Morgunblaðið - 04.07.1995, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ1995 47
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
ixpörience
tveir fVRlR
tveir fVR'R
Funhéit róm.
„Brando hefur
engu gleymt,
iann 'skemmtir sér
bor öllum öðrum
kvikmyi
mig jafi
MAGÁÍWE
«.»»»"■
Komdu á HEIMSKUR HEIMSKARI strax.
Þetta er einfaldlega fyndnasta mynd ársins.
Það væri heimska að bíða.
Aðalhlutverk: Christopher Lambert og
John Lone.
L
Þriggja hljóma pönk
TÓNLIST
Geisladiskur
UGLUDJÖFULLINN
Ugfludjöfullinn, breiðskifa Niturbasanna.
Niturbasarnir eru Ingþór Sigurðarson
trommuleikari, Óskar Karlsson bassaleik-
íuí, Ástþór Jónsson söngvari og Unnsteinn
Guðjónsson gítarleikarj. 011 lög eru eftir
Unnstein utan tvö sem Ástþór semur, eitt
sem höfundur þess er ókunnur og eitt sem
hljómsveitin semur saman. Aþþol gefur út.
38,27 mín. 1.999 kr.
ÞÓ LANGT sé liðið síðan pönkið
blómstraði lifir það enn góðu lífi víða
um heim og ekki síst hér á landi, þar
sem tvær pönksveitir hafa sent frá sér
geisladiska á árinu. Önnur þeirra er Nit-
urbasarnir sem gáfu út diskinn Ugludjöf-
ullinn.
Niturbasarnir eru upprunnir í Mennta-
skólanum á Egilsstöðum og helltu sér út
í pönkið með öllu sem því fylgdi, þriggja
hljóma lögum, öskruðum textum og daðri
við fasíska frasa og nasistastæla. Pönk-
ið er í eðli sínu einhæf tónlist, en Unn-
steinn Guðjónsson, lagasmiður sveit-
arinnar, hefur næmt eyra fyrir gítar-
hljómum og er lagviss, svo víða tekst
honum að gera meira úr lögunum en
efni standa til. Dæmi um það er lagið
Heilabrot, þar sem hefðbundin pönkklisja
verður að einhveiju meiru með massífum
gítarmillikafla. Bestu lögin á disknum
eru reyndar þegar honum tekst að bijót-
ast út úr pönkinu með kaflaskiptum lög-
um þar sem spennan myndast í laginu
vegna hugmynda-sem takast á. Dæmi
um þetta er titillag plötunnar, sem er
geysigott og í eðli sínu rokklag. í því
lagi koma takmarkanir Ástþórs sem
söngvara reyndar vel í ljós, en hann
kemst víða vel frá sínu á plötunni.
Lagasmíðar eru almennt ekki flóknar,
sum, eins og Ekki, eru ekkert nema sí-
endurteknir gítarfrasar, en það er þeim
síður en svo til lasts, því Unnsteinn er
lipur frasasmiður og hefur skemmtilega
beittan gítarhljóm.
Textarnir eru víða snöggur blettur,
til að mynda er textinn í Island ofar
öllu slakur og líka er textinn í Ein Volk,
ein Reich, ein Fúhrer klúsaður, en lagið
er gott. Ánnað gott lag er Halló van-
gefnu strákar og Niturbasalagið er líka
gott.
Ugludjöfullinn er víst endapunktur á
sögu Niturbasanna, þ.e. sveitin sendi
plötuna frá sér af því tilefni að hún er
hætt, og vissulega er platan prýðilegur
endir á ferli skemmtilegrar pönksveitar.
Árni Matthíasson
etlian liawke
JÓNSMESSUNÓTT
A Richard Linklater Film
2 FYRYR 1
„Lítil perla,
smámynd sem gengur í
flesta staði óvenju vel
upp og hittir mann beint í
hjartastað. (Hawke og
Delpy) eru bæði trúverðug
og heillandi ... Handritið er
af óvenju góðum toga ...
Ekki aldeilis ónýt þeim
sem eru blessunarleaa ást-
fangnir, eða þeim eldri til
upprifjunar þessara
töfratíma þegar eldur
logaði á hverjum fingri".
S.V., Mbl.
***"Persónurnar eru
Ijós-
lifandi og eðlilegar og
umfram aflt trúverðugar,
þökk sé einnig frábærri
túlkun þeirra Ethan
Hawkes og Julie Delpy ... i
heildina er þetta ... nin
besta mynd. G.B., DV.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Eirr sinn
STRÍÐSMENN
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
B.l. 16 ÁRA.
KÚLNAHRÍÐ Á
BROADWAY
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ANNA Arnold, Nína Arnold, Oddný Haraldsdóttir og Erna Oddný Gísladóttir
fengu sér salíbunu á pallbílnum. Karl Jónatansson spilaði á nikkuna.
Fombílasýning í Árbæjarsafni
Síðastliðinn
sunnudag stóð
Fornbílaklúbbur
íslands fyrir eðal-
vagnasýningu á
Árbæjarsafni.
Ýmsir fornbílar
voru sýndir, svo
sem slökkviliðs-
bílar og pallbílar.
Flestir voru þeir
frá árunum 1920-
1960. Samhliða
sýningunni var
boðið upp á kaffi
og lummur í
gamla Árbænum,
ásamt því sem
gullsmiður og
netagerðarmaður
sýndu iðn sína.
Jafnt ungir sem
aldnir skemmtu
sér vel.
ODDNÝ Ingi-
marsdóttir bak-
aði lummur.
ívar Eyjólfsson
og Aron Snær
Sigurðarson
gæddu sér á
þeim.
SNÆBJÖRG Ólafsdóttir sýndi Agli og
Mána Björgvinssonuin hvernig skinn-
skór eru gerðir.
FYRIR framan krambúðina. Sigrún
Birna Björnsdóttir, Sverrir Jan Norð-
fjörð og Sigrún Elfa.