Morgunblaðið - 06.07.1995, Síða 29
MplKíUNBIAUIÐ
MINNINGAR
: FIMMTUDAqUR 6. JÚLÍ 1995 29
SIGMUNDURÞ.
G UÐBJARTSSON
+ SIGMUNDUR
Þórður Guð-
bjartsson fæddist í
Hafnarfirði 10. ág-
úst 1908. Hann lést
í Landspítalanum
29. júní síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðbjartur Guð-
bjartsson, vélstjóri,
f. 10. júní 1873, d.
1954, frá Læk í
Dýrafirði, og Hall-
dóra Sigmundsdótt-
ir, frá Hrauni á In-
gjaldssandi, f. 25.
júlí 1877, d. 1939.
Sigmundur var sjö-
undi í röð tólf systkina en ein-
ungis sjö þeirra komust á legg:
Sigurður, bryti, f. 1900, d. 1959,
Páll, vélstjóri, f. 1904, d. 1994,
Halldóra f. 1906, d. 1964, Marsi-
bil f. 1911, Sigþrúður f. 1913 og
Guðni, vélstjóri, f. 1916.
Hinn 15. desember 1951 kvænt-
ist Sigmundur Magneu Kristj-
ánsdóttur, f. 3. mars 1907, d. 31.
jan. 1992. Þau voru barnlaus.
Sigmundur stundaði gagnfræða-
skólanám á Akureyri og vél-
smíðanám í Héðni og í Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann lauk
vélstjóraprófi 1930. Sigmundur
var m.a. vélstjóri á Hermóði
(eldra) og varðskipinu Þór (II).
Frá 1932 var hann vélstjóri á
e.s. Heklu og var í áhöfn skips-
ins þegar þvi var sökkt 1941.
Hann var vélstjóri á dráttarbátn-
um Magna og járnsmiður í Hafn-
arsmiðjunni í Reykjavík. Frá
1949 var hann vélstjóri á dýpk-
unarskipinu Gretti þar til hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir
1973.
Sigmundur Guðbjartsson
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
reglunni á íslandi, þegar
hann gekk í stúkuna
Hallveigu nr. 3 hinn 24.
mars 1952. Seinnagerð-
ist hann stofnfélagi í
Oddfellowstúkunni Þor-
geiri nr. 11 og naut hann
þess félagsskapar. Á
sjómannadaginn árið
1973 var Sigmundur
sæmdur heiðursorðu
Sjómannadagsráðs sem
hann mat mikils.
Löng ævi og mikil
lífsreynsla gerði Sig-
mund Guðbjartsson að
miklum mannþekkjara.
Hann var ekki allra, en eignaðist
marga vini í gegnum áratuga sjó-
mennsku og félagsstörf. Hann var
vinur vina sinna og sannur höfðingi.
Kunni að gleðjast á góðum stundum,
var ætíð hrókur alls fagnaðar og á
alla lund veitandi góður. Ekki síst var
hann veitandi í frásögn og viðræðu.
Það var auðvelt að gleyma sér í spjalli
við hann því hann var víðförull, marg-
fróður og stálminnungur. Gamansem-
in fylgdi ávallt með í ríkum mæli en
aldrei á kostnað annarra. Mestu lífs-
reynslu sína vildi hann þó ekki ræða,
hvorki opinberlega né við sína nán-
ustu, fyrr en nú rétt fyrir andlát sitt,
en það var þegar hann bjargaðist
ásamt fimm skipsfélögum sínum, eft-
ir að hafa verið skipreika á íleka í
tíu og hálfan sólarhring og taldir af,
þegar þýskur kafbátur sökkti flutn-
ingaskipinu Heklu 29. júní 1941.
Afstaða Sigmundar til lífsins var
einstök og til eftirbreytni. Hann var
þakklátur Guði sínum fyrir góða
heilsu, sem hann naut þar til fyrir
fáum vikum, og með fullri andlegri
reisn fól hann skaparanum sál sína
og þjáðan líkama, ævarandi þakklátur
fyrir lífsbjörgina fyrir nákvæmlega
fimmtíu og fjórum árum.
Eftirlifandi systkinum Sigmundar
votta ég innilega samúð í sorg þeirra.
Við hjónin og bömin okkar söknum
hans sárt en erum þakklát fyrir að
hafa átt samleið með öðlingi og mun-
um ávallt heiðra minningu hans.
Ásthildur Sigurðardóttir.
ERFIDRYKKJUR
sími620200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðbord, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
ísíma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
HÍTEl LÖFTLEIBIR
í ÞAU tuttugu og fímm ár sem ég
hef notið viðkynningar við Sigmund
Guðbjartsson, nafna mannsins míns
og stórfrænda, hefur hann verið mér
ímynd lífsgleðinnar. Mér og mínum
var hann svo sannarlega stórfrændi,
stór í öllu en stærst var þó hjartarým-
ið.
Mummi og Magnea eiginkona
hans, voru þau fyrstu sem ég kynnt-
ist af tengdafólki mínu og frá fyrstu
heimsókn á Hrefnugötu 3 einkennd-
ust móttökur þar af elskusemi og
glaðværð, ásamt einlægum áhuga á
velferð okkar hjónanna og bama okk-
ar. Mummi og Magnea voru einstak-
lega samhent hjón og líf þeirra ekki
hlaup eftir vindi. Bæði náðu háum
aldri við góða heilsu og þau nutu lífs-
ins saman. Gegnum árin ferðuðust
þau viða, innanlands og utan, seinni
árin mest á suðlægar slóðir. Þau voru
sannir heimsborgarar. Það var Sig-
mundi mikið áfall og missir þegar
Magnea andaðist fyrir rúmum þremur
árum eftir stutta sjúkralegu. Hann
hélt einn heimili áfram á Hrefnugöt-
unni þar til í janúar síðastliðnum er
hann fluttist á dvalarheimili aldraðra
sjómanna að Hrafnistu í Reykjavík.
Sigmundi og Magneu varð ekki
barna auðið en bamelsku sína færðu
þau yfir á börn vina sinna og vanda-
manna. Sérstöku ástfóstri tók Sig-
mundur við systurson sinn og nafna,
en heimili systur hans og mágs,
tengdaforeldra minna, var að hluta
heimili hans í áratug áður en hann
kvæntist. Með nöfnunum þróaðist
náin vinátta og elska og eftir lát
Magneu studdist Sigmundur mjög við
nafna sinn. Báðir nutu þeir einlæg-
lega saman ferðar til Kaupmanna-
hafnar á afmæli hins eldra fyrir
tveimur árum.
Ungur maður stundaði Sigmundur
skíðaíþróttina í KR og riíjaði oft upp
góðar minningar frá þeim tíma. Bolta-
leikur í sjónvarpi átti hug hans allan
og þegar þannig stóð á fékk ekkert
tmflað. Þangað til fyrir skömmu
stundaði hann reglulega sund í Sund-
höll Reykjavíkur. Sundið taldi hann
allra meira bót og þakkaði þvi m.a.
góða heilsu.
Sigmundur varð félagi í Oddfellow-
UM
PITT
Verðbréfasjódir Skandia bjóðaJjölbreyttar
leiðir til að ávaxta sparifé þitt
Werðbréfasjóðir Skandia eru góður kostur
fyrir þá sem vilja spara markvisst og
fjárfesta til lengri eða skemmri tíma.
Þegar þú fjárfestir í verðbréfasjóðum
Skandia geturþú verið viss um að alltaf er
leitast við að ná hœstu ávöxtun
sem mögulegt er, án þess að mikil
áhœtta sé tekin með penitigana jji««.
Á árinu 1994 nam munávaxtun sjóða Skandia
alltað 11.1%.
Skandia býður upp á 5 sjóði sem hver
um sig er sniðinn að mismunandi
þörfum Jjárresta: Kjarabréf Tekjubréf,
Markbréf, Skyndibréf og Fjölþjóðabréf
Ráðgjafar Skandia eru ávallt reiðu-
búnir til að leiðbeina þér við val
á rétta verðbréfasjóðnum fyrirþig.
Tryggðu þér góðar fréttir i blaðinu
á morgun og fjárfestu i verðbréfa-
sjóðum Skandia.
Skandia
Lögg8tverðbréfafyrirtæki«Laugavegi170«Simi56197 00
Fjárfestingarfélagið Skandia hf. er alfarið i eigu Skandia
nminw—■■■■mmnmnmmro niimmimHmnwmmnm«imwnH—wnm«-i