Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 27
rkna
námi
FYRSTA umferðin í leiðtoga-
kjöri breska íhaldsflokksins
fer fram í dag. Frambjóð-
endurnir tveir, John Major
og John Redwood, kepptust hvor um
sig í gær við að tryggja sér stuðning
þeirra þingmanna sem ekki hafa gert
upp hug sinn. Báðir ávörpuðu fund
92-hópsins, sem er þrýstihópur hægri-
sinna í flokknum. Major varaði við
því, að ef hann fengi ekki nægan
stuðning myndi það leiða til klofnings
í flokknum, og Verkamannaflokkur-
inn myndi fyrirhafnarlaust geta tekið
við stjórnartaumunum.
Norman Lamont, fyrrum fjármála-
ráðherra og eindreginn stuðningsmað-
ur Redwoods, sagði að ef Major yrði
ekki vikið frá hlyti íhaldsflokkurinn
sömu örlög og kanadíski íhaldsflokk-
urinn, sem þurrkaðist næstum því út
í síðustu þingkosningum og fékk ein-
ungis tvö sæti.
Mikilvægur stuðningur
Morgunblaðið/Þorkell
n á klausturbyggingum i Viðey.
fyrirhugaðra byggingaframkvæmda
þar, en þar hafa rannsóknir staðið
yfir í fimm ár. Loks hefur Árbæjar-
safn fengið leyfi fyrir áframhaldandi
rannsóknum á klausturbyggingum í
Viðey. Vilhjálmur Örn segir að þessum
rannsóknum miði öllum vel áfram. Á
Hofstöðum í Garðabæ eru að koma í
ljós margar minjar en hann segir að
þetta sé flókið minjasvæði frá landn-
ámi og eitthvað síðar. Á Bessastöðum
er enn verið að grafa í átjándu aldar
minjum en líklegt er að komið verði
niður á eldri lög í sumar. í Viðey telja
menn sig örugglega vera að grafa í
klaustrinu.
Ragnheiður Traustadóttir, sem
stýrir rannsókniiini á Hofstöðum í
Garðabæ, segir að í sumar standi til
að finna út hvaða minjar sé að finna
á þessu bæjarstæði en engin skýr
svör hafi fengist í fyrra.
„Við teljum samt að við séum búin
að finna þarna bæjarstæði og álitum
í fyrra að það væri frá 11. öld en það
kemur þó fyrst í ljós þegar við fáum
niðurstöður úr aldursgreiningu á sýni
sem við sendum til Danmerkur. Við
eigum í dálitlum vandræðum þarna
því jarðvegurinn er svo lýr og mikið
fokið í burtu. Sums staðar eru aðeins
50-60 cm niður á landsnámslagið. Það
er hugsanlegt, að þarna hafi verið bær
snemma eftir að byggð hófst, eða á
11. öld,“ sagði Ragnheiður.
Fundist hafa nokkrir munir á staðn-
um, t.a.m. brýni, naglar og dýrabein.
Tvö eldstæði fundust árið 1985 þegar
Guðmundur Ólafsson fornleifafræð-
ingur vann við uppgröft á staðnum
og var grafið niður á annað þeirra.
Ragnheiður sagði að nú væri verið
__________ að koma niður á hitt. Guð-
- mundur taldi að þessi eld-
aiumur stæði væru frá árjnu 900
iddur er Síðastliðinn föstudag
istaðir fundust hundabein í rústun-
í eyði um en Ragnheiður telur að
_______ þau séu frá okkar tíma.
Hún sagði að þó væri hugs-
anlegt að hundurinn yrði aldurs-
greindur til þess að ganga úr skugga
um það.
Ragnheiður kvaðst eiga von á því
að ýmislegt markvert kæmi í ljós í
sumar og þá innan nokkurra vikna.
JJörðin Hofstaðir var eign Viðeyjar-
klausturs árið 1395 og var búið þar
á sautjándu öld og var þar landbún-
aður og sjósókn. Einnig var þar mó-
tekja, að sögn Ragnheiðar, og urðu
ábúendur að borga Bessastöðum fyrir
landnotin.
NORMA Major að baki eiginmanni sínum, forsætisráðherranum, John Major, þar sem hann heldur
fréttamannafund úti fyrir kosningaskrifstofu sinni.
Flokkur á barmi
taugaáfalls
Fréttaskýrendur reyna að ná áttum í leiðtoga-
kjöri íhaldsflokksins, en fyrsta umferðin fer
fram í dag. En eins og kemur fram í grein
Kristjáns G. Arngrímssonar er ómögulegt
að sjá fyrir hver úrslitin verða, vegna þess hve
reglur um kjörið eru flóknar, og ólíklegt að
allir þingmenn segi satt um hvem þeir styðja.
Reuter
KEPPINAUTUR Majors, John Redwood, stillir sér upp ásamt konu
sinni að loknum fréttamannafundi.
Redwood sagði í viðtali við breska
ríkissjónvarpið BBC, að kjósendur
hefðu snúið baki við íhaldsflokknum,
sem hefur nú verið við völd í 16 ár
samfleytt, og brýna nauðsyn bæri til
að vinna aftur fylgi þeirra. Hann byði
upp á nýjar aðferðir í stjórnmálum,
og þær myndu vinna hug óráðinna
kjósenda og efasemdamanna.
En sumir hægrisinnar í flokknum
hafa látið í það skína að þeim sé
meira í mun að ná völdum innan
flokksins en að sigra í næstu þing-
kosningum. í ljósi þessa hafa þeir
ekki haft miklar áhyggjur af viðhorf-
um_ kjósenda.
Á laugardag lýsti Norrnan Tebbitt,
fyrrverandi ráðherra og náinn sam-
herji Margaretar Thatcher, yfir stuðn-
ingi við Redwood. í grein í blaðinu
The Sun sagði Tebbitt að væri hann
ennþá þingmaður hefði hann greitt
Redwood atkvæði sitt.
The Times sagði að stuðningsyfir-
lýsing Tebbitts við Redwood væri al-
varlegur hnekkir fyrir framboð Maj-
ors.
í grein sem Major ritaði í blaðið
The Daily Telegraph í gær sagði hann
meðal annars: „íhaldsflokkurinn hefur
horft ofan í hyldýpið. Á morgun [í
dag] mun hann eiga tveggja kosta
völ. Hann getur annaðhvort stokkið
út í hyldýpið, eða komið sér að verki
og haldið áfram að vinna að betri tíð
fyrir þjóð okkar og ýtt Verkamanna-
flokknum í sviðsljósið.“
Greinin fylgir í kjölfar þeirra full-
yrðinga stuðningsmanna hans, sem
segja að hann sé eini maðurinn sem
geti komið á eindrægni innan flokks
sem er klofinn í afstöðunni til Evrópu-
mála.
Blaðið segir hins vegar í leiðara að
kominn sé tími til að Major víki úr
sæti og gefi öðrum leiðtoga færi á
að „bjarga [íhaldsmönnum], ekki síst
frá þeirra eigin sundurlyndi."
V antrauststillaga
óhjákvæmileg?
Sumir íhaldsmenn hafa fullyrt, að
verði Major að víkja fyrir hægrimanni
á borð við Redwood eða Michael Port-
illo, eða Evrópusinna á borð við Micha-
el Heseltine, muni klofningurinn innan
flokksins verða svo djúpstæður að
ekki yrði varist vantrauststillögu á
þinginu. í kjölfarið hlyti flokkurinn
að halda til kosninga sem hann myndi
gertapa.
Undir þetta er tekið í leiðara The
Economist. Fullyrt er að Verkamanna-
flokkurinn muni bera fram van-
trauststillögu strax að loknu leiðtoga-
kjörinu. Úlfúðin milli hægri- og vinst-
rimanna innan íhaldsflokksins sé svo
heiftarleg að stjórnin megi búast við
að tillagan verði samþykkt og haldið
verði til kosninga í ágúst eða septem-
ber. Það, segir ennfremur í leiðaran-
um, eru sterkustu rökin fyrir því að
þingmenn flokksins veiti
Major eindrægan stuðning.
Einungis málamiðlanaleið-
togi á borð við hann eigi
möguleika á að forða
flokknum frá kosningum
nógu lengi til þess að aukinn hagvöxt-
ur nái að bæta hag almennings, sem
sé það eina sem geti dregið úr al'ger-
andi forystu Verkamannaflokksins.
Þingmenn á vinstri væng flokksins
lýstu því yfir á sunnudaginn að erfitt
myndi reynast að forðast klofning
undir forystu hægrisinnaðs leiðtoga.
Þingmaðurinn George Walden sagði
að sér myndi reynast erfitt að vera í
flokki undir forystu Redwoods eða
Portillos. Aðrir sögðu að tap Majors
myndi leysa úr læðingi öfl sem erfitt
yrði að hafa .stjórn á.
„Bíðum við...“
Þijú jiundruð tuttugu og níu þing-
menn íhaldslfokksins eiga atkvæðis-
rétt í leiðtogakjörinu. Atkvæðagreiðsl-
an er leynileg og hefst klukkan níu í
dag og lýkur klukkan sext-
án. Fimmtán til tuttugu
mínútum síðar mun Sir
Marcus Fox, formaður
1922-nefndarinnar, sem sér
um innanflokkskosningar,
tilkynna úrslit.
Major þarf að fá að minnsta kosti
165 atkvæði, rétt rúman helming at-
kvæða, og 50 atkvæðum fleiri en
Redwood. Takist Major ekki að sigra
í þessari umferð verður efnttil annarr-
ar næsta þriðjudag. Þá geta 'ný fram-
boð komið fram, en tilkynna þarf um
þau fyrir fimmtudag, og því þyrftu
væntanlegir frambjóðendui' að hafa
hraðar hendur.
Almennt er álitið að fái Major ekki
stuðning nema um 200 þingmanna
eigi hann sér ekki viðreisnar von,
þótt hann hefði þar með formlega
borið sigur úr býtum.
„Ég býst við að ef 100-120 þin-
menn greiða forsætisráðherranum
ekki atkvæði sín muni bæði almenn-
ingur og fjölmiðlar segja sem svo,
bíðum við, þetta er ekki
nóg,“ sagði þingmaðurinn
David Wilshire.
„Ég er enn óráðinn og
næstum því örvæntingar-
fullur. Ég hef verið í pólitík
í 31 ár og aldrei áður lent í þeirri
aðstöðu að vera ekki viss um hvað
mér beri að gera,“ sagði Sir Teddy
Taylor, sem efast um gildi Evrópu-
samstarfs, en er engu að síður hliðholl-
ur Major.
Heseltine reiðubúinn?
Þótt um 200 þingmenn hafi lýst
því yfir að þeir muni styðja forsætis-
ráðherrann stafar honum nokkur
hætta af þeim möguleika að þingmenn
sitji hjá í þeim tilgangi að knýja fram
aðra umferð. Þá gætu Portillo og
Heseltine boðið sig fram.
Portillo hefur sagt opinberlega að
hann styðji Major, en ekki útilokað
þátttöku í annarri umferð. Það er hins-
vegar líklegra að það yrði Heseltine
sem helst hagnaðist á því ef Major
fer frá. Þótt hann hafí ekki látið á
öðru bera en að hann sé hliðhollur
Major segja vinir hans að hann sé
fullur áhuga og til í slaginn ef til
kemur.
Robert M. Worcester, fram-
kvæmdastjóri kannanafyrirtækisins
MORI, sagði í viðtali við International
Herald Tribune í gær að það sem
myndi á endanum ráða úrslitum um
hvernig þingmenn greiddu atkvæði
væri það hvaða leiðtogi geti helst
tryggt þeim endurkjör í næstu kosn-
ingum. Sá maður væri Heseltine.
Þetta er í samræmi við niðurstöður
skoðanakönnunar sem birtar eru í
nýjasta tölublaði The Economist. Þar
kemur fram, að yrði Heseltine leiðtogi
flokksins í kosningum myndi forskot
Verkamannaflokksins verða 19%, en
það yrði 24% ef Major héldi völdum.
Þarna er um að ræða 52 þingsæti,
sem íhaldsmenn myndu halda ef He-
seltine tæki við. Tæki Redwood við
sem leiðtogi myndi flokkurinn missa
64 sætum fleiri en ef Major yrði
áfram.
Lygar og vangaveltur
Fréttaskýrandi The Economist
bendir á, að það sé aðallega tvennt
sem geri að verkum að ómögulegt sé
að sjá fyrir úrslitin í leiðtogakjörinu.
I fyrsta lagi séu upplýsingar vill-
andi. Þingmenn hópist fram fyrir sjón-
varpsmyndavélar og lýsi viðhorfum
sínum, en margir séu að ljúga. „Þær
yfirlýsingar sem eru gefnar núna eru
ekki byggðar á staðreyndum. Þær eru
skilaboð send í því augnamiði að hafa
áhrif á viðhorf," sagði Heseltine í við-
tali við BBC.
í öðru lagi er mikið um
vangaveltur. Þeir sem
fylgja Heseline að málum
vilja að Major fari frá, að
því tilskyldu að það leiði
ekki til sigurs einhvers Evr-
ópuandstæðings -- Redwoods í fyrstu
umferð eða Portillos í annarri. Stuðn-
ingsmenn þeirra tveggja vilja ekki-að
Major tapi ef afleiðingin verður sigur
Heseltines.
Hver einstakur þingmaður hefur
einungis óljósan grun um hvernig
aðrir veija atkvæðum sínum. Því get-
ur hver jog einn búist við að í Ijós
komi að hann hafi með atkvæði sínu
stuðlað að þeirri niðurstöðu sem hann
síst vonaðist eftir.
Heseltine er
sagður til í
slaginn
„Ég er næst-
um örvænt-
ingarfullur"