Morgunblaðið - 29.06.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995 39
MINNIIMGAR
PAUL V. MICHELSEN
+ Paul V. Mic-
helsen fæddist
17. júlí 1917 á
Sauðárkróki.
Hann lést 27. maí
sl. Foreldrar Pauls
voru Jörgen Frank
Michelsen, f. 25.
janúar 1882 í Hors-
ens í Danmörku,
d. 16. júlí 1954,
úrsmíðameistari
og kaupmaður, og
kona hans, Guðrún
Pálsdóttir, f. 9.
ágúst 1886, d. 31.
maí 1967, hús-
freyja. Paul eignaðist ellefu
systkini og eina uppeldissyst-
ur. Kona Pauls var Sigríður
Ragnarsdóttir Michelsen, hár-
greiðslumeistari, hún er látin.
Synir Pauls og Sigríðar eru:
Jörgen Frank, garðyrkjumað-
ur og bifreiðarstjóri, maki
Sveinbjörg Steinþórsdóttir,
KVEÐJA frá Klúbbi Skandinavíu-
safnara.
I gömlu máli segir: „Lengi skal
manninn reyna.“ Kemur þetta fyrst
fyrir í Grettis sögu, ef ég man rétt.
Þetta átti á margan hátt við Paul
heitinn og lít ég þá aðeins til þess
tíma er ég kynntist honum, fyrst í
Hveragerði þar sem hann rak
blómabúðina sína og síðan er hann
flutti til Reykjavíkur og tók að
starfa með okkur í Skandinavíku-
klúbbnum.
Það er ekki langt síðan hann
mætti síðast á fundi hjá okkur eða
vel röskur mánuður og þá eins og
ávallt hafði hann eitthvað jákvætt
til málanna að leggja. Öll þau skipti
sem ég sat fundi í klúbbnum, frá
því að hann tók að starfa með okk-
ur, minnist ég Pauls sem virks og
jákvæðs félaga. Eftir að ég tók
þau eiga þijá syni;
Ragnar Hafsteinn,
blómaskreytinga-
maður; Georg Már,
bakari, maki Anna
Þorvaldsdóttir, þau
eiga þijú börn. Eftir
nám i barna- og
unglingaskóla var
Paul einn vetur í
Laugarvatnsskóla
og þijú ár í Dan-
mörku þar sem hann
lærði garðyrkju.
Paul var garðyrkju-
lærlingur í nokkur
ár, bæði í Hvera-
gerði og Danmörku. Hann var
garðyrkjustjóri í Hveragerði í
24 ár en garðyrkjustöð og
blómaskála stofnaði Paul 1956
og rak til ársins 1980. Paul
starfaði í Oddfellowreglunni í
áraraðir. Paul var jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn 6. júni sl.
aftur við stjórnartaumum í klúbbn-
um var sérstök ánægja að beina
hugmyndum til hans og fá við-
brögð. Það var lengi hægt að reyna
góðar tillögur og jákvæðni hans.
Hann sagði hiklaust frá því sem
honum ekki féll og kom þá með
tillögur til lausnar og vann ötullega
að því að færa öll mál í betri farveg.
Ahugi hans á starfi ungra með-
lima í klúbbnum var mikill og margt
frá honum kom þar fram, tillögur
um vinnuaðferðir og hvatningar.
Minnist eg margra hrósyrða Páls
heitins Ásgeirssonar um það sem
frá Paul kom til þeirra mála. Átti
ég nokkra orðræðu við hann er
haldin var sýning ungra frímerkja-
safnara í Seljakirkju og mun lengi
minnast einlægs áhuga hans og
velvilja við það starf. Sýndi hann
þetta einnig á síðastliðnum vetri,
er ég hafði tekið við þessu starfí.
Slíka menn er gott að eiga að og
ekki síst að vinum.
Á leiðarenda þessa hluta tilver-
unnar vil ég tjá þér þökk okkar sem
með málefni Klúbbs Skandinavíu-
safnara förum og veit að margir
fleiri frímerkjasafnarar hugsa til
þín á sama hátt. í hópi okkar er
skarð fyrir skildi. Aðrir munu fjalla
um hin fjöldamörgu starfssvið þín
og áhugamál, sem öllum var sinnt
jafnvel það best ég veit. Blessuð
sé minning þín, hvíl þú í friði.
F.h. Klúbbs
Skandina víusaf:nara.
Sigurður H. Þorsteinsson,
formaður
Sumum ■ kynnumst við vel og
þekkjum lengi en aðra þekkjum við
skemur og jafnvel alltof stutt.
Þannig finnst mér að ég hafi þekkt
Paul allt of stutt, enda þótt ég
kynntist honum í kringum 1955 og
að sjálfsögðu hans ágætu eigin-
konu, Sigríði Ragnarsdóttur Mic-
helsen. Okkar kynni voru traust og
bar ég ætíð virðingu fyrir skoðunum
hans þrátt fyrir það að við værum
ekki alltaf sammála um það sem
við vorum að fjalla um, t.d. þjóð-
mál, viðskipti, félagsmál ó. fl., því
Paul hafði fastmótaðar skoðanir á
þeim málum sem rætt var um. Þó
samfýlgdin í þessu lífi hafi ekki
verið löng í mannárum talið skilur
Paul eftir sig mjög sterkar minning-
ar um allar þær góðu samveru-
stundir sem við áttum. Eg sendi
börnum, barnabörnum svo og öðr-
um ættingjum og vinum mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Að lokum eftir langan þungan dag
er leið þín ðll. Þú sest á stein við veginn
og horfir skyggnum augum yfir sviðið eitt
andartak.
Og þú munt minnast þess
að eitt sinn, eitt sinn endur fyrir löngu
lagðir þú upp frá þessum stað.
(Steinn Steinarr)
Konráð R. Bjarnason
t
Ástkær dóttir mín, systir og fóstursystir,
GRÓA SIGURVEIG ÁSGEIRSDÓTTIR
frá Hvallátrum,
verður jarðsungin frá Breiðavíkurkirkju laugardaginn 1. júlí kl. 14.
Ásgeir Erlendsson,
Stella Ásgeirsdóttir,
Kristinn Guðmundsson,
Margrét Ingvadóttir
og fjölskylda.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR,
sem lést föstudaginn 23. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 29. júní, kl. 15.00.
Gústaf Nilsson, Þóra Ólafsdóttir,
Ólafur Nilsson, Guðrún Ólafsdóttir,
Bogi Nilsson, Elsa Petersen,
Anna Nilsdóttir, Friðrik J. Hjartar,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs sonar okkar,
SMÁRA GUÐMUNDSSONAR,
Fagrabæ 1.
Inga S. Kristjánsdóttir, Guðmundur S. Sigurjónsson,
Þórir K. Guðmundsson, Sigurbirna Oliversdóttir,
Johanna S. Guðmundsdóttir, Arnar Arngrímsson,
Sigurjón Guðmundsson, Ósk Magnúsdóttir,
systkinabarnabörn og barnabarnabörn.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld ! úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn s!n en ekki stuttnefni undir greinunum.
ÓLÖF HAFDÍS
RAGNARSDÓTTIR
+ Ólöf Hafdís Ragnars-
dóttir fæddist á Siglu-
firði 19. mars 1946. Hún
lést í sjúkrahúsi Suðurnesja
18. júní síðastliðinn. Útför
Ólafar var gerð frá Kefla-
vikurkirkju 28. júní.
ÞAÐ er erfitt að kveðja kæran vin
og mig brestur orð. Efst í huga
mér er þakklæti fyrir að hafa feng-
ið að kynnast Diddu og eiga með
henni samleið. Hún var elskuð og
virt af svo mörgum, alltaf jákvæð
og brosti við lífinu og vildi lifa því
lifandi. Didda var ákaflega afkasta-
mikil kona. Okkur hinum fannst oft
óskiljanlegt hversu miklu hún kom
í verk. Síðasta ár var Diddu og fjöl-
skyldu hennar erfitt, vegna veik-
inda hennar, en þvílík hetja sem
hún var, aldrei var kvartað, bara
sagt, mér líður vel. Didda var gift
yndislegum manni, Einari Júlíus-
syni söngvara, og eignuðust þau 4
dætur, og er von á fyrsta barna-
barninu eftir nokkra daga. Vissi ég
að ekkert þráði hún meira en að
fá að halda á litla baminu hennar
Villu. En Guð réð í þetta sinn. Didda
lifði fyrir fjölskyldu sína og hennar
aðal var hversu hún mat manneskj-
una mikils. Fáa hef ég þekkt sem
kunna þá list. Margar ljúfar minn-
ingar um samveru okkar verða vel
geymdar. Minningin um sívakandi
umhyggju hennar yljar öllum þeim
sem þekktu hana, þeim mest sem
þekktu hana best. Didda lifir í huga
allra þeirra sem kynntust henni.
Innilegar samúðarkveðjur sendum
við Einari, Villu, Tóta, Dóru, Maríu,
Ollu, foreldmm hennar og systkin-
um. Þið hafið öll misst mikið.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Briem) Quðnj Qg. jjerdís.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
DAVÍÐS ÓLAFSSONAR
fyrrverandi Seðlabankastjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 30. júní kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir, sem vildu minnast hans,
eru vinsamlegast beðnir að láta Krabbameinsfélagið njóta þess.
Ágústa Gísladóttir,
Ólafur Davíðsson, Helga Einarsdóttir,
Sigrún Davíðsdóttir
og barnabörn.
- kjarni málsins!
3ja herbergja 6.800.
Við undirritun samnings 200.000
Húsbréf 4.760.000
Lán frá seljanda 1.000.000*
Við afhendingu 1.840.000
4ra herbergja 7.300.000
Við undirritun samnings 200.000
Húsbréf 5.110.000
Lan frá seljanda 1.000.000*
Við afhendingu 1.990.000
PERMAFORM
Til sölu Permaformíbúðir
PERMAFORM
- BYGGINGARMÁTI
NÚTÍMANS
*Gegn traustu
fasteignaveði
ÁLFTÁRÓS HF
SM'ÐJUVEG 11-200 KOPAVOGI S: 564 1340