Morgunblaðið - 06.07.1995, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Forsætisráðherra í Islendingabyggðum í Namibíu
Míklir mög'uleikar eru
hér á mörgum sviðum
LUderitz, Namibíu. Morgunblaðid.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra,
sem staddur er í opinberri heimsókn
í Namibíu, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið hafa trú á að gríðarlega
miklir möguleikar væru í Namibíu
og Namibía væri land sem menn
gætu horft til í framtíðinni, sérstak-
lega varðandi samstarf í sjávarút-
vegsmálum.
„Það eru alveg sérstakir kostir hér
á mörgum sviðum,“ sagði Davíð eft-
ir að hafa átt viðræður við æðstu
ráðamenn landsins. Hann sagði að
Namibíumenn hefðu einnig spurst
óformlega fyrir um hvort íslendingar
gætu tekið þátt í að byggja höfn í
Lúderitz, en það verkefni gæti kostað
um einn milljarð króna. Davíð sagði
þetta þó flóknara verkefni en svo að
hægt væri að átta sig á því í svip-
hendingu. Namibískir ráðamenn
spurðust einnig fyrir um möguleika
á aðstoð íslendinga við uppbyggingu
í heilbrigðisþjónustu, ekki síst há-
tækni. Davíð sagði, að stjómvöld í
Namibíu hefðu hrifist af íslenskum
aðstæðum og þekkingu og m.a.
skipulagt landhelgisgæslu sína að
íslenskri fyrirmynd.
í gær fóru forsætisráðherrahjónin
og fylgdarlið til Lúderitz, þar sem
búa tæplega 60 íslendingar, og skoð-
uðu m.a. sjávarútvegsfyrirtækið Sea-
flower Whitefish Corporation sem er
að 80% í eigu namibíska ríkisins og
20% í eigu Islenskra sjávarafurða.
Magnús Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins sagði að stefnt
væri að því að gera fyrirtækið leið-
andi í sjávarútvegi í landinu en velta
þess á síðasta ári nam jafnvirði 800
milljóna króna.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir forseti tók fyrstu skóflustunguna að nýrri garðyrkjustöð á Sólheimum.
Hátíð á
Sólheimum
í Grímsnesi
GUNNAR Kárason á Sólheimum hefur gert módel af öllum
húsum þar um slóðir og nokkrum kirkjum landsins.
Ný stjórn Bygg'ðastofnunar
Egill formaður og
Stefán varaformaður
FORSÆTISRÁÐ-
HERRA, Davíð Odds-
son, hefur skipað Egil
Jónsson formann og
Stefán Guðmundsson
varaformann stjórnar
Byggðastofnunar úr
hópi þingkjörinna
stjómarmanna.
Kjör stjómar
Byggðastofnunar var
með því síðasta sem
Alþingi gerði fyrir þin-
grof í vor. Aðrir
stjórnarmenn eru al-
þingismennirnir Einar
K. Guðfinnsson, Guðjón
Guðmundsson, Magnús
Bjamason, Kristinn H.
Gunnarsson og Sigbjörn Gunnarsson.
Egill Jónsson segir að fyrsti fund-
ur nýrrar stjórnar verði haldinn í
næstu viku. Hann verði með hefð-
bundnu sniði fyrir utan að nýjum
stjórnarmönnum verði kynnt stofn-
unin og þeir heilsi upp
á starfsfólk hennar.
Egill segir þessa
stjórnarskipun nokkuð
athyglisverða fyrir þær
sakir að nú sé skipaður
nýr formaður og vara-
formaður. Þeir hafi að
vísu átt sæti í stjórninni
áður en aðrir stjórn-
armenn komi nýir inn.
„Þess vegna má gera
ráð fyrir að þessum
breytingar fylgi ein-
hveijar nýjungar í
vinnubrögðum," sagði
Egill.
Hann sagðist vonast
til að á fyrsta fundinum
myndu stjórnarmenn setja fram
skoðanir sínar og fjalla um framtíð-
ina og í framhaldi af því leggja niður
fyrir sér hvemig starfsemin ætti að
ganga fyrir sig út kjörtímabilið.
Egill
Jónsson
Selfossi. Morgunblaðið.
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, tók fyrstu
skóflustunguna að nýbyggingu
við garðyrkjustöðina 01 á Sól-
heimum.
Sólheimar 65 ára
Skóflustunga forsetans var einn
liðurinn í dagskrá í tilefni 65
ára afmælis Sólheima sem fram
fór í gær. Þá var einnig tekin
í notkun við hátíðlega athöfn
ný vinnustaðabygging á Sól-
heimum, Ólasmiðja, sem er 720
fermetra bygging sem fjár-
mögnuð er af Styrktarsjóði Sól-
heima. Um leið og húsið var
vígt var afhjúpaður skjöldur við
anddyri þess.
í Ólasmiðju var efnt til sýningar
á húsagerðarlist Gunnars Kára-
sonar á Sólheimum en hann
hefur af natni gert módel af
öllum húsum á Sólheimum og
auk þess nokkrum af kirkjum
landsins. Hverju húsi fylgir upp-
lýsingaspjald þar sem saga
hússins kemur fram. Einnig var
efnt til sýningar á deiliskipulagi
Sólheima.
Sólheimar hafa notið velvildar
fjölmargra aðila, fyrirtækja og
einstaklinga. Lionsklúbburinn
Ægir er stærsti stuðningsaðili
staðarins sem hefur tekið þátt
í uppbyggingunni og starfinu
frá árinu 1957. Pétur Svein-
bjarnarson, formaður stjórnar
Sólheima, sagði þá harðjaxla
Sólheima er hann þakkaði þeim
framlög til staðarins.
Kostnaður stendur í vegi fyrir því að
hægt sé að stækka Internet-tengingu
Von á línu sem
fjórfaldar
flutningsgetu
Menntamálaráðherra
hefur sagt opinberlega
að stjórnvöld séu sein
að tileinka sér tölvu-
tækni og líkir Internet-
tengingunni út úr land-
inu við fjárgötu. Helga
virðisaukaskatti, og ársfjórðungs-
gjald fyrir 4 kílómetra línu með
64Kb/s flutningsgetu í flokki I
59.959 og 27.502 krónur, flokki II
65.736 og 30.216 og flokki III
65.736 og 113.581 króna. Niður-
röðun lína í flokka veltur á því hvers
eðlis fyrirtækin eru og hver notkun-
in er.
Gústav Arnar yfirvérkfræðingur
P&S segir að hægt sé að láta hvaða
bandbreidd sem er notendum í té,
allt velti á kostnaðinum.
Kristín Einarsdóttir
Internetþjónusta hjá P&S
leitaði álits kunnugra á
gagnrýni Björns
Bjarnasonar.
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra segir í Okkar framtíð, blaði
Sambands ungra sjálfstæðismanna
sem kom út í vikunni, að íslensk
stjórnvöld hafi ekki brugðist við
möguleikum tölvutækninnar sem
skyldi.
„Þetta snýst ekki um stöðu Pósts
og síma eða annarra ríkisfyrir-
tækja, heldur um það að við nýtum
okkur tæknina ... Menn myndu ekki
sætta sig við'það á þessari bílaöld
að Vegagerðin legði eingöngu vegi,
sem hentuðu fyrir kerrur. Mér
finnst oft að sumar þessar brautir,
sem eru okkur ætlaðar sem notum
þessa nýju tækni minni á kerrustíga
eða traðir fyrri alda, ef ekki fjárgöt-
ur,“ segir ráðherrann.
Að sögn Helga Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Internets á Islandi,
hafa 100 fyrirtæki Intemet-teng-
ingu og talið að 8.000 einstaklingar
hafí aðgang að netinu, ýmist gegn-
um vinnustað eða með því að kaupa
aðgang af endursöluaðilum.
Internet á íslandi annast teng-
ingu landsmanna við netsamfélagið
úti í heimi með því að leigja línu
til Stokkhólms af Pósti og síma og
Nordunet. Fyrirtækið gerir síðan
samninga og dreifir upplýsingunum
til endursöluaðila, sem þjónusta ein-
staklinga eða fyrirtæki með ýmsum
hætti gegn gjaldi.
Flutningsgeta línunnar er sem
stendur 256Kb/s (kílóbit á sek-
úndu) en búið er að panta línu sem
flytur IMb/s (eða fjórfalt meira)
og verður að líkindum tekin í notk-
un með haustinu. Ársleiga er rúmar
30 milljónir án virðisaukaskatts og
má búast við gjaldskrárhækkunum
í kjölfarið að sögn Helga.
Ódýrara með háhraðaneti P&S
„Fyrirtækin vilja ekki greiða okk-
ur fyrir mikið meira en þessar fjár-
götur sem menntamálaráðherra
nefnir svo. Þetta er
einfaldlega of dýrt hér
á landi. Einnig mis-
munar Póstur og sími
aðilum hvað varðar
leigulínúr, sem fyrir-
tækin þurfa að kaupa
ef þau ætla að eiga
samskipti við okkur,“ segir hann.
Helgi segir að fyrirtæki sem
tengist gegnum háhraðanet Pósts
100 fyrirtæki með
Internet-tengingu
og 8.000 einstakl-
ingar hafa aðgang
„Við höfum möguleika á 45Mb/s
flutningsgetu í Cantat-III sæ-
strengnum," segir Gústav en al-
geng bandbreidd fyrir netsamfélag
er 2Mb/s að hans sögn. „Ég nefni
sem dæmi EU-net, sem er í teng-
ingu við Nordunet, sem er með
2Mb/s á tveimur línum til Banda-
ríkjanna fyrir alla þá umferð sem
er frá Mið-Evrópu.
Einnig er línan frá Stokkhólmi
til Bandaríkjanna 2Mb/s og verið
að setja upp línu af þeirri stærð frá
Helsinki til Bandaríkjanna sem á
að þjóna bæði Finnlandi og Austur-
Evrópu,“ segir hann.
„Ef farið er upp í 2Mb/s er gjald-
ið á mánuði 2.016.000 og 1.844.000
krónur fyrir lMb/s. Við höfum boð-
ið afslátt ef samið er til tveggja eða
fimm ára.“ Gústav segir allan gang
á því hvað sambærileg þjónusta
kosti erlendis en samkvæmt nýrri
gjaldskrá P&S frá 20. apríl sé gjald-
ið lægra en í mörgum nágranna-
löndum.
Aðspurður segir Gústav það hafa
verið til umræðu hjá P&S að bjóða
viðlíka þjónustu og Internet á Is-
landi veiti. „Þetta er í athugun hjá
gagnaflutningsdeild og við höfum
við verið að leita fyrir okkur hvar
væri best að fá þessa tengingu við
útlönd.“
Hvað línuleigu til fyrirtækja
áhrærir segir Gústav að gjaldskráin
sem í gildi er sé nokkurra ára göm-
ul. „Gjaldskráin var sett með það
fyrir augum að hún myndi aðeins
standa þar til tilskipanir ESB tækju
gildi hér. Nú hefur það gerst og
gjaldskrárnefnd P&S hefur verið
með taxtana í endurskoðun meðal
annars til að búa til kostnaðar-
grundvöll. Það er mjög viðamikil
athugun að finna út nákvæmlega
hvað línur í öllu kerfinu kosta því
þetta er byggt upp á mjög mismun-
andi tíma.“
Gústav segir þá ákvörðun hafa
verið tekna að fella niður flokk I
og III þar til niðurstaða liggur fyr-
ir og að greitt verði fyrir línur sam-
kvæmt flokki II enda megi ekki
gera greinarmun á gjaldinu eftir
notkun. Sú gjaldskrá
bíði samþykktar í
samgönguráðuneyt-
inu.
Gildistaka nefndra
tilskipana var um síð-
ustu áramót og segir
Gústav að menn hafi
kostnaðarathugun yrði
og síma greiði fyrir það samkvæmt
gjaldflokki II í gjaldskrá. „Ef sama
fyrirtæki ætlar að leigja sér línu
hingað til okkar skal greitt fyrir
hana samkvæmt gjaldflokki III,“
segir hann.
Samkvæmt upplýsingum frá
Pósti og síma er stofngjald, með
haldið að
lokið fyrir þann tima.
„Það reyndist ekki mögulegt
þannig að við höfum farið fram
yfir þann frest sem við höfðum.
Þess vegna tókum við þá ákvörðun
að fella niður flokk I og II til þess
að gera mönnnum ekki erfitt fyrir.
Það er okkar millilausn," segir
Gústav en hún tekur bara til nýrra
lína.