Morgunblaðið - 04.07.1995, Side 7

Morgunblaðið - 04.07.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 7 I DAG Unnið að fegrun í Öskjuhlíðinni Skulda- gluggi þjóðarinnar SKULDAGLUGGINN var opnað- ur við Kjötbúr Péturs í Austur- stræti í gær. Skuldaglugginn er skjár sem sýnir hversu hratt skuldir ríkis- og sveitarfélaga hækka. Hækkunin er nú rúmlega 400 krónur á sekúndu. Viðstadd- ir opnunina var fjármálaráð- herra og formaður fjárlaga- nefndar en það er Samband ungra sjálfstæðismanna sem stendur að skjánum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Þorkell TRJÁKURL borið í göngustíga í Oskjuhlíð í steikjandi sólskini. Ekki blakti hár á höfði í skjóli trjánna. Kurlað á göngustíga HÓPUR reykvískra ungmenna á aldrinum 16 til 19 ára vinnur að því leggja göngustíga í Öskjuhlíð og nota þau tijákurl til ofaníburðar. Tré og tijágreinar sem til falla eru kurl- uð niður og síðan er kurlið borið á göngustígana. Kurlið er mjúkt og þykir skokkurum þægilegt að hlaupa á því. Kurlið er einnig borið á jörð við áningastaði, þar sem tæki eru fyrir skokkara og annað íþróttafólk til að teygja á vöðvum og bana bumbum sem og þar sem leiktæki eru ætluð börnum. Hringrás lífsins er þannig viðhaldið í Oskjuhlíðinni því ella myndu ttjágreinarnar enda á rusla- haugum. Skógrækt hófst í Öskjuhlíðinni skömmu eftir 1950 og er nú sam- felldur skógur í vestur- og suðurhlíð hpnnar. Helstu tijátegundir eru birki, sitkagreni, bergfura og alaskaösp. Margar tegundir fugla hreiðra um sig í hlíðinni, m.a. skógarþrestir, og bera þeir fræ ýmissa plantna með sér úr görðum Reykvíkinga s.s. rifs og reynivið. Þó Öskjuhlíðin sé hvorki há né stór er hún heiil heimur út af fyrir sig. Fjöldi borgarbúa kemur þar dag hvern og nýtur þess að vera úti í náttúrunni, hlaupandi, gangandi, hjólandi eða á bíl, steinsnar frá erli borgarinnar. Þar finnast bæði almennar sögu- minjar og stríðminjar og er þeirra getið í bókinni Öskjuhlíð, náttúra og saga sem gefin var út árið 1993. Meðal þeirra eru mógrafir, húsatóft- ir bóndabæja frá nítjándu öld og vegarkafli frá síðustu öld. Stríðsminj- ar í Öskjuhlíðinni eru flestar í norð- vestur hlíðinni. Má þar nefna gijót- hleðslur, gryfjur fyrir eldneyt- isgeyma, neyðarstjórnstöð og steypt skotbyrgi en eins og oft er er sjón sögu ríkari. TRJÁGREINAR kurlaðar niður í Öskjuhlíðinni í blíðskapar- veðri. Unga fólkið sleikti sólskinið í fyrsta skipti í sumar en hingað til hefur það þurft að nota regnfatnaðinn óspart. Skullu saman á blindhæð TVEIR bílar rákust saman á blind- hæð í Heiðmörk á laugardags- kvöld. Farþegi í öðrum bílnum slasaðist lítillega. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Hafnarfirði áttu hlut að máli pallbíll og splunkunýr fólksbíll, sem aðeins hafði verið keyrður 500 km. Pallbílnum var ekið yfir á rangan vegarhelming og lentu bílarnir saman á blind- hæðinni. Farþegi í fólksbílnum meiddist á baki en fór sjálfur á slysadeild. Þyrlan sótti slasaðan mann ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sótti slasaðan mann í Kerlingarfjöll skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt sunnudags. Maðurinn mun hafa dottið af vélsleða og slasast á baki. Þyrlan lenti við Borgarspítalann rétt fyrir klukkan hálftvö. Á sunnudag var flak flugvélar- innar TF-VEN, sem fórst í Geita- hlíð við Kieifarvatn á föstudag, sótt með þyrlunni og flutt til Reykjavíkur. Nauðlenti á veginum við Geysi Selfossi. Morgnnblaðið FLUGMANNI lítillar eins hreyfils flugvélar tókst giftusam- lega að nauðlenda á veginum um 5 km frá Geysi í Haukadal. Vélar- bilun hafði orðið í vélinni og við nánari skoðun á jörðu niðri kom í ljós að ventill í vélinni hafði gef- ið sig. Umferð var lítil þegar lend- ingin átti sér stað og því auðveld- ara um vik en ella. Í lendingunni rakst annar vængur vélarinnar á umferðarmerki. Vélin var síðan tekin á bíl og flutt í burtu. Einn farþegi var með flugmann- inum í vélinni og voru þeir á leið á ættarmót í Reykholti. Vélin er frá Keflavíkurflugvelli. Innflutningur frá Norður-Ameríku Innflutningur frá Norður-Ameríku er í öruggum höndum hjá Eimskip. Goðafoss og Skógafoss sigla nú á tveggja vikna fresti milli íslands og fimm hafna í Norður- Ameríku. Innflutningshafnir okkar eru í Boston, New York og Norfolk í Bandaríkjunum, Halifax í Kanada og St. John's á Nýfundnalandi. í rúm áttatíu ár hafa Ameríkuskip Eimskips verið traustur hlekkur í viðskiptum íslands og Vesturheims. Hér eftir sem hingað til höfum við að leiðarljósi víðtæka og j persónulega þjónustu í þína þágu. „Hjá innflutningsdeild og skrifstofu Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir i flutninga- Eimskips í Norfolk og St. John's, býðst þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands- þér fyrsta flokks þjónusta við innflutning flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis. frá Norður-Ameríku." Netfang: mottaka@eimskip.is Garðar porsteinsson, forstöðumaður í Norfolk EIMSKIP Sími 525 7000 • Fax 525 7179

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.