Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Rasisti - eða grínisti? Ég hef áður verið rægð- ur opinberlega, segir Þorsteinn Thoraren- í ævintýraferð með Trillunum 1 hættulegum heimi NÝ OG reynslulítil fréttastúlka, Kolfmna Baldvinsdóttir, hefur ráðist á mig og Pjölva fyrir „rasisma“ og hatur á Aröbum. Tilefnið er grínakt- ug setning á kápunni á galsafeng- inni gamansögu, sem ég gaf út fyrir fimm árum. Framkoma stúlkunnar er allt í senn; lágkúruleg, heimskuleg og dónaleg og standa gamanyrði mín engan veginn undir ásökunum henn- ar. Málsatvik: Fyrir nokkru samdi Stöð 2 við spænskan höfund bókanna Trillumar þrjár (Las tres mellizas) um sjónvarpsþætti eftir þeim. Ég hafði áður þýtt og gefið út sjö Trillubækur. Þær náðu vinsældum og það hefur sjálfsagt ráðið því að Stöð 2 valdi þær til flutnings. Fyrir alllöngu hafði starfsmaður Stöðvar 2 samband við mig, - erind- ið var að biðja mig leyfis að mega notfæra sér þýðingu mína á Trillu- bókunum, - að sníkja af mér ókeyp- is notkun á hugverki mínu, en ég brást við hinn ljúfasti, óskaði þeim alls góðs og þeir þyrftu ekkert að vera hræddir um að ég sendi þeim stóra reikninga, þó ég gerði engan bindandi samning um það. Nú líður og bíður og nálgast birt- ingartíma. Þá kemur höfundur Trillanna, Roser Capdevila, í heim- sókn til Island. Svo veit ég ekki fyrr tii en mér berast boð, föstudaginn 23. júní, þar sem ég var ekki nálægt síma. Boð um að Kolfinna einhver á Stöð 2 vilji áríðandi ná í mig vegna viðtals við spænsku skáldkonuna, þar sem fjallað verði um ákveðin ummæli mín um Araba og ég þurfi að standa fyrir máli mínu, annars verði ég og Fjölvaútgáfan fyrir álitshnekki. Þegar ég komst í síma síðar um daginn fæ ég að vita mér til mestu furðu hvemig í máli þessu liggi. Ég gaf út fyrir fimm árum fjórar „Ævin- týra-Trillur“ þar sem litlu stelpurnar hlaupa inn í ólíklegustu ævintýri fyrir tilverknað nornarinnar Galdra- Grímu og verða þess valdandi að ævintýrun- um er oft snúið alger- lega við og verður úr þvl fullkomið grín. Þess- ar fjórar voru um Nýju fötin keisarans, Rauð- hettu, Prinsessuna á bauninni og Alí Baba og 40 ræningjana. Æv- intýrin era að mínu áliti frábær fyrir taumlaust hugmyndaflug og grín og dró ég víst' ekki úr galsanum í þýðingunni með margvíslegum skáldaleyfum. Þar að auki setti ég saman skringi- legar skýringar á kápum og innan á spjöldum, sem venjan er að séu alveg á ábyrgð útgefanda og veit hver maður sem nokkuð inngrip hefur í bókaútgáfu að slíkir textar era ekki verk höfundar. Innan á spjaldi einnar bókarinnar gaf ég til kynna að sagan af Alí Baba tekin úr Þúsund og einni nótt væri kannski einum of svakaleg, þar sem 40 ræningjar væru kæfðir með sjóðandi olíu, en bætti svo við í sama galsanum og gagntekur allar þessar bækur: „Svona geta þeir verið grimmir og era enn í dag þessir Arabar, en þeir trúa á einn Guð, sem þeir kalla Alla og er Múhameð spá- maður hans.“ Svo mörg vora þau orð og er auðvitað fráleitt að gera nokkurt veður út af þeim. En nú tjáði Kolfinna þessi mér að Roser Capdevila hefði í sjónvarpsvið- tali afneitað að hafa nokkurn tímann skrifað þessi orð og þar með vildi Kolfinna snúa þessari „hræðilegu" sök yfir á mig, hvort ég hefði falsað texta skáldkonunnar og hvort ég væri rasisti og Arabahatari? Mér hreinlega vafðist tunga um tönn? Hvort ég væri rasisti? Eða Arabahatari! Ég gat búist við að næsta spuming yrði: „Er það rétt að þú lemjir konuna þína, - já eða nei?“ Ég þakkaði Kolfinnu fyrir að gefa mér tækifæri til að svara fyrir mig, en bað um smáfrest, þá skyldi ég setja í skyndi saman athugasemd til andsvara og hana sendi ég með faxtæki skömmu síðar og hafði þá gengið úr skugga um að Kolfinna væri viðstödd til að taka við skeytinu. í svari mínu gerði ég lítið úr klausunni um grimmd Araba, sem um var getið, árásin á mig út frá henni væri svo fáránleg og móðursýkiskennd, að hún væri ekki einu sinni svaraverð. Hitt lagði ég áherslu á að hrinda með rökum þeim rógi að ég væri Arabahatari. Ég þurfti ekki annaö en að benda á það að fyrir fáum árum fékk ég séra Rögnvald Finn- bogason og Svein Rúnar lækni, for- gangsmann í félagi Arabavina, til að ferðast til Palestínu að verulegu leyti á kostnað Fjölva til að kynna sér kjör hinna kúguðu Araba. í fram- haldi af því gaf ég út mikið rit séra Rögnvaldar, sem kallaðist „Jerúsal- em - Talandi steinar,“ eina bókin sem komið hefur út á íslensku með heildarapplýsingum um þær hörm- ungar sem Arabar hafa mátt þola. Þeir, séra Rögnvaldur og Sveinn Rúnar, gætu vitnað um það hve mik- ill Araba-hatari ég er, þeir ættu að muna hve logandi af áhuga ég var að láta rödd Araba heyrast. I bók- inni er einnig langur kafli eftir Elías Davíðsson, annáll um þær hörmung- ar sem Arabar hafa orðið að þola. (Bókin var á sínum tíma send Stöð 2 til kynningar en þeir höfðu engan áhuga á að minnast einu orði á hana.) Fyrir nokkru tilkynnti ég um stórátak Fjölva að gefa út landkynn- sen, og fer fram á afsökunarbeiðni frá Kolfinnu Baldvinsdóttur og Stöð 2. ingarbók um ísland á níu tungumál- um, og skýrði frá því að í ráði væri að gefa hana næst út á arabísku. Til undirbúnings því er Fjölvi nú að fá arabískt letur inn á PowerMac sinn, líklega fyrsta arabíska fontinn sem þekkist hér á landi, en sjálfur hefur ég nokkuð grúskað í arabísku. (Tilkynning um þetta var líka send Stöð 2 fyrir nokkra en þar var held- ur enginn áhugi á að lýsa þessu óvenjulega framtaki.) Enn vil ég bæta því við að Fjölvi er nú að vinna að þýðingu og útgáfu á ævisögu Arafats, miklu riti um ævi þessa mikilhæfa leiðtoga og verður hún að líkindum samfara út- gáfu á sjálfsævisögu Nelsons Mand- ela - um tvo mikilsvirta þjóðarleið- toga og frelsishetjur. - Svona er ég nú mikill Arabahatari! Og þá má heldur ekki gleyma því að Fjölvi gaf út 1.240 frumsamda málshætti Svérris Stormskers „að hætti Hús- seins og bomir fram á Arafati!" Þegar Stöð 2 flutti frétt sína, kom mér á óvart, að ekki var minnst einu orði á andsvör mín, loforð var svikið um að gefa mér tækifæri til að veija mig gegn rógi og mannorðsspjöllum, sem er stóralvarlegt mál hjá voldug- um Ijölmiðli. En ekki nóg með það, því að nú kom í ljós að þessi starfskona Stöðv- ar 2 fór Iúalega að með leiðandi spumingum við hinn spánska gisti- vin. Þessi litla klausa um grimmd Arabanna var gerð að aðalatriði fréttarinnar og gengið hart að hinni spænsku konu, hvort hún hefði skrif- að þessi hræðilegu orð og strax ráð- ist á hana og hún spurð hvort hún væri rasisti. Spánska skáldkonan vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið og bar það auðvitað algerlega af sér Þorsteinn Thorarensen að hún hefði skrifað þessi orð sem voru túlkuð svo hræðileg fyrir henni. Þannig vora henni eftir leiðandi að- stæðum hreinlega lögð orð í munn. Þetta vora ekki skoðanir hennar, heldur spyijandans, sem -beitti hana viðræðuþvingun. Spyijandinn var líka svo fáfróður að vita ekki að út- gefendur en ekki höfundar bera ábyrgð á káputexta. Henni brá svo við dónaskap fréttastúlkunnar, sem þóttist hafa ætlað að sýna henni elskusemi og vinsemd en beraði þess í stað varga- tennur - að hún sagðist í fátinu ekki einu sinni hafa vitað að þessar bækur hefðu verið þýddar á ís- lensku! Þó var það allt samnings- bundið við Fjölva og bækurnar prentaðar hjá hennar eigin útgáfu í Barselóna. Og úr því að hún bar þennan „ósóma“ af sér, lýsti Kol- finna því yfir beinum orðum að það væri þá Þorsteinn Thorarensen sem hefði sviksamlega skotið þessari setningu inn, án leyfis höfundar, og væri Þorsteinn og Fjölvaútgáfan sýnilega verstu rasistar. Þetta sýnir fáfræði fréttakonunn- ar glorrandi yfir að hafa tekist að búa til ógurlega æsifrétt. En Stöð 2 ber jafnframt ábyrgð á saknæmu atferli hennar. Ég hef áður verið rægður opinber- lega. Það gerði Björn Th. Björnsson „listfræðingur" dólgslega í opinberu ávarpi á hátíðastund. Hann reið ekki feitum hesti frá því, allt hrakið ofan í hann með ýtarlegum rök- semdum og hann gerði sig að minni manni með því að þora ekki að rök- ræða málið eða biðja mig afsökunar fyrir sannanlegan róg. Það var ekki fyrr en seinna sem einhver sagði mér að hann væri ekki einu sinni listfræðingur þó hann þættist það, heidur bara fúskari eins og ég. Síð- an kalla ég hann „listfræðing innan gæsalappa“ og á ennþá inni afsökun frá honum fyrir rógburð hans. Og rógburður Kolfinnu Baldvins- dóttur mun heldur ekki verða henni til mikils sóma. Ég geri þá kröfu til hennar og Stöðvar 2 að þau biðji mig afsökunar á þessum fáheyrða dónaskap. Höfundur er rithöfundur og bókaútgcfandi. Getur sveitarfélag orðið gjaldþrota? ÁRSREIKNINGUR Kópavogs- bæjar fyrir árið 1994 hefur nú verið lagður fram og verður afgreiddur 27. júní. Þessi reikningur er staðfest- ing á þeirri Ijármálaóreiðu eða kannski ætti frekar að nota orðið fjárfestingarfyllirí, sem meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur rekið í Kópavogi, frá því að hann tók við völdum í júní 1990. Á þessum 5 árum hefur meirihlutanum tekist að koma fjárhag Kópavogs- bæjar gjörsamlega í rúst. En verst af öllu er þó, að núverandi stjórnend- um bæjarins er nákvæmlega sama um þessa fjárhagsstöðu, og segja aðeins að þeir séu að fjárfesta fyrir framtíðina. Lítum á nokkrar stað- reyndir: Rangar áætlanir Þegar aðalskipulag Kópavogs var endurskoðað 1992, spáði hinn póli- tíski meirihluti bæjarstjórnar því, að bæjarbúum myndi fjölga um 800 manns á ári næstu árin. Þessi spá gat aldrei staðist, og á það benti undirritaður margsinnis við umræð- ur í bæjarstjórn. Þessi fjölgunarspá var ekki í neinu samræmi við raun- veraleikann, og eftir á að hyggja sér maður, að raunveruleiki eða hags- munir Kópavogs, voru ekki í huga þeirra er hér stjórna. Hverra hags- muna voru menn að gæta? Á þeim 3 árum sem liðin eru frá endurskoðun aðalskipulagsins, hefur Kópavogsbúum fjölgað um 796, en sú tala nær ekki einu sinni þeirri ársfjölgun sem hinn pólitíski meiri- hluti spáði að myndi verða. Þessi vitlausa spá hefur hins vegar orðið til þess, að hundruðum milljóna króna hefur verið eytt í landakaup og lagn- ingu holræsa og vega, sem ekki munu skila bænum neinu í tekjur næstu árin. Þannig hef- ur þessi útþenslu- og fj árfestingarstefna meirihlutans, sem mið- uð var við 800 manna fjölgun á ári, kostað bæjarbúa ómældar fjár- hæðir í formi fjár- magnskostnaðar á fjár- magni sem skilar eng- um arði fyrr en eftir mörg ár. Á þessu ári er ennþá haldið áfram á sömu braut. Aðrar áætlanir, sem þessi meiri- hluti hefur gert eru í svipuðum dúr. Á hveiju einasta ári, síðan þeir tóku við, hefur verið farið langt fram úr öllum fjárhagsáætlunum og nú er svo komið, að þessi framúrkeyrsla nemur um 3.000 milljónum króna, en það eru tæplega tvöfaldar skatt- tekjur bæjarsjóðs á ári. Rosaleg staða Heildarskuldir Kópavogsbæjai nema nú um 4.070 milljónum króna, en það eru 258% af skatttekjum bæjarins. Þetta þýðir, að hver ein- asti Kópavogsbúi hefur verið skuld- settur fyrir 233 þús. króna. Þegar núverandi meirihluti tók við stjórn bæjarins, í júní 1990, þá voru heild- arskuldirnar.1.336 milljónir, og hafa því þrefaldast á þessum 5 árum. Peningaleg staða ( nettó skuldir) Kópavogsbæjar voru í árslok 1994 um 2,8 milljarðar eða um 178% af skatttekjum bæjar- ins. Þetta nemur 161 þús. króna skuld á hvern bæjarbúa. Á þeim 5 árum sem þessi meirihluti hefur stjórn- að, hafa nettó skuldir bæjarins tæplega fjór- faldast. Fjárþörf bæjarsjóðs eftir greiðslur lána -og fjárfestingar er 1,2 milljarðar króna. Með öðrum orðum sagt, þá vantaði 1,2 milljarða króna til að endar næðu saman á árinu 1994. Vitaskuld var þetta bil brúað með nýjum lánum, en greiðslubyrði lána, nettó, var um 420 milljónir á árinu 1994. Er ein- hver vitglóra í slíkri stjórnun? Skatt- tekjur ársins voru 1.574 milljónir króna. Rekstrarkostnaður hækkar Rekstrarkostnaður bæjarins hefur sjaldan eða aldrei verið hærri en árið 1994. Þá nam hann 81% af skatttekjum, en var 71% árið 1993. Þetta gerist þrátt fyrir þá staðreynd að búið er að setja þjónustugjöld á nánast alla þjónustu sem bærinn veitir, og ekki síður hitt, að nú er búið að taka marga stóra liði út úr rekstri bæjarins, s.s. tannlækningar, sjúkrasamlag o.fl, o.fl. Þetta ásamt því, að fasteignagjöld eru orðin Guðmundur Oddsson Heildarskuldir Kópa- vogs nema 4.000 m. kr., segir Guðmundur Oddsson, eða 258% af skatttekjur. hærri hér í Kóþavogi en í flestum okkar nágrannasveitarfélögum, skýrir kannski þá litlu fólksfjölgun sem hér hefur orðið á valdatíma núverandi meirihluta. Það er nefni- lega ekki nóg að hafa gott bygg- ingarland til að fá fleiri íbúa. Veltufy'árhlutfallið er nú komið niður í 0,67 og hefur aldrei verið lægra í sögu bæjarins. Þegar meiri- hlutinn tók við í júní 1990, var því lýst yfir að þegar veltufjárhlutfallið væri komið niður fyrir 1,0, væri það besta sönnun þess að stjórnendurnir væra með öllu óhæfir til að stjórna. Þetta gildir greinilega ekki lengur, eða hvað? Makalausar yfirlýsingar í Morgunblaðinu 21. júní sl. er talað við Sigurð Geirdal, bæjarstjóra í Kópavogi. Þar reynir hann af veik- um mætti að skýra þessa hörmulegu fjárhagsstöðu bæjarins, en í raun virðist hann ekki hafa nokkrar áhyggjur af stöðunni. Þar segir hann að hin nýju byggingarlönd séu fjár- hagslega þungur baggi, en það muni skila sér. Þó það nú væri, en hvers vegna er haldið áfram á sömu braut, þegar búið er að tryggja næg bygg- ingarsvæði næstu 10 árin? Hveijum er verið að þjóna með þessari stefnu? Orugglega ekki bæjarbúum, því engu er líkara eftir þessu viðtali að dæma, en að bæjarstjóri líta á allt sem snýr að núverandi íbúum bæj- arins sem óþarfa eyðslu. Þannig lítur hann á það sem afgreiðslu „gamalla synda að ljúka við að byggja lista- safn, íþróttahús og sundlaug". Bæj- arstjórinn veit það ekki einu sinni, að ennþá vantar að ljúka byggingu búningsklefa við sundlaugina, en sú bygging mun trúlega kosta 60-100 miiljónir króna og kannski trúir Sig- urður Geirdal því, að hinir væntan- legu bæjarbúar þurfi hvorki íþrótta- hús né sundlaug. Þá telur bæjar- stjóri það afar dapurt hiutskipti fyr- ir bæinn, að þurfa að útvega ungl- ingum bæjarins einhveija vinnu. Sig- urður Geirdal lítur greinilega á nú- verandi Kópavogsbúa sem vand- ræðafólk, hans hugur er augljóslega hjá þeim sem munu flytja í bæinn á næstu árum. Óhæfur framkvæmdastjóri Sá framkvæmdastjóri fyrirtækis sem skilar slíkri afkomu eins og árs- reikningur Kópavogs sýnir er með öllu óhæfur. Bæjarstjórinn er fram- kvæmdastjóri bæjarins, og þótt hann hafi pólitískan meirihluta á bak við sig, ber hann ábyrgðina á því ástandi sem hér er, og því á hann að taka afleiðingum gerða sinna og segja af sér hið bráðasta. Bæjarstjóri sem lítur á væntanlega bæjarbúa sem aðalatriði, en þá sem nú eru búandi í bænum sem aukaat- riði, hlýtur að vera á röngum stað og á röngum tíma. Kannski mun hans tími koma einhvers staðar ein- hvern tíma. Ég lagði eftirfarandi spurningu fyrir hæstaréttarlögmann: Getur sveitarfélag orðið gjaldþrota? Hann hugsaði sig um, og svaraði síðan. „Nei, vegna þess að auður og tekju- stofn hvers sveitarfélags liggur í þeim íbúum sem í sveitarfélaginu búa.“ En hver er þá staðan ef íbúarn- ir flytja burt? spurði ég. Þá vandast nú málið, sagði lögmaðurinn. Er ekki orðið löngu tímabært að meirihluti bæjarstjórnar í Kópavogi geri sér grein fyrir því hveijir eru mikilvæg- astir fyrir bæinn? Höfundur er bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins i Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.