Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÖSTUR BERG-
MANNINGASON
+ Þröstur Bergmann Inga-
son fæddist í Reykjavík 25.
júli 1959. Hann andaðist
22. maí sl. Þröstur var jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði 1. júní.
FREGNIN um að vinur minn og
æskufélagi, Þröstur Bergmann
væri látinn, kom eins og reiðar-
slag. í huganum birtust ótal
myndir og augnablik liðinna tíma.
Myndirnar og augnablikin voru
umvafin ljóma, en nú er sem minn-
ingarnar meiði og mæði stöðugt
huga minn og geð. En á skrifandi
stundu virðast hugsanirnar ekki
geta náð sinni endastöð og eftir
situr sorgin sem aðeins tímans
tönn getur bitið á.
Ég held að árið hafi verið 1971
þegar ég sá Þröst í fyrsta skipti.
Ég var nýfluttur í Safamýrina þeg-
ar tveir peyjar birtust skyndilega
í dyragættinni heima hjá mér.
Þetta voru Hilmar (Hilli) og Frið-
rik (Frissan) sem vildu ólmir fá
mig út í fótbolta. Þegar út á völl
var komið var ég síðan kynntur
fyrir þriðja peyjanum sem var
Þröstur. Síðan var skipt í tvö lið
og ég og Þröstur vorum mótheij-
ar. Ég var í markinu í mínu liði
og reiknaði það fljótt út að Þröstur
væri sá sem ég þyrfti að hafa
mestar gætur á ef leikurinn ætti
ekki að tapast. í miðjum leik endar
knötturinn upp á bílskúrsþaki og
Þröstur var ekki lengi að vippa sér
þangað til að ná í boltann. Það sem
mér þótti verra var að hann tók
síðan innkast upp á bílskúmum
sem úr varð mark. Upphófst nú
mikið rifrildi milli mín og Þrastar
því aðrir höfðu ekkert með þetta
atvik að gera, að okkur fannst.
Mín skoðun var sú að innkastið
væri ólöglegt, en því var Þröstur
ekki sammála. Mig minnir að lok-
aniðurstaðan hafi verið sú að
Þrastarlið fékk vítaspymu með því
skilyrði að einhver annar en hann
tæki spyrnuna! Þetta var dæmigert
fyrir okkar fyrstu kynni því Þröst-
ur var bæði kappsamur og metnað-
argjarn í því sem hann tók sér
fyrir hendur, en ég var þijóskur.
Ur þessu myndaðist síðan vinskap-
ur því við komumst fljótt að því
að við högnuðumst meir á því að
vinna saman en öfugt. Eftir þetta
reyndum við ævinlega að hliðra
niðurröðuninni þannig að við spil-
uðum í sama liði því rifrildið forð-
um hafði skapað gagnkvæma virð-
ingu.
Síðan kom heimsmeistaraein-
vígið í skák 1972 og við tók mikil
skákdella. Ég hélt náttúmlega með
Spasský því Þröstur hélt með
Fischer. Síðan voru tefld einvígi
þar sem ég var Spasský og Þröst-
ur var Fischer. Við félagamir söfn-
uðumst yfirleitt saman á heimili
Þrastar á þessum árum. Rósa
móðir hans skipti þar miklu máli
því hún studdi son sinn ötullega í
því sem hann tók sér fyrir hendur.
Fyrir þessu fundum við félagarnir
og ég held að þetta jákvæða and-
rúmsloft sem einkenndi heimili
Þrastar hafi framar öllu dregið
okkur þangað.
Síðan fómm við peyjarnir að
leggja leið okkar í Taflfélag
Reykjavíkur á æfingar og mót. Þar
kom í ljós að skákhæfileikar Þrast-
ar vom miklir því hann vann sig
fljótt upp í landsliðsflokk. Það var
á þessum ámm sem Þröstur tefldi
nokkmm sinnum fyrir Islands hönd
á erlendum vettvangi, yfirleitt með
góðum árangri. Ég hef alltaf hald-
ið því fram að Þröstur væri einn
af efnilegustu skákmönnum sem
þjóðin hefur borið, og er ég ekki
einn um þá skoðun.
Þröstur þótti líka skara fram úr
á íþróttasviðinu og ég man eftir
orðum Olafs Unnsteinssonar fyrr-
verandi landsliðsþjálfara í fijálsum
íþróttum þar sem hann lýsti hæfi-
leikum Þrastar á sams konar hátt
og ég skákhæfileikum hans.
Snemma á æviskeiði Þrastar
kom í ljós að hann var haldinn
erfiðum sjúkdómi sem kannski
framar öllu dró úr því baráttuþreki
og þeirri metnaðargimi sem ein-
kenndu æskuár hans. Það er Þresti
til heiðurs að hann hélt alltaf í þá
von að geta sigrast á sínum krank-
leika þótt oft þyrfti harin að fara
um dimman dal.
Þegar fullorðinsárin tóku við
skildu leiðir okkar að mestu þar
sem ég flutti til Svíþjóðar. Ég hitti
Þröst síðast sumarið 1992 og það
er skrýtið að rifja upp þá samveru-
stund. í þetta síðasta skipti rifjuð-
um við einmitt upp fyrstu kynni
okkar, rétt eins og við ættum ekki
•eftir að hittast aftur á þessari
jörðu.
Ein setning sem kemur upp í
hugann frá æskuárum Þrastar er
„minn tími mun koma“ sem hann
átti til að segja þegar á móti blés.
Ég held í þá von að þessi tími sé
nú kominn og að lokasigurinn sé
unninn. Eitt af uppáhaldslögum
Þrastar var lagið „Wish You Were
Here“ með Pink Floyd og ég vil
kveðja með þeim orðum.
Að lokum votta ég foreldrum
Þrastar, Rósu og Inga, vinum og
vandamönnum mína dýpstu samúð
og megi Drottinn þerra tárin.
„Komið til mín allir þér sem
erfiði og þunga eru hlaðnir og ég
mun veita yður hvíld.“
Þorsteinn Þorsteinsson,
Svíþjóð.
RADAUGÍ YSINGAR
Hönnun/umbrot
Aukavinna
Fyrirtæki óskar að ráða starfsmann til að
hanna auglýsingar í Macintosh.
Viðkomandi þarf sjálfur að hafa búnað.
Upplýsingar veitir Nanna í síma 568 9938
milli kl. 10 og 14.
Framkvæmdastjóri
óskast fyrir heiibrigðiseftirlit
Austuriandssvæðis
Starfið felur í sér, auk framkvæmdastjórnar
fyrir Austurlandskjördæmi, heilbrigðiseftirlit
á starfssvæði heilbrigðisnefnda Neskaup-
staðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fljóts-
dalshéraðs og Borgarfjarðar eystri.
Menntunarkröfur: Umsækjandi þarf að hafa
réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi
hér á landi.
Starfið er laust frá 1. september nk.
Gert er ráð fyrir aðstöðu og búsetu á
Reyðarfirði
Umsóknir berist til sveitarstjóra Reyðarfjarð-
ar, Búðareyri 7, 730 Reyðarfirði, í síðasta
lagi 10. júlí 1995.
Upplýsingar veita: ísak J. Ólafsson, sveitar-
stjóri Reyðarfjarðar, í síma 474-1245, Helga
Hreinsdóttir, settur framkvstj., í síma 414-1235
og Stefán Þórarinsson, héraðslæknir á Egils-
stöðum, í síma 471-1400.
TILKYNNINGAR
©
POLLINN HF., ísafirði.
Rafeindavirkjar
Viljum ráða rafeindavirkja á radíóverkstæði
okkar. Starfssvið er almennar viðgerðir og
þjónusta við siglingatæki. Sveinspróf er áskil-
ið og óskað er upplýsinga um nám og fyrri
störf.
í boði er góð starfsaðstaða og frír flutningur
búslóðar.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 456 3092.
Póllinn hf.,
ísafirði.
Viðskiptasérleyfi
(Franchising)
Pizza '67 hefur tryggt sér húsnæði í Kópa-
vogskjarnanum í Engihjalla 8, Kópavogi,
undir veitingarekstur. Húsnæðið er bjart og
opið og hentar sérstaklega vel fyrir veitinga-
rekstur.
Pizza '67 óskar eftir traustum aðila til að
koma upp veitingaaðstöðunni með viðskipta-
sérleyfi frá Pizza ’67. Frábær markaðsstað-
setning með framtíð.
Upplýsingar hjá Kaupmiðlun hf., Austur-
stræti 17, 6. hæð, sími 562-1700.
Kópa V0£SKJARI\III\IN
Varalumr og þ j í n U s l u ffl I ð 113 f
EMGIHJALLA 8
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Framboð til formanns
og varaformanns
í samræmi við 16. grein flokkslaga og reglur
miðstjórnar Alþýðubandalagsins auglýsir
yfirkjörstjórn eftir framboðum til kjörs for-
manns og varaformanns í allsherjaratkvæða-
greiðslu meðal félagsmanna Alþýðubanda-
lagsins sem efnt verður til í október 1995.
Kjörgengir til formanns og varaformanns eru
þeir einir sem teljast félagar þegar framboðs-
fresti lýkur.
Framboði skulu fylgja meðmæli að minnsta
kosti 80 og ekki fleiri en 100 flokksmanna
úr minnst þremur kjördæmum landsins.
Meðmæli með fleirum en einum frambjóð-
enda teljast ekki gild.
Frestur til þess að bjóða sig fram rennur út
27. júlí nk. Framboð skulu send formanni
framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins,
Laugavegi 3, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita formaður yfirkjör-
stjórnar, sími 554 5448, og framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins, sími 551 7500.
Yfirkjörstjórn.
Frá jógastöðinni
Heimsljósi,
Ármúla15
Vöftvabólga, vöftvaverkir, höfuð-
verkur, bakverkur og síþreyta
eru algengir kvillar sem hrjá okk-
ur í nútíma þjóðfélagi.
Kripalujóga hefur gefið góða raun
og hentar flestum, óháft aldri og
lífsskoðunum. Tveggja vikna vel-
hðunarnámskeið hefst fimmtu-
daginn 13. júlí. Leiðbeinandi
Helga Mogensen. Þriggja vikna
byrjendanámskeið hefst mánu-
daginn 10. júlí. Leiðbeinandi
Jenný Guömundsdóttir.
Upplýsingar og skráning í síma
588 9181 og eínníg í símsvara.
FÉLAGSLÍF
Aðalstöðvar KFUM
og KFUK, Holtavegi 28.
Lofgjörðar- og bænasamvera í
húsi félaganna við Holtaveg
í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufell
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hallveigarstíg 1 •sími 614330
Kvöldferð fimmtud 29. júní
Kl. 20.00 Gengin gömul þjóöleið
frá Fjalli að Ölfusá, ferjað yfir við
Laugdælir og gengiö niður með
ánni. Félagar, munið afmælistil-
boðið.
Dagsferð sunnud. 2. júlí
Kl. 10.30 Kvígindisfell.
Brottför frá BSI, bensínsölu,
miðar við rútu. Einnig uppl. í
Textavarpi bls. 616.
Helgarferð 31. júní - 1. júlí
Básar í Þórsmörk
Ath. að tjaldsvæði í Básum eru
fullbókuð og lokuð nema gegn
framvísun staðfestingar á pönt-
unum. Vinsamlegast hafið sam-
band við skrifstofu og sækið
staðfestingar.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MftRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir
Fjölskylduhelgi á álfaslóð-
um í Þórsmörk 30/6 - 2/7
Brottför kl. 20.00. Fjölbreytt
dagskrá fyrir unga sem aldna,
fjölskyldugöngur, ratleikur (leitin
að álfasilfrinu). Mjög ódýr ferð.
Gist i skála og tjöldum. Takmark-
að pláss.
Tjaldsvæði
í Langadal - Þórsmörk
Ath. áð öll gistipláss á tjald-
svæði Feröafélagsins í Langadal
næstu helgi (30/6 - 2/7) eru frá-
tekin vegna fjölskylduhelgarinn-
ar. Tjaldpláss eru eingöngu fyrir
þá, er hafa staðfestingu frá skrif-
stofunni.
Landmannalaugar -
Hrafntinnusker 1 .-2. júli
Brottför kl. 8.00. Gengið í nýja
skálann í Hrafntinnuskeri og gist
þar. M.a. skoðaöir íshellarnir.
Pantið tímanlega.
Ferðafélag fslands.