Morgunblaðið - 06.07.1995, Page 48
Afl þogar þörf krofurl
RISC System / 6000
_____ CJ^^NÝHERJI
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Skagstrendingur hf. lækkar skuldir
Arnar HU seld-
ur til Grænlands
SKAGSTRENDINGUR HF. hefur
selt flaggskip sitt Amar HU 1 til
Royal Greenland A/S á Grænlandi.
Kaupsamningur þessa efnis var
undirritaður 4. júlí en nýir eigendur
fá skipið afhent í lok október.
Söluverð Arnars fékkst ekki
uppgefið en að sögn Óskars Þórð-
arsonar framkvæmdastjóra Skag-
strendings hf. er það mjög vel
ásættanlegt og reyndar svo gott
að kostnaðarverð skipsins mun
nást til baka að teknu tilliti til
afskrifta.
Áætlað er að kaupa minna og
ódýrara skip í stað Arnars og
lækka með því skuldir félagsins
um 500 milljónir króna. Era stjóm-
endur fyrirtækisins að leita að öðru
frystiskipi bæði innanlands og
utan.
Mikíð aflaskip
Amar HU 1 kom nýr til landsins
í desember 1992 og hefur síðan
náð góðum árangri í veiðum og
ekki síður í sköþun aflaverðmæta.
J>rátt fyrir mikið aflaverðmæti er
ekki rekstrargrandvöllur fýrir tog-
arann, að mati ráðamanna Skag-
strendings, miðað við þá möguleika
sem nú eru á íslandsmiðum.
Með því að selja Arnar úr landi
heldur fyrirtækið kvóta sínum
óskertum og fær svigrúm til að
treysta kvótastöðuna enn frekar.
Til að fara út í frekari fullvinnslu
afla um borð þyrfti að fjölga í
áhöfn en að mati eigenda skipsins
var slíkt ekki talið borga sig vegna
kjarasamninga.
Nýir eigendur áætla hins vegar
að fjölga um borð úr 26 í 38 starfs-
menn og með því móti geta þeir
fullunnið fiskinn um borð í neyt-
endapakkningar sem gefur þeim
mun meiri tekjur af aflanum.
„Þessi sala mun gjörbreyta
rekstrar- og greiðslustöðu fyrir-
tækisins. Afskriftir og vaxtakostn-
aður munu lækka um 80 milljónir
á ári þannig að við horfum bjart-
sýnir fram á veginn og teljum að
við séum með þessum erfiðu og
sársaukafullu ákvörðunum að
tryggja grundvöll fyrirtækisins til
sóknar á komandi áram,“ sagði
Óskar Þórðarson að lokum.
Sexföldun í út-
flutningi á vikri
UTFLUTNINGUR á vikri sexfald-
aðist í fyrra frá því sem var árið
áður og fór úr rúmum 36 þúsund
tonnum í rúm 230 þúsund tonn.
Það sem af er þessu ári hefur
ginnig verið um töluverða aukningu
að ræða frá því á sama tíma í fyrra.
Á þessu ári hafa verið flutt út um
130 þúsund tonn, en í fyrra nam
útflutningur á sama tíma tæpum
sjötíu þúsund tonnum.
í greinargerð sem starfshópur
um vinnslu og nýtingu vikurs gaf
út 29. mars síðastliðinn kemur
fram að stefnt sé að því að hækka
námagjöld um 50 prósent og veija
helmingi hækkunarinnar til rann-
sókna og vöruþróunar, með það að
markmiði að koma á fót fullvinnslu-
iðnaði með vikur hér á landi. Þá
verða engin frekari leyfí til vinnslu
á vikri veitt í bili, til að ekki gangi
um of á auðlindina.
Ómarkviss námavinnsla
í sömu skýrslu er það gagnrýnt
að námavinnsluleyfi séu illa skil-
greind, vinnsla í námum ómarkviss
og nýting vikursins ekki nægilega
góð og leggur starfshópurinn ríka
áherslu á úrbætur í þessum efnum.
„Við munum reyna að bæta úr
þessum málum sem fyrst. Þau
mega ekki bíða mikið lengur,“ seg-
ir Sveinn Þorgrímsson, formaður
starfshópsins.
■ Vaxandi vikuriðnaður/24
Islendmgur
í fangelsi á
Sri Lanka
ÍSLENSKUR ríkisborgari, bú-
settur í Svíþjóð, situr í fangelsi
á Sri Lanka fyrir að hafa vald-
ið eignatjóni þar í landi.
Maðurinn var handtekinn í
borginni Trincomalee, sem er
á norðaustur Sri Lanka, eftir
að hafa unnið skemmdir á
gistiheimili.
Ræðismaður íslendinga á
Sri Lanka, sem hefur aðsetur
í Colombo, vinnur nú að því
að fá manninn lausan úr haldi
gegn tryggingu. Að sögn tals-
manns ræðismannsins er gert
ráð fyrir því að það takist inn-
an sólarhrings.
Fjögurra ferðamanna saknað við Drangajökul
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
ÓLAFUR Helgi Kjartansson sýslumaður á ísafirði kvaddi Magnús Helgason, formann Björgun-
arsveitarinnar Tinda í Hnífsdal og hans menn áður en þeir héldu með Fagranesinu til leitar.
Hætta varð leit
vegna illviðris
ÁTTATIU björgunarsveitarmenn
tóku þátt í leit að fjórurn erlendum
ferðamönnum á og við Drangajök-
ul í gær. Hætta varð leit seint í
gærkvöldi vegna þess að þá hafði
veðrið versnað enn.
Tveir ferðamannanna, karl og
kona af spænsku þjóðerni, fóra að
Skjaldfannardal á þriðjudagskvöld
og hugðust ganga á jökulinn. Þá
er leitað tveggja Frakka sem fóru
með Fagranesinu að Bæjum í
fyrradag. Aftakaveður var á þessu
svæði, 10-12 vindstig af norð-
austri og bylur til fjalla. Talið er
að fólkið sé illa búið.
Fjöldi leitarmanna
og tækja
Björgunarsveitir frá Hólmavík,
Reykhólum og norðanverðum
Vestfjörðum taka þátt í leitinni.
Fagranesið frá ísafirði fór með um
70 björgunarsveitarmenn upp úr
kl. 18 í gær. Um borð voru vélsleð-
• w/W
Bolungarvik
fjörðuV
V' •
Súðavíki
❖
DRANGA
JÖKULL
Leit hófst að erlendum
ferðamönnum í ná-
grenni Drangajökuls í
gær. 80 björgunarsveitar-
menn leita að fólkinu.
Hólijavlk
0
Reykhólar*
20 km-*
ar og leitarhundar. Þá voru spor-
hundar væntanlegir frá Reykjavík.
Frá Hólmavík fóru átta björgun-
arsveitarmenn með fimm vélsleða
og einn snjóbíl, en níu björgunar-
sveitarmenn fóru til leitar frá
Reykhólum. Tveir snjóbílar voru
sendir frá ísafirði og auk þess
nokkrar björgunarsveitabifreiðar
akandi með Ísaíjarðardjúpi að
Skjaldfannardal. Björgunarbátur-
inn Daníel Sigmundsson frá
ísafirði var á leið á vettvang í
gærkvöldi með leitarmenn og
hunda, en ferðin sóttist seint.
Lögreglan á Blönduósi leitaði
upplýsinga í gær um göngufólk
og útlendinga á reiðhjólum, sér-
staklega fólk á leið til eða frá
Hveravöllum. Flestir vora komnir
á áfangastað en aðrir voru stöðv-
aðir á Hveravöllum.
Veðurstofan spáði hvassviðri á
Vestfjörðum og vestanverðu land-
inu fram eftir morgni, 7-8 vindstig-
um og upp í 9 vindstig á heiðunum
og að veðrið gengi ekki niður fyrr
en upp úr hádegi. Óvenjudjúp
lægð, 979 millibör, er skammt
suður af landinu og veldur hún
hvassviðrinu.
Framleiðsla Vestfirsks skelfisks hf. á Flateyri kominn á skrið
Um 400 milljóna kr. samn-
ingur við Bandaríkj amenn
VESTFIRSKUR skelfiskur hf. á
Flateyri er nú að hefja vinnslu á
kúskel upp í samninga sem gerðir
hafa verið um sölu á afurðum fyr-
irtækisins á Bandaríkjamarkað.
Að sögn Kristjáns Erlingssonar,
framkvæmdastjóra fyrirtækisins,
er hér um að ræða samning til
þriggja ára um sölu á 907 tonnum
af kúskel á ári til Bandaríkjanna.
„Þetta er samningur upp á um 130
milljónir króna á ári og heildar-
verðmæti hans því í kringum 400
milljónir króna.“
Huga að fullvinnslu
Kristján segir að hér sé ein-
göngu um að ræða iðnaðarhráefni
og sé kúskelin notuð í niðursoðnar
súpur í þessu tilfelli. Hins vegar
sé verið að skoða möguleika á
fullvinnslu hér á landi á einhverj-
um hluta af afurðum fyrirtækis-
ins. „Eg held að við getum verið
bjartsýnir á að geta flutt eitthvað
af vinnslunni út til Bandaríkjanna
og fleiri markaða sem fullunna
vöru,“ segir Kristján.
Kristján segir að framleiðslu-
geta fyrirtækisins sé ekki alveg
fullnýtt en þessi samningur spanni
dijúgan hluta hennar. „Við getum
framleitt um 1.200 til 1.500 tonn
af kúskel á ári, en framleiðsluget-
an takmarkast þó aðallega af veið-
unum því við höfum aðeins eitt
skip sem getur veitt skelina í dag.“
Fyrirtækið var sett á laggirnar
í september 1993 og fram til
þessa hefur verið unnið að til-
raunavinnslu og öflun markaða
fyrir afurðir fyrirtækisins en nú
er framleiðslan komin á fullan
skrið.