlands, Alex-
ander Lukasjenko hefur undirritað
áætlun um að hrinda í framkvæmd
einkavæðingaráætlun sem var
stöðvuð er ríkið hlaut sjálfstæði.
Að sögn efnahagsráðgjafa forset-
ans er um að ræða einkavæðingu
yfir 600 stórra og meðalstórra fyrir-
tækja fyrir árslok. Sagði hann for-
setann hafa gert forstjórum iðnfyrir-
tækja grein fyrir því að tími bitlinga
úr hendi stjórnvalda væri liðinn.
Forstjórarnir yrðu að gera sér grein
fyrir því.
Umbætur í Hvíta-Rússlandi hafa
gengið enn hægar fyrir sig en í
nágrannaríkjunum Rússlandi og
Úkraínu.
Eftirmálar banatilræðisins við Hosni Mubarak, forseta Egyptalands
Addis Ababa. Reut°r.
OMAR Hassan al-Bashir, forseti
Súdans, neitaði í gær, að ríkisstjóm
sín bæri nokkra ábyrgð á tilræðinu
við Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, og sagði, að Egyptar hefðu
löngum getað ráðið leiðtoga sína
af dögum án utanaðkomandi hjálp-
ar. Mubarak kvaðst hins vegar
vona, að Súdanir rækju af höndum
sér ríkisstjómina í Khartoum.
Bashir sagði, að súdanska ríkis-
stjórnin væri andvíg öllu ofbeldi og
neitaði því, að súdanskur ríkisborg-
ari hefði leigt húsið, sem tilræðis-
Vonar að Súdanir
steypi stjórninni
mennirnir hefðu notað í Addis
Ababa. Síðar sagði hann þó, að
reyndist Súdani hafa leigt það,
sannaði það ekki, að súdanska ríkis-
stjórnin hefði átt aðild að tilræðinu.
Mubarak Egyptalandsforseti
sagði í gær, að hann vonaði, að
Súdanir bæru gæfu til að steypa
ríkisstjórninni í Khartoum en lagði
áherslu á, að egypskt herlið yrði
ekki sent yfir landamærin. Til átaka
kom þó á landamærum ríkjanna við
Rauðahaf og særðust sex menn að
sögn Egypta sem handtóku 10 Súd-
ani. Bashir forseti sagði að tveir
Súdanir hefðu verið felldir er
egypskir hermenn gerðu árás á
landamærastöðina.
Egypsk stjórnvöld hafa einnig
skýrt frá því, að fjórir menn, sem
voru handteknir þegar herinn lagði
hald á mikið af vopnum í suður-
hluta landsins, hafi játað að hafa
fengið þjálfun í Súdan.
V
'(
I
t
ú
I
t
i
í
i:
i
l
l
i
i.
i
V