Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 52
Erlendur ís fluttur inn
Kalkúnar
fengust
ekkiúr
tolli
SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur
í dag dreifingu á súkkulaðihjúpuð-
um ís frá Frakklandi en fyrirtækið
hefur keypt inn 4,2 tonn af þessari
vöru og áformar að flytja inn meira
á næstunni. Sending af kalkúnalær-
um, sem Bónus fékk frá Danmörku
fékkst ekki tollafgreidd á þeim for-
sendum að heilbrigðisvottorð skorti.
Innflutningur landbúnaðarvara
varð heimill 1. júlí sl. samkvæmt
ákvæðum GATT-samkomulagsins.
Guðrún Hafsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Kjöríss segir að inn-
flutningur á ís muni skekkja sam-
keppnisstöðu innlendrar framleiðslu
verulega, enda séu margfalt lægri
tollar á fullunnum ís frá útlöndum
en hráefni til ísgerðar að utan. Kjör-
ís sé nauðbeygður til að kaupa hrá-
efni í framleiðslu sína frá Mjólkur-
búi Flóamanna sem sé í nánum
tengslum við helsta samkeppnisað-
ila Kjöríss, Emmessís hf. en hráefn-
isverð erlendis sé aðeins um þriðj-
ungur þess sem tíðkast hér.
Verslunin Bónus á von á send-
ingu af ís frá Danmörku í næstu
viku.
Kjöt ekki tollafgreitt
100 kg. af soðnum kalkúnalær-
um sem Bónus hafði ætlað að flytja
inn í gær fengust ekki tollafgreidd
þar sem heilbrigðisvottorð skorti.
„Þarna er um soðið kjöt að ræða
og því á ekki að vera nein fyrir-
staða á að fá innflutningsleyfí fyrir
kjötinu. Ég er ekki búinn að fá
endanlegar skýringar á þessu frá
þeim sem stöðvuðu tollafgreiðslu,
,yn ég held að þeir vilji í raun ekki
að þetta sé flutt inn,“ segi Jóhann-
es Jónsson kaupmaður í Bónus.
■ Innflutningur/6
Morgunblaðið/Þorkell
Brúargólfið
steypt
BRÚARGÓLFIÐ á Höfðabakkabrúnni yfir Vestur-
landsveg átti að steypa sl. nótt og loka varð Vestur-
landsvegi af þeim sökum fram til kl. 7 í morgun.
Magnús Einarsson tæknifræðingur er umsjónar-
maður með framkvæmdunum og sagði hann að
um 30 manns hefðu tekið þátt í steypuvinnunni
en steyptir voru um 700 rúmmetrar. „Þetta er
mjög stór steypa miðað við aðrar framkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu," sagði hann.
Um 60 manns hafa unnið við gatnamótin og
hafa framkvæmdir gengið samkvæmt áætlun en í
framkvæmdaáætlun, sem gerð var í febrúar á síð-
asta ári, var gert ráð fyrir að steypt yrði aðfara-
nótt 4. júlí. Gert er ráð fyrir að öllum framkvæmd-
um við gatnamótin verði lokið 9. september og
umferð komin á.
Vegagerðin greiðir allan kostnað við fram-
kvæmdina, þar sem um þjóðveg í þéttbýli er að
Morgunblaðið/Golli
ræða en Reykjavíkurborg sér um lagningu göngu-
stíga að mannvirkinu auk þess sem öll lausn á
umferð er unnin í samvinnu við borgina.
Verktakar eru JVJ hf., sem sér um jarðvinnuna,
Alftarós hf., sem sér um brúarsmíðina, og Hlaðbær-
Colas, sem leggur út malbikið. Magnús sagði að
kostnaðaráætlun stæðist ágætlega og er búið að
greiða út 56% af verkáætlun en hún er 374 milljónir.
Skrifstofa
*
forseta Islands
Ekki óskað
eftir segul-
bandsupp-
tökunni
SKRIFSTOFA forseta íslands ætlar
ekki að óska eftir því að fá segul-
bandsupptöku með viðtali blaðakonu
tævanska dagblaðsins United Daily
News við forseta íslands. Sveinn
Björnsson, forsetaritari, segir að
með yfírlýsingu um að rangt sé haft
eftir forsetanum í viðtalinu sé af-
skiptum skrifstofunnar af málinu
lokið.
Tai-chen Won, yfirmaður erlendra
frétta á áðurnefndu dagblaði, segist
bera fullt traust til blaðakonunnar.
Engu að síður hefur verið óskað
eftir því að hún fari yfir segulbands-
upptöku með viðtalinu við forsetann.
■ Forsetinn segir rangt/8
-------♦ ♦ ♦
Brak úr
flugvél í troll
HJÓLABÚNAÐUR, hjólbarði og 6
metra langur biti úr flugvél komu
í troll Sigurbjargar ÓFl þar sem
hún var á grálúðuveiðum á Jökul-
dýpi, tæplega 100 km vestur af
Reykjanesi. Að sögn Friðþjófs Jóns-
sonar, skipstjóra, eru flugvélarhlut-
arnir áreiðanlega úr mjög stórri
flugvél en hjólið er Vh metri á hæð.
Hlutarnir komu í trollið á um 200
faðma dýpi. Sumir þeirra eru að
sögn Friðþjófs töluvert tærðir en
lítið sést á öðrum.
Von er á skipinu í höfn á mánu-
dag eða þriðjudag í næstu viku og
munu menn frá loftferðaeftirlitinu
skoða hlutana þá. Að sögn Jens
Bjarnasonar, framkvæmdastjóra
loftferðaeftirlitsins, er ekkert hægt
að segja um úr hvaða flugvél þeir
eru fyrr en þeir hafa verið skoðaðir.
Ok fyrstur manna hópferðabíl fyrir Sléttanes milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar
Sleipt að aka
í fjöruborðinu
ísafirði. Morgunblaðið.
TORFI R. Andrésson, hópferðabíl-
stjóri, sem hefur með höndum ferð-
ir á milli suðurfjarða Vestfjarða og
ísafjarðar yfir sumartímann, fór í
óvenjulega ökuferð á fimmtudag í
síðustu viku, er hann ók fyrstur
manna hópferðabíl sínum með átta
farþega fyrir Sléttanes sem skilur
að Arnarfjörð og Dýrafjörð. Leið
þessi er mjög erfíð yfirferðar og
varla fyrir nema velútbúna jeppa,
a.m.k. hluti hennar þar sem fara
þarf með fjöruborðinu.
„Ég fór út með Amarfirðinum
norðanverðum, út fyrir Sléttanes
og sem leið lá inn Dýrafjörð að
Þingeyrí. Þessi Ieið hefur verið far-
in áður á sérútbúnum jeppum en
aldrei áður á 20 manna hópferða-
bíl með farþega. Þetta cr erfið leið,
sérstaklega þar sem aka þarf í
fjöruborðinu fyrir utan Stapadal í
Arnarfirði. Þar er 2-300 metra
kafli sem er nánast ófæra. Þar er
stórgrýti, mikill hliðarhalli og þá var
mjög sleipt að aka í þaranum. Við
þurftum að „púkka" undir bílinn og
hafa við ýmsar tilfæringar til að
ná markinu," sagði Torfi í samtali
við blaðið.
Torfi sagðist ekki vita nákvæm-
lega hversu löng leiðin væri í kíló-
metrum en ferð Torfa og félaga
tók fjórar klukkustundir og stærst-
ur hluti hennar var í fjöruborðinu
erfiða.
Merkur áfangi í
samgöngusögunni
„Þetta var eingöngu ævintýra-
þrá. Ég hafði farið þessa leið tvisv-
ar sinnum áður á sérútbúnum jeppa
HÓPFERÐABÍLNUM varð að aka yfir stórgrýti og sleipan þara á leiðinni fyrir Sléttanes. Þetta
var í fyrsta sinn sem hópferðabíl var ekið þessa leið.
og hafði gleymt því hversu slæm
leiðin var, áður en ég hélt af stað
á rútunni. Ég hefði aldrei gert þetta
ef ég hefði munað aðstæður, þó
svo að það geti verið dagamunur
á aðstæðum vegna sjávarfalla. Ég
mun ekki reyna þetta aftur á rútu,
ég held að ég hafi verið heppinn
að sleppa alla leið með óskemmdan
bíl,“ sagði Torfi að lokum.
Kjartan Lárusson forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins, sem var
einn ferðalanganna, segir að ferðin
hafi verið merkur áfangi í sam-
göngusögu Islendinga því þetta var
í fyrsta skipti sem þarna er farið
í rútubíl frá því land byggðist. 1
ferðinni voru auk Kjartans svæðis-
stjórar Flugleiða erlendis auk fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs og
sölustjóra félagsins. Kjartan segir
að þessi hópur fari á hveiju ári á
slóðir sem fáir eða enginn úr hópn-
um hefur farið áður.