Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Einar Svansson, framkvæmdastj óri Fiskiðjunnar Skagfirðings Versta staða bol- fiskvinnslunnar í 15 ár EINAR Svansson framkvæmda- stjóri Fiskiðjunnar Skagfírðings á Sauðárkróki segir að vegna gengis- falls bandarikjadals og sterlings- punds sé staða hefðbundinnar bol- fiskvinnslu nú verri en nokkru sinni undanfarin 15 ár, eða þann tíma sem hann hefur reiknað út framlegð í vinnslunni. „í þessi 15 ár hefur það aldrei gerst að dollar og pund hafí sigið svona áberandi mikið á sama tíma, yfirleitt hafa þau vegið hvort annað upp,“ segir Einar og kveðst telja að grundvöllur fyrir bolfiskvinnslu í landi sé brostinn eins og staðan er í dag. Hann sagði ljóst að hefðbund- in bolfiskvinnsla væri nú rekin með talsverðu tapi þótt staðan væri væn- legri hjá ýmsum öðrum greinum sjávarútvegs enda væru þýskt mark og jen sterk um þessar mundir. Bandaríkjadalur er nú skráður á um 8% lægra gengi en um áramót og gengi pundsins er um 6% lægra en í upphafí ársins. Einar sagði að í ákveðnum greinum væri nánast eingöngu byggt á viðskiptum í sterl- ingspundi og dollar og ætti það eink- um við um hefðbundna bolfisk- vinnslu í landi. Hingað til hefði hækkun annars gjaldmiðilsins jafnan vegið upp hækkun hins og því hefðu fyrirtæk- in getað beint viðskiptum á þann markað sem hagstæðari væri en nú væri gengi beggja gjaldmiðlanna í lágmarki og því væru fáar útgöngu- leiðir í augsýn. Við það bættist að mikil samkeppni væri á þessum markaði, bæði vegna mikils fram- boðs á ýsu og tegundum á borð við alaskaufsa. Aðspurður hvort hann teldi tilefni til gengisbreytinga vegna þessa vildi Einar Svansson ekkert um það segja. Engin rök fyrir gengisbreytingu „Þó að þau fyrirtæki í sjávarút- vegi sem hafa mest átt viðskipti við Bandaríkin og Bretland lendi í tíma- bundnum erfiðleikum má ekki gleyma því að gengi annarra gjald- miðla hækkaði til samræmis og hagur þeirra sem hafa gert út á þá markaði hefur vænkast að sama skapi. Þetta er eitthvað sem sjávar- útvegurinn þarf að glíma við og laga sig að en ég held að það sé liðin tíð þó hluti sjávarútvegsins lendi í vandræðum að menn sjái skynsamleg rök fyrir því að mæta slíkum vanda með gengisbreyting- um,“ sagði Þórður Friðjónsson for- stjóri Þjóðhagsstofnunar í samtali við Morgunblaðið. „Það er að mínu mati hlálegt að miða gengisskrán- ingu við afkomu einstakra greina innan sjávarútvegsins." Þórður sagði að þegar litið væri á mikilvægustu mælikvarðana eins og verðbreytingar innanlands og viðskiptajöfnuð væri ekkert uppi á borðinu sem kallaði á gengisbreyt- ingar. „Allar þjóðhagslegar stærðir renna traustum stoðum undir gengi krónunnar eins og það er skráð núna. í fyrsta lagi er verðbólga lítil og minni en víðast annars staðar, og í öðru lagi er afgangur af við- skiptajöfnuði mikill samkvæmt okk- ar áætlunum." Þá væri raungengi krónunnar nú mjög lágt í sögulegu samhengi og 10-12% lægra en að meðaltali síð- asta áratug. 300 ung- lingar á slysa- varnamóti UM ÞRJÚ HUNDRUÐ unglingar tóku þátt í tíunda landsmóti ung- lingadeildar Slysavarnafélags Is- lands, sem haldið var á Reyðar- firði um helgina. Bókleg og verkleg skyndihjálp Að sögn Skúla Hjaltasonar, sem sat í undirbúningsnefnd mótsins, var samheldni einkunnarorð þess, en mótið var í umsjá slysavarna- manna frá Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfírði, Fáskrúðsfirði og Egilsstöðum. Nú eru starfræktar 30 unglingadeildir á landinu með um 650 félögum. Þátttakendum mótsins var skipt niður á sex svæði og tóku allir kerfisbundinn þátt m.a. í skyndi- hjálp, bæði bóklegri og verklegri, björgun með fluglínu, klettasigi, þrautasvæði þar sem ógemingur var að leysa þrautir upp á eigin spýtur og fleira mætti nefna. Skúli segir að landsmót af þessu tagi miði að því að efla áhuga ungs fólks, björgunarfólks framtíðarinn- ar, á útivist og björgunarstörfum. GÓÐ veiði hefur verið á loðnumið- unum suðaustur af Kolbeinsey og lönduðu fjölmörg skip í gær. Grindvíkingur GK kom með fullfermi, 955 tonn, til hafnar á Siglufirði í gærmorgun og var myndin tekin við það tækifæri. Landað hafði verið 3.275 tonn- um á Siglufirði um 10-leytið í gærkvöldi og enn var verið að landa. Af öðrum stöðum má nefna að landað var á Seyðisfirði, Reyðar- firði og Ólafsfirði. Á Raufarhöfn er ekki hægt að Loðnubræðsla komin í fullan gang halda uppi fullum afköstum í SR-mjölsverksmiðjunni vegna mannfæðar. Sex til tíu starfsmenn af tuttugu vantar til að fullmanna verksmiðjuna. Aðkomumenn frá Reyðarfirði og Húsavík aðstoðuðu Raufar- Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson hafnarbúa við að vinna 18.000 tonn af síld á sildarvertíðinni. Nú er hins vegar verið að landa loðnu á Reyðarfirði og engrar aðstoðar því að vænta þaðan. Landað hefur verið 2.500 tonnum af loðnu úr Erninum, Náttfara og Guðmundi VE og er loðnan smá og geymist illa vegna mikillar átu. Því hefur verið farin sú leið að vinna jafnóð- um enda ekki gott að taka mikið á lager í einu. Loðnan sem komin er á land er sögð smá og geymist illa vegna mikillar átu. Ekki kom- ist hjá fræðileg- um deilum BJÖRN Bjamason mennta- málaráðherra telur að ekki verði komist hjá fræðilegum deilum í líkingu við ágreining- inn um aldur Miðhúsasilfursins. „Aðalatriðið er að málefna- lega sé tekið á ágreiningsefnum og þau leidd til lykta með fræði- leg viðhorf í huga,“ sagði Bjöm. Ráðherra kvaðst ekki geta tjáð sig um efnislegar niður- stöður rannsóknarinnar sem alfarið væri í höndum Þjóð- minjasafnsins. Hann vildiekki tjá sig um meintar ásakanir í tengslum við meinta fölsun silfurmuna úr sjóðnum frá Mið- húsum. Mannsbein í humartroll á Selvogs- banka Selfossi. Morgunblaðið MANNSBEIN komu upp með humartrolli vélbátsins Jóns Trausta er hann var að toga á Selvogsbanka um 30 sjómílur suður af Þorlákshöfn á laugar- dag. Um er að ræða mjaðma- grindarbein sem rannsóknar- lögreglan á Selfossi tók í sína vörslu þegar báturinn kom inn til Þorlákshafnar. Eftir að bein- in hafa verið athuguð nánar verður þeim komið í vígða jörð. Ekki er unnt að greina uppruna beinanna en ef til vill verður gerð einhver aldursgreining. O K K \ R NENN _____Pergunblatiib Tíu ár frá stofnunj &£ Okkar manna í Morgunblaðinu í dag er átta síðna blaðauki, sem nefnist Okkar menn. Þar er íjallað um fréttaritara Morg- unblaðsins á landsbyggðinni í tilefni 10 ára afmælis félags þeirra, sem heitir Okkar menn. Ingvar Viktorsson bæjarstjóri og Ellert Borgar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar Nýr meirihluti tek- ur við í Hafnarfirði Morgunblaðið/Árni Sæberg INGVAR Viktorsson, verðandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, kynnir málefnasamninginn fyrir 54 af 63 fulltrúaráðsfulltrúum Alþýðu- flokks, sem samþykktu hann í einu hljóði. NÝR meirihluti Alþýðuflokks og tveggja bæjarfulltrúa sjálfstæðis- manna tekur við á bæjarstjórnar- fundi í Hafnarfirði í dag. Ingvar Viktorsson verður bæjarstjóri og Ellert Borgar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar. Málefnasamningur- inn var einróma samþykktur á full- trúaráðsfundi Aiþýðuflokks í gær- kvöldi. Ekki náðist í sjálfstæðismennina í nýja meirihlutanum, þá Ellert Borgar Þorvaldsson ogJóhann Berg- þórsson, í gærkvöldi, en þeir ræddu væntanlegt meirihlutasamstarf í hópi stuðningsmanna sinna. Haft var eftir Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, í út- varpsfréttum í.gærkvöldi að Sjálf- stæðisflokkurinn myndi vera í and- stöðu við nýjan meirihluta í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar Ingvar Viktorsson lýsti í samtali við Morgunblaðið yfir ánægju sinni með fundinn og sagði að allir máls- hefjendur hefðu verið á einu máli um að besti kosturinn í stöðunni hefði verið valinn. Hann sagði að málefnasamningnum væri skipt í þijá hluta, fjármál, atvinnumál og velferðarmál fjölskyldna og einstakl- inga. Því til viðbótar yrði stefnt að því að bæta ímynd bæjarins. „Að okkar dómi og fjölmargra annarra, innan bæjar og utan, hefur Hafnar- fjörður sett niður vegna þeirra leið- indamála sem í gangi hafa verið og fráfarandi meirihluti lagði aðal- áherslu á og reyndar skilaði ekki neinu nema því að sverta ímynd bæjarins út á við. Hlutverk nýja meirihlutans er að lyfta ásjónu bæj- arins aftur þannig að Hafnarfjörður verði aftur það fyrirmyndar sveitar- félag sem hann var og á að vera í hugum bæjarbúa og landsmanna allra,“ sagði Ingvar. Hann vildi ekki fara náið út í inni- hald málefnasamningsins að svo komnu máli. Hins vegar sagði hann að fljótlega yrði hafist handa við gerð þriggja ára áætlunar í málefn- um bæjarins og unnið yrði eftir henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.