Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995 13
Velheppnað kaupstaðarafmæli á Seyðisfirði
LÍFLEGT var á götum Seyðisfjarðar afmælisdagana. Morgunbiaðið/Pétur Kristjánsson
Veðrið var besta afmælisgjöfin
Seyðisfirði - Hátíðarhöld vegna
100 ára afmælis Seyðisfjarðar-
kaupstaðar heppnuðust vel og var
þeim slitið við hátíðlega athöfn
síðastliðið sunnudagskvöld. Sól-
skin og hiti einkenndu veðurfar
á staðnum og smárigningarskúr
á laugardagsmorgun frískaði upp
loftið og varð til þess að gróður-
inn fékk langþráða vætu. Margir
hafa haft orð á því að veðrið hafi
verið besta afmælisgjöfin.
Gestir og gangandi nutu lífsins,
skoðuðu fjölda sýninga sem í boði
var og fylgdust með dagskránni,
sem að mestu leyti fór fram við
nýja miðbæjartorgið. Þar var
mikil tónlistar- og skemmtidag-
skrá fyrir alla aldurshópa. Mikill
fjöldi manna sótti Seyðisfjörð
heim. Laugardagsböllin í Herðu-
breið og í stóra tjaldinu verða lík-
lega lengi í minnum höfð því ann-
UNGIR og aldnir nutu veður-
blíðunnar afmælisdagana.
ar eins fjöldi hefur ekki sést sam-
an kominn á Seyðisfirði síðan á _
síldarárunum, ef nokkru sinni. Á
sunnudagskvöld og fram á nótt
var opið hús í Herðubreið. Þar
kom fram fjöldi tónlistarmanna í
óskipulagðri dagskrá og skemmtu
sér saman ungir sem aldnir.
Það sem flestir hafa orð á í
umræðunni nú er hversu vel og
friðsamlega allt fór fram og
hversu afslappað og vingjarnlegt
viðmót var ríkjandi manna á með-
al. Umgengni manna um bæinn
var svo góð að menn trúa því
varla. Skemmdir og spjöll áttu
ekki upp á pallborðið hjá þeim
sem bæinn gistu um helgina. Að
sögn lögreglu urðu engin alvarleg
slys né átök. Enginn var tekinn
við ölvunarakstur þrátt fyrir mik-
ið eftirlit með ástandi ökumanna.
Enginn viðmælandi fréttaritara
hafði slæma sögu að segja þessa
helgi. Þvert á móti vildu þeir all-
ir leggja áherslu á gleði sína
vegna þess hversu vel tókst til og
hversu mikilli gleði tókst að miðla
manna á meðal.
Grunnskólinn fær tíu
nýjar skólastofur
Þorlákshöfn - Þegar Grunnskól-
anum í Þorlákshöfn var slitið í vor
voru tíu nýjar skólastofur formlega
teknar í notkun. Þetta er veruleg
aukning á húsrými skóla sem ekki
er með nema liðlega 250 nemend-
ur.
Halldór Sigurðsson skólastjóri
sagði í skólaslitaræðu sinni að á
næsta ári yrði skólinn einsetinn
og allir nemendur gætu hafið nám
að morgni. Einnig fagnaði hann
því að Tónlistarskólinn, sem að
hluta til hefur starfað innan veggja
Grunnskólans, flytur nú alla sína
starfsemi þangað. Smíðakennsla
sem verið hefur í útihúsi fjarri
skólanum er nú komin heim. Hall-
dór sagði einnig að vinnuaðstaða
kennara væri orðin mjög góð.
Bjarni Jónsson oddviti flutti
ræðu við þetta tilefni og þakkaði
hann verktökum sem nær allir
voru heimamenn fyrir frábæra
vinnu og gat þess að einingaverð
í byggingunni væri töluvert lægri
en þau norm sem gefin væru.
Hann óskaði starfsfólki skólans til
hamingju með áfangann sem er
nokkuð sérstök bygging, sexhym-
ingur og allar stofurnar trapisulag-
aðar. Hönnuður var Kjartan
Sveinsson. Að athöfninni lokinni
var öllum boðið upp á veitingar.
50 ára kaupstaðarafmæli Ólafsfjarðarbæjar haldið hátíðlegt
Forsetinn í heimsókn og
fjölbreytt hátíðardagskrá
Morgunblaðið/Sverrir Páll
Olafsfjörður fimmtugur.
í TILEFNI 50 ára afmælis Ólafs-
fjarðarbæjar verða mikil hátíðahöld
dagana 7.-16. júlí og viðhafnarsvip-
ur á bænum. Áð hátíðardagskránni
hefur unnið afmælishátíðarnefnd
undir forystu Sigurðar Björnssonar.
Forseti íslands mun heimsækja Ól-
afsfjörð í tilefni afmælisins laugar-
daginn 8,.júlí. Fjölmargar sýningar,
skemmtanir og íþróttamót verða í
boði í Ólafsfirði í langri afmælisviku,
sem stendur alls 10 daga.
Afmælis Ólafsfjarðar er minnst
meira og minna allt árið þótt meg-
indagskráin verði nú í júlí. í janúar
var hátíðarfundur bæjarstjórnar,
enda hlaut staðurinn kaupstaðar-
réttindi 1. janúar. Um páska var
útivistarhátíð í Tindaöxl í tilefni af-
mælisins og 22. apríl var menningar-
dagskrá í tilefni 30 ára afmælis
Tónskóla Ólafsfjarðar, 100 ára af-
mælis Lestrarfélags Ólafsfjarðar og
101 árs afmælis fræðslustarfs í Ól-
afsfírði. 16. september býður bæjar-
stjórn Ólafsíjarðar til ráðstefnu um
jaðarbyggðir og stöðu þeirra og lok
afmælishátíðarinnar verða 28. októ-
ber þegar haldin verður Afmælisárs-
hátíð Ólafsfirðinga.
Þrjár megináherslur
Að sögn Sigurðar Björnssonar,
formanns afmælisnefndarinnar,
setti hún sér í upphafi þrjú mark-
mið, að koma á fót starfi sem yrði
bæjarfélaginu til heilla, að kynna
bæinn út á við og að skemmta bæj-
arbúum og gestum þeirra. Lögð hef-
ur verið fram tillaga til bæjarstjórn-
ar um gæðastjórnun í bæjarkerfinu,
sem er langtímaverkefni sem leiða
á til bættra vinnubragða og bættrar
þjónustu við bæjarbúa. Kynningar-
og skemmtihluti afmælisdagskrár-
innar fer að meginhluta fram nú á
afmælishátíðinni í júlí, sem stendur
tvær helgar og vikuna þar í milli.
Afmælishátíðin hefst föstudaginn
7. júlí með dagskrá fvrir unglinga í
Ólafsfirði og jafnaldra þeirra frá
nágrannabæjunum. Laugardaginn
8. júlí heimsækir forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, Ólafsfirðinga
og munu bæjarbúar fagna fosetan-
um við Tjarnarborg um hádegisbil.
Forsetinn mun síðar vera við vígslu
húss eldri borgara í Ólafsfirði, skoða
sýningar, sitja kvöldverðarboð bæj-
arstjórnar og vera heiðursgestur á
frumsýningu gamansams sögu-
annáls Ólafsfjarðar, sem Guðmund-
ur Ólafsson leikari og rithöfundur
hefur tekið saman.
í afmælisvikunni verða sýningar
opnar og haldin leikjanámskeið fyrir
börn og unglinga þar sem meðal
annars verða kynntir gamlir leikir.
Fimmtudaginn 13. júlí tekur bæj-
arstjórn á móti boðsgestum, alþing-
ismönnum, fyrrverandi bæjarstjór-
um og gestum frá nágrannasveitar-
félögunum. Þá verður meðal annars
kynning á framleiðslu fyrirtækja í
Ólafsfirði og SH og SIF gangast
fyrir sjávarréttakynningu.
Gamlir Ólafsfirðingar
snúa heim
Brottfluttir Ólafsfirðingar hafa
sýnt gamla bænum sínum rækt og
komið á undanförnum árum heim
til að gróðursetja tré. Þá hafa þeir
haft útigrill fyrir bæjarbúa og þeir
munu gera það nú á afmælisárinu
eins og áður. Þetta verður laugar-
daginn 15. júlí, en kvöldið áður verða
kaffihúsatónleikar í Tjarnarborg þar
sem fram koma ólafsfirskir tónlistar-
menn. Laugardaginn 15. júlí er í
boði mikil og fjölbreytt dagskrá frá
morgni og fram á sólbjarta nótt.
Útimessa verður við Tjarnarborg
sunnudaginn 16. júlí og lýkur þar
með langri afmælisviku.
Að sögn Sigurðar Björnssonar er
vænst mikils fjölda gesta á afmælis-
hátíðina, bæði brottfluttra ólafsfirð-
inga og ekki síður nágranna og ann-
arra vina og velunnara bæjarins.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Skátastarf í
Skorradal
Grund, Skorradal - Uppbygg-
ing Skátafélags Akraness við
skála félagsins Skátafell í landi
Stóru-Drageyrar í Skorradal og
framkvæmdaáform til aldamóta
verða studd með fjárframlögum
Akraneskaupstaðar og gjörn-
ingur, þessu til staðfestingar,
undirritaður fyrstu viku júní-
mánaðar.
Sólarlaust var og nokkuð kalt
en mikil hátíðarstemming þegar
fjöldi skáta og gesta kom saman
að Skátafelli í Skorradal til að
vera við þegar fullskipað Bæjar-
ráð Akraness með bæjarstjóra
sinn Gísla Gíslason í broddi fylk-
ingar ásamt stjórnarmönnum
Skátafélags Akraness undirrit-
uðu samstarsfsamning vegna
uPPbyggingar við Skátafell.
Samkoman var sett í sal
Skátafells þar sem formaður
Skátafélags Akraness, Sigurður
Guðjónsson, bauð gesti vel-
komna og skýrði frá fyrirhuguð-
um framkvæmdum sem voru
m.a. þessar: Endurbætt einangr-
un á skátaskálanum og lokafrá-
gangur hans. Frágangur á tjald-
svæði, leiksvæði og bílastæðum.
Þegar undirritun samningsins
var lokið tók til máls forseti
bæjarstjórnar Akraness, Guð-
bjartur Hannesson. Skýrði hann
frá innihaldi samkomulagsins en
það spannar tímabilið 1995-2000
og á að stuðla að aukinni náttúni
og útilífsnotkun á svæði Skátafé-
lags Akraness í Skorrdal.