Morgunblaðið - 04.07.1995, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
/
/ > /
h
ÆLKERAMATSEÐI L L
4 RITTA VEISLUMALTIÐ
2.500yjl
A LAUGARDOGUM
PARMASKINKA
MEÐ MELÓNU.
EÐA_
SILUNGATERRINE
MEÐ
SAFFRAN VINAIGRETTE.
EGGALDINSÚPA
MEÐ PAPRIKURjOMA.
STEIKTUR LAX
MEÐ HUMRI.
EÐA_
NAUTAH RYGGSTEIK
RIB EYE
MEÐ TÓMATBASIL
OG SKARLOTTULAUK.
<U>r<yJ
SÚKKULAÐI MAROUISE
MEÐ HUNANGSÍS.
BORÐAPANTANIR I SIMA 552 5700
FJÖGUR GOÐ GRAM TILBOÐ
VERULEG VERÐLÆKKUN Á FJÓRUM VINSÆLUM GERÐUM
GRAM KF-263
200 l.kælir +
55 I. frystir.
HxBxD = 146,5 x
55,0 x 60,1 cm.
56.990,- stgr.
GRAM KF-245E
172 I. kælir +
63 I. frystir.
HxBxD = 134,2 x
59,5 x 60,1 cm.
58.990,- stgr.
GRAM KF-355E
275 l.kælir +
63 I. frystir.
HxBxD = 1 74,2 x
59,5 x 60,1 cm.
74.990,- stgr.
Gefðu gæðunum gaum!
GOÐIR SKILMALAR
FRÍ HEIMSENDING
GRAM KF-335E
196 l.kælir +
145 I. frystir.
HxBxD = 174,2 x
59,5 x 60,1 cm.
74.990,- stgr.
Gefðu gæðunum gaum!
/Fomx
TRAUST ÞJONUSTA HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Afslátt á
utanlandsferðir
fyrir öryrkja
ANNA Kristín hringdi til
Velvakanda: „Ég er m.a.
astma- og gigtarsjúklingur
sem hef heilsufarslega
mjög gott af sólríku lofts-
lagi. Eg fór í vetur í hlýja
ferð og var í sex vikur.
Eftir smátíma úti var ég
eins og ný manneskja.
Stöðugir verkir um allan
líkamann hurfu smátt og
smátt í hitanum. Einnig
hættu hóstakjöltumar. En
það er dýrt að ferðast og
ég er ennþá að borga þá
ferð. Mig langar mikið aft-
ur í slíka heilsuferð í vetur
en peningaráðin eru ekki
mikil hjá öryrkja þó allt sé
sparað. Nú datt mér í hug
að spytja hjá flugfélögun-
um hvort um nokkum af-
slátt væri að ræða. Nei,
ekki nema innanlands. Nú
verður heilsan ekkert betri
þó ég skreppi til Akur-
eyrar. Ég var mjög hissa
þegar ég heyrði að eldri
borgarar geti fengið af-
slátt á ýmsum utanlands-
ferðum en ekki við öryrkj-
amir. Það er í fyrsta skipti
sem ég rek mig á slíkan
vegg og það á stað sem
síst skyldi. Nú er ég eigin-
lega viss um að frændur
okkar á hinum Norður-
löndunum geri betur enda
var þeim hálf svarafátt hjá
SAS um slíkt. Öryrkja-
bandalagið upplýsir að
samningar hafi ekki tekist
við flugfélögin um þetta
mál.“
Tapað/fundið
Eyrnalokkar
töpuðust
í DESEMBER sl. tapaðist
eyrnalokkur við Óháða
söfnuðinn. Eyrnalokkurinn
er síður, með allavega lit-
um steinum. Þá tapaðist í
aprílbyijun sl. vandaður
síður eyrnalokkur með
svörtum steini í gylltum
ramma við eyrað og laf-
andi nisti með stærri svört-
um steini í gylltum ramma
líklega á stæðinu við
Laugaveg 105. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 553-8334.
Silfurnisti -
ættargripur
FYRIR u.þ.b. fjórum árum
tapaðist í Reykjavík gam-
alt silfurnisti. Eigandinn
getur ekki gefið upp von
um að nistið rati til hennar
aftur því það hefur sér-
staklega mikið tilfínninga-
gildi fyrir hana. Nistið er
handsmíðað af ættingja,
nokkuð stórt, með áletr-
uninni Guðbjörg öðmmeg-
in og hinumegin er munst-
ur og lítill rauður steinn.
Inni í nistinu er gömul
mynd af manni. Með ein-
lægri von um að glöggt
auga viti hvar nistið liggur
og komi því til eiganda og
hringi í síma 551-1824 eða
561-7299.
Kvenmannsúr
tapaðist
MJÖG vandað og fallegt
gullúr tapaðist aðfaranótt
laugardagsins 24. júní sl.
í miðbæ Reykjavíkur eða á
leiðinni í Mosfellsbæ. Skil-
vís finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband í
síma 566-8799 og er fund-
arlaunum heitið.
Fjallahjól tapaðist
MONGOOSE 21 gíra
ijallahjól úr áli, dökkíjólu-
blátt að lit með þríhyrndri
efri stellstöng og engum
límmiðum, tapaðist frá
Ármúla 40 sl. fimmtudag.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma
553-5103 eða 588-2283.
Gæludýr
Týnd kisa
HVÍT og gráröndótt níu
mánaða gömul læða hvarf
frá Kársnesbraut 101 í
Kópavogi þar sem hún
hafði verið í gæslu í einn
sólarhring. Mögulegt er að
hún hafi leitað á heima-
slóðir í Flúðaseli 87 eða í
Rjúpufell 14. Læðan er
eyrnamerkt R-5136 og
geti einhver gefið upplýs-
ingar um ferðir hennar vin-
samlega hafið samband.í
síma 554-5245.
Týnd kisa
SVÖRT og hvít kisa fór
hvarf 17. júní sl. frá heim-
ili sínu Lundarbrekku 8,
Kópavogi. Hún er ómerkt
og hefur aldrei verið úti.
Geti einhver gefið upplýs-
ingar um ferðir hennar vin-
samlega hafið samband í
síma 564-4396 og er fund-
ariaunum heitið.
LEIÐRETT
Pennavinir
Með morgunkaffinu
Hæstiréttur var það
Umboðsmaður Alþingis var
ranglega nefndur í stuðli
fyrirsagnar um Hæstarétt-
ardóm í skuldabréfamáli,
sem Morgunblaðið sagði
frétt af á bls. 2 í sunnu-
dagsblaðinu. Morgunblaðið
biðst afsökunar á þessum
mistökum.
Útlínurnar
Þá var bæjarlistaverk
Seyðfirðinga rangnefnt í
myndatexta í sunnudags-
blaðinu og kallað útlit, en
það heitir Útlínur og er
gert með lögun Seyðis-
fjarðar að fyrirmynd.
Morgunblaðið biðst afsök- ^
unar á þessum mistökum.
TVÍTUGUR tanzanískur
piltur með áhuga á kvik-
myndum, ferðalögum og
tónlist:
Cristmn Kisanga,
P.O. Box 9769,
CCP Moshi,
Tanzania.
NÍTJÁN ára sænsk stúlka
með áhuga á tónlist, stjórn-
málum o.fl.:
Anna Komheden,
FotbollsvSgen 17,
151 59 Södertiilje,
Sweden.
FJÓRTÁN 'ára japönsk
stúlka með ýms áhugamál:
Mayu Kunikane,
1373 Kotu Nagao,
Toku Yarna City,
Yama Guchi-ken-745-01,
Japan.
- kjarni málsins!
Víkverji skrifar...
ÞAÐ VAR mjög við hæfi að sýna
í sjónvarpinu á sunnudags-
kvöld heimildamynd um stjómmála-
feril Bjama Benediktssonar. Eftir
viku er aldarfjórðungur liðinn frá
sviplegu andláti hans, eiginkonu
hans og dóttursonar þeirra.
í sjónvarpsmynd, sem tekur hálfa
klukkustund að sýna, er að sjálf-
sögðu einungis hægt að stikla á stóru
í stjórnmálaferli þessa merka stjórn-
málamanns. Þar ber hæst framlag
hans til sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn-
ar síðustu árin fyrir jýðveldisstofnun
og forystu þeirra Ólafs Thors um
mótun utanríkisstefnu þjóðarinnar
að heimsstyijöldinni lokinni og á
Viðreisnarámnum og þá ekki sízt á
síðasta kjörtímabili Viðreisnarinnar,
þegar þjóðin gekk í gegnum eina
mestu efnahags- og atvinnukreppu
þessarar aldar.
Þegar siglt var upp úr þeim öldu-
dal var Bjarni Benediktsson orðinn
óumdeildur þjóðarleiðtogi, sem naut
virðingar og trausts jafnt stuðnings-
manna, sem pólitískra andstæðinga
og þjóðarinnar allrar.
Sumar þeirra mynda, sem sýndar
voru vöktu upp sterkar minningar
um tímabil, sem á margan hátt má
telja gullöld Sjálfstæðisflokksins.
ÞEIR SEM fylgjast með erlendum
viðskiptafréttum hafa vafa-
laust veitt athygli samningi á milli
bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins
Microsoft og minna hugbúnaðarfyr-
irtækis vestan hafs, sem nefnist Intu-
it en Microsoft var tilbúið til að borga
gífurlega fjárhæð fyrir þetta tiltölu-
lega litla fyrirtæki. Ai hveiju? Vegna
þess, að Intuit hefur sett á markað
í Bandaríkjunum og Bretlandi og
kannski víðar vinsælasta tölvuforrit-
ið fyrir heimilisbókhald. Keppinaut-
um Microsoft stóð slík ógn af þessum
kaupum, að bandaríska dómsmála-
ráðuneytið kom í veg fyrir þau.
Ástæðan fyrir ótta keppinautanna
var og er sú, að hugbúnaður Intuit
er talinn lykillinn að því að bein-
tengja heimilin við bankakerfið,
þannig að einstaklingar og fjölskyld-
ur geti stundað bankaviðskipti sín
heiman frá sér eins og einstök fyrir-
tæki gera nú. Raunar hefur Micros-
oft sett á markað eigin hugbúnað í
þessum tilgangi, sem hefur hins veg-
ar ekki náð sömu útbreiðslu og tölvu-
forrit Intuit.
Ð ÞESSU er vikið hér vegna
þess, að í Morgunblaðinu í
fyrradag birtist auglýsing frá Bún-
aðarbankanum, þar sem bankinn
skýrir frá því, að hann hafi þróað
slikan hugbúnað fyrir viðskiptavini
sína og tengir hann svonefndri Heim-
ilislínu, sem er sérstök þjónusta við
fjölskyldur og heimili.
Þótt Búnaðarbankinn sé að vísu
ekki fyrsti aðilinn hér á landi, sem
býður slíkan hugbúnað, þar sem
hugbúnaðarfyrirtæki, sem nefnist
Hugkorn hefur í nokkur ár boðið slíkt.
forrit, sem nefnist ýmist Korn eða
Gullkorn, eftir því hversu fullkomið
það er, verður þetta að teljast merki-
legt framtak hjá bankanum.
Hugbúnaður af þessu tagi ryður
sér mjög til rúms í Bandaríkjunum,
er i sumum tilvikum orðinn háþró-
aður og nær til allra þátta í fjármál-
um fjölskyldunnar m.a. til skatta-
mála, tryggingamála o.s.frv.
Með því að setja Heimi á markað,
en svo nefnist forrit Búnaðarbank-
ans, hefur bankinn náð forskoti á
keppinauta sína. Fróðlegt verður að
fylgjast með viðbrögðum viðskipta-
vina bankans og ekki síður hversu
fljótt aðrir bankar og sparisjóðir
bregðast við.