Morgunblaðið - 04.07.1995, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GATT sagt skekkja samkeppnisstöðu ísgerðar
Hráefni ofurtollað en
fullunnin vara ekki
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
TÆKJABÍLL slökkviliðsins í Hafnarfirði fór á slysstað á Reykja-
nesbraut en hreinsa þurfti upp bensín, sem rann yfir veginn.
KJÖRÍS í Hveragerði getur ekki
brugðist við innflutningi á ís, sem
varð heimill frá 1. júlí, með því að
kaupa hráefni erlendis þar sem hrá-
efni til ísgerðar mun bera allt að
514% tolla á þessu ári en fullunninn
ís, umfram lágmarksaðgang, verð-
ur tollaður um 30% auk 110 kr.
álags á hvert kíló. Guðrún Haf-
steinsdóttir framkvæmdastjóri
Kjöríss segir að innflutningur muni
skekkja samkeppnisstöðu fýrirtæk-
isins verulega. Danskir ísframleið-
endur greiði t.d. aðeins um þriðjung
af því hráefnisverði sem Kjörís þurfi
að greiða.
Kjörís hefur að sögn Guðrúnar
þurft að kaupa hráefni sitt af Mjólk-
urbúi Flóamanna sem jafnframt er
nátengt helsta samkeppnisaðila fyr-
irtækisins, MS-ísgerðinni. Hérlend-
is kostar kílóið af undanrennudufti
234 krónur sem er að sögn Guðrún-
ar um þrefalt hærra verð en erlend-
ir ísframleiðendur þurfí að greiða.
Guðrún segir að til að mæta
væntanlegri erlendri samkeppni,
sem sé út af fyrir sig fagnaðar-
efni, hefði fyrirtækið þurft að eiga
kost á að lækka þennan kostnað
SS flytur
inn ís frá
Frakklandi
SLÁTURFÉLAG Suðurlands hef-
ur í dag dreifingu á erlendum ís
sem fyrirtækið hefur flutt til
landsins, en um er að ræða ísfyllt
tilbrigði við súkkulaðistangir frá
Mars, Bounty, Snickers, Twix og
Galaxy. Einn gámur er þegar kom-
inn til landsins með um 4,2 tonn
'af ís framleiddum í Frakklandi en
fleiri gámar eru væntanlegir á
næstunni.
Steinþór Skúlason forstjóri SS
segir að á ísnum sé 30% tollur auk
110 krónu álags á hvem lítra.
Ekki sé til alveg hliðstæð vara
á markaðinum og því torvelt að
segja til um hvort hún sé í beinni
samkeppni við íslenska vöru.
Heildsöluverð verði um 61,50
krónur stykkið og smásöluverð því
væntanlega um 90-120 krónur.
Ekki ögrun við
landbúnaðinn
„Þetta er vara sem gengur mjög
vel erlendis og miðað við að hún
gangi einnig vel hérlendis, verður
hún til frambúðar á ísienskum
markaði,“ segir Steinþór. Hann
segir að mjólkurinnihald íssins sé
svipað og í súkkulaðistöngum frá
sama fyrirtæki, og því telji menn
innflutninginn ekki valda mikilli
röskun hjá íslenskum landbúnaði.
„Við erum ekki að ögra einum
né neinum, og ef við myndum
ekki flytja inn þessa vöru myndi
einhver annar gera það,“ segir
hann.
Nokkrir tugir tonna
Finnur Árnason markaðsstjóri
SS segir að fyrirtækið eigi von á
að á ársgrundvelli nemi eftirspurn-
in nokkrum tugum tonna. Án nú-
verandi tollaálagningar væri
sennilega hægt að bjóða hvert
stykki af ísnum í heildsölu á um
40 krónur. Hann segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um frek-
ari innflutning landbúnaðarvara
en fyrirtækið muni fylgjast með á
markaðinum og bregðast við eftir
þörfum.
með því að flytja inn undanrennu-
duft og t.d. mjólkurduft í sælgætis-
framleiðslu. „Við erum nú þegar
samkeppnishæf við það verð sem
mér skilst að t.d. SS muni bjóða á
sínum innflutta ís, þótt það sé ódýr
ís miðað við gæði, enda þó nokkuð
langt síðan við hófum að aðlaga
verð á smávöru okkar því sem geng-
ur og gerist erlendis. En það verður
aðallega erfiðara að keppa við heim-
ilisísinn sem seldur verður í stór-
mörkuðum."
Nauðbeygt til að kaupa af
samkeppnisaðila
Hráefnið beri hins vegar ofur-
tolla með 527% grunntaxta, sem
ráðgert sé að lækki í áföngum nið-
ur í 448% árið 2000. í ár verði toll-
urinn 514% en 501% á næsta ári.
Fullunninn ís beri hins vegar 30%
toll, auk 110 kr. gjalds á kíló, sem
geti jafngilt um 100% tolli í vissum
tilfellum en fastagjaidið hafi jiverf-
andi áhrif á stykkjavöru. Ákveði
landbúnaðarráðherra að heimila
innflutning á ís samkvæmt ákvæð-
um GATT samningsins um lág-
marksaðgang, sem nemi 2-5% af
VERSLUNINNI Bónus barst í gær-
morgun 100 kíló af kalkúnalærum
frá Danmörku sem heimilt er að
flytja til landsins eftir gildistöku
GATT-samkomulagsins, en kjötið
fékkst ekki tollafgreitt síðdegis sök-
um þess að heilbrigðisvottorð skorti.
„Þama er um soðið kjöt að ræða
og því á ekki að vera nein fyrirstaða
á að fá innflutningsleyfi fyrir kjöt-
inu. Ég er ekki búinn að fá endanleg-
ar skýringar á þessu frá þeim sem
stöðvuðu toliafgreiðslu, en ég held
að þeir vilji í raun ekki að þetta sé
flutt inn,“ segi Jóhannes Jónsson
kaupmaður í Bónus.
Jóhannes segir að hann muni leita
til Hollustuverndar ríkisins í dag í
von um að stofnunin geti gefið kjöt-
inu heilbrigðisvottorð, en jafnframt
muni hann hafa samband við fram-
leiðenda þess í Hollandi til að fá
vottorð þaðan. Lærin megi selja ti!
febrúar á næsta ári, enda hafi hann
í ljósi fyrri reynslu af tilraunum til
kjötinnflutnings kosið að hafa vaðið
fyrir neðan sig.
Jóhannes segir óvíst hvernig lærin
verða verðlögð og það skýrist ekki
innanlandsframleiðslu, beri sá inn-
flutningur toll, sem geti verið allt
niður í 25,3%.
Ljóst sé því að fyrirtækinu verði
áfram nauðugur sá kostur að kaupa
hráefni af innlendum samkeppnis-
aðila á verði sem stefni samkeppnis-
hæfni framleiðslunnar í tvísýnu.
„Innflutningur mun breyta okkar
samkeppnisstöðu," sagði Guðrún
Hafsteinsdóttir. Hún sagði ljóst að
ís yrði fluttur inn og seldur a.m.k.
í stórmörkuðum á höfuðborgar-
svæðinu, ekki síst vegna þess að
margir kaupmenn hefðu hom í síðu
viðskiptahátta Mjólkursamsölunn-
ar. Því vildu þeir flytja ísinn inn,
jafnvel þótt hugsanlegt væri að inn-
fluttur ís yrði dýrari en innlendur
í fyrstu.
Fátt um varnir
ísverðið mundi þó breytast fljótt
ef erlend stórfyrirtæki fengju áhuga
á að markaðssetja sína framleiðslu
hérlendis og yrði fátt um varnir
fyrir innlendu framleiðslu meðan
hún ætti ekki kost á að bregðast
við með kaupum á samkeppnishæfu
hráefnisverði.
fyrr en búið verði að tollafgreiða
þau. „Menn hafa manað mig til að
reyna og sjá hvernig þessi innflutn-
ingur kemur út. Sumir i pólítíkinni
hafa sagt að þetta verði allt í lagi
en aðrir að ofurtollar verði lagðir á
innflutninginn og ég hallast að því
síðarnefnda. Ég þori því ekki að flytja
inn mikið map fyrr en ljóst er orðið
hvernig vörunni reiðir af,“ segir
hann.
Samkvæmt upplýsingum frá land-
búnaðarráðuneytinu fellur kjötmeti
það sem um ræðir sennilega undir
30% toll auk 393 króna álags á hvert
kíló.
Sænskir kjúklingar
væntanlegir
Bónus á von á einu bretti af
sænskum kjúklingum í næstu viku
og segir Jóhannes að þeim fylgi
ábyggilegt heilbrigðisvottorð og því
eigi sá innflutningur að ganga
snurðulaust fyrir sig.
Ytra kosti kílóið af þessari vöru
um 130-160 íslenskar krónur. Á
sama tíma er von á bretti af ís frá
Danmörku.
Harður
árekstur
TVEIR fólksbílar, sem komu úr
gagnstæðri átt, lentu saman á
Reykjanesbraut, skammtvestan
Kúagerðis, á sunnudagsmorgun.
Bílinn, sem ekið var í átt til
Reykjavíkur, var kominn yfir á
öfugan vegarhelming þegar árekst-
urinn varð. Að sögn lögreglu er
talið að ökumaður hans hafi sofn-
að. Fernt var í hinum bílnum og
voru þrír fluttir á slysadeild Borgar-
spítalans. Meiðsl þeirra munu ekki
hafa verið alvarleg.
Báðir bílarnir skemmdust mikið
og voru ijarlægðir með kranabíl.
Heitasti
sumardagur
í borginni
HÖFUÐBORGÁRBÚAR Iétu
ekki segja sér tvisvar að njóta
sólarinnar á heitasta degi sum-
arsins í gær.
Sjálfsagt hefur sala á ís verið
með mesta móti í gær eins og
jafnan á góðviðrisdögum og því
var viðeigandi að erlendur ís
skyldi í fyrsta skipti fluttur inn
til landsins í blíðviðrinu í gær.
Þó hitinn færi í 20,5 stig síð-
degis fór því fjærri að heitast
væri í borginni yfir landið allt.
Víða fór hitinn yfir 20 stig á
Celeius; t.a.m. var 22 stiga hiti
á Eyrarbakka og 21 stigs hiti
á Hellu um kl. 15 í gær.
Ekki er útlit fyrir að sama
blíðskaparveðrið haldist áfram
því spáð er suðaustanátt og
rigningu í Reykjavík síðdegis í
dag. Hiti verður á bilinu 11 til
12 stig.
Miðhúsasilfrið
Kvartað til
umboðs-
manns
Alþingis
ÞÓRARINN Eldjárn rithöfundur
segist vilja láta reyna á það með
kvörtun sinni til umboðsmanns
Alþingis hvort eðlilegt megi teljast.
að embættismenn ríkisins ákveði
sjálfir hvaða skjöl skuli teljast
trúnaðarskjöl og hver ekki.
Beiðni send í nóvember —
neikvætt svar í janúar
Þórarinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hafi fyrst
óskað eftir því við menntamála-
ráðuneytið að fá að sjá skýrslu
þá er Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
fornleifafræðingur á Þjóðminja-
safni samdi um Miðhúsasilfrið og
efasemdir sínar um aldur silfur-
sjóðsins síðastliðið haust. Þórarinn
sendi formlega beiðni í nóvember
á síðasta ári en fékk þau svör frá
ráðuneytinu í janúar sl. að hann
fengi ekki að sjá skýrsluna fyrr
en að lokinni ítarlegri rannsókn á
silfrinu. Þetta þótti Þórarni
óásættanlegt og í febrúar afréð
hann að senda kvörtun til umboðs-
mannsins vegna meðferðar ráðu-
neytisins á beiðni sinni.
Skýrslan einkamál
embættismannsins?
„í svari sínu frá því í lok janúar
fullyrða embættismenn í ráðuneyt-
inu að Vilhjálmur hafi sent þeim
skýrslu sína óumbeðinn og að eng-
inn fyrirvari hafi verið gerður af
þeirra hálfu um trúnað við hann,“
sagði Þórarinn. „Með þeim rökum
fannst mér eins og þeir væru að
segja að skýrslan væri einkamál
Vilhjálms.“
Beðið um rökstuðning
Þórarinn telur það af og frá að
skýrslan geti verið einkamál forn-
leifafræðingsins. „Vilhjálmur er
embættismaður og hann vann að
þessu máli sem slíkur í umboði
þáverandi þjóðminjavarðar sem
tók sitt umboð frá menntamála-
ráðherra. í kvörtun minni bað ég
umboðsmann að segja sitt álit
hvort einstakir embættismenn geti
gefið fyrirmæli um það að hvað
sé trúnaðarmál og ráðið því í sam-
skiptum við ráðuneyti og aðra,“
sagði hann.
Að sögn Þórarins sendi mennta-
málaráðuneytið rökstuðning sinn
í málinu í byijun apríl. Síðar í
mánuðinum hafi umboðsmaður
óskað eftir frekari rökstuðningi
og svör við þeirri fyrirspurn hafi
ekki borist fyrr en í gær. Þórarinn
sagði að komið væri að sér að
gera athugasemdir við seinni
rökstuðning ráðuneytisins en að
því loknu mætti búast við áliti
umboðsmanns.
Innflutningur Bónuss á kalkúnalærum
Fékkst ekki úr tolli
Morgunblaðið/Júlíus