Morgunblaðið - 04.07.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 11
FRÉTTIR
Hræ af hrossi og sel-
um nálægl Garði
Gleymdist
að urða
hræin
HESTSHRÆ og þijú selshræ, sem
fundust í malargryfjum milli Garðs
og Sandgerðis á sunnudag, hafa
verið grafin í jörð.
Gryfjurnar eru um kílómetra frá
þjóðvegi en þangað liggur vegur.
Fólk sem átti leið þarna um kom
auga á hræin og lét vita um þau.
Ætlaði að urða
þegar snjóa leysti
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu í Keflavík kom í ljós að
maður, sem býr ekki langt frá,
hafði ætlað að grafa hræin í vetur
eftir að hafa nýtt af kjöt af skepn-
unum, en komst ekki í gegnum
frost. Hann sagði lögreglu að hann
hefði gleymt að huga að hræunum
þegar snjóa leysti til að grafa þau.
Hann er hins vegar búinn að því
núna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SLÖKKVILIÐIÐ í Hafnarfirði réði niðurlögum eldsins og gekk
slökkvistarf vel.
MIKLAR skemmdir urðu í húsinu, mestar í stofu, þar sem talið
er að eldurinn hafi komið upp út frá sjónvarpi.
Einbýlishús skemmdist
mikið í eldi
MIKLAR skemmdir urðu á ein-
býlishúsi við Holtsbúð í
Garðabæ í eldi, sem þar kvikn-
aði aðfaranótt sunnudags. Hús-
ið var mannlaust þegar eldurinn
kom upp.
Tilkynnt var um eldinn úr
leigubíl skömmu fyrir klukkan
fjögur aðfaranótt sunnudags og
kom slökkviliðið í Hafnarfirði á
staðinn. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglu braust íbúi í ná-
grenninu inn í húsið til að at-
huga hvort einhver væri heima
en erfitt var um vik vegna elds
og hita.
Að sögn Helga ívarssonar
slökkviliðsstjóra var húsið al-
elda þegar slökkviliðið kom á
staðinn og logaði út um stofu-
glugga á suðurenda hússins.
Talið var að húsið væri mann-
laust en að sögn Helga var engu
að síður leitað í því til öryggis.
Helgi segir að vel hafi ráðist
við eldinn en Ijóst sé að tjón sé
gífurlegt. Mestur eldur var í
stofu og talið að kviknað hafi í
út frá sjónvarpstæki. Slökkvi-
starfi var lokið um klukkan
hálfsex en vakt var höfð við
húsið til klukkan að verða níu
á sunnudagsmorgun.
Morgunblaðið/Ingólfur
BILLINN sem lenti á hvolfi er ónýtur og hinn mjög mikið skemmdur. Fólkið, sem í þeim var, slapp
lítið eða ómeitt.
Yfirlýsing vegna sátta
í Langholtskirkju
Ferðaskrifstofan Addís vill hasla
sér völl á Grænlandi
Rætt um samstarf
við Grænlendinga
VEGNA sátta sóknarnefndar og
starfsfólks Langholtkirkju og séra
Flóka Kristinssonar.
Við ofanrituð hörmum mjög þá
neikvæðu umfjöllun sem málefni
Langholtskirkju hafa hlotið og vafa-
samar staðhæfingar um málefni og
einstaklinga.
Það hafa aldrei verið efasemdir um
að sóknarprestur hafi forystu um
helgihlad og innra starf kirkjunnar.
Það hafa allir haft þá skoðun að
kirkjan sé fyrst og fremst hús til
helgihalds og það hafi forgang í
kirkjunni.
Langholtssöfnuður stendur ekki á
barmi gjaldþrots, þvert á móti er
skuldastaða hans betri nú en verið
hefur undanfarin ár. Afborganir af
lánum eru nú 17% af föstum tekjum
safnaðarins. Ekki er ágreiningur um
nein reikningsskil innan safnaðarins.
Sóknarnefnd hefur ávallt leitast
við að fjárhagsstaða safnaðarins
bitni sem minnst á safnaðarstarfi
innan kirkjunnar.
Orgelsjóður Langholtskirkju er
sérstakur sjóður í eigu kirkjunnar
og er í umsjá áhugafólks um kaup
á orgeli í Langholtskirkju. Sjóðurinn
er byggður upp af fijálsum framlög-
um einstaklinga og fyrirtækja innan
og utan safnaðarins. Sjóðurinn verð-
ur ekki notaður til annars en orgel-
kaupa.
Orgelnefnd hefur verið sett það
markmið að fjármagna að fullu org-
elkaupin, en það mun kosta um 42
milljónir króna með virðisaukaskatti.
Launakjör Kórs Langholtskirkju
vegna söngs við guðþjónustur eru
eins og kjör flestra kirkjukóra í
Reykjavík og eru samkvæmt samn-
ingum Kirkjukórasambands Reykja-
víkurprófastdæma við þjóðkirkju-
söfnuði. Sú þóknun rennur þó ekki
í vasa kórfélaga eins og í mörgum
öðrum kórum, heldur í kórsjóð og
stendur undir almennum rekstri
kórsins.
Kór Langholtskirkju hefur ávallt
borið hag Langholtskirkju fyrir
bijósti og lagt henni lið sem frekast
er unnt og haldið tónleika henni til
styrktar.
Að Iokum skal ítrekað að fullar
sættir hafa náðst milli aðila og er
það vilji allra, sem í Langholtskirkju
starfa, að viðhalda góðum starf-
sanda og þeim skilningi að allir séu
að vinna í þágu kristinnar trúar,
hver á sinn hátt, og það móti störfin.
Valt í
framúr-
akstri
ÞRÍR voru fluttir undir læknis-
hendur eftir árekstur tveggja
bíla á Suðurlandsvegi um klukk-
an hálfátta á föstudagskvöld.
Areksturinn varð með þeim
hætti að aka átti fólksbifreið af
gerðinni Chevrolet Monza fram-
úr Mazda-skutbifreið með tjald-
vagn í eftirdragi. Báðum bílun-
um var ekið í austurátt. I þann
mund sem Monzan var að fara
frain úr var Mözdunni beygt til
vinstri inn á afleggjarann að
bænum Seljalandi. Monzan fór
inn í vinstri hlið Mözdunnar og
valt í kjölfarið.
Fjögurra manna fjölskylda var
í Mözdunni en bílstjórinn einn í
Monzunni. Bílstjórarnir báðir og
drengur úr aftursæti Mözdunnar
voru fluttir á heilsugæslustöðina
á Hellu þar sém gert var að
meiðslum þeirra.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Hvolsvelli slapp fólk-
ið ótrúlega vel en bílarnir ekki.
Monzan er ónýt og Mazdan mjög
mikið skemmd.
FERÐAMÁLAYFIRVÖLD á Græn-
landi koma síðar í þessum mánuði
til viðræðna við forsvarsmenn
Ferðaskrifstofunnar Addís, sem
hefur sérhæft sig í fjallaferðum á
jeppum, um samstarf um slíkar
ferðir á Grænlandi. Arngrímur Her-
mannsson hjá Addís segir að til
standi að stofna fyrirtæki um þenn-
an rekstur og síðar verði stefnt að
því að bjóða upp á jeppaferðir yfir
Grænlandsjökul.
Arngrímur fékk þá hugmynd fyr-
ir átta árum að efna til leiðangurs
yfír Grænlandsjökul á jeppum en
hugmyndin hefur fengið dræmar
undirtektir grænlenskra ferðamála-
yfirvalda. Hins vegar ríkir mikill
áhugi á samstarfi við Addís um
ferðaskrifstofurekstur sem sér-
hæfði sig í jeppaferðum.
Leiðangur yfir
Grænlandsjökul síðar
Arngrímur segir að mönnum úr
grænlensku ferðaþjónustunni, sem
eru væntanlegir til landsins, verði
kynnt hvemig Addís standi að
ÍSTAK hf. átti lægsta tilboðið í við-
haldsframkvæmdir á einu húsa rat-
sjárstöðvarinnar á Stokksnesi sem
nýlega var boðið út. Tuttugu og
fjögur íslensk verktakafyrirtæki
sóttust eftir því að bjóða í verkið
sem fjármagnað er af Mannvirkja-
sjóði Atlantshafsbandalagsins. Níu
þeirra uppfylltu öll skilyrði útboðs-
ins.
Fyrsta útboðið
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
nærri 13,5 milljónir. Tilboð Istaks
hf. nam tæpum 8 milljónum króna
og er þannig talsvert undir kostnað-
aráætlun.
jeppaferðum og verði þeim m.a.
boðið í ferð upp á jökul.
„Við ætlum að kynna þeim hug-
mynd að sameiginlegu fyrirtæki þar
sem við myndum kenna þeim það
sem við kunnum og hjálpa þeim til
að byggja upp starfsemi af þessu
tagi,“ segir Arngrímur. Hann
kveðst sjá það fyrir sér að verði
þetta að veruleika verði síðar efnt
til jeppaleiðangra yfir Grænland-
sjökul.
Arngrímur segir að grænlensk
ferðamálayfirvöld fái 50-60 fyrir-
spurnir um leiðangra yfir Græn-
landsjökul á hveiju ári og þeim sé
flestum hafnað nema þeir séu af
vísindalegum toga. „En þeir virðast
vera opnir fyrir allri nýsköpun í
atvinnulífinu. Ég hef lagt fram út-
reikninga og þetta lítur ágætlega
út. Markhópurinn er stór, eða allir
ferðamenn sem vilja halda á vit
ævintýranna.“
Fyrirtækið yrði með 4-6 bíla,
breytta jeppa, t.a.m. Nissan Patrol
og Toyota Landcruiser sem yrði
breytt hérlendis.
Samkvæmt upplýsingum frá ut-
anríkisráðuneytinu er útboðið hið
fyrsta síðan einkaréttur íslenskra
aðalverktaka sf. varðandi bygg-
ingaframkvæmdir á vegum Mann-
virkjasjóðs Atlantshafsbandalags-
ins var afnuminn 1. apríl sl.
Heimildarmenn Morgunblaðsins
staðfestu ummæli utanríkisráð-
herra í viðtali við Morgunblaðið á
sunnudaginn að útboðið og hagstæð
tilboð verði til þess að Mannvirkja-
sjóður auki framkvæmdir hér á
landi. Þeir fullyrtu að búast megi
við að fleiri og stærri verkefni verði
boðin út á næstu tólf mánuðum á
vegum Mannvirkjasjóðsins.
Mannvirkiasjóður NATO
Fleiri og stærri verk
boðin út á næstunni
J