Morgunblaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 7
MORQVN.KIjApií) __________________________________________FiIMiyiTUDAGUR fy JÚfoþ 1 »1)5 ? FRÉTTIR Morgunblaðið/Halldór Davíð Þór í Rocky Horror Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um Kvennalistann Imynd flokksins veik í kosningunum Ráðinn for- stöðumaður Huddinge- barnaspítalans BIRGIR Jakobsson barnalæknir hefur verið ráðinn forstöðumaður barnaspítala Huddinge-háskóla- sjúkrahússins í Stokkhólmi, sem er eitt af tveimur sjúkrahúsum Ka- rolinsku-stof- nunarinnar, með um 300 manna starfslið. Birgir fæddist 21. mars 1948. Hann er sonur Ragnheiðar Jóns- dóttur, fyrrverandi fulltrúa, og Jak- obs Tryggvasonar, skrifstofustjóra hjá Pósti og síma. Hann tók stúd- entspróf frá MR 1968 og læknapróf frá Háskóla íslands 1975. Að afloknu kandídatsári hélt hann til framhaldsnáms í barnalækning- um í Eskilstuna í Svíþjóð, síðan að Karolinsku-stofnuninni í Stokk- hólmi, þar sem viðfangsefni hans voru nýmasjúkdómar barna, og varði doktorsritgerð við stofnunina árið 1988. Birgir hefur sinnt kennslu við Karolinsku-stofunina undanfarin sjö ár með læknisstörfum. Birgir er kvæntur Ástu Arnþórs- dóttur hjúkrunarfræðingi, sem nú starfar sem framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Islandia AB í Stokkhólmi. Þau eiga þijú börn. Birgir lét mjög að sér kveða í íþrótt- um á námsárum sínum og var lengi landsliðsmaður í körfubolta. ENDANLEGUR hópur aðstand- enda söngleiksins Rocky Horror sem frumsýndur verður 9. ágúst í Héðinshúsi. Nýlega var gengið frá ráðningu Davíðs Þórs Jóns- sonar í hlutverk sögumanns í söngleiknum og eru æfingar í fullum gangi. Upptökum á plötu með lögum úr söngleiknum lauk í gær og áætlað er að hún komi út í lok júlí. Með aðalhlutverk fara Helgi Björnsson, Björn Jörundur Frið- björnsson, Valgerður Guðnadótt- ir og Hilmir Snær Guðnason, en leikstjóri er Baltasar Kormákur. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir í viðtaii í nýjasta hefti tímaritsins Mannlífs að ímynd Kvennalistans hafi verið mjög veik í síðustu kosningum. Hún vísar jafnframt á bug ásökun- um um að hún hafi átt þátt í fylgis- tapi flokksins með því að mæta á fundum hjá öðrum flokkum. Skýringa að leita hjá þingkonum og frambjóðendum Fyrir skömmu skrifaði Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvenna- listans, grein í Veru, þar sem hún gagnrýndi Ingibjörgu Sólrúnu fyr- ir að mæta á fundum hjá Þjóðvaka og Alþýðuflokknum fyrir kosning- ar og sagði þátttöku Kvennalist- ans í framboði Reykjavíkurlistans ekki hafa skilað flokknum fylgi í þingkosningum. „Það eru auðvitað margar ástæður fyrir fylgistapi Kvenna- listans. Þeirra er m.a. að leita í störfum þingkvenna á síðasta kjör- tímabili og framboðslistum hans nú,“ segir Ingibjörg Sólrún í við- talinu. „ímynd Kvennalistans var ein- faldlega mjög veik í síðustu kosn- ingum. Það er hins vegar fásinna að ásaka mig fyrir að hafa mætt á fundi hjá helztu andstæðingun- um, eins og það var kallað, en gleyma því að ég hélt ræður á tveimur baráttufundum hjá Kvennalistanum og gerði allt sem ég var beðin um.“ Vorþing Kvennalistans eins og jarðarför Ingibjörg Sólrún segir afstöðu kvennalistakvenna til Reykjavík- urlistans vera með ýmsum hætti. „Eg varð engu að síður mjög hissa og vonsvikin í fyrrasumar þegar ég mætti á vorþing Kvennalistans skömmu eftir kosningar og leið eins og ég væri að mæta í jarðar- för. Það var eins og konur mættu ekki gleðjast yfír þessum árangri sem ég get ekki litið á öðruvísi en sem sigur kvenna. Hins vegar var allt annað uppi á teningnum á síðasta vorþingi eftir stærsta tap okkar frá upp- hafi. Þá voru allar kátar og glaðar og virtust eflast við mótlætið. Það er út af fyrir sig ágætt en það er alvarlegt mál ef þörf kvenna fyrir píslarvætti er svo sterk að við leyf- um okkur ekki að gleðjast yfir því að fá völd og geta haft áhrif. Við fórum í pólitík til þess að komast í aðstöðu til að breyta og við eigum að læra og eflast af sigrum, ekki síður en ósigrum." Birgir Jakobsson Bestbúni smábíllinn! to Gö^>o0 Clio RT, aukabúnaður á mynd álfelgur REYNSLUAKTU RENAULT, ÞAÐ ER VEL ÞESS VIRÐI Vökvastýri Öryggisbitar í hurðum Öryggisbeltastrekkjari • Fjarstýrðar samlæsingar • Fjarstýrt útvarp • Niðurfellanleg aftursæti • Litað gler • Velúr innrétting • Þurrka að aftan ÁRMÚLA 13 SlMI 568 1200 • Rafdrifnar rúður • Rafdrifnir speglar * Snúningshraðamælir • Samlitir stuðarar • Hliðarlistar • Olíuhæðarmælir RENAULT RENNUR UT!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.