Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 56
Afl þfegar þorf krfefur!
RISC System / 6000
CQ> NÝHERJ
HEWLETT*
PACKARD
l^pVfectra
OPIN KERFI HF
Síml: 567 1000
MOHGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<g>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 29. JUNI1995
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Fleiri skip hefja
loðnuleit en áður
LOÐNUVEIÐAR eru heimilar frá
og með næstkomandi sunnudegi,
1. júlí, og er ráðgert, að ijöldi
skipa leiti loðnu. Emil Thorarens-
en, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss
Eskifjarðar, segir að þrjú skip
Hraðfrystistöðvarinnar, Jón
Kjartansson, Hólmaborg og Guð-
rún Þorkelsdóttir, haldi strax í
loðnuleit og kveðst hann vita að
fleiri skip hefji loðnuleit um mán-
aðamótin en undanfarin ár.
Emil sagði að það væri af hinu
góða ef fleiri skip halda til leitar
því þá verði leitin skipulegri á
stóru hafsvæði norður af Langa-
nesi. Skipin séu nú almennt til-
búnari til loðnuveiða en áður
vegna síldveiðanna sem nú er
nýlokið.
Hólmaborgin í
heimsmetabók Guiness?
í fyrra voru loðnuskipin farin
að landa eina viku af júlí og enn
fyrr árið 1993. 5. júlí í fyrra land-
aði t.a.m. Hólmaborgin loðnu.
Hólmaborgin varð aflahæst á síð-
ustu loðnuvertíð, frá 1. júlí 1993
til mars 1994 með yfir 50.184
tonn. Margir hafa trú á því að
þetta sé heimsmet hvað veiðar á
loðnu varðar. Emil hefur reynt að
koma því inn sem heimsmeti í
Heimsmetabók Guiness og átti
hann von á staðfestingu á því inn-
an tíðar.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út bráðabirgðakvóta til nóv-
embermánaðar næsta haust og er
hann 800 þús. tonn. Bráðabirgða-
kvótinn er ákveðinn sem 67% af
því magni, sem fiskifræðingar
telja að- verði endanlegur kvóti
vertíðarinnar og samkvæmt því
má ætla að hann verði 1.200 þús.
tonn.
78% af endanlegum kvóta koma
í hlut íslands en 22% skiptast jafnt
milli Noregs og Grænlands. Hins
vegar er Noregi og Grænlandi
úthlutað nokkru stærri hlut úr
bráðabirgðakvótanum eða 16,5%
hvoru landi og koma því 67% -í
hlut íslands úr bráðabirgðakvót-
anum. Hlutur íslands verður síðan
Ieiðréttur við útgáfu endanlega
kvótans í nóvember. Bráðabirgð-
akvóti íslensku skipanna verður
því 536 þúsund tonn.
Fjármálaráðherra
stefnt fyrir mismunun
MÁL hefur verið höfðað á hendur
fjármálaráðherra vegna skatt-
lagningar á lífeyrisiðgjöld ein-
yrkja. Um er að ræða þann hluta
lífeyrisiðgjalds sem hjá almennum
launþega telst vera hluti atvinnu-
rekanda. Einyrkjum hefur verið
synjað um leyfi til að draga þenn-
an hluta frá sem rekstrargjöld líkt
og tíðkast hjá fyrirtækjum, þar
sem einungis sé um persónuleg
útgjöld þeirra að ræða.
Stefnandi er sjálfstætt starf-
Lífeyrissparn-
aður einyrkja
andi verkfræðingur, en hann
höfðaði mál eftir að Yfirskatta-
nefnd hafði staðfest úrskurð Rík-
isskattstjóra vegna frádráttar
hans á þessum hluta lífeyrisið-
gjalds síns.
Að sögn Ragnars Aðalsteins-
sonar hrl, sem fer með málið fyr-
ir hönd stefnanda, snýst þetta um
jafnræði á milli ólíkra rekstrar-
forma fyrir lögunum. Þannig sé
eigendum hlutafélaga heimilt að
draga þessar iðgjaldsgreiðslur af
eigin launum frá sem rekstrar-
kostnað hjá fyrirtækjum sínum,
en þegar komi að einyrkjum sé
þetta óheimilt.
Mál þetta er prófmál og verður
líklega tekið fyrir nú í haust.
Mál höfðað /B4
Morgunblaðið/Anna
Sól og þoka
VEÐURBLÍÐUNNI hefur verið
misskipt á landinu síðustu daga.
Þoka og votviðri hafa hrjáð íbúa
suðvesturhornsins en á meðan
hafa Austfirðingar sleikt sólskin-
ið, eins og þessir ungu Egils-
staðabúar sem léku sér í körfu-
bolta í gær. Hitinn fór í 21 stig
á Kirkjubæjarklaustri í gær en
var 9-13 stig í höfuðborginni.
gær
oteinanai er sjanstæu suari- sonar nri, sem ier meo mauo iyr- ■ Mai noioao/m var 9—l.i stig í horuOborg
Vinnuveitendur höfnuðu nýju tilboði yfirmanna á kaupskipum á sáttafundi í
Samningaviðræðurnar
stóðu mjög tæpt í nótt
SAMNINGANEFND yfirmanna í
Farmanna- og fiskimannasamband-
inu óskaði eftir viðræðum með
vinnuveitendum í gær og hófst
sáttafundur hjá ríkissáttasemjara .
kl 17. Þar lögðu yfirmenn fram .
nýtt tilboð sem, að sögn Benedikts
Þ. Valssonar framkvæmdastjóra
FFSÍ, fól í sér nokkrar breytingar
frá fyrri kröfum yfirmanna, til að
koma til móts við kröfur viðsemj-
endanna. Samninganefnd vinnu-
veitenda hafnaði tilboðinu og taldi
það fela í sér litla breytingu frá
fyrri kröfum yfirmanna. Skv. upp-
lýsingum Morgunblaðsins stóðu við-
ræður mjög tæpt í nótt og ríkti
óvissa um hvort þeim yrði haldið
áfram þegar Morgunblaðið fékk síð-
ast fréttir.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að
viðræðumar hefðu gengið mjög
treglega í gær.
Vinnuveitendur höfðu lýst sig
Morgunblaðið/Sigurgeir
Loftbrú milli íands og Eyja
ÁNÆGÐIR flugfarþegar við komuna til Vestmannaeyja í gær.
Flugfélag Vestmannaeyja myndaði Ioftbrú á milli lands og Eyja
í gærdag og flutti alls um 100 farþega í nokkrum ferðum með
fjórum flugvélum. Flugleiðir og íslandsflug gerðu tilraunir til
að fljúga til Vestmannaeyja í gærdag en vélarnar urðu frá að
hverfa vegna þoku. K1 20. í gærkyöldi tókst íslandsflugi að fara
eina ferð til Vestmannaeyja en flugi Flugleiða til Eyja var aflýst.
reiðubúna að samþykkja svipaðar
launakostnaðarhækkanir og samið
var um í ÍSAL-deilunni eða um 11%
Yfirmenn kröfðust í upphafi 17%
hækkunar og vildu ekki fallast á
minni kauphækkanir en Sjómanna-
félag Reykjavíkur samdi um fyrir
undirmenn, en lækkuðu svo kröfur
sínar, sem metnar eru 12 'h% til
14%, skv. heimildum blaðsins
Herjólfur og Laxfoss með
undanþágur frá verkfalli
I gær veitti samninga- og verk-
fallsnefnd farmannafélaganna Her-
jólfí takmarkaða undanþágu til að
fara tvær ferðir milli lands og Eyja
fram á sunnudagskvöld. Hefur út-
gerð Heijólfs ákveðið að fyrri ferð-
in verði farin í dag og sú síðari á
morgun. Einnig veittu yfirmenn
Eimskipafélaginu undanþágu frá
verkfallinu fyrir eitt skip.
■ Herjólfur /4
Kjalveg-
ur orð-
innfær
KJALVEGUR verður opnað-
ur í dag. „Vegurinn um Kjöl
hefur yfirleitt verið opnaður
um þetta leyti og ástand
hans er betra en við áttum
von á,“ sagði Gunnar Ólsen,
rekstrarstjóri Vegagerðar-
innar á Suðurlandi.
Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni eru fjall-
vegir nú að opnast hver af
öðrum. Orðið er fært í Laka,
Eldgjá á Skaptatungu, Land-
mannalaugar að vestanverðu
og Kverkfjöll. Þá eru Uxa-
hryggir orðnir færir og gert
er ráð fyrir að fært verði um
Kaldadal og í Öskju í lok
vikunnar.
Fjölmargir
að flýta sér
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
kært og áminnt fjölda ökumanna
síðustu daga fyrir að aka of hratt
á götum borgarinnar.
Frá þriðjudagsmorgni til mið-
vikudagsmorguns voru 56 öku-
menn kærðir fyrir of hraðan akst-
ur og 89 áminntir.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns verður hraðakstri
áfram gefinn sérstakur gaumur
næstu daga þannig að það borgar
sig væntanlega að flýta sér hægt.