Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ1995 49
Passar
þrjú börn
í sumar
JÓNA Þórðardóttir er 14 ára
stúlka sem býr í Njarðvík
og í sumar virinur hún við
að passa börn. Þegar hún er ekki
að því þá tekur hún til hendinni í
unglingavinnunni.
„Ég er að passa þijú börn og
það er misjafnt hvað það eru
margir klukkutímar á dag. F'or-
eldrar þeirra vinna vaktavinnu svo
ég er ekki alltaf að passa. Ég fór
á barnfóstrunámskeið hjá Rauða
krossinum og lærði heilmikið þar,
fyrstu hjálp og annað sem viðkem-
ur barnapössun. Mér finnst miklu
skemmtilegra að passa börnin en
að vera í unglingavinnunni því það
er ekkert rosalega gaman að vera
að vinna í drullunni. Ég stefni
ekki á það að verða fóstra þótt
það sé gaman að passa. Ég hef
meiri áhuga á öðru.
Ég byijaði að passa börn þegar
ég var svona 8 eða 9 ára gömul
og hef passað mikið síðan. Stund-
um geri ég líka einhver heimilis-
störf eins og að elda og þrífa og
mér finnst það allt í lagi alls stað-
ar nema heima hjá mér.“ Valdi-
mar og Kolbrún sem Jóna er að
passa í sumar eru með henni á
myndinni.
Guðmundur
Þórarinsson
Starfsmaður félagsmiðstöðvarinn-
ar Fjörgynjar í Grafavogi
Hveij'i' eru helstu kostir ungl-
inga?
Þeir eru mjög heilir í því sem
þeir gera, hvort sem það er gott
eða slæmt. Þeir gera allt af til-
finningu. Dæmi sem ég man
eftir um eitthvað jákvætt og
frábæit er að Jónas, sem er 14
ára, er að taka upp mynd eftir
bók Þorgríms Þráinssonar, Tár,
bros og takkaskór á VHS-vél.
Hveijir eru helstu gallar ungl-
inga?
Þeir geta aldrei tekið umræð-
una út fyrir sjálfa sig, þeir þurfa
alltaf vera miðdepill umræðunn-
ar. Ef það snertir þá ekki beint
þá hafa þeir ekki áhuga.
Hvar eru þau og hvað eru þau að gera?
Umbúðalaust
UIMGLINGAR
Unglingurinn í dag
Ákveðinn, rauð-
hærður og flottur
Nafn: Andri Þór Siguijónsson
Aldur: 15 ára
Heima: Hafnarfirði
Skóli: Öldutúnsskóli
Hvernig finnst þér skólinn?
Agætur, tímarnir eru leiðinlegir
en krakkarnir eru skemmtilegir.
Hvað finnst þér um félagslíf
unglinga?
Það mætti vera opið lengur í
félagsmiðstöðvum og við fáum
að vera allt of stutt úti. Það er
gott að hafa félagsmiðstöðvar
og mér finnst ókostur þessi
ESB-vinnulöggjöf fyrir ungl-
inga.
Hveiju hefur þú áhuga á?
Ég hef áhuga á golfi, félagslífi
og bíómyndum.
Hveiju hefur þú ekki áhuga
á?
Ég hef ekki áhuga á að vera í
stelpuklúbbnum og taka til í
herberginu mínu. Ég hef ekki
áhuga á að ganga frá eftir mig
þegar ég er búinn að baka.
Hvað er nauðsynlegt fyrir
ungling að eiga?
Föt... flott föt, peninga og
rúm.
Hverju þurfa unglingar ekki
á að halda?
Sígarettum.
Hvað er mikilvægast í lífinu?
Að lifa.
Hvað er í tísku hjá ungling-
um?
Ekki að reykja og ganga í flott-
um fötum.
Hvað er það hallærislegasta
sem þú veist um?
Að reykja.
Lest þú dagblöð eða fylgist
með fréttum?
Já, ég horfí alltaf á 19:19 og les
alltaf Moggann og DV og Morg-
unpóstinn ef ég kemst í hann.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór?
Flugmaður eða forstöðumaður
Vitans.
Hvaða þijú orð lýsa þér best?
Rauðhærður, áveðinn og flottur.
Finnst þér fullorðnir ósann-
gjarnir gagnvart unglingum?
Já, leyfa okkur ekki að vera eins
lengi úti og við viljum og svo
eru þeir allt of frekir við ungl-
ingana.
Eru unglingar í dag dekurróf-
ur?
Nei, ekki ég allavega.
Hver er munurinn á slökkvi-
tæki og reiðhjóli?
Þú getur notað hvort tveggja.
Slökkvitækið þarftu að nota í
neyð en reiðhjólið getur þú notað
hvenær sem er.
' Eg hef
aIdrei poxað
eða boxað...
En ég hef I
koxað
noídcrum
sinnuni. J
Spilasýki
Stebbi